Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1994, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994 Fréttir Ólgan fer vaxandi á Vestfjörðum: Farið að huga að stof n- un stjórnmálasamtaka - vilja stefna öllum Vestfirðingum til fundar á einn stað „Það er víst ekki ofsagt að ólga fari vaxandi hér á Vestíjörðum. Og menn eru að gera sér grein fyrir því að við eigum aðeins tveggja kosta völ til að ná rétti okkar. Önnur er í gegn- um dómstólana. Hin leiðin er í gegn- um pólitíkina. Dómstólaleiðin er flókin og seinfarin. Hún getur tekið mörg ár. Pólitíska leiðin þarf ekki að taka langan tíma. Við skulum ekki gleyma því aö það er ekki nema rétt rúmt ár til alþingiskosninga og þá getur verið um margt að velja,“ sagði Reynir Traustason, skipstjóri á Flateyri, sem hefur verið í forystu fyrir þá sem vilja aðgerðir til að fá aukinn þorskkvóta til handa Vest- firðingum. Hann staðfesti það sem DV hafði heyrt að ýmsir Vestfirðingar, og jafn- vel fleiri andstæðingar kvótakerfis- ins í landinu, væru að velta fyrir sér stofnun póhtískra samtaka með framboð til Alþingis á næsta ári í huga. DV hefur heimildir fyrir því að nokkrir þekktir menn í þjóðfélag- inu, sem vilja breytingar á núverandi stjómkerfi fiskveiða, hafi rætt þessa hugmynd. „Það er engin spuming að ýmsir velta þessu fyrir sér í fúlustu alvöru. Þá er einnig verið að huga að því að kalla Vestfirðinga saman á einn stað til fjöldafundar. Menn vilja að það verði þegar umræður hefjast á Al- þingi um breytingar á lögunum um stjóm fiskveiða. Allt er þetta í alvar- legri athugun,“ sagði Reynir. Því má bæta við að hið óháða ís- firska héraðsblað BB birtir í síðustu viku ritstjómargrein þar sem spurt er í fyrirsögn Hvar eru þingmenn? Þar er því haldið fram að Matthías Bjamason sé eini málsvari Vest- fiarða í hópi þingmanna. Hann sé að hætta og þá eigi Vestfirðir engan málsvara á Alþingi. Greinin er skrif- uð í þeim anda að menn gætu verið að undirbúa stofnun pólitískra sam- taka. -S.dór Afkoma Visa 1993: Helmingi minni hagnaðuren ’92 Hagnaður af rekstri Visa íslands á síðasta ári nam 57 milljónum króna. < Það er meira en helmingi minni hagnaður en árið áður þegar hann var 124 milljónir króna. Forráða- menn fyrirtækisins nefna tvær ástæður fyrir minni hagnaöi, annars vegar kostnað vegna debetkorta og hins vegar minni tekjur af þjónustu- gjöldum. Korthafar Visa vom rúmlega 97 þúsund talsins í árslok 1993, þar af tæplega 3 þúsund debetkorthafar. Markaðshlutdeild Visa hérlendis var 76% sem er óbreytt frá árinu 1992. Heildarviðskiptavelta fyrirtækis- ins sl. ár nam 42,7 milljörðum króna og jókst um 2,3 milljarða frá 1992. Þetta er helmingi hægari vöxtur en frá 1991. Af 42,7 milljörðum vom við- skipti innanlands með Visa-kort 36,9 milljarðar og 5,8 milljarðar erlendis. Vanskil korthafa vom 409 milljónir í árslok sem er aðeins meira en árið áöur. -bjb Stúdentsefni í Menntaskólanum i Reykjavík og kennarar dönsuðu í gærkvöldi í lestrarsal bókhlöðunnar Iþöku við fiðlutóna. Fiðluballið er gömul hefð sem hefur verið endurvakin og lærðu nemendur vals, ræl og polka í leikfimi til að fótamenntin brygðist ekki þetta kvöld þegar danskortin voru hátt á lofti. Allir voru prúðbúnir, stúlkur í síðum kjólum og piltar ýmist i kjólfötum eða smóking. DV-mynd GVA Vestfirðir: Steinbítsvertíðin ekki af stað vegna loðnufárs „Við köllum það loðnufár á Vest- fiörðum þegar loðna nær inn á miðin okkar á þessum árstíma og drepst þar eftir hrygningu. Þá leggst allur fiskur í loðnuna og ekki fæst bein úr sjó. Það er tilgangslaust að reyna að róa. Steinbítsvertíðin var að hefi- ast en nú verða menn að bíða og sjá hvað setur. Loðnufár kemur ekki á hverju ári og það er mismikið. Stund- um er það mjög lítið, stendur yfir í nokkra daga, eina viku eða svo. En svo eru líka til dæmi um allt að sex vikna loðnufár," sagði Reynir Traustason, skipsfióri frá Flateyri, í samtali viö DV í gær. Hann sagði að meðan loðnufárið stæði yfir biðu menn bara í landi. Menn reyndu að hafa samvinnu um að senda einn eða tvo báta til að kanna ástandið. Skömmu eftir að loðnufári lýkur geta menn hafist handa við steinsbítsveiðarnar. Þá er engan þorsk aö fá, hann fæhst stein- bítinn en kemur aftur þegar steinbít- urinn hverfur af miðunum. „Sem dæmi um ördeyðuna á mið- unum meðan á loðnufári stendur veit ég dæmi um bát sem reri með 40 bjóð, það eru 16.000 krókar, og hann fékk aðeins tvo fiska. Það er þvi ekki til nokkurs að reyna að róa meðan á loðnufárinu stendur,“ sagöi Reynir. Hann sagði að ef fárið stæði stutt gætu menn byijaö að veiða steinbít undir lok þessa mánaðar. Hægt væri að stunda steinbítsveiðar fram í byrj- un mai ef vel lætur. „Þá hafa Vestfiarðabátar vanalega farið á þorskveiðar. Nú verður ekk- ert af því, allur þorskkvóti er búinn fyrir vestan," sagði Reynir Trausta- son. -S.dór Ökumaðúr stöðvaði í snjókófi við Leirvogsá: Fernt á slysadeild, fjórir bflar skemmdir Fjórir bilar skemmdust og einn ökumannanna sat fastur i skemmdum bil sinum eftir slysið. DV-mynd Sveinn Femt var flutt á slysadeild eftir árekstur fiögurra bíla á Vesturlands- vegi við Leirvogsá um klukkan eitt í gærdag. Slysið atvikaðist með þeim hætti að kona sem ók bíl með tveimur bömum í stoppaöi sökum blindu vegna snjókófs. Kom þá jeppi aövíf- andi og ók aftan á bíl hennar. Öku- maður jeppans ók af vettvangi án þess að huga að konunni eða bömun- um í bílnum. Kom þá annar jeppi aðvífandi og stöðvaði hann til að huga að þeim. Ekki vildi betur til en að flutningabíll sem átti leið um ók aftan á aftari bílinn þannig að hann kastaðist á þann sem var skemmdur á veginum. Lögreglu- og sjúkrabílar komu á vettvang og vom bömin og konan í fólksbílnum flutt í sjúkrahús, ásamt manninum sem ætlaði að koma þeim til aðstoðar, hann var reyndar um tíma fastur í bíl sínum. Ekkert þeirra reyndist hins vegar alvarlega slasað en manninum var haldið á sjúkra- húsi til eftirlits fram eftir kvöldi. Maðurinn sem ók af vettvangi gaf sig svo fram við lögreglu á Akranesi síðdegis og samkvæmt upplýsingiun lögreglu segist hann hafa rætt við fólkið, farið upp í bíl sinn og ekið á brott. Er talið víst að hann hafi feng- ið vægt áfall og ekki áttað sig á hvað hann væri að gera. Tveir bílanna voru fluttir af vett- vangi með kranabíl. -pp Stuttar fréttir Bændur sameinast Búnaöarþingi lauk í gær með því að samþykkt var að sameina Stéttarsamband bænda og Bún- aðarfélag íslands. Samskipfatt Landsbankinn hyggst færa nið- ur 420 milljóna hlut í Samskipum en fyrirtækið er falt um þessar mundir. Mbl. greindi frá þessu. Nær uppselt er í aliar utan- landsferðir um páskana sam- kvæmt frétt Stöðvar 2. Stéttarfé- lagafargjöld eru mjög vinsæl. 35 prósent arðsemi Að mati borgarverkfræðings er arðsemi gatnaframkvæmda í Reykjavík allt að 35%. Stöð 2 greindi frá þessu. EdduhótelaðNúpi Ferðaskrifstofa íslands hf. hef- ur tekið Núpsskóla á leigu til að reka þar Edduhótel. Þetta kom fram á Stöð 2. Klerkur á móti Gunnlaugur Stefánsson, þing- maður og prestui', leggst gegn afnámi verðjöfnunar á oliuvör- um samkvæmt frétt Sjónvarps- ins. Aðsókn í Katthott Um 280 óskiiakettir komu í Kattholt á síðasta ári samkvæmt frétt Alþýðublaðsins. 160 kettir misstu heímili sín. TalaðumWiaskatta Bifreiðaeigendur ætla að ræða 18 milljarða bílaskatta við fiár- málaráðherra á opnum fundi ó Holiday Inn í kvöld. Lánsamurlandi Lónasjóður Vestur-Norður- landa hefur til þessa lánað mest til íslendinga. Alþýðublaðið greindi frá þessu. Keðjubréf gengur á milli veiði- manna þess efnis að klekkja á Össuri Skarphéðinssyni. Tíminn greindi frá þessu. Ofbeldishneigður Kári Kári, svanurinn margfrægi, er orðinn frekur og ofbeldishneigð- ur við gesti Tjamarinnar sam- kvæmtfréttTímans. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.