Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1994, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1994, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 10. MARS 1994 Fréttir Kristín Ingvadóttir sem varð fyrir árás dæmds líkamsárásar- og kynferðisbrotamanns: Þolendur látnir borga en f angar f á ókeypis hjálp - brotamönnum sleppt, fá tækifæri til að ógna og sleppa við greiðslu bóta „Þaö er oftast horft fram hjá þolendum nauögana eða alvarlegra líkcunsárása á meöan árásarmenn- irnir fá aöstoð. Það er út í hött gagn- vart öryggistilfinningum þolanda í slíkum málum þegar árásarmenn viðurkenna afbrot sín viö yfir- heyrslu og er sleppt strax á eftir. Það var hræðileg tilfinning í mínu máli þegar ég gekk út úr yfirheyrslu hjá RLR vitandi að árásarmaðurinn gekk út sem frjáls maöur klukkutíma áður. Það er ekki bætandi á vanlíðan kvenna stuttu eftir svona atburði að eiga á hættu að hitta viðkomandi árásarmann á næsta götuhomi. Það kom líka á daginn að þessi maður ásótti mig oftar en einu sinni áður en hann var dæmdur," sagði Kristín Ingvadóttir sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás afbrotamanns sem ný- lega var dæmdur í 12 ára fangelsi fyrir tvær nauöganir, líkamsárás, rán og fleira. Kristín varð fyrir þess- ari lífsreynslu í maí árið 1992. Árásin varð með þeim hætti aö árásarmaðurinn var með hnif og keyrði Kristínu niður í rúm, tók hana kverkataki og hélt fyrir vit hennar. Hún hlaut áverka á hálsi og æðar sprungu í andliti. „Ég var sekúndu- broti frá þvi að vera ekki hér í dag,“ sagði Kristín. Kristín og fjölskylda hennar telja að reglugerðir og lög í dóms- og lög- gæslukerfinu taki nær ekkert mið af þeim erfiðleikum sem fómarlömb nauðgana og líkamsárása þurfa að ganga í gegnum - afbrotamönnum sé sleppt út eftir að þeir játa, fái þannig tækifæri til að ógna fóm- arlömbunum strax aftur og fái síðan ókeypis félagslega hjálp í fangelsum sem þolendumir fá alls ekki - sér- staklega í ljósi þess að dæmdar Sárin gróa og marblettir fara en það sem mest situr i manni er ofsahræðsla og sorg,“ segir Kristín sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í maí 1992. DV-myndGVA miskabætur fást sjaldan greiddar af hálfu árásarmannanna - kerfið þrýsti ekkert á slíkt. „Það er áríðandi að ríkið annist greiðslur á þessum bótum og það er ekki hægt að horfa fram hjá þeim kröfum sem konum hafa verið dæmdar og em í gildi,“ sagði Kristín. „Okkur em dæmdar miskabætur sem við eigum að geta notað til að koma okkur á réttan kjöl aftur. Síöan á maður að banka upp á með sinn pappír hjá viðkomandi afbrotamanni og rukka hann. Þessir menn em oft- ast eignalausir þannig að maður er með ónýtan pappír í hendinni. Afbrotamaðurinn fær síðan sína sálfræði- og félagslegu þjónustu ókeypis - sálfræðiþjónustu sem kost- ar aðra 4-5 þúsund krónur á tímann. Það er jákvætt að brotamenn fái að- stoð en það verðum við að fá líka. Konumar sitja eftir og eiga erfitt með að lifa með þeim hlutum sem hafa gerst," sagði Kristín. Þegar maðurinn sem réðst á Krist- ínu strauk frá Litla-Hrauni síðastlið- ið sumar leitaði Kristín eftir aðstoð lögreglu við að fá vemd á meðan hans var leitað - því var hafnað en Kristínu ráðlagt að halda sig ekki á heimili sínu. „Eftir að ég lenti í þessu fékk ég hjálp hjá Stígamótakonum. Sárin gróa og marblettir fara en það sem mest situr í manni er ofsahræðsla og sorg. Tíminn líður og allt batnar en hlutir í lífinu minna mann á erfið- leikana og maður vonast eftir að lengra líði á milli erfiðu tímabilanna. En það er áríðandi að konur læri hvað hægt er að gera til að koma í veg fyrir að vera nauðgað,“ sagði Kristín Ingvadóttir. -Ótt í dag mælir Dagfari -----—-----—---r-—-------------- Guðsmennirnir slást Snemma beygist krókurinn segir máltækið. Þaö hefur sannast á guð- fræðinemum í Háskólanum. Þeir héldu nýlega árshátíö í guðfræði- deildinni, stúdentamir, sem eru aö búa sig undir þjónustu við trúna og kirkjuna og hina guðlegu hand- leiðslu. Þar gengu menn rösklega til verks og skemmtu bæði skratt- anum og sjálfum sér. Var gerður góður rómur að þessari skemmtan og verðandi guðfræðingar létu ekki deigan síga og raunar varð ekkert lát á fagnaðinum fyrr en slagsmál- in komust á það stig að menn gengu beinbrotnir af vígvellinum. Leikurinn var þá fyrst stöðvaður þegar stúlka fótbrotnaði á dans- gólfinu og einn kennarinn var sleg- inn af guðfræðinema og gera þurfti aö meiðslum hans á slysavarðstof- unni. Ekki segir hvort tengsl séu á milli fótbrotsins á dansgólfinu og kjaftshöggs nemandans en það er mál manna að allur hafi þessi slag- ur hert verðandi presta og guðs- menn í trú sinni og námi og muni skila betri klerkum út í hinn harða heim, þegar þar að kemur. Sannleikurinn er auðvitað sá að prestar verða að gera meira heldur en að leggjast á bæn og treysta á guð sinn og kirkju. Prestar þurfa að takast á við margvísleg vanda- mál þegar þeir þurfa að hafa af- skipti af sóknarbömum sínum og skjólstæðingmn. Þá er ekki verra að hafa undirbúið sig vel í guð- fræðideildinni með áflogum og uppákomum, eins og þeirri sem átti sér stað á árshátíðinni. Þetta kemur og fram í viðtali við forseta deildarinnar sem telur fót- brot stúlkunnar og ryskingamar á eftir vera minni háttar mál enda hafi þar átt hlut að máli mikill fyr- irmyndarnemandi og dagfarsprúö- ur. Þetta er ekki stórmál segir forset- inn og telur augsjáanlega að þetta hafi helst verið likamsæfing eða nauðsynlegur undirbúningur fyrir guðfraeðinga sem seinna meir þurfa að takast á við guðsbömin í lífsins ólgusjó. Hvað er þá eitt kjaftshögg á milli vina? Og hvað er eitt fótbrot í kröppum dansi? Maður veit aldrei nema klerkar þurfi að gefa á kjaft- inn og fá á kjaftinn í viðureignum sínum við trúlitla guöleysingja þegar þeir taka ekki mark á predik- unum eða bænahöldum. Ef ekki trúfrelsið þá hnefarétturinn. Hvaö segir ekki í Biblíunni? Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Fyrir öllu þessu þarf guðfræði- deildin á sjá og það sem Biblían kennir þarf að prófa í framkvæmd og af eigin raun. Það er enginn maður með mönnmn né heldur prestur með prestum sem ekki kann að taka á móti og bijóta mann og annan þegar hendur em látnar skipta. Þar að auki er fyrirgefning- in nærtæk og auðsótt mál í sjálfri guðfræðideildinni. Þar geta þeir lamið menn og fótbrotið fólk í þeirri öraggu vissu að slíkar lim- lestingar hafi ekki alvarlegar af- leiðingar í for með sér. Það eina sem guðfræðistúdentamir þurfa að gera er að leggjast á bæn og biðja guð sinn og fómarlamb um fyrir- gefningu. Sá sem ekki fyrirgefúr syndir og misgjörðir annarra á lítið erindi í guðfræðideild. Þess vegna er rétt aö láta strax á það reyna í deildinni og í náminu hvort verð- andi prestar og guðsmenn hafi þá kristnu auðmýkt aö taka fótbrotum með jafnaðargeði. Ef kennarar geta ekki tekið kjaftshöggum eins og kristnum karlmönnum sæmir eiga þeir ekki að vera að þvælast á dansleiki hjá nemendum sínum. Þeir eiga ekki að halda því fram að það sé alvar- legur hlutur þó maður slái mann. Þeir eiga að skilja að þetta er liður í náminu, þetta er undirbúningur fyrir sjálf prestsstörfm í hinum grimma heimi. Enda gerir deildin ekki mikið með þetta og forseti guðfræðideild- arinnar segir það drykkjuraus þeg- ar einhver er að halda því fram að hér hafi verið á ferðinni líkams- árás. „Þaö var ekkert tilefni að árásinni," segir forsetmn í viðtali viðDV. Þetta er rétt og sannkristiö við- horf. Ef ekkert tilefni er til árásar þá er árás ekkert annað en drykkjuraus og er bara svona ósköp venjuleg árás sem þeir gera ekkert með í guðfræðideildinni. Og húllum hæ á árshátíð og ekk- ert mál. Bara guðfræðingar að slást! Og hvað með það? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.