Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1994, Page 32
Fo úz
n d
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 83 2700
FÖSTUDAGUR 14. JANÚAR 1994.
Stjómarandstaðan:
Alþingi
komi þeg-
ar saman
- vegna sjómannaverkfalls
„Afstaöa okkar er sú að það eigi
að kalla Alþingi strax saman og setja
lög í samræmi við óskir sjómanna
um bann við þátttöku í kvótakaup-
um. Þessi tillaga er skýr og einföld
og það er hægt að afgreiða hana á
einum til tveimur dögum,“ segir Ól-
afur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins.
„Mér sýnist að deilan kunni að
vera komin í slíkan hnút að það verði
að stöðva hana með lagasetningu.
>É-g tel hins vegar af og frá að það
verði gert með bráðabirgðalögum.
Það er hægt að kalla þing saman án
tafar, þess vegna á mánudagsmorg-
un. An vafa yrðu harðar deilur en
ég er sannfærður um að hægt væri
að samþykkja lög á tveimur dög-
um,“ segir Steingrímur Hermanns-
son, formaður Framsóknarflokksins.
„Að mínu áhti er þetta fyrst og
fremst kjaradeila sem menn ættu
helst að leysa sjálfir. Mér finnst ekki
koma til greina að sett verði bráða-
birgðalög á verkfallið en tel að stjórn-
^öld geti komið inn í þetta og styrkt
réttarstöðu sjómanna. Raunar finnst
mér nauðsynlegt að Alþingi komi
þegar saman til að ræða stöðuna. Það
er löngu tímabært að þingmenn taki
á kvótasölunni því við höfum oft
rætt um að það myndi koma til upp-
reisnar vegna hennar,“ segir Jóna
Valgerður Kristjánsdóttir, þingmað-
urKvennalistans. -kaa
Verkföll
boðuðá
-kaupskipum
Á fundi trúnaðarmannaráðs Sjó-
mannafélags Reykjavikur 10. janúar
síðastUðinn var samþykkt að boða
vinnustöðvun á kaupskipum hafi
samningar ekki tekist fyrir boðun
eftirtaUnna verkfaUa.
Hafi samningar ekki tekist fyrir
miðnætti 25. janúar kemur tU vinnu-
' stöðvunar sem hefst þann dag og
stendur tU 28. janúar. Vinnustöðvun
hefur einnig verið boðuð 15. febrúar
tU 19. febrúar hafi samningar ekki
tekist fyrir miðnætti 15. febrúar. í
mars verður vinnustöðvun frá 7. tU
11. ef ekki hefur samist fyrir mið-
nætti 7. mars.
4» Boðuð verkfóll taka til aUra Faxa-
flóahafna. -IBS
Bergvik VE, sem náðist ioks af strandstaó í fyrrinótt, liggur nú í Eskifjarðarhöfn. Myndin er tekin rétt eftir komu
varðskipsins Týs og Bergvikur þangað í gærmorgun en Týr tók skipið á síðuna eftir að hafa dregið það af strand-
stað og sigldi þannig með það til hafnar. Verður farið með Bergvík i slipp í Neskaupstað um leið og veður leyfir.
DV-mynd Emil Thorarensen
Bakkaði full-
ur á lögguna
Lögreglan stöðvaði rétt fyrir mið-
nætti ökumann jeppabifreiðar við
Reykjaveg í Mosfellsbæ. Ökumann-
inum hafði verið gefiö merki um að
stöðva bifreiðina á Kjalarnesi viö
Grundahverfi. Hann sinnti því ekki
og ók á um 50 km hraða á undan
lögreglu. Við Varmaá í Mosfellsbæ
ók hann yfir hringtorg og utan vegar
eftir göngustíg nokkra leið þar til
hann stöðvaði bUreiðina. Lögreglan
nam staðar fyrir aftan jeppann sem
svo bakkaði á lögreglubifreiðina.
Ökumaður jeppans v£ir fluttur á
lögreglustöð og reyndist hann mjög
ölvaður,aðsögnlögreglu. -pp
Gæsluvarðhald
framlengt
Gæsluvarðhald rennur út í dag yfir
nýbúanum frá Víetnam sem verið
hefur í haldi frá þvi í nóvember
vegna hnífsstungumáls í miðbæ
Reykjavíkur.
Samkæmt upplýsingum RLR verð-
ur farið fram á framhald gæsluvarð-
haldsúrskurðar yfir honum í dag.
Máhð hefur verið sent ríkissaksókn-
ara og bíður hann nú niðurstöðu í
DNA-rannsókn sem fram fer vegna
einsþáttarrannsóknarinnar. -pp
Sjomannadeilan 1 oleysanlegum hnut:
Samningaleiðin er
■ jr ■ ■■ ■ ■ ■ ■
komin i blmdgotu
|>. • £» -J • / / . i • T I • -|> / *t • f * 1_ / X’t
Á fundi með deiluaðilum i sjó-
mannadeilunni, sáttasemjara og
ráðuneytisstjórum í gærkvöldi og
nótt hljóp allt i harðan hnút og
virðist sem deilan hafi aldrei verið
í haröari hnút en eftir þennan fund.
Lagasetning til að leysa deiluna
virðist því vera nær en áður.
„Samningamenn deiluaðila sátu
hér í sjávarútvegsráðuneytinu
fram á nótt með ráðuneytisstjórum
og rikissáttasemjara og það sigldi
allt í strand. Mér sýnist að deilan
sé komin í harðari hnút en nokkru
sinni áður. Ég sé ekki, eftir þennan
fund, að samningaleiðin leiði þetta
mál til lykta eíns og sakir standa.
Það verður að meta það nú hvert
verður næsta skrefið. Ég taldi mjög
mikilvægt að samningaleiðin yrði
reynd til þrautar og mér sýnist eft-
ir fundinn í gærkvöldi að það hafi
verið gert,“ sagði Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra í samtah
við DV í morgun.
Hann var spurður hvort það yrði
þá lendingin að setja iög á verkfall-
ið.
„Eins og staöan er núna sýnist
mér að samningaleiðin sé orðin að
blindgötu. Menn verða þvi að ræða
það hvort deilan verði leyst með
lagasetningu eða hvernig brugðist
verður nú við. Það er alveg ljóst
að ekki er hægt að láta deiluna sitja
svona í aðgerðarleysi," sagði Þor-
steinn.
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambandsins, var ómyrkur
í máli þegar hann var spurður um
niðurstöðu fundarins í gærkvöldl
„Ég fæ ekki betur séð en að út-
vegsmenn séu að bíða eftir laga-
setningu. Það er eins og þeir hafi
ahan tímann verið að bíða eftir
henni. Ég ætla bara að vona að
menn reyni ekki slíkt. Við munum
aldrei gefast upp og ekki síst eftir
þann stórkostlega fund sem við
héldum í gær,“ sagði Óskar Vigfús-
son.
-S.dór
LOKI
Löggan hefði náð þessum
„spíttara" á hlaupum!
Veðrið á morgun:
Kaldi eða
stinnings-
kaldi
Á morgun verður norðlæg átt,
víðast kaldi en stinningskaldi á
stöku stað. É1 verða um landið
norðanvert en léttskýjað syðra.
Frost verður á bihnu 2-7 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36
s. 814757
HRINGRÁS
ENDURVINNSLA
Endurvinnsla og
umhverfisverna
í 44 ár.