Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Page 32
40
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1994
Fréttir__________________
Sjómannaskólinn:
Lóðin f ullbúin
á50ára
vígsluafmæli
„Það er loksins vilji alþingis-
manna og Qárveitingavaldsins að
lóð Sjómannaskólans verði nú
lokið eftir 50 ár,“ segir Guðjón
Áraxann Eyjólfsson, skólastjóri
Stýrimannaskólans, en 13. októb-
er 1995 eru liðin 50 ár frá vígslu
skólans
„Við báðum um það í bréfi til
fjárveitinganefadar að þaö yrði
stefnt að þvi að lóðinni yrði lokið
þá. Það fengust 16,5 milljónir í
lóðina og 5 milljónir til viðhalds
og ennfremur til að flytja smíöa-
aðstöðu Vélskólans sem er í al-
gjörlega óviðunandi húsnæði. í
rigningunum í nóvember stóðu
nemendur hér i stigvélum," segir
Guðjón.
Samkvæmt úttekt sem gerð var
í sumar á Sjómannaskólahúsinu
er áætlað aö þörf sé á 200 milljón-
um til viögerðar hússins. „Við
teijum að þetta sé byijunin á
þessu. Viö erum mjög þakklátir
fyrir þennan skiining sem okkur
er sýndur á þessum erfiðlei-
katímum,“ tekur Guðjón fram.
-IBS
Ökumenn
íbúöarhverfum
Gerum ávallt ráö fyrir
börnunum
K
yujjREWW.
Smáauglýsingar
Chevrolet Suburban ’83, 8 manna, 6,2
disil með mæli, 400 turbo skipting, no
spin aftan og loftlæsingar framan,
stýristjakkur, 38" radialdekk, upp-
hækkaður, sérskoðaður. Uppl. í s.
91-641420 og eftir kl. 20 í s. 91-44731.
Ford LTD, árg. 1983, sjálfskiptur, vél 6
cyl., 4,9 lítra, skutbíll. Vel með farinn.
Verð 360.000, skipti á dýrari, litlum,
sjálfskiptum. Uppl. í síma 91-653736
eftir kl. 18.
■ Jeppar
Toyota LandCruiser, árg. '85, til sölu,
ekinn 180 þús., ABR-loftlæsingar,
lækkuð drif (4,56), gasdemparar, yfir-
bygging hækkuð um 2", 33" dekk,
þungaskattsmælir. Mjög góður bíll.
Athuga skipti á ódýrari. Upplýsingar
í síma 91-27260.
■ Ukamsrækt
Vöðvabólgumeðferð með rafmagns-
nuddi, svæðanuddi og þörungabökstr-
um. Heilsuráðgjöf, efnaskortsmæling,
svæðanudd og þörungaböð.
Heilsuráðgjafinn, Sigurdís, s. 15770
kl. 13-18, hs. 31815. Kjörgarði, 2. hæð.
DV
Keflavík:
Flaug 27 metra út fyrir
veg en slapp með skrámur
Mikil mildi þykir að ökumaður á
fólksbíl skyldi ekki stórslasast er bíll
hans flaug út af veginum á milh
Sandgerðis og Garðs í gærmorgun.
Ökumaður, sem er talinn hafa verið
undir áhrifum áfengis, mun hafa
verið á ofsahraða því bíllinn sveif 27
metra án þess að koma við jörðu.
Bíllinn lenti utan vegar, ók þar
áfram hundrað metra en tók síðan á
loft og sveif þessa 27 metra áfram.
Að sögn lögreglu er ótrúlegt aö öku-
maðurinn skyldi hafa sloppið með
nokkrar skrámur úr þessari flugferð.
Þá má einnig segja að mikil heppni
hafi veriö að enginn varð fyrir bíln-
um, hvorki gangandi, akandi né
Qjúgandi umferð. Ökumaðurinn var
einn í bílnum og var hann fluttur á
slysadeild en meiðsl hans voru minni
háttar.
Þá voru tveir aðrir ökumenn tekn-
ir fyrir ölvunarakstur en einnig var
talsvert um hraðakstur í umdæmi
Keflavíkurlögreglu. Þá var slökkvi-
liðið í bænum kaUað fjórum sinnum
út vegna sinuelda.
-ELA
Á Reykjalundi er starfrækt öflug endurhæfingarstöð.
DV-mynd S
Starfsemi SÍBS hef ur margf aldast
Starfsemi SÍBS verður sífellt viða-
meiri með árunum. Þegar félagið var
stofnað árið 1938 var markmiðið fyrst
og fremst aö þjónusta berklasjúkl-
inga. Síðar gengu Samtök gegn astma
og ofnæmi og Landssamtök hjarta-
sjúkhnga í SIBS og starfsemin hefur
margfaldast.
Sjúkraþjálfun tók til starfa 1963,
iðjuþjálfun 1974, heilsuþjálfunar-
deild var stofnuð 1976 og frá árinu
1980 hafa þróast ýmis sérsvið endur-
hæfingar. Á Reykjalundi eru nú 170
rúm og innlagnir voru 1250 á árinu
1993.
Þrátt fyrir mikla aukningu á af-
köstum Reykjalundar sem endur-
hæfingarstofnunar hefur biðlistinn
verið óbreyttur síðastliðin ár eða um
500 manns og er það að miklu leyti
því að þakka að meðaldvalartími
hefur styst mikiö.
-ÍS
Vinnsla igulkerahrogna hófst hjá unnin til útflutnings á Japans-
Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar í des- markað.
ember og eru þrír bátar í viðskipt- Helstu mið hér eru meðfram
um við HÓ, Norma Ólafsfirði, ströndinni í Eyjafirði vestanverð-
Bylgja frá Dalvík og Kópur frá Ár- um og umhverfis Hrísey.
skógsströnd. Helgi Guðmundsson, fram-
Hrognafyliing hefur verið 2-10% kvæmdastjóri HÓ, segir að þetta sé
en hún er mismunandi eftir árs- tilraun hjá þeim sem útheimti litla
tíma. Getur best orðiö 30%. Verð fjárfestingu. Þeir myndu sjá hvem-
semsjómennfáfereftirhrognafyll- ig gengi og ekki sakaöi að reyna
ingunni. Hrognin eru hálfunnin eitthvaönýtt
Reykjavík:
93 millíónir í útivistarsvæði
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborg-
ar fyrir ,1994 gerir ráð fyrir að veittar
verði 93 milljónir króna í ýmsar
framkvæmdir viðs vegar um borgina
að tillögu umhverfismálaráös borg-
arinnar. Tæpar sjö mifljónir verða
veittar í framkvæmdir við leiksvæð-
ið við Gullengi í Grafarvogi, sex
mifijónir í lokaffamkvæmdir á Am-
arhóli, rúmar fimm mifljónir í nýjan
Lýðveldisgarð við hhðina á Þjóðleik-
húsinu við Hverfisgötu og fimm
milljónir í stækkun á Húsdýragarð-
inum auk smærri verkefni við tjald-
stæðin í Laugardal og leiksvæði víðs
vegar um borgina. Fyrirhugaðar eru
framkvæmdir við útivistarsvæði og
leiksvæði á 40 stöðum í borginni á
þessu ári.
-GHS
HöfníHomafiröi:
Vildi tíkina en
beit eigandann
Stór blendingshundur réðst á
mann á Höfn í Hornafirði og beit
hann í höndina þannig að sá á. Þurfti
maðurinn að leita læknis vegna þess
og fékk stifkrampasprautu. Aðdrag-
andi málsins er sá að maðurinn á tík
á lóðaríi og vildi hjyidurinn eðlilega
nálgast hana, ef ekki með góðu þá
illu. Óð hann í garð mannsins með
miklum látum og reif niður þvott
sem hékk á snúrum.
Eigandi tíkarinnar reyndi að ná til
hundsins og ætlaði að binda hann
þar til eigendur myndu sækja hann
meö fyrrgreindum afleiðingum.
Hundurinn slapp burt en eigandi
hans fann hann á undan yfirvaldinu.
Hundurinn var þvi ekki handsamað-
ur að þessu sinni og sleppur líklegast
með áminningu eiganda síns. Ekkert
varð hins vegar úr ástarfundunum í
þetta sinn. -ELA
Hagræðingarsjóður:
Aflaheimildum úthlutað í dag
Aflaheimildum Hagræðingarsjóðs
verður úthlutað í byijun þessarar
viku og er búist við að bréf þess efnis
verði send út strax í dag. Tæplega 800
bátar fá úthlutað aflaheimildum en
Hagræðingarsjóður hefur í heildina
um tæplega 12 þúsund þorskígildis-
tonn til að úthluta. DV hefur heimild-
ir fyrir því aö stór hluti aflaheimilH-
anna fari á Vestfirði og að Guðbjörg
ÍS fai mest. Indriði Kristinsson hjá
Fiskistofu segir að útgerðarmenn sem
hafi orðið fyrir mestri skerðingu fái
mestarheimfidir. -GHS