Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1994, Page 46
58 LAUGARDAGUR 12. MARS 1994 Afmæli Jörundur Þorsteinsson deildarfuU- trúi, Hvassaleiti 58, Reykjavík, verð- ur sjötugur á morgun. Starfsferill Jörundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk prófl frá Gagnfræðaskóla Reykvíkinga (Ág- ústarskólanum) 1939 og stundaði nám við Samvinnuskólann í Reykjavik 1943 og útskrifaðist það- anímaí 1944. Jörundur vann við afgreiðslu- og skrifstofustörf í Reykjavík frá 1944. Hann var skrifstofumaður hjá Loft- leiöum 1954-57, bókari hjá fyrirtæk- inu Sveinn Björnsson og Ásgeirsson 1957-59, starfaði á Keflavíkurflug- velli 1959-64, afgreiðslu- og skrif- stofumaður hjá Skóbúð Austurbæj- ar 1964-75 en þá hóf Jörundur störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur í innkaupadeild og varð síðar deild- arfulltrúi hjá markaðsmálum, þjón- ustudeild, og hefur verið þar síðan. Jörundurhefur starfað mikið að félagsmálum. Hann átti sæti í full- trúaráði Starfsmannafélags Reykja- víkurborgar í nokkur ár og í stjóm Félags starfsmanna Rafmagnsveit- unnar, þar sem Jörundur hefur set- ið í skemmtinefnd sem formaður síðustu ár. Hann lék knattspyrnu í öllum aldursflokkum Knattspyrnu- félagsins Fram og sat í stjóm þess á ámnum 1950-60 og var formaður þess 1954-55. Jörundur starfaði sem knattspymudómari um 30 ára skeið og var eftirlitsmaður Knattspymu- sambands íslands á knattspymu- leikjum þar til á síðasta ári. Hann var formaður Knattspyrnudómara- sambands íslands 1978-81. Jörundur hefur verið sæmdur gullmerkjum Knattspymusam- bands íslands, Knattspyrnudóm- arasambands íslands, Knattspyrnu- félags Reykjavíkur og Knattspyrnu- félagsins Fram. Fjölskylda Sambýliskona Jörundar er Krist- jana Jósepsdóttir, f. 20.7.1918. For- eldrar hennar: Jósep Jónsson, próf- astur í Snæfellsnesprófastsdæmi, og kona hans, Hólmfríður HaUdórs- dóttir, þau bjuggu á Setbergi við Grundarfjörð. Ónnur kona Jömnd- ar var Anna Svanhildur Daníels- dóttir, f. 5.7.1927, d. 8.3.1992, þau skildu. Fyrsta kona Jörundar var Guðrún Guðmundsdóttir, f. 18.10. 1926, þau skildu. Synir Jörundar og Önnu Svan- hildar: Daníel Magnús, f. 2.2.1952, kvæntur ÞórunniÓlafsdóttur, þau eiga eina dóttur, Önnu Svanhildi, fóstursonur Daníels Magnúsar og sonur Þórunnar er Siguröur Þór; Gunnar Hákon, f. 9.9.1954, hans kona er Elín Helgadóttir, þau eiga tvo syni, Helga og Gunnar, Gunnar Hákon átti son fyrir, Baldur Örn; Pétur Filipp, f. 27.2.1956, hann á einn son með Þórdísi Baldursdóttur, Óthar Fflipp. Dætur Jörundar og Guðrúnar: Margrét, f. 8.11.1945, hún á eina dóttur, Ósk; Sigríður, f. 22.8. 1948, hennar maður er Hafsteinn Júlíusson, þau eiga tvö böm, Elísa- betuogAtlaViðar. Systur Jörundar: Esther Svan- laug, f. 15.4.1926, d. 26.10.1993; Stein- unn, f. 18.6.1932, d. 13.8.1979. Hálf- systkin Jörundar, sammæöra: Lauf- ey, húsfreyja á Akureyri; Baldvin, heildsaii í Hafnarfirði; Elísabeth, húsfreyja í Bandaríkjunum. Foreldrar Jörundar: Þorsteinn Guðjónsson, f. 15.8.1900 á Breiðu- mýri í Stokkseyrarhreppi, d. 17.12. 1963, verslunarmaöur og um 30 ára skeið starfsmaður Reykjavíkur- borgar, og María Hrómundsdóttir, f. 14.11.1901 á Breiðabólsstöðum á Álftanesi, d. 11.12.1974. Fósturfor- eldrar Jörundar: FUippus Magnús- son, kjötmatsmaður í Reykjavík, og Margrét Jörundsdóttir en hann ólst upp hjá þeim frá 6 ára aldri. Ætt Bróðir Þorsteins var Guðmundur, kaupmaður í Reykjavík, afi Jó- hönnu Sigurðardóttur félagsmála- ráðherra. Þorsteinn var sonur Guð- jóns Bjömssonar, f. 14.6.1867 á Raufarfelli í Eyvindarhólasókn, og Steinunnar Margrétar Þorsteins- dóttur, f. 18.8.1867, í Úthlíð í Bisk- upstungum. María var dóttir Hrómundar Sig- urðssonar, f. 30.9.1879, Spör í Eyrar- sveit, og Þóru Bjamadóttur, f. um 1868. María ólst upp á Neðra-Hliði á Álftanesi hjá Jömndi Jóhannes- syni, sjómanni, og Jóhönnu Jóns- dóttur. Jörundur tekur á móti gestum í sal Félags- og þjónustumiðstöðvar eldri borgara í Hvassaleiti 56-58 kl. 16-18 á afmælisdaginn. Óskar Bjömsson Óskar Bjömsson húsvörður, Nes- götu 13, Neskaupstað, er sjötugur í dag. Starfsferill Óskar er fæddur í Neskaupstað ogólstþarupp. Óskar byrjaði til sjós 14 ára gam- all. Hann var á opnum trillubátum og síðan á stærri bátum og var ýmist á vertíð áHomafirði eða öðram stöðum. Óskar var á síld á sumrin og þá var hann þijá vetur í Færeyj- um. Síðasta stríðsárið var Óskar háseti með Hauki Ólafssyni skip- stjóra á vb. Stellu frá Neskaupstað. Hann var tvö ár háseti á Agh rauða og síðan annar matsveinn. Óskar vann tvö ár í prentsmiðju og stund- aði síðan almenna verkamanna- vinnu til 1962 en þá varð hann hús- vörður við Bamaskólann í Nes- kaupstað og gegnir þvi starfi enn. Fjölskylda Óskar kvæntist 18.2.1952 Brigitte Bjömsson (fædd Czubaiko), f. 5.11. 1928 í Austur-Prússlandi. Móðir hennar er Maria Kirsek, búsett í Cuxhaven í Þýskalandi. Synir Óskars og Brigitte: Haraldur (skírður Harald), f. 20.9.1950, maki Hlíf Kjartansdóttir, þau skildu; Pét- ur Guðbjöm, f. 18.2.1952, maki Kristín Brynjarsdóttir, þau eiga þrjú böm; Birgir Már, f. 30.1.1955, maki Elín Hjördís Erlingsdóttir, þau skildu, þau eigafjögur böm, Birgir Már er búsettur í Svíþjóö; Helgi, f. 14.7.1957, maki Thelma Stefánsdótt- ir, þau eiga einn son; Óskar Þór, f. 10.5.1968, hann á einn son með Maríu Karlsdóttur. Systkini Óskars: Birna; Hjalti, lát- inn; Guðrún Ingigerður, látin; Lára; Hákon; Hilmar; Margrét; Trausti; Kjartan, látinn; Hrefna, látin. Foreldrar Óskars: Björn Bjama- Óskar Björnsson. son, f. 7.1.1885 á Eskifirði, og kona hans, GuðbjörgBjarnadóttir, f. 21.3. 1888 á Dúki í Sæmundarhlíð, d. 28.6. 1951íNeskaupstað. Guðmundur Einarsson Guðmundur Einarsson pípulagn- ingarmaður, Heiðargerði ÍA, Reykjavík, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst upp á Kárastígnum. Hann stundaði verkamannavinnu hjá Skipaútgerð ríkisins 1958-61, stund- aði verslunarstörf í Austurveri hf. 1961—64, var leigubílstjóri á Bæjar- leiðum 1964-68, hóf nám í pípulögn hjá K. Auðunsson 1968, lauk sveins- prófi 1972. Guðmundur starfaði hjá K. Auðunsson til 1974 og síðan þjá ýmsum meisturum, m.a. hjá Húsum og lögnum við Ráðhús Reykjavíkur en sl. tvö ár hefur hann starfað hjá Sigurjóni Einarssyni pípulagning- armeistara. Guðmundur hefur setið í nefndum á vegum Sveinafélags pípulagning- armanna og sótt ýmis námskeið á lagnasviði. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 1.12.1967 Svönu Guðrúnu Guðjónsdóttur, f. 16.3.1947, línfreyju við Borgarspítal- ann. Hún er dóttir Guðjóns Tómas- sonar, deildarstjóra hjá Flugmála- stjóm, og Margrétar Ólafsdóttur ræstingakonu sem er látin. Böm Guðmundar og Svönu Guð- rúnar em Margrét Lilja Guðmunds- dóttir, f. 23.5.1971, ræstingakona og háskólanemi, en sambýlismaöur hennar er Sigþór Sigurðsson verk- fræöingur; Hlynur Guðmundsson, f. 28.2.1974, verkamaður; Guðjón Guðmundsson, f. 15.10.1978, nemi. Systkini Guðmundar: Erla, f. 15.11.1934, verslunarmaður á Homafirði; Magnús, f. 3.1.1937, að- stoðaryfirlögregluþjónn í Reykja- vík; Gylfi, f. 13.1.1941, bókari hjá Flugleiðum, búsettur í Kópavogi; Sigrún, f. 17.4.1947, húsmóöir í Reykjavík. Foreldrar Guðmundar voru Einar Sigurjón Magnússon, f. 14.10.1906, d. 20.6.1989, leigubflstjóri á Hreyfli, og kona hans, Anna Guðmundsdótt- ir, f. 3.6.1916, d. 14.9.1990, forstöðu- kona athvarfs Laugarnesskóla. Ætt Einar var sonur Magnúsar, verka- manns í Reykjavík, Einarssonar og Valgerðar Magnúsdóttur. Móðir Einars var Margrét Geirsdóttir frá Bjamastöðum í Grímsnesi. Anna var dóttir Guðmundar, b. og hómópata í Steinholti í Skaga- firði, Gíslasónar, b. í Geitagerði í Guömundur Einarsson. Skagafirði, Arasonar, b. á Ingveld- arstöðum, Jónssonar. Móðir Gísla var Sigurlaug Sigurðardóttir. Móðir Guðmundar var Sigurlaug Jóns- dóttir, af eyfirskum ættum, Jóns- sonar og Lilju Þorsteinsdóttur. Móð- ir Önnu var Sigríður Helga Gísla- dóttir, b. í Koti í Vatnsdal, Guðlaugs- sonar, b. á Marðarnúpi, Guðlaugs- sonar og Helgu Bjamadóttur frá Melrakkadal. Móöir Sigríðar Helgu var Guðrún Sigurrós Magnúsdóttir, b. á Bergsstöðum í Miðfirði, Guð- mundssonar og Guörúnar Þor- steinsdóttur. 90 ára Guðrún Georgsdóttir, Bláskógum 15, Reykjavík. Þorvaldur Guðjónsson, Þórunnarstræti 122, Akureyri. 85 ára Guðmundur Guðbjartsson, Furugeröi 1, Reykjavík. Nikólína Jóhannsdóttir, Sólheimagerði, Akrahreppi. Guðríður Kolbrún Karlsdóttir, Asparfelli 12, Reykjavík. Þorkell Snævar Árnason, Bugðutanga 23, Mosfellsbæ. Erlendur R. Kristjánsson, Fomhaga 26, Reykjavík. Sigríður Stefánsdóttir, Leiðhömrum 46, Reykjavík. Erla Sveinbjðrnsdóttir, Öldugötu 42, Hafnarfirði. 80 ára Esther Finnbogadóttir (áafinælil4.3), Tjamargötu 10, Njarðvik. Húntekurá mótigestumí Safhaðarheim- iliInnri-Njarð- víkurkirkiu sunnudaginn 13. marsfrákl. 16-19. 40ára Svorrir Jónsson, Ránargötu 42, Reykjavík. 70 ára Guðrún Jónsdóttir, Kirkjubraut 17a, Akranesi. Bjarni Þorsteinsson, Hólavegi 19b, Siglufirði. 60 ára Ema Aradóttir, Skaftahlíð 6, Reykjavík. BrynhildurG. Flóvenz, Borgarholtsbraut22, Kópavogi. Jóhanna Valgeirsdóttir, Snælandi 6, Reykjavík. Ellert Róbertsson, Vighólastígl2, Kópavogi. Kristján Oddsson, Neöra-Hálsi, Kjósarhreppi. Óskar Jón Marelsson, Miðengi 19, Selfossi. Gunnar Backmann Gestsson, Tjamarlundi 2d, Akureyri. Ástrún Sóiveig Davíðsson, Húsatóftum2a, Skeiöahreppi. Kolbrún Björk Ragnarsdóttir, Hringbraut 36, Hafnarfirði. GunnarKristján Friðj ónsson, Aöalstræti 4, Akureyri. Guðmunda Jóna Jónsdóttir Coly- er(áttiaftnælill.3), 1025 Cork Rd., Victor i New York- fylki, 14564. Tvíburarnir Ingibjörg Eyþórsdóttir húsfrcyja, Spágilsstööum í Laxár- dal, ogÞorsteinn Eyþórsson sorp- tæknir, Fálkakletti 5 i Borgarnesí, uröu fertugur sl. fimmtudag, 10. mars. Þau taka á móti gestum í kvöld, laugardaginn 12. mars, að Spágilsstöðum. Sex matarkörfur ámánuðiaðverð- mæti 30 púsund liver. 63 27 00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.