Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1994, Blaðsíða 30
38
LAUGARDAGUR 7. MAÍ1994
Kvennaklúbbur íslands lætur til sín taka:
Vill húsmædurnar
út úr ísskápnum
- og berst gegn kaupum á nautakjöti
„Fyrsta slagoröiö okkar var: Hús-
mæður, komið út úr ísskápnum! Við
erum sterk rödd og viljum láta í okk-
ar heyra, hvort sem um er að ræða
málefni fjölskyldunnar, neytandans
eða eitthvað annað. Á þessum tímum
jafnréttis finnst okkur við vera svo-
lítið óvirkar. Við viljum hafa okkar
áhrif í þjóðfélaginu," segir Sigríður
Klingenberg Ævarsdóttir, formaður
Kvennaklúbbs íslands.
Kvennaklúbburinn hefur vakið at-
hygli þótt skammt sé um liðið síðan
hann var stofnaður. Hann kom m.a.
viö sögu þegar amerísku „buíFm"
,The American male, fóru dansandi
um landið á dögunum. Því fer þó
fjarri að starfsemin einskorðist við
dansandi karlpening, svo sem glögg-
lega kemur fram hér á eftir.
- En hvert skyldi upphafið að þess-
ari starfsemi hafa verið?
„Við komum saman, nokkrar hús-
mæður, og okkur langaði til þes að
gera eitthvað sniðugt og skemmti-
legt,“ segir SigríðuR„Viíryoram all-
ar úr Hafnarflrði og nefndum klúbb-
inn því Kvennaklúbb Hafnarfjarðar.
Þegar starfsemin fór að breiðast um
allt land skírðum við hann upp og
nú heitir hann Kvennaklúbbur ís-
lands. Við fengum þá bráðsnjöllu
hugmynd, raunar úr bandarískri
kvikmynd, að halda uppboð á fólki
til styrktar Sophiu Hansen. Þar hélt
hver einstaklingur á gjafabréfi sem
enginn vissi hvað var í. Það gekk
rosalega vel og hvatti okkur til að
halda áfram.
Því næst fórum við með skemmti-
kvöld út á land til þess að setja á stofn
kvennalínu þar. Það sem við gerðum
rangt í því sambandi var að reyna
að miðstýra því frá Reykjavík. Nú
erum við að reyna að koma þeim til
þess að gera þetta sjálfar. Þarfirnar
-...... i:-
T' , ■
r
jÆ 'fH.
Sumarleikur tímaritsins Úrval og
ferðaskrifstofunnar Úrval-Útsýn
Tímaritiö Úrval efnir til samkeppni um
skemmtilegustu frásögnina í samvinnu viö
feröaskrifstofuna Úrval-Útsýn. Samkeppnin er
ætluö öllu fólki, ungu sem öldnu, sem hefur frá
einhverju skemmtilegu aö segja. Setjist nú
niöur og setjiö á blaö atvikin eða
uppákomurnar sem þú eöa þínir hafið getað
gert góölátlegt grín aö. Sögurnar, sem mega
ekki vera lengri en 80 orö, veröa síðan birtar í
júlí-ágúst hefti tímaritsins Úrval.
Höfundur skemmtilegustu sögunnar hlýtur í
ritlaun vikudvöl fyrir tvo á sólarhótelinu Barcelo
Cala Vinas á perluströnd Miðjaröarhafsins, Cala
Vinas. Barcelo Cala Vinas er á undurfögrum og
notalegum stað á Mallorca, rétt viö
Magaluf-ströndina. Einnig eru í verölaun 20
ársáskriftir aö tímaritinu Úrval.
Sendið frásögnina til: Tímaritið
Úrval-Sumarleikur, Þverholti 11,105
Reykjavík.
Hressar konur sem stóðu að stofnun Kvennaklúbbsins. F. v. Ágústa Hilmars-
dóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Þórunn Pálmadóttir, Þórunn Kristín Sverrisdótt-
ir, Sigriður Ævarsdóttir Klingenberg og Hanna Björg Wium. Á myndina
vantar Hrönn Ingadóttur og Sigrúnu Magnúsdóttur.
eru svo mismunandi eftir stöðum.
Þess vegna þurfa konurnar úti á
landi að vera sjálfstæðar einingar
innan Kvennaklúbbsins.“
Hundraó
til Newcastle
Kvennaklúbbskonur létu ekki
staðar numið því í nóvember sl. fóru
þær hundrað saman í hóp til New-
castle. „Ég held að allar hafi verið
sammála um að þetta hafi verið sú
geggjaðasta ferð sem þær hefðu farið
í. Þetta var eins og heimavist, við
vorum að greiða hver annarri, allir
að hlaupa á milli hæða og spjalla
saman. Þarna voru ömmurnar,
mömmumar og börnin. Það var farið
á grísk kvöld og fleiri uppákomur og
þetta var hreint út sagt frábært."
Fyrir síðustu jól stóð Kvenna-
klúbburinn fyrir fjársöfnun ásamt
Hjálparstofnun kirkjunnar. Var
safnað fyrir illa stöddu fólki hér á
landi.
Eftir jól var svo farið af stað með
Dale Carnegie-námskeið sem er
fyrsta kvennanámskeiðið sinnar teg-
undar í heimi, að sögn Sigríðar. í
byrjun vora 33 konur á námskeiði,
en 25 héldu áfram. Konurnar, sem
sótt hafa námskeiðin, eru á mjög
mismunandi aldri, allt upp i áttrætt.
„Þær eru sammála um að þetta hafi
breytt lífi þeirra," segir Sigríður.
„Kvennaklúbburinn greiddi nám-
skeiðið verulega niður fyrir þátttak-
endur. Það greiddum við með félags-
gjöldunum sem eru 1400 kr. á ári.
Sjálfar erum við algjörlega ólaunaö-
ar, enda hafa símareikningarnir
heldur betur hækkað. Við höfum nú
opnað skrifstofu aö Tunguvegi 3 og
erum að koma henni af stað. Þá ætl-
um við aö hittast fyrsta miðvikudag
í mánuði á Café Royal í Hafnarfirði.
Þá ætlum við aö spjalla saman og
reyna aö fá meiri vídd í þetta, vita
hvað konur vilja og hjálpast að,
þannig að álagið sé ekki aðeins á
fáum.
Fólki líður oft illa í því streituþjóö-
félagi sem við búum í. Þess vegna
bjóðum við meðlimum okkar upp á
helmingsafslátt á tilteknum veitinga-
húsum. Fólk getur þá farið út saman
og talað saman í stað þess að fara til
sálfræöings."
Fulltrúar Kvennaklúbbsins hafa
farið um landið þvert og endilangt
að undanfömu, haldið kynningar-
fundi og rætt við fólk. í þessum mán-
uði verður Höfn í Hornafirði heim-
sótt og rætt við konur á staðnum.
Allt er þetta gert í sjálfboðavinnu.
Kaupa ekki nautakjöt
Það hggur ýmislegt fyrir hjá
Kvennaklúbbnum. Bráðlega fer af
stað söngnámskeið í Söngsmiðjunni
og er búist við mikilli þátttöku.
„Þá erum við aö mynda þrýstihóp
neytenda til að hafa áhrif á t.d. verð-
lagningu matvæla. Nú höfum við
ákveðið að standa saman og skora á
fólk að kaupa ekki nautakjöt. Við
konur ætlum að sýna aö það erum
við sem verslum og við viljum ekki
láta fara svona með okkur sem neyt-
endur. Þetta er samþykkt meðal
meðlima Kvennaklúbbsins um allt
land. Þannig eiga viðbrögðin að
verða í hvert skipti sem verðhækk-
anir dynja yfir. Við getum stjórnað
þessu, við erum neytendur og skipt-
um öllu máli. Það munar um hvern
einn sem tekur þátt í ákveönum að-
gerðum til þess að breyta ríkjandi
ástandi."
Sigríður segir að í Kvennaklúbbinn
séu skráðar um 3000 konur um allt
land. Félögum eru send fréttabréf til
að upplýsa þá um það sem fyrirhugað
er hjá klúbbnum hverju sinni. Hann
býður þeim upp á ýmsar vörur og
þjónustu á afsláttarverði. Er afslátt-
urinn miðaður yið hluti sem höfða
til kvenna.
Nú er fyrirhugað að efna til Jóns-
messuhátíðar að Búðum 24.-26. júní,
auk þess sem áður hefur verið nefnt.
Þetta á að verða hátíð fyrir alla fjöl-
skylduna.
„Þar verður ýmislegt til skemmt-
unar. Leikið verður leikrit fyrir okk-
ur, Jónsmessudraumur, sem leiklist-
arnemar sjá um. Hestar verða fyrir
þá sem vilja, auk þess sem við ætlum
að þrífa fjörurnar þarna. Við ætlum
að koma börnunum okkar í skilning
um að þau eigi að virða landið og það
gerum við á þennan hátt. Klyfjahest-
ar og bátar munu taka rushð og
koma því á viöeigandi stað.“
í haust mun Kvennaklúbburinn
svo efna th utanlandsferðar sem er
orðin árviss þáttur í starfi hans.
„Við vhjum gera hlutina skemmti-
lega, þá gengur aht miklu betur,“
segir Sigríöur. „Þótt við gerum ekki
kraftaverk í dag þá er aldrei að vita
hvers við verðum megnugar eftir 20
ár.