Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1994, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreífing: Sími 632700
Sigltá
Akraborg
Norska flutningaskipiö Grethe
sigldi á Akraborgina í Akraneshöfn
snemma á laugardagsmorgun.
Flutningaskipiö, sem er 1800 tonn og
næstum helmingi stærra en Akra-
borgin, var ólestað og tók á sig vind
og rakst á Akraborgina. Minni háttar
skemmdir urðu á Akraborginni og
fór ferjan í áætlunarsiglingar um
morguninn en engar á norska skip-
inu.
Skipið hafði afþakkað aðstoð lóðs
þegar óhappið var og þegar skipið
ætlaði að leggjast að bryggju eftir að
hafa siglt á Akraborgina rakst það í
hafnarbakkann með þeim afleiðing-
um að eikartré, sem hggur eftir
bakkanum, fór í sundur og skipið fór
inn í steypu. Skipið skemmdist held-
urekkiviðþettahögg. -pp
Grindavík:
Mokveiði fyrir
utan höf nina
Mokveiði hefur verið af loðnu út
af Reykjanesi um helgina. Nokkrir
bátar voru í morgun að veiðum rúm-
»«fear tvær sjómílur utan við höfnina í
Grindavík. Þangað hafa borist vel á
þriðja þúsund tonn af loðnu síðan í
gærmorgun, Fimm skip hafa landaö
í Grindavík, sum mögrum sinnum á
sólarhring. Megnið af aflanum fer til
frystingar á Suðvesturlandi. -kaa
Átök í miðbæniun:
Lærbrotnaði í
slagsmálum
Klukkan að ganga sex á sunnm
dagsmorgun kom til öflugra slags-
mála á Lækjartorgi. Einn maður lær-
x brotnaði illa í átökunum en ekki er
calið að um ásetningsofbeldi hafi ver-
ið að ræða. Eftir að lögreglan náði
að stilla til friðar voru 7 manns flutt-
ir í fangamóttökuna og eftir yfir-
heyrslur fengu tveir aö gista fanga-
geymslurlögreglunnar. -ÍS
Lýst eftir pilti
Lögreglan í Hafnarfirði lýsir eftir
Halldóri Heimissyni, pilti á fjórtánda
ári.
Halldór er grannur, 165 cm, með
dökkt, stuttklippt og þykkt hár. Hann
var klæddur i dökkgræna her-
mannaúlpu og svartar gallabuxur.
Síðast sást til Halldórs í Fellahverfi
'*'• síðdegis í gær þegar hann fór að
heiman frá kunningja sínum og ætl-
aði suður í Hafnarfjörð. -pp
Íslendingurídöns ku fangelsi gerir em 1 eina flóttatiiraun:
Stökh ■ W nai af tíu im múi metra rog
braut baða fætur - hp.fur hlotið dóma fvrir rán 02 ofbeldi 02 er kunnur sem flóttakón^urinn
-
Gísli Kiistjáns3on, DV, Árósum: Islendingurinn er nú kunnur í dönskum blööum sem flóttakóng- ust þeir upp á múr fangelsisins og í þann mund urðu fangaverðir var-
„ Viö eigum enn eftir að yfirheyra báða mennina og finna út nákvæm- lega hvernig þeir fóru að viö flótt- ann. Við getum enn sem komið er aðeins staðfest að annar mann- anna, íslendingurinn, liggur á sjúkrahúsi, brotinn á báðum fót- um,“ segir Ilse Cohn hjá fangaeftir- litinu í Kaupmannahöfn um mis- heppnaðan flótta tveggja fanga úr Vestre-fangelsinu þar í borg. urinn eftir að hafa oft smogið úr greipum réttvísinnar i Danmörku. Skömmu fyrir jól slapp hann úr fangelsi á Helsingjaeyri og notaði tímann sem hann gekk laus til að ræna banka en var gripinn fimm mínútum eftir ránið. Eftir því sem fréttir hér í Ðanmörku herma not- uðu tvímenningamir lök til að komast út um glugga á tómstunda- herbergi fangelsisins. Síöan kom- ir við flóttann. íslendingurinn stökk af múmum, tiu metra fall, og brotnaði á báðum fótum. Félagi hans náðist óslasaður. Sá afplánar dóm fyrir morð á leikaranum Toro McEwam sumarið 1991. Þeir kump- ánar eru meðal umtöluðustu saka- manna hér í Danmörku og er búist við að þeirra biði strangari gæsla en til þessa.
Rugla saman
verndartollum
og verðjöf nun-
argjöldum
í ljós hefur komið að í þeim mikla
fyrirgangi sem verið hefur í sam-
bandi við breytingar á búvörusamn-
ingnum undanfarið, hafa menn
ruglað saman verndartollum og
verðjöfnunargjöldum. Kjartan Jó-
hannsson, aðalsamningamaður ís-
lands hjá GATT, upplýsti þetta um
helgina en hann var kallaður heim
til aðstoðar við lausn þessarar deilu.
Kjartan benti á að kostnaðaijöfn-
unargjald, sem oftast væri kallað
verðjöfnunargjald, sneri að því að
jafna samkeppnisstöðu manna í iðn-
aði sem notar landbúnaðarafurðir
eða hráefni í framleiðslu.
Með GATT-samningnum væri ver-
ið að afnema innflutningsbönn og
magntakmarkanir. Verndartollar á
landbúnaðarafurðir væru því settir
á til að jafna verðmuninn á land-
búnaðarafurðunum annars vegar
heima fyrir og hins vegar í útlöndum.
Kjartan segir að þessu tvennu hafi
verið ruglað saman hér á landi.
-S.dór
Boga Péturssyni og Eyrúnu Eiðsdóttur varð ekki meint af volkinu utan að
þeim varð býsna kalt. DV-mynd Ægir Þórðarson
Tvennt bjargast giftusamlega úr sökkvandi bíl:
Flaut eins og
mjóikurferna og
faukútíós
Ægir Þórðarson, DV, Hellissandi:
„Þegar ég kom að Rifsósnum sá ég
að vegurinn var kominn í kaf í vatns-
elg. Eg hægði ferðina og ætlaði að
fara yfir þar sem grynnra var. Það
skipti engum togum að í einni vind-
hviðunni fauk bíllinn af stað og ég
blindaöist af vatnsgusum sem gengu
yfir hann. Hann flaut eins og mjólk-
urfema á vatninu og út í ósinn og
byrjaði að sökkva,“ segir Bogi Pét-
ursson sem var hætt kominn ásamt
unnustu bróður síns þegar bíll sem
hann ók fauk út af veginum fyrir
neðan Rif á laugardag.
Bogi var að keyra Eyrúnu Eiðsdótt-
ur frá Ólafsvík til Hellissands þegar
óhappið varð, í foráttuveðri, og hafn-
aði bíiiinn í ósnum eins og fyrr sagði.
Asahláka var og mikil rigning.
„Ég náði að opna gluggana og við
Eyrún komumst út og upp á topp
búsins. Um það leyti komu vegfar-
endur að og einn þeirra, Helgi Bergs-
son, synti með spotta til okkar en
hann missti hann á leiðinni. Við vor-
um þá þarna þijú á bílnum svo ég
synti í land og þar var Ólafur Rögn-
valdsson með annan spotta. Við
bundum hann utan um mig og ég
synti út að bílnum og tók Eyrúnu í
fangið og þeir ÓU og Helgi toguðu
okkur í land,“ sagði Bogi.
Boga og Eyrúnu varð ekki meint
af volkinu utan þess að þeim varð
býsna kalt. Að sögn Eyrúnar mátti
ekki tæpara standa að opna glugg-
ana, sem í voru rafdrifnar rúður, en
þau skriðu út þar sem vatnið var
farið að flæða inn með þeim. Þeim
var síðan ekið heim og voru að mestu
búin að jafna sig um kvöldið.
LOKI
Strýkur hann næst í hjólastól?
Veðrið á morgun:
Víða
vægtfrost
Á morgun verður austlæg átt,
sums staðar stinningskaldi við
suðurströndina en annars gola
eða kaldi. Suðaustanlands og á
Austfjörðum verða skúrir eða
súld með köflum en annars verð-
ur að mestu þurrt og víöa létt-
skýjað. Inn til landsins verður
víða vægt frost en annars verður
hitinn á bilinu (M stig.
Veðrið í dag er á bls. 44
NSK
KÚLULEGUR
SuAuríandsbraut 10. S. 686490.