Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1994
39
■ Sumarbústaðir
RC húsin eru íslensk smíöi og löngu
þekkt fyrir fegurð, smekklega hönn-
un, mikil gæði og óvenju góða ein-
angrun. Húsin eru ekki einingahús
og þau eru samþykkt af Rannsókna-
stofriun byggingariðnaðarins. Stuttur
afgreiðslufrestur. Hringdu og við
sendum þér upplýsingar.
Islensk-Skandinavíska hf.,
Síðumúla 31, s. 91-685550.
■ Fasteiqnir
RC húsin eru íslensk smiöi og löngu
þekkt fyrir fegurð, smekklega hönn-
un, mikil gæði og óvenjugóða ein-
angrun. Húsin eru ekki einingahús
og þau eru samþykkt af Rannsókna-
stofnun byggingariðnaðarins. Stuttur
afgreiðslufrestur. Hringdu og við
sendum þér upplýsingar.
Íslensk-Skandinavíska hf.,
Síðumúla 31, sími 91-685550.
■ Vörubilar
Volvo F-86, árg. 1975, til sölu, góðdekk,
pallur 5,70, laus skjólborð, góður bíll.
Uppl. hjó Vöku milli kl. 9 og 18 í síma
91-676700, Bjarni.
■ Vinnuvélar
Til sölu traktorsgrafa, FAI 266, árg. '87,
snjófjölplógur getur fylgt. Einnig FAI
898, órg. ’94. 12 ára reynsla. Frábærar
vélar í einkaeign. Upplýsingar í síma
91-681305.
■ Sendibílar
Volvo FL7, árgerö 1987, skiptigámabíli
með lyftu, 2 aukagámar. Iveco 35-10,
árgerð 1992, með kæli. Uppl. gefur
Ársæll Magnússon í síma 985-22544.
■ Bilar tíl sölu
Dodge Power Ram 4x4, árg. ’89, 6 cyl.,
Cummings-turbo, dísil, sjálfskiptur,
ný 33" dekk, nýskoðaður. Athuga
skipti. Uppl. hjá Nýju Bílahöllinni, s.
672277, og eftir kl. 19 í síma 91-73913.
Merming
Ragnheiður Jónsdóttir á Kjarvalsstöðum:
Teikningin og
óreiða hugans
Ef það er satt sem Dagur Sigurð-
arson sagði alltaf, að til væru
tvenns konar menn, teiknarar og
kóloristar eða lithugsandi 'menn,
þá má segja að kólorisminn hljóti
að vera eitt áf ráöandi einkennum
íslenskrar þjóðarsálar: við höfum
nefnilega ekki átt nema örfáa góða
teiknara og teikningin hefur alla
tíð verið afskipt í íslensku listalífi
og í íslenskri listaumfjöllun. Sjálf-
ur var Dagur kóloristi og slakur
teiknari, en mat þó mikils teikni-
kunnáttu annarra, enda vinur
hans, Alfreð Flóki, snjall teiknari,
bæði að upplagi og skoðun.
Kannski tengist þessi landlægi kól-
orismi frásagnarhefðinni, þótt
teikning þyki reyndar alla jafna
betur fallin til frásagnar en lita-
verk.
Sögur íslendinga eru ekki eins
og sögur annarra þjóða. Þær eru
eins og ofið teppi: settar saman af
fínlegum þráðum, en samdar frek-
ar út frá heildarmyndinni og per-
sónusköpuninni en smáatriðunum
og söguþræðinum. Teikningin er
vitræn og teiknuð frásögn er líkust
rökræðu, en litverkin eru yfirleitt
ýmist af tilfinningalegum toga, eða
svo almenn að þau verða metafýs-
ísk eða jafnvel dulspekileg. Mál-
verk kóloristans fjalla sjaldnast um
nokkuð, heldur eru eins og innlegg
í veruleikann - viðbót sem getur
orðið kveikjan aö einhverju nýju
eða verkað líkt og hugljómun til
að hjálpa áhorfendum til að skoða
veruleikann á annan hátt. Teikn-
ingar eru alla jafna bundnari við-
fangsefninu og líkjast umfjöllun
eða jafnvel korti af myndefninu -
uppdrætti.
En ef eitthvað er til í því sem
Dagur sagði - hvemig ber okkur
þá að skilja myndir Ragnheiðar
Jónsdóttur? Hún er teiknari og
myndimar sem hún sýnir nú á
Kjarvalsstöðum em allar teikning-
ar, reyndar kolateikningar og svo
stórar að þær hafa við fyrstu sýn
vart nokkuð með aö gera viðteknar
hugmyndir okkar um teikningar.
Þær em óhlutbundnar og næstum
Ragnheiður Jónsdóttir: Án titils.
eins og mynstur eða áferð í náttúr-
unni - líkt og steinn eða kórall
hafi verið klofinn og þrykkt með
honum á pappírinn. Þær em stór-
skornar, óreiðukenndar og óræðar.
í slíkum verkum má auöveldlega
greina tilvísanir í goðsagnir, genes-
issögu og dulrænar túlkanir á
hinstu rökum tilverunnar. Þetta
gerir Halldór Björn Runólfsson
auðveldlega í inngangi sínum að
vandaðri sýningarskránni.
En þótt óreiðudýptin í sumum
myndum Ragnheiðar geti virst vísa
til þeirrar frumstæðu óreiðu sem
veröldin er tahn spretta úr og hét
Eyn Soph í ritum gnostisistanna
en Ginnungagap í íslenskum forn-
kvæðum, em þær vart fullskýrðar
með slíkri tilvísun. Sumar myndir
eru af einhvetju og sumar em um
eitthvað. En sumar teikningar
nálgast næstum markmið kólorist-
ans og verða sjálfar eins og veru-
leiki. Ekki eftirmyndun, ekki túlk-
un og ekki umfjöllun, heldur líkast-
Myndlist
Jón Proppé
ar því sem við sjáum þegar við lok-
um augunum eða þegar við horfum
á landslag úr óvenjulegri fjarlægð
og það fer að líkjast einhvers konar
mynstri án þess aö verða nokkum
tímann alveg reglulegt. Slíkar
myndir em líkari tónlist en myndl-
ist.
Líkt og Guðmundur Finnbogason
sagði um tónverkin, þarf ekki að
þýða slíkar myndir. Þær em ekki
einasta óháöar öllu tungumáh og
ótengdar nokkrum tiltakanlegum
aðstæðum eða menningarheimi,
heldur eru þær eins og óháðar
bæði áhorfandanum og listamann-
inum. Þær öðlast sjálfstætt hf og
ögra okkur alveg ein og jörðin sjálf
og öh náttúran gera. Listamaður-
inn er þá orðinn eins og miðiU eða
verkfæri sem veruleikinn birtist
gegnum. Hann skoðar ekki tilver-
una og htar hana í frásögn, heldur
leyfir henni að búa sjálfa sig til
með þeim tækjum og aðferðum sem
hann hefur vald á.
Shkar myndir eru erfiðar og ein-
faldar í senn: þær eru handan þess
sem við getum feht í frásögn og
tákn. Ragnheiður Jónsdóttir er
meistari þessara mynda - hún bjó
þær til - en myndirnar sem hún
teiknaði eru meira en Ust. Þær eru
ótæmandi uppspretta merkingar,
alveg eins og veruleikinn sjálfur.
Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11
Útsala! Galant GLSi 2000, árg. ’91, til
sölu, ekinn 47 þús. km, einn með öllu,
gullfallegur bíll. Verð 1.050 þús. Tií
sýnis og sölu á Bílasölu Reykjavíkur,
Skeifunni 11, sími 91-678888.
Heimasími eftir kl. 19 92-12354.
■ Jeppar
Einn sérstæðasti Rússajeppi landsins,
GAZ 69, árg. ’56, fyrsti bíll úr annarri
sendingu, jeppaskoðaður, 283 vél,
splittuð drif, Wam spil, T-43 kassi.
Verð 750.000 eða tilboð. Skipti mögu-
leg. Uppl. í sima 91-74875.
Chevrolet Suburban '83, 8 manna, 6,2
dísil með mæli, 400 turbo skipting, no
spin aftan og loftlæsingar framan,
stýristjakkur, 38" radialdekk, upp-
hækkaður, sérskoðaður. Uppl. í s.
91-641420 og eftir kl. 20 í s. 91-44731.
■ Líkamsrækt
Vöðvabólgumeðlerð með rafinagns-
nuddi, svæðanuddi og þömngabökstr-
um. Heilsuráðgjöf, efnaskortsmæling,
svæðanudd og þörungaböð.
Heilsuráðgjafinn, Sigurdís, s. 15770
kl. 13-18, hs. 31815. Kjörgarði, 2. hæð.
■ Skemmtanir
Félag islenskra hljómlistarmanna
útvegar hljóðfæraleikara og hljóm-
sveitir við hvers konar tækifæri:
sígild tónlist, jazz, rokk og öll
almenn danstónlist. Uppl. í síma
91-678255 alla virka daga frá kl. 13-17.
Lifandi tónlist - Lifandi fólk.
Nýsendingaf þýskum
„Bundeswehr" úlpum.
Verð 4.900 kr.
Opið 13—18
virka daga.
Versl. Arma Supra
Hverfisgötu 64a
sími 91-622322