Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1994, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1994
Fréttir
Aðstoðarmaður utanríkisráðherra um fj árhags vandræði Sophiu Hansen:
Óvíst hvernig beiðni
um aðstoð yrði tekið
„Ég veit ekki hvort eða með hvaða erfiðara sé um vik vegna fjarlægða
hætti yrði tekið í nýja beiðni um að- og annarra ástæðna," sagði Þröstur
stoð ef af henni yrði. Það er búið að Ólafsson, aðstoðarmaður utanríkis-
eyða meiri peningum í þetta mál en ráðherra, aðspurður um afstöðu
nokkurt annað sambærilegt einka- ráðuneytisins til máls Sophiu Han-
mál, hvort sem það á við um börn sen og þeirra fjárhagsörðugleika sem
eða önnur málefni. En þama er um blasa við.
tvö böm að ræða þar sem taliö er að Eins og fram kom í DV í gær er
búið að loka símanum á skrifstofu sem verða þann 23. júni í Istanbil.
samtakanna Bömin heim enda er Þröstursagðiaðmargirtelduóeðli-
símareikningurinn orðinn um eða legt að meiri peningar yrðu veittir
yfir hálfa milljón króna. Óvíst er til Sophiu Hansen þar sem sumir
hvort það tekst að fjármagna för aðrir sem beðið hafa um aðstoð hafa
Sophiu til Tyrklands á næstunni í enga aðstoð fengið. Engin formleg
tengslum við beiðni um að hún fái beiðni liggur fyrir af hálfu Sophiu
að hitta dætur sínar og réttarhöld Hansen um frekari fjárhagsaðstoð.
Vaxtalækkun?
Sammála
Davíð
um þörfina
- segir Steingrímur
„Ég er sammála Davíð um þörf-
ina á vaxtalækkun," sagöí Stein-
grímur Hermannsson seöla-
bankastjóri við DV um þau orð
Ðavíös Oddssonar forsætisráð-
herra í eldhúsdagsumræðum á
Alþingi að svigrúm væri til frek-
ari vaxtaiækkana í landinu.
Steingrimur vildi ekki tjá sig
um möguleika til vaxtalækkunar.
Hann sagði afkomu bankanna
yfirleitt ekki vera mjög góða.
„Afkoman veldur að sjálfsögðu
vandræðum. En þörfín fyrir
vaxtalækkun er að mínu mati
mjög mikil og leita þarf ailra leiða
til að hún náist fram,“ sagði
Steingrimur.
Kyitningá
blaði
Kynningarhátíð vegna nýs
þjóðhátíöarblaös sem nefhist Is-
land verður haldin í Perlunni á
morgun, sunnudaginn 8. maí,
klukkan 15. Atli Heimir Sveins-
son flytur frumsamda tónlist
ásamt nemendum Söngskóla
Reykjavíkur, auk þess sem ýmsir
rithöfundar lesa úr verkum sín-
um og Raddbandiö kemur fram.
Þjóðhátíðarblaðinu er ætlað að
vekja ungt fólk til umhugsunar
um land og þjóð á hálfVar aldar
afmæli lýðveldisins. í blaöinu er
meðal annars leitast við að skil-
greina þjóðareðli íslendinga og
birt ágrip úr bókmenntasögu lýð-
veldisins. Aö blaöinu stendur
Áhugahópur um ísland en í hon-
um eru þau Pétur H. Blöndal,
Melkorka Stefánsdóttir og Börk-
ur Gunnarsson.
•' - *
Jeppi á leið um þriggja metra há snjógöng við Lambanes-Reyki i Fljófum nú i mai.
DV-mynd Örn
Fljótin:
Þriggja metra
djúp snjógöng
Öm Þórarinssan, DV, Fljótum:
Um og eftir síðustu mánaöamót var
talsvert unnið við snjómokstur í
Fijótum og mokaðar heimreiðar aö
flestum bæjum. Ennfremur að
tveimur bæjum í Stíflu sem ekki
höfðu haft vegasamband frá því í lok
febrúar. Mikill snjór er enn. Þannig
voru þriggja metra djúp snjógöng við
bæinn Lambanes-Reyki eftir að þar
var mokað nýlega.
Ókunnugum finnst snjórinn að
vonum mikill og ótrúlegt að Fljótin
tilheyri sama héraði og framhluti
Skagafjarðar þar sem nú er algerlega
snjólaust á láglendi. Heimafólk kipp-
ir sér hins vegar minna upp við snjó-
þyngsh og aöeins eru fjögur ár frá
því aö meiri snjór var þar á sama
árstíma.
Félagsmálastjóri Hafharfjarðar um mál móðurinnar í hungurverkfalli:
Ekki gripið inn í nema
brýn ástæða sé til
„Slík eru almennt ekki vinnubrögð
starfsmanna bamavemdarnefnda.
Annars get ég ekki tjáð mig um ein-
staka mál,“ segir Marta Bergmann,
félagsmálastjóri Hafnarfjarðar, um
ásakanir Hönnu Guðmundsdóttur,
þriggja bama móður, sem er í hung-
urverkfalli. Hanna sakar Félags-
málastofnun Hafnarfjarðar um að
hafa ráðlagt henni að láta eyða fóstri
til að hafa betri möguleika á að fá
aftur syni sína þijá sem teknir vom
af henni í júlí í fyrra. í mars síðast-
hðnum syryaði Bamaverndarráð
beiðni Hönnu um að fá drengina til
sín.
„Ég get sagt almennt að bama-
vemdamefndir grípa ekki inn í mál
nema brýn ástæða sé til og Bama-
vemdarráö samþykkir ekki niður-
stöður bamavemdarnefnda nema á
efnislegum gmnni,“ segir Marta. ,
„Okkur er ekki heimilt að tjá okkur
um einstök mál. Lögin segja þaö
skýrt,“ segir Guðrún Ema Hreiðars-
dóttir, framkvæmdastjóri Bama-
vemdarráðs.
Bamsránið á Spáni:
Albertoenn
ekki kominn
neHhnar
„Hann er ekki kominn heim
ennþá en ég býst við að hann
verði kominn heim eftir viku eða
tíu daga. Ég held aö það taki lög-
regluna ekki langan tima að finna
hann og koma honum heim. Ég
held að honum sé haldiö einhvers
staðar á Suöur-Spáni og að það
tengist eitthvað móður hans og
fyrrverandi eigihkonu minnL
Hún vill hafa áhrif á hann þvi aö
hún veit að Iiann erfir eignirnar
eftir minn dag og svo sleppir hún
honum," segir þýski auðkýfing-
urinn og íslandsvinurinn, Hasso
von Schutzendorf.
DV greindi frá því í lok apríl
aö Alberto, tíu ára syni þýska
auðmannsins Hassos von Schutz-
endorf, hefði veriö rænt frá heim-
ili hans á Spáni og aö faðir hans
teldi hugsanlegt að hann heföi
verið fluttur til íslands. Hasso
ættleiddi drenginn eftir lögskiln-
að viö móður hans fyrir nokkrum
árum.
Ráðherrafundur:
Norrænir ráðherrar, sem fara
meö byggðamál, funda í dag um
áhrif hugsanlegrar inngöngu
Finnlands, Svíþjóöar og Noregs í ,
Evrópusambandið á samstarf 1
byggðamálum. Á fundinum verð-
ur einnig rætt um nýja sam-
Starfsáætlun Norðurlandanna í
byggðamálum.
Davíð Oddsson forsætísráð-
herra mun stýra fundinum.
Ennfinnstefni
íhassmálinu
Fikniefhalögreglan hefur fund-
ið meira magn af hassi sem ljóst
er að tengist máiinu sem kom upp
á miðvikudagsmorgun þegar 35
ára gamall maður var handtek-
inn eftir að kíló af hassi fannst
innanklæða á honum.
Maðurinn var í leigubíl þegar
lögreglan stöðvaði hann. Bílstjóri
leigubílsins hafði sótt manninn í
hús í austurbænum og nærri
þeim stað, undir steini, fundust
400 grömm af hassi sem Ijóst er
að voru í hans eigu enda virðist
um sams konar efni að ræða.
Rannsókn stendur enn yfir og
beinist að því hvort fleiri hafi
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu ríkissaksóknara hefur
umsogn dómsmálaráðuneytisins
um spilakassarekstur Rauða
krossins borist saksóknaraemb-
ættinu.
Það var á seinasta ári sem
Gunnar Friöjónsson kærði rekst-
ur Rauða krossins á spilakössum
í Umferðarmiðstöðinni. Eftir að
hafa verið nokkum tíma þjá
rannsóknarlögreglu og rikissak-
sóknara var málið sent til um
sagnar dómsmálaráöuneytis og
hefur sú umsögn litið dagsins Ijós
eftir nokkurra mánaða bið. Máliö
er hins vegar enn til meðferðar
hjá embættinu.
í febrúar kærði Gunnar einnig
rekstur happdrættisvéla Háskól-
ans í spilastofu við Laugaveg. Það
mál er nú hjá ríkissaksóknara.