Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1994, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1994
Stuttar fréttir
Kynlífsþrælar
krefjastþessað
fáskaðabætur
Rjölmargar
konur frá S-
Kóreu, sem
voru þvingaðar
til að vera kyn-
lifsþrælar fyrir
hermenn Jap-
anskeisara í
seinni heims-
styrjöldinni, ætia til Japans í
þessum mánuði og hitta forsætis-
ráöherra landsins, Tsutomu
Hata, til að krefjast skaðabóta
fyrir þær þjáningar sem þær
urðu að þola.
Konumar, sem eru á aldrinum
68-78 ára, ætla ekki aö snúa aftur
frá Japan nema stjórnvöld verði
við kröfum þeirra. Um 200 þús-
und konum var rænt frá Kóreu,
Filippseyjum, Indónesíu og Kína
og þær síöan þvingaöar til að vera
kynlífeþrælar í vændishúsum
fyrir hermenn.
Konstantín í
málviðgrísk
yfirvöld
Fyrrum konungur Grikklands,
Konstantín, segist ætla í mál við
grísk stjómvöld vegna ákvörðun-
ar þeirra um að yíirtaka eignir
fjölskyidunnar og jafnframt taka
gríska vegabréfið af henni.
„Ég mun vissulega krefjast
eigna minna með öllum tiltækum
lögum sem gríska stjórnarskráin
og grísk lög segja til um," sagði
Konstantín nýlega í viðtali viö
grískt dagblað.
Konstantín, sem er 53 ára gam-
all, hefur búiö í Bretlandi síðan
hann flúði frá Grikklandi árið
1967, eftir aö herforingjastjóm
tók völdin í sínar hendur.
Hörðmótmæli
viðfegurðar-
samkeppni
Kvenréttindakonur á Filipps-
eyjum hafa mótmælt harölega
keppninni Ungfrú heimur sem
fram fer á Manila 21. maí. Þær
segja aö þaö sé glæpur að halda
svona keppni á meöan um hundr-
að þúsund konur í landinu neyö-
ast til að framfleyta sér með
vændi og helmingur óléttra
kvenna þjáist af vannæringu.
„Þetta er glæpur gegn landinu
og þjóðinni. Það væri hægt að
nota peningana sem fara í aö
halda keppnina í eitthvað nyt-
samlegra. I hvert skipti sem karl-
menn í stjóminni ætla sér aö
auglýsa landið er fyrsta ráðiö
alltaf að halda kroppasýningu á
konum,“ segir í yfirlýsingu frá
kvenréttindasamtökunum sem í
eru 48 þúsund konum.
Reuter
Erlendar kauphallir:
FallíHong
Kong
Hang Seng hlutabréfavísitalan í
Hong Kong fór niður í 8.300 stig í
vikunni sem er það lægsta á þessu
ári. Talan hefur ekki verið lægri síð-
an í október á síðasta ári. Hlutabréf
í stóram hlutafélögum hafa lækkað
töluvert í verði aö undanfornu og
engin merki um verulegar hækkanir
á næstunni.
Um síðustu helgi náði nýja hluta-
bréfavisitalan í Mílanó sögulegu há-
marki, 1312 stigum, en lækkaöi fljót-
lega niður fyrir 1300 stig.
Helstu vísitölur eins og Dow Jones,
FT-SE100 og Nikkei í Tokyo em svip-
aðar og fyrir viku.
Tölur á meðfylgjandi grafi em í
öllum tilvikum frá því á fimmtudag
nema frá Mílanó og Amsterdam sem
emfrásíðustuhelgi. -Reuter
Utlönd
Harðir bardagar geisa enn í Jemen:
Varpa sprengjum
á helstu borgirnar
Harðir bardagar geisa enn milli
hersveita Norður- og Suður-Jemens
og segja heimildarmenn að hvorugur
aðilinn sé líklegur til að vinna afger-
andi sigur um landið.
Herþotur frá báðum aðilum hafa
varpað sprengjum á Aden og Sanaa
og skýrði diplómat frá því að flug-
skeyti hefði næstum hæft forsetahöll
Salehs í Sanaa í Norður-Jemen.
Fregnir herma að hersveitir úr
norðri stefni í áttina að Aden í suðri
og ætli sér ekki að stoppa fyrr en þær
hafi náð borginni á sitt vald.
Símasambandslaust var við Jemen
í allan gærdag og var því erfitt aö fá
fregnir um hversu alvarlegt ástandið
væri og hversu margir hefðu látiö
lífið í átökunum. Ekki var vitað hve-
nær sambandi yrði komiö á aftur.
Franski sjóherinn flutti um 400
Vesturlandabúa frá Aden í gær og
varnarmálaráðuneytið sagði að á
meöal þeirra hefðu m.a. verið Frakk-
ar og Bandaríkjamenn.
Um tvö þúsund Vesturlandabúar
búa í Jemen, auk fimm þúsund Jem-
ena sem jafnframt eru af bandarísk-
um ættum.
Sérstakur sendifulltrúi Bandaríkj-
anna, sem sendur var til að leita sátta
á milli norðurs og suðurs, yfirgaf
landið í skyndi í gær eftir að hafa
lent í miðjum átökunum. Hann fór
til Oman en þar er staddur fyrir að-
stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj -
anna í málefnum Mið-Austurlanda,
Robert Pelletreau, sem er þar að
ræða við háttsetta embættismenn
vegna ástandsins.
Reuter
Þreyttir rússneskir hermenn nota tækifærið og fá sér lúr á meðan hlé er gert á undirbúningi fyrir „sigurdaginn“
sem haldinn var hátiðlegur í Moskvu i gær. Sigurdagurinn er sá dagur þegar Rússar fagna sigri sínum á Þjóðverjum
i seinni heimsstyrjöldinni. Simamynd Reuter
ANC hlaut tæp 63% atkvasða
Afríska þjóðarráðið, ANC, hlaut
alls 62,65% atkvæða í kosningunum
í S-Afríku eða tæp 63% en talningu
atkvæða lauk í gær. Litlu munaði að
flokkurinn hlyti tvo þriðju hluta at-
kvæða en hefði svo orðið þá hefði
hann veriö einráður um gerð nýrrar
stjómarskrár landsins.
Þjóðarflokkur de Klerks, fráfar-
andi forseta, hlaut alls 20,39% at-
kvæða og Inkathahreyfmg Zúlu-
manna hlaut 10,54% atkvæða.
Nelson Mandela mun taka við for-
setaembættinu næstkomandi þriðju-
dag og samkvæmt niöurstöðum
kosninganna fær ANC 252 þingsæti
af 400, Þjóðarráðið fær 82 þingsæti
og Inkathahreyfingin 43.
Nelson Mandela hefur þegar skipað
17 ráðherra í hina nýju stjórn lands-
ins en hans hægri hönd verður
Thabo Mbeki, fyrram formaður
ANC.
Yfirmaður kosninganna, Johann
Kriegler, sem tilkynnti úrslitin, sagði
að kosningamar hefðu tekist vel og
vilji þjóðarinnar hefði komist til skila.
Alls greiddu 19.726.579 manns at-
kvæði í kosningunum eða nokkra
fleiri en menn þorðu að vona. Reuter
Hlutabréfavísitölur í kauphöllum
12000
10000'
8000
8412,68
Kr. F M A M
EESBZB
1550
1400 1501,33
Kr. f M A M
-
Stuttar fréttir i>v
20 slösuðust
20 slösuðust í óeirðumí Albaniu
þegar lögreglan reyndi aö stööva
mótmæli.
Svíi handtekinn
43 ára gamall Svii var handtek-
inn grunaður um aðild að stærsta
listaverkaráni i Svíþjóð.
Mismunun
Chemomyrd-
in. íorsætisráö-
herra Rúss-
lands, sakar
Vesturlönd um
aö mismuna
Rússum meö
því aö banna
þeimaögangað
heimsmörkuðum.
ÉranogS-Afríka
íran og S-Afrika ætla að koma
á stjórnmálatengslum frá og með
10. mai.
Nunnur krefjast valda
Kaþólskar nunnur krefjast
meiri valda innan kirkjunnar.
Sjálfstjórn PLO
Háttsettur foringi innan ísra-
elshers segist ekki geta sagt til
um hvenær PLO gæti tekið yfir
stjórn á Gasasvæðinu og í Jeríkó.
Lifstíðardómur
Líbanskur dómstóll dæmdi þrjá
menn í lífstíðarfangelsi fyrir
moröið á sendiherra Bandaríkj-
anna í Beirút árið 1976.
ÆHaraðbetjast
John Major, BP*"
forsætisráð; 'W W
herra Bret- P ll
lands, sem beið
mikinn ósigur í
sveitarstjórn-
arkosningum á
fimmtudag, —------------------
segist ætia að berjast fyrir emb-
ætti sínu.
PLO'fangar
ísrael hefur ekkert sagt til um
hvenær fleiri PLO-fangar verða
látnir lausir.
18 drepnir
Kúrdískir skæruliðar drápu 18
manns í óeirðum í Tyrklandi.
Engarheimsóknir
Yfirvöld í Singapore hafa neitað
fjölskyldu unglingsins Michael
Fay, sem var hýddur, um að
heimsækja hann.
Morðingi laus
Óttast er aö morðingi sem
hermir eftir versta f]öldamorö-
ingja S-Afríku gangi nú laus f S-
Afríku.
Vopnahlé
Uppreisnarmenn í Rúanda
samþykktu vopnahlé sem taka
mun gjldi á morgun.
Afsögn?
Dómsmála-
ráðaherra Jap-
ans, Shigeto
Nagano, hefur
dregið til baka
ummæli sín
varðandi
fjöldamorð á
Kínverjum í
seinni heimsstyrjöldinni. Hann
útilokar ekki afsögn vegna máls-
ins.
Þýskur njósnari
Kari Wienand, fyrrum toppur í
Sósíaldemókrataflokknum í
Þýskalandi, hefur verið ákæröur
fyrir njósnir.
ViljaGonzalezburt
Andstæðingar Gonzalezar, for-
sætisráðherra Spánar, vifia hann
burt úr embætti vegna hneykslis-
mála. Reuter