Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1994, Side 18
18
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1994
Dagur í lífl Jóns Baldurssonar bridgemeistara:
Ekkert tekið í spil
Jón Baldursson bridgemeistari í vinnunni sinni í bókhaldsdeild Flugleiða þar sem blóm biðu hans eftir sigurinn.
Ég byijaði daginn á að fá mér Che-
erios og keyrði síðan strákana í skól-
ann, þeir eru 7 og 8 ára og heita Jón
Bjami og Magni Rafn. Ég var kominn
í bókhaldsdeild Flugleiða, þar sem
ég starfa, klukkan níu. Stelpumar
sem ég vinn meö era alltafjafn yndis-
legar og færðu mér blóm í tilefni sig-
ursins í París. Gunna var alveg sér-
staklega yndisleg þennan daginn.
í hádeginu fór ég niður í mötuneyt-
ið okkar sem er í umsjón Guffa á
Hótel Loftleiðum og fékk mér af sal-
atbar og súpu. Ég borða yfirleitt þar
í hádeginu. Það vom ekki mikil
fundahöld þennan daginn í vinn-
unni, aðeins einn stutfin- fundur.
Starfið felst aðallega í pappírsvinnu.
Ég sé um frakttekjur og er í góðu
sambandi við inn- og útflytjendur og
starfsfólkið á vöruafgreiðslu. Það
vom reyndar margir sem hringdu í
mig þennan dag til aö óska mér til
hamingju með sigurinn, bæði vinir
og vandamenn.
Vinnudagurinn endar klukkan
fimm og í þetta skiptið fór ég beint
heim. Venjulega fer ég á einhverjar
æfingar eða í annað stúss út af
bridge-inu. Ég sleppti öllu slíku í
þetta sinn, fór bara heim og lagði
mig stutta stund - þreyttur eftir erf-
iða helgi. Ég á svo góða eiginkonu
sem passar að ég fái friö til hvíldar.
Hún (Elín) kom reyndar heim stuttu
á eftir mér en hún vinnur hjá Bridge-
sambandinu. Margir halda að við
tölum mikið um bridge en það er
ekki rétt og það hefur ekki verið spil-
aður bridge á heimili mínu í mörg ár.
Erfiðarhjólbörur
Eftir aö ég hafði lagt mig stutta
sfimd fékk ég þaö verkefni frá frúnni
að setja saman hjólbörur sem hún
hafði verið að kaupa. Hún hefur mjög
gaman af garðrækt en þaö sama
verður ekki sagt um mig. Ég reyndi
þó að koma saman hjólbörunum en
það gekk ekki upp því engar leiðbein-
ingar fylgdu með.
Síðan beið kvöldmaturinn tilbúinn
sem að þessu sinni samanstóð af
fiskibollum með karrísósu. Ég hef oft
gaman af að elda en lét henni það
eftir að þessu sinni. Ég fór meira að
segja á matreiðslunámskeið í fyrra.
Síðan horfði ég á fréttir á báðum
sjónvarpsstöðvunum. Það er nú ekki
vani minn að gera það enda er ég lít-
ill fréttafikill. Strákamir mínir eru
yfirleitt svo háværir á þessum tíma
að manni gefst varla friður til að ein-
beita sér að efninu.
Ritstjóri Bridgeblaösins, Guð-
mundur Páll Amarson, leit síðan í
heimsókn til að fá nokkur spil og
gögn í sambandi við mótið um síð-
ustu helgi. Stefán Guðjohnsen, sem
skrifar um bridge í helgarblað DV,
kom einnig sömu erinda fyrr um
daginn.
Eg horfði síðan á Sýn í sjónvarpinu
en mér finnst voðalega gaman að
fylgjast með umræðum þar. Þetta era
hinir skemmtilegustu menn og kon-
ur.
Göngutúr
um Elliðaárdal
Loks fórum við Elin í göngutúr.
Við búum í Breiðholtinu og löbbum
daglega niður í Elhðaárdalinn en þar
era margar skemmtilegar gönguleið-
ir. Við löbbum yfirleitt í hálfa til eina
klukkustund. Þegar ég veiktist í
fyrra skipaði læknirinn minn mér
að fara í göngutúra. Þá fannst mér
það hundleiðinlegt en nú hef ég hina
mestu skemmtun af því að fara út
að ganga. Ég hef líka náð mér upp
úr veikindum mínum og hef aldrei
verið betri. Ég er viss um að göngu-
túramir hafa hjálpað mér mikið. Nú
og svo var ekkert annað að gera en
skella sér í bað og síðan í háttinn.
Það má eiginlega segja að þetta hafi
verið mjög venjulegur dagur í mínu
lífi þó ekki hafi verið tekið í spil.
Finnur þú fimm breytingai? 256
Nafn:........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi Ðmm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfh sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta flölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyglisgáfu og þjálfar
hugareikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur. Bækumar, sem eru í
verölaun, heita: Mömmudrengur,
Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Ban-
væn þrá. Bækumar em geftiar út af
Fijálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagjð með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 256
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð fimmtugustu og fjórðu get-
raun reyndust vera:
1. Pálína Sigurjónsdóttir,
Álftamýri 14,
108 Reykjavík.
2. Vigdís Þorsteinsdóttir,
Lækjargötu 10
530 Hvammstanga.
Vinningamir verða sendir
heim.'
i
i
)
I
í