Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Blaðsíða 13
13 MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1994 Frétiir B Alþingiskosningaránæstaári: Ossur Skarphéðinsson f framboð á VestuHandi? - enginn veit sína ævina fyrr en öll er, segir ráðherrann „Þaö er ekkert sem segir að ég verði endilega í þriðja sætinu í Reykjavík- urkjördæmi ef ég byði mig fram þar. Að sjálfsögðu myndi ég djöflast í prófkjörinu og reyna að ná sem bestu sæti þar. Ég hef heyrt orðróm um það í þing- inu að ég ætli að bjóða mig fram annar staðar en í Reykjavík og hef ég heyrt nefnt bæði Vesturland og Norðurland vestra i því sambandi. Ég er rígfastur í Reykjavik en auðvit- að veit enginn sína ævina fyrr en öll er,“ sagði Össur Skarphéðinsson umhverfismálaráðherra í samtali við DV. Þrálátur orðrómur hefur verið um að Össur bjóði sig fram í Vestur- landskjördæmi fyrir Alþýðuflokk- inn, þar sem Alþýðuflokkurinn hefur komið illa út í skoðanakönnunum og þriðja sætið í Reykjavík, sem hann hefur skipað, sé ekki öruggt. Sumir telja að Össur ætti meiri möguleika á þingsæti sem fyrsti maður á hsta Vesturlandskjördæmis. Sterkari í Reykjavík „Menn hafa verið að tala um þær hugmyndir að Össur Skarphéðins- son myndi bjóða si§ fram í prófkjöri á Vesturlandi en ég held að það sé allt of snemmt að spá í hvað verður. Ég sjálfur er varla farinn að gera upp hug minn í þessu efni hvort ég fari í slaginn," sagöi Finnur Torfi Stef- ánsson tónlistarmaður í samtali við DV. „Það er nú ágætis maður fyrir í kjördæminu, Gísh Einarsson, sem kom í staðinn fyrir Eið Guðnason þegar hann hætti. En ég held að það sé meðal annars ástæðan fyrir þess- um vangaveltum að Gísh sé kannski ekki búinn að sanna sig. Persónulega held ég að Össur standi miklu sterk- ar að vígi í þriðja sætinu í Reykjavík. Það má ganga illa hjá krötum í Reykjavík ef þeir ná ekki þremur mönnum þar. Össur hefur ráðherrametnað og ef hann heldur því sæti í tvennar kosn- ingar stendur hann miklu betur að vígi. Auk þess er ekkert sjálfgefið að Össur næði fyrsta sæti í prófkjöri á Vesturlandi, en Alþýðuflokkurinn hefur jafnan átt eitt tryggt sæti á Vesturlandi," sagði Finnur. -is Vetrartilboð Málarans! z' afsláttur af Öllum gólfteppum, dreglum og stökum teppum. af öllum öðrum vörum. Opið til 16 laugardag Skeifan 8, sími 813500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.