Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1994, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1994
Vísnaþáttur
Þegar allt er
horfið hjam
„... Þegar koma tveir góðviðris-
morgnar í röð á íslandi, þá er eins
og allar áhyggjur lífsins hafi kvatt
fyrir fult og alt. Loftiö er hrannað
ilmi af jörð og sjó. Það var einn
óþagnandi hindarhljómur í kliði
sjófuglsins. Það bjó í sólskininu
kyrlátur móðurlegur algleymisun-
aður. Það var einsog hin munuð-
sæla taða vallarins og hið alþýðlega
gras mýranna mundi aldrei framar
geta fölnað. Sjórinn var svo kyr og
spegilskygndur að það var fráleitt
að slíkur sjór mundi nokkrusinni
geta orðið úfinn uppfrá þessu. Hinn
bláskæri elskandi himinn virtist
aldrei framar mundu geta oröið
leikvöllur miskunnarlausra
veðra“.
Þessu líkt var veörið þegar Ólafur
Kárason Ljósvíkingur vaknaði
morguninn eftir að kraftaverkið
gerðist, sem gaf honum heilsu á ný.
Öll höfum við einhvem tíma
kynnst slíku veðri, en það er aðeins
á færi snillings að lýsa því á svo
hugljúfan hátt. Þótt skjótt skipist
veður í lofti megum við ekki
gleyma sólskinsstundunum. Tök-
um því undir með Rósberg G.
Snædal:
Hlýnar vangur, grund og gil,
grænir anga hagar.
Okkur fangið fullt af yl
færa langir dagar.
Maísólin há og heiö
hug minn fyllir gleði,
því hún getur grýtta leið
gert að rósabeði.
Hannes J. Magnússon, skólastjóri
á Akureyri, hefur verið á svipaðri
bylgjulengd þegar hann kvað:
Þegar aUt er horfið hjam
og hlíðar skipta klæðum,
verð ég aftur eins og barn
uppi í vorsins hæðum.
Páll H. Jónsson, kennari á
Litlu-Laugum:
Drýpur regn með döprum nið,
dögg á rúðu setur.
Svona er þegar sumarið
syrgir góðan vetur.
Höskuldur Einarsson frá Vatns-
horni í Skorradal vann uppi í Holt-
um í yndislegu veðri fyrsta vorið
sitt í Reykjavík og varð þá tíðhtið
til Skarðsheiðarinnar:
Einn ég skima allt í kring,
er nokkuð að kalla?
Það er grænka, lauf og lyng
í lautunum upp til fjalla.
Stefán Stefánsson frá Móskógum
kveður um sumarmáUn:
Kveður lind í klettaskor,
klökug gleymast vetrar spor.
Glæðist vilji, þrek og þor.
Það er að koma blessaö vor.
Sveinbjöm Bjömsson frá Narfa-
koti á Vatnsleysuströnd, steinsmið-
ur í Reykjavík, fagnar vori:
Lifnar þor og lyftist önd,
leysast sporin hríða.
Himinborið hUð og strönd
heilsar vorið bUða.
Rökkurlindar Uða frá,
ljómar strindi og ögur.
Sólin tindum efstu á
árblys kyndir fógur.
Hulu gljáa innan í
aUt að sjá er vafið.
Esjan há við himinský
heggur í bláa trafið.
Bjami Eggertsson á Eyrarbakka
mun hafa verið maður árrisull og
rómaöi hann mjög hve vormorgn-
arnir væra fagrir á ströndinni við
hafið:
Sá fer gleöi mjög á mis
og mun ei fá þess bætur,
sem að aldrei sólarris
sér um júnínætur.
En ekki hafa aUir þeir sem lofuðu
fegurð morgunsins farið snemma á
fætur, að minnsta kosti hefur Guð-
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
rúnu Halldórsdóttur frá Ásbjarn-
arstöðum í Stafholtstungum ekki
fundist þaö er hún kvað:
Þeir sem ortu manna mest
um morgunroðann
nenntu aldrei út að skoð’ann.
Júlíus Jónsson á MosfeUi í Svína-
dal í A-Hún. kveður um fyrirheit
vorsins:
Suðrið vígir sumartak,
sólbUk skýin vefur,
vorsins hlýja vængjatak
vonir nýjar gefur.
Það ánægjulegasta hvað vorið
varðar er, að það kemur þegar við
þurfum allra mest á því að halda.
Þess vegna er ég ipjög í vafa um
hvemig bregðast skuli við næstu
vísu, en á höfundi hennar veit ég
engin deiU:
Ef að væri aUtaf vor
og aldrei ríkti vetur,
myndu þá ei mannleg spor
margoft stigin betur?
Richard Beck prófessor hefur ekki
efast um áhrif vorsins:
Sumarfegurð sálu manns
söngva nýja vekur.
Léttum vængjum hugur hans
hærra flugið tekur.
Bjami Jónsson frá Vogi (1863-1926)
bóndi, alþingismaður og skáld:
Sumarhug og sumarþrá
sumar vakna lætur,
sumar í auga, sumar í brá,
sumar við hjartarætur.
Jóhannes Jónasson á Skjögrastöð-
um í Vallahreppi í S-Múl.
Varpa hýði blómin blíð,
burtu skríður snærinn.
Yfir fríða fjallahlíö
flögrar þýöi blærinn.
Lokaorðin á aö þessu sinni Hösk-
uldur Einarsson frá Vatnshomi í
Skorradal:
Viti gamlir veðrin á sig
veturinn hér tekst að þreyja.
En hvemig vorið verkar á mig
vil ég ekki neinum segja.
Matgæðingur vikunnar
Humarforréttur,
kreólalúöa
og möndlukaka
„Ég hef mjög gaman af elda-
mennsku og sé alveg um þá hhð á
heimilinu. Mér finnst skemmtilegt
að elda allt sem bragðast vel,“ segir
Gunnar Jónsson, lögfræðingur og
matgæðingur vikunnar. Gunnar er
nýfluttur til íslands eftir nokkurra
ára dvöl í Bandaríkjunum þar sem
hann segist hafa verið heimavinn-
andi en hann á eiginkonu og þrjú
böm. „Síðan ég kom heim og byrj-
aði aö vinna úti snýst matargeröin
meira um að hafa eitthvað fljótlegt
virka daga.“
„Mér þykir gaman að borða og
ætli matreiðsluáhuginn hafi ekki
kviknað út frá því. Ég var kokkur
á bát á sumrin þegar ég var í
menntaskóla," segir hann. Gunnar
segist þó ekki hafa haft áhuga á
kokkastarfinu. „Það er miklu
skemmtilegra að vera lögfræðing-
ur.“
Hann býður upp á þrjá skemmti-
lega rétti, humarforrétt, lúðu og
möndluköku.
Humarforréttur eða smá-
réttur að hætti Sigrúnar
4 humarhalar á mann
'/2 til 1 hvítlauksrif (eftir smekk)
steinselja
smjör og ólífuolía, jafnt af hvoru,
til steikingar
Humarinn er skorinn hálffrosinn
eftir endilöngu og garnhreinsaður.
Meðan humarinn er aö þiðna alveg
er hvítlaukur og smá steinselja
skorið smátt. Ólífuolía og smjör
sett á pönnu á góöan hita. Humar-
inn er snöggsteiktur í u.þ.b. hálfa
mínútu og þá er hvítlaukurinn og
steinseljan sett yfir. Síðan steikt
áfram í eina til tvær mínútur. Má
krydda lítillega með salti eða aro-
Gunnar Jónsson, lögfræðingur og
matgæðingur vikunnar.
mat ef fólk vill. Rétturinn er borinn
fram meö ristuöu brauði, sítrónu-
báti og smá steinseljugrein.
Kreólalúða fyrir fióra
litlaeðatvo stóra
4 sneiðar stórlúða, skorin þunnt,
sneiöar mega ekki vera meira en
tomma á þykkt.
2-3 bananar (ekki mjög þroskaður)
4-6 sneiðar af ferskum ananas
(ekki úr dós)
Creola seasoning frá McCormick
(fæst hjá Óskari kaupmanni í Hag-
kaupi)
Biðjið fisksalann að skera lúðuna
þetta þunnt en það skiptir öllu
máli fyrir eldunina sem er mjög
einföld. Roöið er skorið utan af lúð-
unni og fiskurinn skorinn frá bein-
unum. Smávegis sítrónusafi er
kreistur yfir fiskinn. Síðan er stráð
duglega af kreólakryddinu á fisk-
inn þannig að hann sé nánast þak-
inn. Ólífuolía sett á pönnu við
mesta hita og fiskurinn síðan
steiktur í eina til eina og hálfa mín-
útu á hvorri hlið. (Lúðuna má líka
elda á útigrilh). Fiskurinn er færð-
ur á disk og ananasinn og bananar,
sem hafa verið klofnir að endi-
löngu, steiktir í 15 til 20 sekúndur
á hvorri hlið á sömu pönnu. Með
þessu er gott að hafa hrísgrjón.
Möndlukaka
200 g möndlur (afhýddar)
200 g sykur
4 eggjahvítur
100 g Síríus suðusúkkulaði
Möndlumar era hakkaðar eða
muldar í kvörn þannig að úr verði
salli. Sallanum er blandað við syk-
urinn með gaffli. Eggjahvíturnar
eru stífþeyttar. Þurrefnunum er
síðan blandað varlega í eggjahvít-
urnar. Þetta er sett í hringform,
sem helst þarf að klæða innan með
álpappír og smyrja vel því svohtið
maus er að ná kökunni úr forminu.
Bakað við 180 gráður í 45 til 60
mínútur. Súkkulaðið er síðan
brætt í vatnsbaði eða örbylgjuofni
og smurt yfir kökuna. Best er aö
hafa þeyttan rjóma með og t.d. nið-
ursoðnar apríkósur eða fersk ber,
t.d. bláber og jarðarber. Eins má
búa th góða sósu með kökunni úr
blönduðum frosnum berjum Það
er gert með því að grófhakka frosin
berin í kvöm og setja þau síðan í
pott með sykri í hlutföhunum 3 á
móti 1, þ.e. 3 hlutar ber og 1 hluti
sykur. Blandan er látin ná suðu og
þá slökkt undir nánast strax og lát-
ið standa opið á hellu og kólna.
Ég ætla að skora á góða vinkonu
mínu, Sigrúnu Jónasdóttur, að
verða næsta matgæðing. Fyrir utan
mömmu og tengdamömmu hefur
enginn eldað oftar ofan í mig en
Sigrún og ég hef ekki enn orðið
fyrir vonbrigðum.
Hinhliðin
Guðrún Bjama er fallegust
- segir Stefán Bjarkason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í Njarðvík
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Stefán Bjarkason, íþrótta- og
æskulýösfulltrúi Njarðvíkurbæjar
og forstöðumaður íþróttamiðstöðv-
ar Njarðvíkur, hefur haft nóg að
snúast þessa dagana. Verið er að
setja saman hvemig best verður
að staöið með íþrótta- og æskulýðs-
mál í nýja sveitarfélaginu.
Stefán var einn kunnasti körfu-
boltamaður landsins og spilaði með
gullaldarhði Njarðvíkinga á áram
áður.
Fullt nafn: Stefán Bjarkason.
Fæðingardagur og ár: 4. apríl 1952.
Maki: Þorbjörg Garðarsdóttir.
Börn: Helga Björk, 21 árs, Njöröur,
16 ára, Eva, 14 ára, og Arnar, 7 ára.
Bifreið: MMC Lancer station 1986.
Starf: íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Njarðvíkurbæjar og forstöðumaö-
ur íþróttamiðstöðvar Njarðvíkur.
Laun: Þolanleg.
Áhugamál: Fjölskyldan, íþróttir og
gamlir bfiar.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Þijár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Eiga góöa kvöldstund meö
vinum.
Hvað finnst _þér leiðinlegast að
gera? Aö gera það sem aðrir heföu
átt að vera búnir að gera.
Uppáhaldsmatur: Næstum því hrá
nautasteik.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Stefán Bjarkason.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? David Rob-
inson hjá San Antonio Spurs en
hann gerði 71 stig í leik á dögunum.
Uppáhaldstímarit: Gangleri, rit
sem gefið er út af Guðspekifélagi
íslands.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Guörún
Bjarnadóttir, fyrrum alheimsfeg-
urðardrottning úr Njarðvík.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni: Tiltölulega hlynntur
henni.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Dalai Lama.
Uppáhaldsleikari: Ámi Tryggva-
son.
Uppáhaldsleikkona: Joanne Wood-
ward.
Uppáhaldssöngvari: Egfil Ólafsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Allir
þeir sem eru samkvæmir sjálfum
sér.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Bleiki pardusinn.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir
og fréttir.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Brosið á Suðumesjum og rás
2.
Uppáhaldsútvarpsmaður? Helga
Sigrún Harðardóttir.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Her-
mann Gimnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Þaö var
nú Glaumbær en hann er því miður
brunninn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: UMFN
og íþróttafélag fatlaöra.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að standa mig vel í
starfi og stuðla aö frekari uppbygg-
ingu í íþrótta- og æskulýðsmálum
í nýjum bæ.
Hvað ætlar þú að gera í
sumarfríinu? Vinna viö húsið og
klára það utanhúss.