Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 10. JANUAR 1994 Utlönd Fjarvarmaveita í Færeyjum kominíþrot Allar líkur eru á því að fjar- varmaveita, sem átti m.a. að veita yl til úthverfis í Þórshöfn, höfuð- stað Færeyja, svo og landspítal- ans þar, verði lýst gjaldþrota í vikunni. Varmaveitan skuldar um 730 milljónir íslenskra króna og ekkert varð úr að landskass- inn afskrifaði lán til veitunnar upp á 550 milljónir króna. Varmaveitan var hönnuð meö þaríir 1500 húsa í huga en aldrei voru byggð nema 250 hús í hinu nýja hverfi áður en kreppan fór að segja til sín af alvöru. Bossivillein- kommúnistum Umberto Bossi, leiðtogi Bandalags norðanmanna á Ítalíu, sagði í gær að hreyf- ing sín mundi ýta baráttu- máli sínu um ítalskt sambandsriki til hliðar svo hægt veröi að koma í veg fyr- ir að fyrrum kommúnistar nái völdum. Þessi stefnubreyting gæti haft áhrif á samvinnu íiokka eftir kosningarnar sem verða á ítalíu á næstunni. Norðmennog Færeyingar semja umveiðar Norðmenn og Færeyingar hafa gert með sér fiskveiðisamning fyrir árið 1994 og var m.a. gengið að kröfu Færeyinga um aukinn þorskkvóta i norskri lögsögu. Á móti kemur að þeir afsala sér níu þúsund tonna loðnukvóta sem þeir höfðu áður þar sem Norð- menn og Rússar hafa í hyggju að friða loðnustofninn. Aö sögn Thomasar Arabo, sem fer með sjávarútvegsmál í fær- eysku landstjórninni, eru menn þar á bæ ánægðir með sitt Ritzau, Reuter Skógareldar loga enn á 1 það minnsta 136 stöðum í Suðaustur-Ástralíu: Biðja guð um skjól gegn vítislogunum - hundruð húsa hafa brunnið og tjónið er metið á marga milljarða króna íbúar Sydney hafa flúið borgina unnvörpum síðustu daga. Eldurinn hefur seilst inn i úthverfin og viða má sjá háar reykjarsúlur stíga til himins frá brennandi húsum og gróðri. Tjónið er metið á milljarða króna og hefur ríkis- stjórnin heifið öllum bótum sem orðið hafa fyrir tjóni. Símamynd Reuter „Þessari baráttu er hvergi nærri lokið. Við erum ekki einu sinni nærri því að sjá fyrir endann á hörmungum fólks,“ sagði einn slökkvihðsmanna í Sydney í Ástrahu þegar stund var milli stríða í baráttunni við skógar- eldana nú i morgun. Fólk í Sydney og nágrenni biður nú til guðs um að vinda lægi og væta komi úr lofti þannig að eldurinn láti staðar numið. Ekki er um annað að gera en setja traust sitt á almættið og slökkvihðið þegar hvergi virðist skjól að fá fyrir vítislogunum. I morgun var vitað að eldar loguðu á 136 stöðum og slökkviliðsmenn sögðu að þeir gætu aðeins beðið eftir nýju áhlaupi eyðingaraílanna. Mikið lof hefur verið borið á slökkviliðið fyrir framgöngu þess undanfarna daga. Um 10 þúsund menn hafa bar- ist við eldinn nótt sem nýtan dag í meira en viku. Tjón er nú þegar metið á allt að fimm milljarða króna. Um þrjú hundruð hús eru brunnin til grunna eða stórskemmd eftir eldinn. Enn er aðeins vitað um fjögur dauðsfoll. í nokkrum tilvikum hefur eldurinn komist í bensínstöðvar og úr orðið mikið bálrÞá hafa kirkjur brunnið. Skógareldar verða óvíða í heimin- um verri en á þessum slóðum í Ástr- alíu vegna fjölda gúmmítrjáa sem leka vökva sínum í miklum hitum. Skógurinn verður því mjög eldfimur í hitatíð og hafa menn séð eldtung- urnar stíga í allt að 70 metra hæð. Hitinn er og óskaplegur þegar gúmmíkvoðan brennur. Væta úr lofti bjargar litlu eftir að eldarnir hafa kviknað. Ríkisstjórnin hefur lofaö bótum öll- um þeim sem hafa misst hús sín í eldinum. Fjöldi manna hefur flúið að heiman og tekið sér bólfestu á víðavangi meðan beðið er eftir að Ósköpunumlinni. Reuter Fjölbreytt námskeið Almennt námskeið fyrír ungar stúlkur og konur á öllum aldri Snyrting - Hárgreiðsla - Fatastíll - Framkoma - Borðsiðir og gestaboð Siðvenjur - Ganga - Litgreining - Mannleg samskipti og sviðsframkoma. MÓDELNÁMSKEIÐ Dömur - herrar 1W I. Ganga M m 2. Snúningar 3. Sviðsframkoma 4. Hárgreiðsla 5. Andlitsförðun Prófverkefni og tískusýning í lokin. mrwr Ljósmyndun MMm I • Förðun 2. Hárgreiðsla 3. Myndataka Gott tækifæri að fá góðar myndir í möppu. Viðurkenningarskjöl Sjálfsvörn Undanfarnar vikur hafa alvarlegir atburðir gerst. Hvað á ung stúlka að gera ef á hana er ráðist??? Við leiðbeinum ungum stúlkum að verja sig gegn ofbeldi. Innritun og upplýsingar í síma 643340 kl. 16-19. Unnur Arngrímsdóttir Leiðtogafundur NATO hefst í dag: Clinton varar við öfgasinnum í austri Bill Clinton Bandaríkjaforseti und- irstrikaði skuldbindingar stjórn- valda í Washington um að tryggja öryggishagsmuni Evrópulanda í ræðu sem hann hélt í Brussel í gær í fyrstu Evrópuheimsókn sinni frá því hann tók við forsetaembættinu. Þá bauð hann löndum Austur-Evr- ópu nánari samvinnu við Atlants- hafsbandalagið en útilokaði aðild þeirra að því í nánustu framtíð. Clinton er í Brussel þar sem hann situr leiðtogafund Atlantshafsbanda- lagsins sem hefst í dag. Samvinnan viö fyrrum kommúnistaríkin í austri verður eitt aðalmál fundarins, hins fyrsta í tvö ár, og hefur áætlunin hlotið nafnið „friðarsamvinna". Austur-Evrópumenn eru þó lítt hrifnir af þessari lausn þar sem þeir vildu margir hverjir fá aðild að NATO. í ræðu sinni í ráðhúsinu í Brussel varaði Clinton við óumburðarlyndi og öfgastefnum í fyrrum Sovétblokk- inni og var litið á það sem lítt dul- búna árás á rússneska þjóðernisöfga- manninn Vladimír Zhírínovskí sem fékk mikið fylgi í kosningunum í Rússlandi í desember. Annað helsta umræðuefm leið- Bill Clinton er í Brussel á leiðtoga- fundi NATO. Simamynd Reuter togafundar NATO verður styrjöldin í Bosníu. Frakkar vilja að gripið verði til harðari aðgerða, þar á með- al að Serbum verði á ný hótað loftá- rásum láti þeir ekki af sprengjuárás- um sínum á Sarajevo. Bandarísk stjómvöld em á hinn bóginn treg til að blanda sér meira í átökin. Warren Christopher, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði að NATO væri að undirbúa loftárásir á Serba við Sarajevo, ef aðstæður köll- uðu á slíkt. Háttsettur bandarískur embættismaður sagði þó að loftárás- ir væru ekki yfirvofandi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.