Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1994, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1994
bókabúðu m
3
Fréttir
Tungu- og Selja-
landsdalur eitt
skíðasvæði?
Sigurjón Sigurðssan, DV, ísafirðú
ísafjarðarkaupstaöur skipaði
nefnd fyrir nokkru til að kanna upp-
byggingu á nýju skíðasvæði fyrir Is-
flrðinga og hafa nefndarmenn átt
fund með mönnum frá Skíðafélagi
ísafjarðar. Þar var reifuð sú hug-
mynd að gera Tungu- og Seljalands-
dad að einu skíðasvæði og var henni
vel tekið af hálfu skíðafélagsmanna.
Samkvæmt upplýsingum DV er
gert ráð fyrir í hugmyndum nefndar-
innar að ein lyfta veröi staðsett í
Göngudeild sykursjúkra:
Tæplega 400
ábiðlista
botni Tungudals og með henni verði
hægt að fara alla leið upp á Sandfells-
háls. Þaðan er gott rennsh alla leið
niður á Seljalandsdal en þar er gert
ráð fyrir tveimur. Fyrirhugað að að-
almiðstöðin verði á Seljalandsdal -
en nokkurs konar útstöð í Tungudal.
Samkvæmt hugmyndum nefndar-
innar er hægt að nota Tungudal þó
Seljalandsdalur sé lokaður vegna
snjóflóðahættu. Engin slík hætta er
tahn á svæðinu fyrir ofan hotn
Tungudals.
„Við höfum ekkert getað starfað
síðan verkfalhð byrjaði því að við
þurfum mæhngar og höfum ekki
fengið þær. Það er ekki veruleg hætta
í sambandi við sykursjúka því að ef
vandamál koma upp er viðkomandi
lagður beint inn á sjúkrahúsið sem
bráðveikur sjúkhngur og er þar með
kominn undir lög og reglur og fær
allar mæhngar og þá þjónustu sem
hann þarf,“ segir Þórir Helgason,
yflrlæknir á göngudeild sykursjúkra
á Landspítalanum.
Göngudeild sykursjúkra á Land-
spítalanum hefur verið lokuð frá þvi
verkfall meinatækna hófst þriðju-
daginn fimmta apríl og hefur verk-
fallið þannig truflað eftirht og skipu-
lagningu á göngudeildinni. Ríflega
300 sjúkhngar eru á biðhsta en eng-
inn biðhsti var fyrir verkfall.
Þórir Helgason segir að ekki sé
hægt að vinna biðhstann upp heldur
verði að líta svo á að sjúklingar sem
eigi að koma í eftirlit fjórum sinnum
á ári geti bara komið þrisvar þetta
áriö. Sjúkhngum verði ekkert bætt
upp því „aht er fullt alltaf," segir
haim.
Siguröur Guömundsson yfirlæknir:
Skotgrafahernaðurinn
kemur okkur í koll
„Ástandið er slæmt, þvi miöur.
Ýmsu hefur verið frestað sem annars
hefði verið gert þannig að það er
ansi mikill bakgarður að hlaðast upp
og tekur tíma að vinna úr því. Allir
starfsmenn hér hfa í ákveðnu óör-
yggi og ákvarðanir um meðferð
sjúklinga eru teknar í meira óvissu-
ástandi en annars þar sem læknamir
geta ekki gert þær rannsóknir sem
þeir vilja. Þetta hlýtur fyrr eða síðar
að leiða til einhvers sem hugsanlega
verður ekki tekið til baka,“ segir Sig-
urður Guðmundsson, sérfræðingur á
lyflækningadeild Landspítalans.
„Það er ákveðin spenna í loftinu
og undir slíkum kringumstæðum eru
tjáskiptin trufluð milli starfsmann-
anna og það kallar líka á að skila-
boð, sem eru nauðsynleg, kunni að
detta einhvers staðar niður. Slíkt
kemur aðeins niður á einum aðila
og það eru sjúkhngamir. Við htum
á það sem skyldu viðsemjendanna,
meinatækna og ríkisins, að leysa
þetta verkfall eins fljótt og hægt er.
Það er ekki hægt að réttlæta þennan
skotgrafahernað lengur. Hann hlýt-
ur að koma okkur í koll,“ segir hann.
t i I b o ð í
BÓKsol
f æ s t í næstu
bókabúö
Hann var ein mesta þjóðsaga aldarinnar. Líf hans
og skáldskapur, umsvif og ævintýri hafa sveipast
gullnum Ijóma í áranna rás. Hann hafði meira um-
leikis en aðrir, dreymdi stærri drauma fyrir ísland en
aðrir - orti mikilfenglegri kvæði en aðrir. Hann var
síðasta þjóðskáldið, síðasta skáldið sem öll þjóðin
dáði fyrir visku og dýpt, mælsku og andagift.
í þessari kvæðabók hefur verið safnað saman
öllum Ijóðabókum Einars Benediktssonar. Ljóðunum
fylgja skýringar sem dr. Pétur Sigurðsson fyrrum há-
skólaritari gerði, en framan við er prentuð ritgerð um
skáldið og ævi hans eftir Sigurð Nordal.
„VORT LAND ER í
DÖGUN AF ANNARRIÖLD"