Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Síða 14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91 )63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Samtryggingin blífur Eftir því sem skilja má á Sighvati Björgvinssyni við- skiptaráðherra munu stöður tveggja seðlabankastjóra verða auglýstar á næstunni. Einn situr þar fyrir og þar með verður fjöldi bankastjóra óbreyttur frá því sem ver- ið hefur. Þegar fyrir lá að Jón Sigurðsson hyrfi úr bankanum til annarra starfa og Tómas Ámason hætti vegna aldurs nú um áramótin vaknaði sú hugmynd að fækka banka- stjórum og gerðist Sighvatur Björgvinsson talsmaður þess. Hann lagði meira að segja fram frumvarp í þinginu um frestun auglýsingar um þær stöður sem hafa losnað. . Rök Sighvats voru þau að Seðlabankinn kæmist af án þriggja bankastjóra. Með því næðist fram sparnaður og hagræðing. Þetta frumvarp fékk ekki afgreiðslu og ráðherrann hefur upplýst að hann hafi það eftír formönnum þing- flokkanna að ekki sé stuðningur fyrir fækkun banka- stjóra. Kvennalistakonur munu vera eini þingflokkurinn sem studdi eindregið frumvarp viðskiptaráðherra. Þessar fréttir þurfa sosúm ekki að koma á óvart. Sam- trygging stjórnmálaflokkanna er söm við sig. Þeir vilja eiga aðgang að kjötkötlunum og bitlingunum. Þeir gera sér allir vonir um að koma sínum mönnum að í feitar stöður. Þeir vilja ekki loka dyrunum í Seðlabankanum og rökin fyrir því að skipa þrjá bankastjóra eru þau ein að þar með geta þrír stjómmálaflokkar haft aðgang að hnossinu. Margt er að breytast í þjóðfélaginu. Ríkisfyrirtæki eru seld, bankamir hafa fengið frelsi til vaxtaákvarðana, markaðurinn er ráðandi afl í viðskiptalífinu, fjármagns- starfsemi hefur verið opnuð og einstakiingar jafnt sem fyrirtæki hafa mátt horfast í augu við áhættu í atvinnu- og efnahagslífi. Hvarvetna úti í þjóðlífmu verða menn að treysta á sjálfa sig, hæfileika sína og verðleika. En áfram lifir sú lenska að stjómmálaflokkamir og ríkjandi stjómvöld nota aðstöðu sína blygðunarlaust til framdráttar fyrir skjólstæðinga með rétt flokksskírteini. Almennar leikreglur um stöðuveitingar og mannaráðn- ingar hjá hinu opinbera em fótum troðnar í skjóh stjóm- málaflokka og manna, hvort sem í hlut eiga veðurstofur, lögregluembætti eða ráðuneyti. Dæmin em mýmörg. Þegar öh rök og allar aðstæður mæla með því að seðla- bankastjórum sé fækkað er sú fyrirætlun stöðvuð af pólitíkusum sem vilja áfram geta úthlutað bankastjóra- stöðum sér og sínum mönnum til handa. Seðlabankinn skal áfram vera athvarf fyrir aflóga stjómmálamenn. Stj ómmálaflokkarnir standa vörð um samtrygging- una. Framsókn vfll koma sínum manni að, Alþýðuflokk- urinn, Alþýðubandalagið og auðvitað Uka Sjálfstæðis- flokkurinn, sem er að vísu afslappaðri í þessari lotu vegna þess að þeirra maður situr áfram í bankanum. Það er ekki vegna hagsmuna Seðlabankans sem þing- flokkamir hafna því að fækka bankastjórum. Ó, nei. Stöð- um seðlabankastjóra verður ekki úthlutað samkvæmt mati á hæfni, menntun eða reynslu í bankastörfum. Sannið þið til. Það verða flokksskírteinin sem ráða. Fram- sóknarflokkurinn fær mann í staðinn fyrir Tómas og Alþýðuflokkurinn mann í staðinn fyrir Jón Sigurðsson. Og svo bíður Alþýðubandalagið færis, næst þegar það kemst í ríkisstjóm. í Seðlabankanum munu bankastjórar halda áfram að naga blýantana sína í skjóh þeirra manna sem hæst hafa talað gegn siðleysi og spillingu í opinberri stjóm- sýslu. Ehert B. Schram FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR T994 „Vagnstjórar SVR hf. myndu hreint ekki sætta sig við að frysta kjör sin þannig," segir m.a. í grein Markúsar Arnar um SVR-deiluna. - Vagnstjórar SVR á fundi. SVR-deila milli stéttarfélaga Umflöllun um málefni Strætis- vagna Reykjavíkur hefur veriö fyr- irferðarmikil aö undanfórnu og nokkrir vagnstjórar farið geyst í aödróttunum um aö borgarstjóri hafl svikið gefin loforð um aö laun og réttindi starfsmanna yröu þau sömu fyrir og eftir breytingu á SVR í hlutafélag. Vísvitandi ósannindi Hér er farið vísvitandi meö ó- sannindi því að þeir starfsmenn sem ekki hafa þverskallast viö aö ganga frá persónubundnum kjara- samningum sínum eru búnir aö fá uppfyllt þau fyrirheit sem gefin voru þess efnis að kjör fyrrum borgarstarfsmanna hjá SVR héld- ust óskert þegar þeir gengju í ann- að stéttarfélag með aöra samninga sem í sumum atriðum geta veriö óhagstæöari en þeir fyrri. Þetta er tryggt með yfirborgunum hjá SVR hf. sem borgarsjóður ábyrgist. Það er flarstæðukennt að ræða í þessu sambandi um sérkjaraatriði sem samkvæmt núgildandi ákvæð- um kjarasamninga Starfsmannafé- lags Reykjavíkurborgar ættu að virka eftir 10 eða 18 ár. Það sér hver heiivita maöur aö ekki er hægt að festa slík ákvæði meira en áratug fram í tímann út frá kjara- samningi eins og hann hljóðar nú í dag. Vagnsflórar SVR hf. myndu hreint ekki sætta sig viö að frysta kjör sín þannig. Þeir vilja hafa hendur óbundnar og semja um all- ar kjarabætur og hvenær sem þær bjóðast. Eftir samfelld brigsl um svikin loforð var tími til kominn að vagn- stjórar SVR hf. kæmu að kjarna málsins og játuðu loks um hvaö máhð raunveruiega snerist. Trún- aðarmaðurinn, Björg Guömunds- dóttir, lét nefnilega hafa eftir sér í útvarpsfréttum fyrir rúmri viku KjaUarinn Markús Örn Antonsson borgarstjóri „að málið snerist ekki um kaup heldur berjist vagnsflórar fyrir því að fá að vera áfram í sínu stéttarfé- lagi“. Leita verður niðurstöðu dómstóla Þegar fyrirhugaðar breytingar á rekstrarformi SVR voru kynntar á fundum með starfsmönnum í byrj- un júní í fyrra var dreift til þeirra allra prentuðum upplýsingum. Meðal annars var flallað um stétt- arfélagsaðild og kom þá skýrt fram að starfsmenn SVR hf. yrðu ekki í Starfsmannafélagi Reykjavíkur- borgar. Þetta var deginum ljósara þegar starfsmenn SVR réðu sig til SVR hf. fyrir 1. desember sl. og staðfestu þá þegar nýjan ráðning- arsamning með undirskrift sinni. Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, hefur tjáö sig afar hispurslaust um upphlaup Starfsmannafélagsins og vagnsflóra i bréfi sem ASÍ sendi þeim með jólapóstinum. í því segir m.a.: „Alþýðusamband íslands skorar á Starfsmannafélag Reykja- víkurborgar áð snúa þegar af þeirri óheillabi'aut sem félagið virðist nú vera á hvað varðar málefni SVR hf. og starfsmanna þess.“ Starfsmannafélagið og vagnsflór- ar hafa ekki tekið þessari áskorun forseta ASÍ heldur boðað verkfall. SVR hf. hefur vísað málinu til Fé- lagsdóms til að fá verkfallið dæmt ólöglegt. Hér er á ferðinni ágreiningsefni um grundvallaratriði sem áhrif getur haft á alla skipan stéttarfé- laga og samningamála á vinnu- markaðinum í landinu. Það verður að leita óyggjandi niðurstöðu dóm- stóla um svo vandmeðfarið og við- kvæmt mál. Það má ekki láta þeð velkjast og velta öllu lengur milli aðila með yfirvofandi óþægindum fyrir borg- arbúa eins og hótað er meö ákvörð- un vagnstjóranna um að stöðva þjónustu SVR hf. Markús Örn Antonsson „Hér er á ferðinni ágreiningsefni um , grundvallaratriði sem áhrif getur haft á alla skipan stéttarfélaga og samn- ingamála á vinnumarkaðinum í land- Skoðanir aimarra Einn samræmdur 14% skattur „Lækkun virðisaukaskattsins á matvæli úr 24,5% í 14% er viðurkenning á því að 24,5% virðisauka- skattur er allt of hár. Sama sjónarmið kemur fram í nýjum skattaálögum sem settar hafa verið á þessu ári.... Til þess aö leysa þennan vanda, ná samræmi og jafnvægi í innheimtu virðisaukaskatts, er því ekki um annað að ræða en aö lækka allan virðisauka- skatt niður í 14% og koma á einum samræmdum skatti eins og Verzlunarráö íslands benti á í upphafi." Jóhann J. Ólafsson stórkaupmaður í Mbl. 13. jan. Sjómannadeilan 09 ríkisvaldið „Það er kominn rembihnútur á þessa deilu, sem ekki er auðvelt aö leysa. Svo flókin og viðkvæm deilumál er auðvitað ekki nokkurt vit í að leysa undir þeirri pressu, sem allsherjarverkfall í sjó- mannastétt setur á þá sem að málinu vinna. ... Ábyrgð ríkissflómarinnar er mikil í þessu máh. Við- ræður við deiluaðiia fóru allt of seint af stað, því það er vonlaust að leysa þetta mál án atbeina rikissflórn- arinnar.“ Úr forystugrein Tímans 13. janúar. Hriktir í stoðum borgarveldis „Gæfuleysi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eykst dag frá degi. Nú er ljóst, aö andstöðuflokkam- ir í borginni hafa náð saman um sterkan lista, sem er líklegur til að ná verulegum árangri.... í umliðn- um kosningum hefur það mjög oft gerst, aö persóna borgarstjóra hefur riöið baggamuninn og náð því aukafylgi., sem hefur tryggt flokknum sigur í Reykja- vík.... Andspænis langþráöum valkosti í gervi sam- einaðs Usta allra hinna flokkanna hriktir í stoðum hins aldna veldis flokksins í Reykjavík.“ Úr forystugrein Alþbl. 13. janúar. X.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.