Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Síða 13
MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1994 Fréttir Framkvæmdastj óri Sjónvarps: Tveir landbúnaðar- þættir á leiðinni Framkvæmdastjóri Sjónvarpsins, sem lætur af störfum 1. apríl, hefur í bígerö aö sýna tvo landbúnaðar- tengda þætti í Sjónvarpinu áður en langt um líður. Ólafur Arnarson er að leggja síð- ustu hönd á gerð þáttar um sam- keppni á sviði mjólkuriðnaðarins en Sjónvarpið mun hafa samið um sýn- ingarrétt á honum. Að sögn Ólafs er Mjólkursamsalan og helstu sam- keppnisaðilar hennar teknir fyrir. „Við drögum fram mismunandi sjónarmið. I því sambandi höfum við átt mjög gott samstarf við Mjólkur- samsöluna," sagði Ólafur við DV. Hinn þátturinn er mun skemmra á veg kominn en það er verkefni sem Hrafn Gunnlaugsson fól Jónasi Knútssyni að gera stuttu eftir að hann var ráðinn framkvæmdastjóri Sjónvarps. Jónas hefur skilað hand- riti að þættinum sem byggt er á bók Ólafs Asgeirssonar, Iðnbylting hug- arfarsins. Fjallar sú bók um tog- streitu sem varð milli bænda og þeirra sem viidu veg iðnaðar og sjáv- arútvegs sem mestan um íjármagn. Eftir því sem næst verður komist' munu rök vera leidd að því að bænd- ur hafi staðið í vegi fyrir framfórum í iðnaði á fyrstu þremur áratugum aldarinnar. -hlh Ástandið á athafnasvæði Slippstöðvarinnar Odda á Akureyri þessa dagana er dæmigert fyrir það sem er að gerast í skipasmiðaiðnaðinum, ekkert skip i slipp og sáraiítið um að vera við bryggjukantana. DV-mynd gk Slippstööin Oddi: Þrjár deildir lagðar niður - aöeins 77 starfsmönnum boðin endurráöning Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyrt Ákveðið hefur verið að leggja niður þijár af deildum Slippstöðvarinnar Odda hf. á Akureyri. Er þar um að ræða tæknideild, trésmíðaverkstæði og rafvirkjaverkstæði. í flestum öðr- um deildum fækkar starfsmönnum verulega og allra leiða verður leitað til lækkunar stjómunarkostnaðar. Öllum starfsmönnum stöðvarinn- ar, um 130 talsins, var sagt upp strax eftir áramót og var stefnt að því að endurráða sem flesta þeirra sem fyrst aftur um leið og rekstur fyrir- tækisins hefur verið endurskipu- lagður frá grunni. Nú liggur fyrir að 77 starfsmönnum verður boðin endurráðning en upp- sagnir um 50 taka gildi. Guðmundur Tulinius, fram- kvæmdastjóri stöðvarinnar, segir að þrátt fyrir verulega fækkun starfs- manna og lokun þriggja deilda muni öll þjónusta stöðvarinnar haldast óbreytt og stöðin verði eftir sem áður í stakk búin til að taka viö stærri verkefnum. Þegar þess gerist þörf verði leitað til annarra fyrirtækja sem undirverktaka við hluta af stærri verkum undir stjóm Slipp- stöðvarinnar Odda. Gunnar rafveitustjóri í nýja húsnæðinu. DV-mynd Ægir FáskrúðsQ örður: Rafveitan í nýju húsnæði Ægir Kristinsson, DV, Fáskiúðsfiröi: Rafmagnsveitur ríkisins hafa tekið nýtt húsnæði í notkun á Fáskrúðs- firði, 330 m2 að stærð, í iönaðarhverf- inu hér. Vélar og tæki vom flutt úr húsnæðinu sem RARIK hafði við Hafnargötu í nýja húsnæðið. / Fjórar dísilvélar em þar sem geta framleitt 2.1 megavatt og er það vara- afl. Þá er þar vaktherbergi og lager- geymsla. Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga keypti eldra húsnæðið af RARIK og þar verður afgreiðsla Samskipa. Raf- veitustjóri á Fáskrúðsflrði er Gunnar Skarphéðinsson. Tvö dufl rak á land í Álftavers- fjöru við Alviðrahamravita vest- an Kúöafljóts á dögunum. Lögregla og Landhelgisgæsla fóra á vettvang og sprengdu ann- að duflið. Um var að ræöa ílangt dufl raeð stýriugguro sem Gæslan telur að hafl verið notað til að slæða upp tundurdufl. Hitt duflið var úr áli og var fjarlægt. -pp Telepower Rafhlöður í bráðlausa sjma.| - Panasonic - Uniden - Cobra - Bell South - Sony A - AT»T Loftnet Sveigjanleg gúmmi- húóuö loftnet i flesta sfma. RAFBORG SF. Rauðarárstig 1, simi 622130. 13 Aðalfiindur Aðalfundur Skeljungs hf. verður haldinn þriðjudaginn 15. mars 1994 Í Átlhagasal Hótel Sögu, Reykjavík, og hefst fundurinn kl. 14:00. Skeliungurhf. Shell einkaumboð Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 16. grein samþykkta félagsins. 2. Tillaga um greiðslu10% arðs. 3. Tillaga um útgáfu jöfnunar- hlutabréfa, er nemur 10% hlutafjár. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á aðalskrifstofu félagsins Suðurlandsbraut 4, 6. hæð, frá og með 8. mars til hádegis á fundardag, en eftir það á fundarstað. BORCAÐU FERÐINA FYRIR 28. FEBRÚAR OG NÝTTU ÞÉR EINSTAKT VERÐ. KAUP/AANNAHÖFN ÓSLÓ STOKKHÓIMUR 6AUTABORÚ*** FÆREYJAR LONDON dLASCOW AMSTIRDAM LÚXEMBORÚ PARIS FRÁ 28/4 1994 HAMBORG FRANKFURT VIN FRÁ 25/6 1994 ZURICH FRÁ 7/5 1994 MILANO FRÁ 16/7 1994 VERÐTIL 28.FEB. VERÐFRÁ 1.MARSTIL 30.APRÍL 23.900 26.900 23.900 26.900 25.900 27.900 25.900 27.900 14200* 15.900* 23.900* 26.900* 17.900* 20.900* 23.900* 26.900* 25.900* 27.900* 25.900* 27.900* 25.900* 27.900* 27.900* 29.900* 27.900* 29.900* 27.900* 29.900* 27.900* 29.900* 27.900* 29.900* BARCELONA FRÁ17/6 1994 * Verð gildir eingöngu 1 beinu flugi Hugleiða. 4*Miðað við tvo fullotðna og tvö böm (2ja-ll ára). ***Flogið til Kaupmannahafnar og áfram með SAS. Flugvallarskattar eru ekki innifaldir í verði/ ísland 1.310 kr., Þýskaland 255 kr., Danmörk 710 kr., Holland 245 kr., Ítalía 595 kr., Frakkland 215 kr., Noregur 590 kr., Færeyjar 3.270 kr. Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofumar eða í síma 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18). FLUGLEIDIR Traustur íslenskurferðafélagi Ferðir skulu farnar á tímabilinu 15. apríl til 30. september 1994. Lágmarksdvöl 7 dagar. Hámarksdvöl 1 mánuður. Ákveðnir brottfarardagar. Bókunarfyrirvari 21 dagur. Staðfestingargjald er 5.000 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.