Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994 5 Fréttir Davíð Oddsson og Steingrímur Hermannsson hafa átt fund um seðlabankastjóramálið: Steingrímur útilokar ekki bankastjórastólinn - enn ekki frágengið hvort stóll Jóns Sigurðssonar verður geymdur í 4 ár Steingrímur Hermannsson, formaöur Framsóknarflokksins, og Davíð Oddsson forsætisráðherra áttu með sér fund fyrir skömmu um málefni Seðlabankans. „Við vorum ekki að ræöa um mína persónu í því sambandi heldur um Seðlabankann almennt. Ég vildi heyra hans hugmyndir í sambandi við Seðlabankann," sagði Steingrimur. DV-mynd Brynjar Gauti Sighvatur Björgvinsson viöskipta- ráðherra tilkynnti á dögunum aö hann hefði snúið við blaðinu og ákveðið að bankastjórar Seðlabank- ans yrðy áfram þrír en ekki einn eins og hann hafði áður talað um. Þá um leið magnaðist sá orðrómur að Stein- grímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, fengi stól Tómasar Ámasonar seðlabanka- stjóra, en hann losnaði um áramótin. Þá áttu þeir Steingrímur og Davíð Oddsson forsætisráðherra með sér fund fyrir skömmu um málefni Seðlabankans. „Við vomm ekki að ræða um mína persónu í því sambandi heldur um Seðlabankann almennt. Ég vildi heyra hans hugmyndir í sambandi við Seðlabankann," sagði Steingrím- ur Hermannsson í samtali við DV. Hann segir að sér hatl ekki verið boðin staðan formlega en kannaðist við að orðrómurinn um að hann færi í bankann hefði magnast. Hann var þá beðinn að svara já eða nei hvort hann gerðist seðlabankastjóri ef hon- um byðist það formlega. „Ég þyrfti að hugsa málið betur en ég hef gert til að svara svona afdrátt- arlaust. Ég þyrfti að skoða margt áður en sú ákvörðun yrði tekin. Það hefur enginn þingmaður flokksins hvatt mig til að gera þetta. Þvert á móti. Hinu er ekki að neita aö marg- ir persónulegir vinir mínir og kunn- ingjar hvetja mig mjög til að taka þessa stöðu. En á móti hafa margir flokksmenn mínir, af vinstri kantin- um, hringt í mig og segjast ekki mega heyra það nefnt að ég fari í bank- ann,“ sagði Steingrímur. - Tómas Árnason er hættur, staðan er laus og ef þér yrði boðin hún í dag, hverju myndir þá svara? „Mér hefur ekki verið boðið þetta og mitt svar er ennþá nei. Ég hef hugsað mér að halda áfram í stjórn- rnálum," sagði Steingrímur. Jón Sigurðsson seðlabankastjóri lætur af störfum 11. apríl næstkom- andi og gerist bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans. Til er samn- ingur um réttindi starfsmanna við norrænar stofanir. Samkvæmt hon- um getur Jón Sigurðsson látið geyma bankastjórastól Seðlabankans fyrir sig í 4 ár. Það hefur ekki verið geng- ið frá því enn hvort stóllinn verður geymdur eöa ekki. Jóni mun ekki vera það kappsmál að stóllinn verði geymdur. Aftur á móti vilja topparn- ir í Alþýðuflokknum að það verði gert. Til þess að svo verði þarf að koma ósk um það frá Jóni sjálfum. Að sögn Sighvats Björgvinssonar hefur ósk um það ekki borist. Og nú velta menn vöngum yfir því hvaða alþýðuflokksmaður tekur við af Jóni í vor og eru nokkur þekkt nöfn nefnd þar til sögunnar. -S.dór K J A R A K A U P ! Við bjóðum nokkra notaða bíla í eigu Globus hf. á góðu verði og góðum kjörum. Citroén BX 16 TZS '91, grænsans., ek. 36.000. V. 950.000. Crysler Le Baron '88, blásans., ek. 45.000. V. 750.000. Ford Econoline 150 ’91, blár, ek. 41.000. V. 1.980.000. Ford Econoline 350 Clubw. '91, blár, ek. 73.000. V. 2.400.000. Ford Ranger Stx '92, grænn, ek. 34.000. V. 1.750.000. Sýnishorn á söluskrá Citroén BX 19 GTI,'87, ek. 72.000 km, rauður. V. 730.000. Citroén BX 19 GTI, '89, ek. 79.000 km, brúnn. V. 95.000. Dodge Charager, '83, ek. 142.000 km, rauður. V. 190.000. Ford Bronco, '85, ek. 100.000 km, rauður. V. 650.000. Ford Bronco 11,87.000 ek. 83.000 km, grásan. V. 850.000. Ford Econoline 150, '79, rauður. V. 420.000. Ford Econoline 150, '89, blár. V. 1.360.000. Ford Econoline 150, '90, ek. 60.000 km, hvítur. V. 1.450. Ford Mercury Marquies, '85, ek. 92.000 km, blár. V. 420.000. Ford Sierra 1600 CL, '90, ek. 82.000 km, rauður. V. 750.000. Ford Taurus station, '88, ek. 93.000 km, blár. V. 980.000. Mazda 626 1.6 LX, '84, ek. 158.000 km, hvitur. V. 250.000. Mazda 929 LTD, '85, ek. 130.000, hvítur. V. 480.000. Mazda E-2000 sendi B, '88, ek. 126.000, hvítur. V. 500.000. Mercedes Benz 280SE, '81, ek. 178.000, silfgr. V. 1.150.000. MMC Galant GLSI, '89, ek. 63.000, vinr. V. 950.000. Nissan Kingcab V-6, '92, ek. 16.000. V. 1.650.000. Nissan Sunny 1.5,'86, ek. 132.000, rauður. V. 300.000. Saab 900, '86, ek. 93.000, rauður. V. 550.000. Saab 900, '88, ek. 108.000, reyklit. V. 750.000. Saab 900i, '85, ek. 122.000, silfgr. V. 500.000. Saab 9000i, '86, ek. 98.000, rauður. V. 790:000. Saab 9000i, '87, ek. 146.000, Iblár. V. 790.000. Toyota Corolla twin cam, '84, ek. 103.000, silfgr. V. 400.000. Toyota Corolla XL sedan, '91, ek. 57.000, grænn. V. 820.000. Toyota Hi-Lux ytirb., '80, ek. 144.000, gulur. V. 380.000. VW Caravella 4x4 syncro, '86, ek. 174.000, organge. V. 650.000. BMW 316i,’89, ek. 44.000, rauður. V. 950.000. BMW 318i, '86, ek. 97.000, blár. V. 550.000. BMW 520i, '87, ek. 120.000, hvítur. V. 750.000 Ford Ranger Stx ’92, vinr., ek. 30.000. V. 1.750.000. Bílarnir eru til sýnis og sölu hjá: Opið kl. 9.00-18.30 laugardaga frá kl. 10.30-17.00 sími 674949 Lada 1500 station '91, beige, ek. 47.000. V. 370.000. MMC L-200 double cab '91, rauður, ek. 38.000. V. 1480.000. Renault 19 Gts 5 d. ’90, brúnn, ek. 45.000. v. 730.000. Ford Explorer ’91, vinr/grár, ek. 32.000. V. 2.800.000. G/obusp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.