Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Page 8
8
MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1994
TAKTU A F SKARIÐ
Þú ferö þangað sem árangnrinn næst!
EINKATIMAR
Tl Ó P T í M A R
H J A K A T Y
World Class
Síml 35000 á morgnana
63 27 00
Námsstyrkir
MENNTABRAUT
Nátnsmannaþjónusta íslandsbanka
íslandsbanki mun í tengslum við Menntabraut,
námsmannaþjónustu íslandsbanka,
veita sjö námsstyrki að upphæð 100.000 kr. hver
á árinu 1994.
Allir námsmenn, 18 ára og eldri, geta sótt um styrkina,
hvort sem þeir eru í námi hér á landi eða erlendis.
Styrkirnir eru óháðir skólum og námsgreinum.
í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um
nafn, heimili, símanúmer, námsferil, námsárangur og
framtíðaráform í stuttu máli.
Umsóknir skal senda til:
íslandsbanki hf.
Markaðs- og útibúaþjónusta (Námsstyrkir)
Kringlunni 7
155 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til 15. mars 1994
ÍSLANDSBANKI
Utlönd
Gæsluliðar Sameinuðu þjóðanna ýta serbneskri fallbyssu i snjónum við Sarajevo. Serbar eru í óðaönn að flytja
þungavopn sín burt frá borginni. simamynd Reuter
Serbar búnir að flytja flestar byssur sínar frá Sarajevo:
NATO-ríki gera
ekki loftárásir
NATO-ríkin afléttu hótunum sín-
um um tafarlausar loftárásir á síð-
ustu stórskotaliðsbyssur Bosníu-
Serba í hæðunum fyrir ofan Sarajevo
sem ekki var hægt að flytja á brott
vegna snjóþyngsla áður en lokafrest-
urinn til þess rann út á miðnætti í
nótt. Serbum var gert að flytja vopn-
in í tuttugu kílómetra fjarlægð frá
borginni.
Skaðlausar byssur
í Hvíta húsinu sögðust menn vera
þess fullvissir að búið væri að gera
allar byssurnar skaðlausar eða þess
yrði ekki langt að bíða og yfirmenn
sveita SÞ og NATO sögöu að þeir
teldu loftárásir ekki nauðsýnlegar
þessa stundina.
Manfred Wömer, framkvæmda-
stjóri NATO, sagði í Bmssel í nótt
að loftárásir væru enn inni í mynd-
inni ef snurða hlypi á þráðinn í brott-
flutningi umsátursvopna Serba eða
þá að þeim yrði aftur komið fyrir.
„Staðfestu NATO um að binda enda
á sprengjuárásirnar á Sarajevo lýkur
ekki í dag. Við munum halda áfram
að fylgjast með því að samþykktinni
sé framfylgt og munum meta stöðuna
á næstu klukkustundum. Við mun-
um halda vöku okkar,“ sagði Wörn-
er.
Vesturlönd höfðu safnað saman
stærsta flugflota frá því í Persaflóa-
stríðinu við undirbúning loftárás-
anna á Serba.
Eins og gamlárskvöld
„Það eina sem gerðist í kvöld var
að það var kalt, ekki einu einasta
skoti var hleypt af. Við höfum beðið
eftir aö lokafresturinn rynni út eins
og við værum að bíða eftir gamlárs-
kvöldi," sagði hermaður úr stjómar-
her Bosníu þar sem hann stóð vörð
á Mojmilo-hæö við Sarajevo.
Brottflutningur byssanna bindur
þó ekki enda á 22 mánaða umsátur
Serba um Sarajevo þar sem þeir ráða
yfir öllum akstursleiðum inn til
borgarinnar.
Um fjögur hundrað rússneskir her-
menn komu til Sarajevo-svæðisins
um helgina til friðargæslustarfa á
vegum SÞ og fognuðu Serbar þeim
sem bandamönnum og vemdurum.
Þá er von á fjögur hundmð rússnesk-
um hermönnum til viðbótar.
William Perry, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, varpaði önd-
inni léttar í nótt þegar hætt var við
loftárásimar, í bih að minnsta kosti.
Perry sótti neyðarfund varnarmála-
ráðherra NATO í Aviano-herstöðinni
á Norður-Ítalíu í gær en á heimleið
sagði hann fréttamönnum að mikið
verk væri framundan til að tryggja
að Sarajevo nyti verndar.
„Þetta var mjög góður árangur en
þessu er ekki enn lokið,“ sagði hann.
Reuter
Bosníu-Serbar halda partí
í byrgi sínu við Sarajevo
Flugmenn NATO-ríkja voru tilbúnir í aðgerðir gegn Serbum ef þörf krefði.
Símamynd Reuter
Serbneskir hermenn á Trebevic-
flalfi við Sarajevo héldu tryllta veislu
þegar lokafrestur NATO rann út
klukkan eitt í nótt að staðartíma,
grftluðu naut og kveiktu elda til aö
stríða flugmönnum vesturveldanna
sem ekki komu tíl að gera á þá loftá-
rásir.
„Við erum með partí," sagði Uðs-
foringi Bosníu-Serba. „Þeir eru aö
leika sér og við erum að fagna.“
Bosníu-Serbar voru með þunga-
vopn sínum á um níutíu stöðum
umhverfis Sarajevo en snemma í gær
voru þeir þegar búnir að flytja þau á
brott frá um helmingi staðanna.
Kofi Annan, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri SÞ, sem sér um friðar-
gæslusveitirnar, treysti sér ekki til
að meta hversu mikið af vopnum
væri enn á sínum stað í lok dagsins
eða hversu mikið væri undir eftirUti
sveita SÞ.
Á Trebevic-fjalli mátti heyrá nær
stöðugar drunur frá orrustuflugvél-
um NATO og eftirUtsvélum. Inni í
snæviþöktu byrgi sínu sátu serb-
nesku hermennimir, aðeins í um
fimmtíu metra fjarlægð frá stöðvum
múslíma, og drukku kafli úr hand-
sprengjudósum eða teyguðu vín af
flöskum og töluöu um stríðið, kær-
ustumar sínar og lífið áður en átökin
bmtust út fyrir nærri tveimur áram.
Reuter