Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Side 24
24 LAUGARDAGUR 12. MARS 1994 Næg atvinna í íslendinganýlendunni Hanstholm í Danmörku: Viljum gjaman fleiri íslendinga - segir framkvæmdastjóri eins stærsta fiskvinnslufyrirtækisins Ari Sigvaldason, DV, Árósum: „Viö viljum gjarnan fá fleiri íslend- inga hingaö. Okkur vantar sérhæft starfsfólk og viö erum mjög ánægö með þá íslendinga sem vinna hjá okkur. Þeir hafa svipað lundarfar og viö og eru mjög góöir til vinnu." seg- ir Jens Tellefssen. framkvæmda- stjóri fiskvinnslufyrirtækisins Piant- ell í Hanstholm á Norövestur-Jót- landi í Danmörku. Fimm íslendingar vinna hjá Jens um þessar mun'dir en eins og komiö hefur fram í fréttum DV aö undanfornu búa nú 36 íslend- ingar í Hanstholm. Langflestir starfa við fiskvinnslu. Flestir liafa flutt út síöustu tvö árin og von er á fleiri á næstu mánuöum. í Hanstholm búa aöeins um 3000 manns. En hvers vegna í óskopunum sækja íslendingar til Hanstholm? Bærinn er ekki mjög þekktur í Danmörku og því síður á íslandi. Hanstholm getur vart talist mjög spennandi bær. Hér í Danmörku mundi hann sjálfsagt teljast þaö sem á íslandi kallast „krummaskuð". Jens Tell- efssen telur ástæðuna fyrst og fremst þá aö atvinnuástandið hafi verið nokkuð gott í Hanstholm síöustu misseri og miklu betra en i flestum útgerðarbæjum í Danmörku en nokkur kreppa hefur verið í dönsk- um sjávarútvegi síöustu ár. Það hefur spurst út á íslandi aö í Hanstholm sé vinnu aö fá fyrir fólk sem vant er fiskvinnslu og ekki hefur það spillt fyrir aö íbúðaverð í Hanst- holm hefur verið mjög lágt á undan- fórnum árum. Þaö má því meö nokkrum sanni segja að íslendingar hafi sjálfir tekið upp framkvæmd hinnar gömlu áætlunar um flutning íslensku þjóðarinnar á Jótlandsheið- ar. í fyrsta áfanga hefur ströndinni aðeins veriö náö. Ódýrt einbýlishús Hjónin Gunnar Gunnarsson og Sig- fríður Sólmundsdóttir frá Sandgeröi fluttu til Hanstholm í ágúst í fyrra. Sigfríöur fékk strax vinnu eftir níu daga og Gunnar skömmu síöar. Þau keyptu fljótlega um 200 fermetra hús fyrir aðeins rúmlega 4,7 milljónir ís- lenskra króna. Flestir íslendinganna hafa keypt hús. „Það var raunar ævintýraþrá sem olli því aö viö fluttumst hingaö út. Viö höföum heyrt aö það væri helst vinnu aö fá hér. Meöal annars haföi Um helmingur islendinganna í Hanstholm býr við götuna Gyvelvænget. Hér eru Gunnar Gunnarsson og Sigfríður Sólmundsdóttir ásamt börnum. íslendingur sem búið hefur hér í nokkum tíma auglýst hús sitt til sölu í DV og látið fylgja að næga atvinnu væri að fá í Hanstholm. Þessi auglýs- ing vakti nokkra athygli heima. Við erum mjög ánægð hérna, börnin hafa fallið vel inn í hið daglega líf. Mér finnst viö komast betur af hér í Dan- mörku. Launin eru hærri og það er mun ódýrara aö lifa. Mér sýnist að viö verðum héma næstu árin,“ segir Sigfríöur. Þess má geta að í Piantell- fyrirtækinu fá menn um 85 krónur a tímann eða 890 krónur íslenskar. Sig- fríður sagðist hafa fengið um 420 krónur á tímann í frystihúsinu þar sem hún vann á íslandi í bónus. Vinnutíminn hjá Piantell er frá sjö á morgnana til klukkan þrjúá daginn. „Mikil menntun hefur ekkert að segja hér en reynsla í flski allt. Það eru dæmi um að fólk hafi komið hingað, ekki fengiö vinnu og farið aftur heim,“ segir Sigfríður. Skíðavikan ísafirði Rútuferö frá Akureyri á skírdag kl. 9.30 frá Umferöarmiöstööinni^ ogfrá Reykjavík kl. 10.00 frá BSÍ. Frá ísafiröi annan í páskum kl. 12.00. Tilboðsverð áfargjaldi og gistingu til 20. mars. „Sparfar“ Reykjavík - ísajjöröur - Reykjavík frá kr. 5.050. Meö gistingu á Hótel ísafirði í fjórar nœtur m\morgunveröi frá kr. 11.050. Upplýsingar hjá Allrahanda í síma 671313 og BSÍ, sími 22300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.