Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 12. MARS 1994
39
og dældu upp úr mér - ég sá göngin
og ljósiö og allt það. Það hlýtur að
hafa verið einhver tilgangur með því
að láta mig lifa þetta af og ég held
að mér sé þess vegna ekki ætlað að
deyja úr eyðni,“ segir Pétur.
Sorgarsamtök fyrir
þásem missthafa
Steve hefur verið mjög virkur í
baráttu HTV-smitaðra á undanfórn-
um árum og var um árabil formaður
danskrar deildar alþjóðlegra sam-
taka sem eru nokkurs konar sorgar-
samtök. Þeir sem misst hafa ein-
hvern nákominn úr eyðni koma sam-
an, ræða sín mál og hjálpast að við
að komast yfir sorgina. Jafnframt
útbúa aðstandendur hvers látins,
sjúklings teppi sem síðan eru sýnd á
alls konar samkomum viða um heim
þar sem tækifærið er nýtt til að vekja
athygli á málstað eyðnismitaðra.
Steve hefur að mestu sloppið við
veikindi af völdum HTV-veirunnar
ennþá - reyndar var hann búinn að
vera nokkra daga í veikindafríi þegar
við töluðum saman þar sem fjarlægja
þurfti úr honum ákveðna kirtla. Það
var af völdum veirunnar en hann
segir að það hafi ekki verið neitt
hættulegt.
Steve hefur starfað sem skemmt-
ana- og rekstrarstjóri á stærsta
hommaskemmtistað í Danmörku,
After Dark, sem eru fjórir staðir í
einum í einu húsnæði á mörgum
hæðum. í starfi hans felst öll kynning
á staðnum út á við og skipulagning
á dagskrá en skemmtikraftar koma
alls staðar að úr heiminum. Auk þess
kemur Steve fram á staðnum í hinum
ýmsu hlutverkum. Eftir að Pétur
missti vinnuna hefur hann gripið í
að aðstoða Steve á skemmtistaðnum.
Pétur undirritar giftingarsáttmálann. Steve tekur á meðan við árnaðaróskum móður sinnar en hinn vigsluvotturinn, Rene, sem skartaði indíánafjöðrum
í tilefni dagsins, fylgist með. Pétur tók sér eftirnafn Steves við giftinguna og heitir nú Pétur Einar Jóhannesson Rotherforth.
Bónorð á götu úti
Þeir Pétur og Steve voru ekki
búnir að þekkjast nema fáeinar vikur
þegar Steve bað Péturs. Það gerðist
með þeim hætti að þeir voru að koma
heim af diskóteki snemma nætur og
leiddust og létu vel hvor að öðrum
einhvers staðar í miðborg Kaup-
mannahafnar. Þá bar að hóp af ungu
fólki frá Egyptalandi sem gaf sig á
tal við þá félaga og lék forvitni á að
vita hvers vegna þeir væru að kyss-
ast. Það spurði margs um málefni
samkynhneigðra og þegar það frétti
að í bígerð væri löggjöf sem leyfði
samkynhneigðum aö giftast spurði
það hvers vegna þeir giftust þá ekki
bara. Þá kraup Steve á götuna fram-
an við Pétur og bað hann að giftast
sér. Og þegar Pétur játti því kvað við
hressilegt lófatak frá fólkinu.
Síðan tók við bið eftir því að Steve
fengi ríkisborgararétt í Danmörku
en til þess að samkynhneigðir geti
gifst verður annar aðilinn að vera
danskur ríkisborgari. Pétur tímdi
hins vegar ekki að fóma sínum ís-
lenska ríkisborgararétti fyrst það
var ekki nauðsynlegt, til þess eru
ræturnar til landsins of sterkar.
Skrítna
amaryllis-blómið
Einhverjir kunna að spyrja að
loknum lestri á þessu viðtali hvers
vegna í ósköpunum samkynhneigðir
séu eiginlega að giftast. Svarið við
því er í raun ósköp einfalt: af ná-
kvæmlega sömu ástæðum og gagn-
kynhneigðir giftast. Þeir vilja deila
kjörum í viðurkenndu sambandi
með þeim sem þeir elska og öðlast
um leið þau réttindi og þær skyldur
sem hjónabandi fylgja. Þar kemur
erfðaréttur mjög sterkt inn í, svo og
ekkna- og ekklabætur.
Undir lok samtalsins, sem ég átti
við þá Pétur og Steve kvöldið fyrir
brúðkaupið, sögðu þeir mér sögu
sem hér fer á eftir: Þannig var að
þegar Steve og Ole, sem lést úr eyðni,
voru nýlega fluttir saman gaf systir
Ole þeim blóm, amaryllis, og það
blómstraði alltaf einu sinni á ári, á
afmælisdegi Ole. En þegar Ole dó
hætti blómið að blómstra. Öll þau ár
sem Steve syrgði Ole blómstraði
blómið ekki í eitt einasta skipti en
þegar Pétur kom inn í líf Steves gerð-
ust undur og stórmerki: amaryllis-
inn fór að blómstra aftur og enn á
afmælisdegi Ole. Svo skemmtilega
vildi líka til að þetta árið kom blómið
með stöngul og knúpp sem sprakk
út á brúðkaupsdegi Péturs og Steves.
Eða var það kannski engin tilviljun?
Viðtal og myndir: Jón Þórðarson
Vinir Péturs og Steve sýndu drag show.
Hátt í tvö
hundruð manna
brúðkaupsveisla
Ríkisborgararéttur Steves fékkst
í janúar síðastliðnum og þá var ekki
eftir neinu að bíða. Hjónaefnin ruku
í að skipuleggja veislu, sauma og
hanna búninga, sem þeir gerðu sjálf-
ir, og gera ráðstafanir til að panta sal
fyrir veisluna og síðast en ekki síst
að panta tíma hjá dómara sem gaf
þá saman í ráðhúsinu í Fredriksberg
í Kaupmannahöfn síðastliðinn
mánudag.
Vígsluvottar voru frú Joyce Rot-
herforth, móðir Steves, og Rene
Sondergord, miðaldra maður, eig-
andi diskóteksins After Dark sem
Steve vinnur á. Þegar Pétur og Steve
höfðu játast hvorir öðrum og dómar-
inn, ung kona, hafði lýst þá hjón
kváðu við mikil fagnaðarlæti í dóm-
salnum frá fjölda af vinum þeirra
hjóna sem viðstaddir voru vígsluna.
Um kvöldið var síðan mikil veisla
í sal í Kristjaníu í Kaupmannahöfn.
Það skal tekið fram að á skilti við
innganginn í salinn stóð að þar væru
hvorki eiturlyf né vopn leyfð svo að
allt fór fram með ró og spekt þó að
hverfið hafi á sér neikvæðan stimpil
í hugum margra.
Hátt í 200 gestir mættu til veislunn-
ar sem var haldin með Atlantis-
útópíuna sem meginstef en sam-
kvæmt goðsögninni um Atlantis var
þar talið hafa verið mjög þróað ríki
í eina tíð sem síðan hafi sokkið í sæ
en íbúar ríkisins dreifst út um allar
jarðir. Pétur var klæddur sem
egypskur faraói og Steve sem Maya-
indíáni en fólk af þeim kynþáttum
er talið vera hreinir afkomendur
Atlantisfölksins. Margir veislugesta
tróðu upp með söng- og dansatriði,
þar á meöal íslensk stúlka, Marta
Rúnarsdóttir, vinkona strákanna,
sem ásamt kínverskum strák,
Chang, sýndi frumsaminn nútíma-
ballett sem túlkaði þaö er Atlantis
rís úr sæ, en hluti af útópíunni kring-
um Atlantis er að það muni rísa úr
sæ á ný og þúsund ára sæluríki verða
stofnað. Ónnur skemmtiatriði voru
drag show frá skemmtistaðnum sem
Steve vinnur á, söngvarinn Think-
Fat-Bone tróð upp og svo mætti lengi
telja. Eftir að brúðgumarnir höföu
skorið fyrstu sneið af tertu einni
mikilli, sem var eftirlíking af borg-
inni Atlantis, með síkjum, virkjum
og tilheyrandi, tóku þeir upp gjafir
sem bárust. Á eftir var stiginn dans
fram eftir nóttu.