Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Side 12
12
Spummgin
MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1994
Leséndur
60 þúsund manns á 20 þúsund bílum:
Ef menn skunda
á Þingvöll
Bréfritari óttast margmenni á Þingvallahátíð og ieggur til að einungis stór-
ir flutningabílar verði í förum þangað ef af hátíðinni verður.
Gafst þú blóm
á konudaginn?
Hörður Lýðsson: Já, ég gaf blóm.
Óskar M. Jónsson: Já, auðvitað.
Óli Ólason: Já, ég gaf blóm.
Kristinn Helgason: Já.
Magnús Guðmundsson: Nei, en ilm-
vatn. "
Ármann Rögnvaldsson: Já, og konan
á líka afmæli á morgun.
Árni Jónsson skrifar:
Það hefur verið haft við orö - allt
óstaðfest að sjálfsögðu - að þingfund
eigi að halda á Þingvöllum næsta
sumar og fagna þar 50 ára lýðveldi á
íslandi. Ég heyrði forseta Alþingis
reifa þetta mál á einni útvarpsstöð-
inni nýlega. Taldi forseti Alþingis því
ekkert til fyrirstöðu að svo yrði gert
þótt það kostaði að vísu sitt. Þar
þyrftu þó að vera aðstæður til fund-
ar, setja þyrfti upp palla og eitt og
annað sem svona hátíð fylgdi óhjá-
kvæmilega. - Allt er það rétt og satt.
Ég er einn þeirra sem er því mjög
andsnúinn að efna til stórhátíöar á
Þingvöllum næsta sumar, burtséð
frá þingfundinum fyrirhugaða.
Hvort sem sá fundur yrði haldinn á
Völlunum eöa á Lögbergi er hreint
út í hött að stefna á Þingvöll tugþús-
undum manna til þess eins að halda
þar útihátíð. Þegar búið er að koma
Þingvallasvæðinu í sæmilegt horf
eins og nú hefur þó tekist væri það
hreint brjálæði að efna til svo mann-
margrar hátíðar sem um er rætt.
Talað hefur verið um að til Þing-
valla kæmu hugsanlega um 60 þús-
und manns og bílafiöldinn gæti oröið
um 20 þúsund. Það sér hver heilvita
maður að þarna stefndi í óefni. Það
er því miklu vitlegra að efna til hátíð-
ar hér í Reykjavík vegna þessara
tímamóta. Reykjavík er þó höfuð-
borg landsins og þar eru aðstæður
til að taka við miklum manníjölda,
en alls ekki á Þingvöllum.
Sigurður Freygarðsson skrifar:
Eftirfarandi er skriíleg athuga-
semd vegna „Sandkorns-greinar" frá
Akureyri í DV hinn 14. febr. sl. Fer
Sandkornsritari þar með ótrúlegar
ýkjur og afskræmingu á „hegðun“
eins kvenkynsáhanganda KA.
Ég var við hliöina á konu þessari
þegar hún gekk framhjá Sandkoms-
ritara sem var við myndatöku á
staðnum. Drengur einn gekk hjá og
í veg fyrir myndavélina. Tók þá
„sverðpenni" þessi sig til og hrinti
honum frá. Konan sagði þá: „Ekki
dytti þér í hug að taka myndir af
stuðningsmönnum KA helv... þorp-
arinn þinn“. - Orðrétt. Konan hvorki
N.A.H. skrifar:
Sem útlendingi á íslandi þykir mér
furðu sæta, og eftir viötöl við marga
aðra útlendinga frá mörgum löndum,
af hvílíku áhugaleysi íslenska þjóðin
sættir sig við slysin sem verða vegna
hálku á götum og gangbrautum.
í öllum öðrum löndum, sem ég
þekki til, er eigandi þess svæðis sem
fólk dettur á í hálku algjörlega ábyrg-
ur fyrir slysinu. - Fyrir öryrkja eins
og mig þýðir þetta ástand hér á landi
að ég er fullkomnlega bundin heima.
Þar sem ég á erfitt um hreyfmgu
tók ég því opnum örmum hinu svo-
nefnda „fjölvarpi" Stöðvar tvö. En
ég uppskar ruglað BBC þegar ég ætl-
aði að horfa á það og ekkert annað
efni fjölvarps var áhugavert til
lengdar.
Ég kvartaöi við Stöö tvö og starfs-
Hringið í síma
632700
millikl. 14ogl6-eóa skrifíð
ATH.: Nafn og símanr. veröur
aö fylgja bréfum
Ef það verður hins vegar ofan á að
efna til viðamikillar þjóðhátiðar á
Þingvöllum hlýtur að verða að gera
ráöstafanir til að takmarka alla um-
ferð þar á bílum og því er það góð
hugmynd að fólk eigi þess kost að
skunda til Þingvalla með rútum,
strætisvögnum og öðrum stórtækum
farartækjum þannig að fólk þurfi
ekki að lenda í umferðaröngþveiti á
öskraöi né er hún geðveik eins og
gefið er í skyn í Sandkomi hinn 14.
febr. - Færu einungis á leikina þeir
sem aldrei skammast út í dómarana
vegna meintra mistaka þeirra yrðu
líka mjög fáir áhorfendur.
Ástand nefndrar konu er hvorki
verra né betra en flestra annarra sem
á þessa leiki mæta. Menn verða
spenntir og æstir og láta í ljós skoðun
sína. Þetta er eins og hjá öllum sem
á handboltaleiki fara. Ékki aðeins í
KA-húsinu. - Sé konan jafnslæm og
sagt er því hefur stjóm KA ekki
bannað henni aö koma á leikina?
Ýmsir aðrir hafa sætt slíku banni.
Þá eru það girðingamálin. -Reglur
maður útskýrði kurteislega hvernig
stæði á öllum þessum tæknilegu
vandkvæðum. Hann sagði og að
áskrift mín yrði lagfærð fyrir vikið
hefði ég fleiri kvartanir.
Jæja, Stöð tvö hefur ekki svarað
leiðinni frá mesta þéttbýlissvæðinu
hér við Faxaflóann.
Mér finnst hins vegar ekki hafa
komið fram nógu skýrt hvort á Þing-
völlum eigi að halda viðamikla hátíð
eða hvað þar eigi að fara fram. At-
burðurinn er þó í júní nk. og því
ætti nú þegar allt aö liggja fyrir um
fyrirhugað skipulag og dagsskrá.
UEFA mæla svo fyrir að girðing skuh
skilja að áhorfendur og leikmenn.
Hefði girðingin ekki verið reist hefðu
KA-menn ekki getað leikið Evrópu-
leikina á Akureyri haustið 1990.
Hver er svo niðurstaðan af þessari
athugun á skrifum Sandkomsritara?
Að greinilega sé um persónulega
óvild „sverðpennans" í hennar garð
aö ræða og að þessi svokallaði
„blaðamaður" skuli skrifa og
skrökva upp á konuna í DV í staö
þess að segja þá við hana sjálfa hvað
honum fannst um hana er ekkert
annað en heigulsháttur. Ég segi því
í lokin eins og hann gerði: Svona fólk
ætti að sitja heima.
upphringingum síðustu tíu daga. -
Eftir að ég hef þó náð sambandi eftir
niargar og langar tilraunir er ég látin
bíöa lengur en þolinmæði mín afber.
Þetta er miður gott til afspurnar en
staðreynd engu að síöur.
■ 8. sæti R-listans enn autt:
IngibjörgSólrún
svararekki
Haraldur Sigurðsson skrifar:
Morgunútvarp rásar 2 haföi
uppi raikinn viðbúnað 17. febr.
sl. eftir að borist haföi frétt um
tilnefningu Kvennalistans til
sameiginlegs framboðs f Reykja-
vík. Fenginn var sérstakur blaöa-
maður til aö spá í báða listana
með þáttastjórnendum. Og
„stjörnufrarabjóðandinn“, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, rnærð í
bak og fyrir. - Hún myndi nú
gera þaö gott. Algjört einvígi milli
hennar og Markúsar Amar borg-
arstjóra! - En hvað er nú þetta?
8. sætið, sæti Ingibjargar Sólrún-
ar, er enn autt og hún hefur ekk-
ert endanlegt svar gefið. Það
fylgja enn alls konar skilyrði!!
Hrafntókekki
ákvörðunina
Sigurbjörn skrifar:
Eg las kjallaragrein eftir Hrafn
Gunnlaugsson framkvæmda-
stjóra Sjónvarps í DV11. febr. sl.
Þar kemur fram að það var ekki
hann sem átti frumkvæði að því
að sýna hina umdeildu mynd,
Þjóð í hlekkjum hugarfarsins,
sem hefur veriö talin ádeila á
bændur landsins. Þaö var fyrrver-
andi framkvæmdastjóri, Pétur
Guðfinnsson, að sögn Hrafns, sem
tók þá ákvörðun að kaupa þessa
mynd til sýningar. Og svo em
menn að skammast út í Hrafri og
segja að þeir þekki „handbragö"
Hrafns á þessari umdeildu mynd!
IngóogVala
meðúrvalsþátt
Þráinn hringdi:
Þáttur þeirra Ingólfs Margeirs-
sonar og Valgerðar Matthíasdótt-
ur, í hreinskilni sagt, er að mínu
mati úrvalsþáttur og sá vandað-
asti sem verið hefur í Sjónvarp-
inu. Hann er um leið afar áhuga-
verður og alltaf tekið til meðferð-
ar eitthvert mál sem allir virðast
hafa þörf fyrir að vita raeira um.
Það er líka gott form á þættinum,
ekki þetta lokaða hringborðssett
sem svo mjög hefur fest í sessi
þáttastjórnenda. Ingó og Vala
eiga hrós skilið fyrir þann undir-
búning sem þau virðast leggja í
þáttinn.
Dægurmálaútvarp rásar 2:
Vaxandi leið-
indatónn
Stefán Guðmundsson hringdi:
Mér finnst bera á vaxandi leiö-
indatóni í Dægurmálaútvarpinu.
- Miðvikud. 16. þ.m. var t.d. verið
að fara yfir fréttir í DV, m.a. um
að sjálfstæðismenn á Reykjanesi
"hefðu varað Davíð formann viö
að stuðla að ráöningu Steingríms,
formanns Framsóknarflokksins,
í Seðlabankann. Annar umsjón-
armaður þáttarins, kona, vildi
endilega vera með sérstaka túlk-
un á fréttinni eins og hálfgerðan
útúrsnúning. Hvers vegna er
frétta blaðsins ekki bara getið
með beinum hætti hkt og úr
morgunblöðunum? Svona nöldur
á e.tv. aö einkenna dægurmála-
útvarp hins opinbera?
Ferðamenn við
Vestfjarðagöng
Friðjón Magnússon skrifar:
í DV var nýlega frétt um jarð-
göngin á Breiðadalsheiði þar sem
sagt var frá útvíkkun ganganna
vegna vatnselgsins og að steypa
eigi kassa utan um þar sem vatnið
kemur úr veggnum. - Ég hef þá
hugmynd til viðbótar, að á kass-
anum ætti að vera gluggi og ein-
hver lýsing inni þannig að ferða-
menn gætu séð hvar og hvemig
vatnið kemur út úr stálinu. Að
sjálfsögöu þarf þetta að vera lokað
svo vatrrið mengist ekki. En með
þessum hætti bættist Vestfjarða-
luingnum enn einstakur staður.
Ekki þyrfti þar nema svo sem eitt
rútubílastæði við staömn.
Tók hinu svonefnda fjölvarpi opnum örmum en uppskar ruglað BBC, segir
m.a. í bréfinu.
Athugasemd við Sandkorn frá Akureyri
Sambandslaust við Stöð 2