Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1994, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ1994
Fréttir
VerkfáU meinatækna hefur staðið 1 sex vikur:
Otvírætt verkf allsbrot
að senda sýni utan
- segir Asmundur Brekkan, formaður læknaráðs Landspítalans
„Það er ótvírætt verkfallsbrot að
senda sýni úr landi. Þó að þessi
möguleiki hafi komið til umræðu
er þetta ekki gerlegt. Það er í fyrsta
lagi verkfallsbrot og í öðru lagi eru
tengslin milli meinatæknafélag-
anna erlendis það góð að enginn
myndi vilja taka þetta að sér.
Ástandiö er orðiö óviðunandi
vegna sjúklinganna og staðreynd
að það tekur mánuði að vinna þetta
upp ef það er á annað borð hægt.
Það er verið að kasta ótrúlegum
fjármunum á glæ,“ segir Ásmund-
ur Brekkan, formaður læknaráðs
Landspítalans.
„Þetta er náttúrlega óhæft
ástand. Þær konur sem eru hjá
okkur í Leitarstöð Krabbameinsfé-
lagsins og hafa greinst með for-
stigsbreytingar að krabbameini
eru búnar að bíða frá 1. aprO eftir
því að fá niðurstöðu úr speglunum.
Um 60 konur bíða eftir niðurstöðu.
Það er mjög erfitt fyrir þær sálar-
lega að bíða svona. Þetta er orðið
ófremdarástand og jafnframt mik-
ilvægt aö afgreiðsla þessara mála
gangi hratt fyrir sig,“ segir Kristján
Sigurðsson yfirlæknir.
„Guðmundur Árni Stefánsson
heilbrigðisráðherra hefur ekki
rætt við mig um að koma með sátt-
atillögu enda er það ekkert inni í
myndinni eins og er. Ég er skyldug-
ur til að boða fund innan hálfs
mánaðar og boða fund ef annar
hvor aðilinn óskar þess. Ég get
boðað fund ef ég met stöðuna þann-
ig að eitthvað hafi breyst en ég sé
þaö ekki í myndinni eins og er,“
segir Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari.
Upp úr viðræðum meinatækna
og samninganefndar ríkisins slitn-
aði á sunnudagskvöld eftir 40
klukkustunda samningafundi yfir
helgina. Verkfall meinatækna hef-
ur nú staðið í sex 'vikur og hafa
deiluaöilar hist á 42 samningafund-
mn, þar af 38 á vegum ríkissátta-
semjara. Fundirnir hafa staðið í 220
klukkustundir í allt.
Á Miklubraut eru nú framkvæmdir hafnar við gerð þriðju akreinarinnar norðan megin á milli Skeiðarvogs og
Kringlumýrarbrautar. Áætlað er að verkinu Ijúki i ágúst samkvæmt upplýsingum frá gatnamálastjóra.
DV-mynd S
OECD um íslensk efnahagsmál:
Langvarandi lægð
framundan vegna
ofveiði um árabil
Akranes:
Forn
mannskjálki
finnst
Hluti af mannskjálka er nú í vörslu
byggðasafnsins á Akranesi. Kjálkinn
kom fram þegar verið var að leggja
túnþökur milli íbúðarhúss og bíl-
skúrs við Sandabraut á Akranesi um
helgina. Kjálkanum var komið í
vörslu lögreglu og þaðan í hendur
Gunnlaugs Haraldssonar, safnvarð-
ar byggðasafnsins, sem telur sýnt að
kjálkinn sé forn.
„Þetta er nú allt hreyföur jarðveg-
ur. Þama hefur því eitthvaö komið
upp við byggingu húsa fyrr á öldinni
og þá liggiu- það í hreyfðum upp-
grefti eða þá aö það hefur komið að
seinna með aðfluttu efni. Ég hef hins
vegar ekki náð í húsbyggjendur sem
byggðu þarna um 1950 en þarna virð-
ist samt ekkert vera að finna frek-
ar,“ segir Gunnlaugur.
Lýðveldisafmælið:
Frímerki og
bókum
forsetana
Póstur og sími mun gefa út fjögur
frímerki 17. júní í tilefni 50 ára lýð-
veldisafmælisins. Um er að ræða röð
fjögurra frímerkja með myndum af
forsetum íslenska lýðveldisins. Verð-
giidi hvers frímerkis verður 50 krón-
ur og eru þau hönnuð af Þresti Magn-
ússyni.
Samhliða útgáfunni mun Póstur og
sími gefa út bók með stuttu ævi-
ágripi forsetanna og er hún jafnframt
hönnuð af Þresti. í bókinni verða
tvær smáarkir með frímerkjum for-
setanna fjögurra, önnur með fyrsta
dags stimpli og hin óstimpluð. Eins
og fyrr segir veröur stutt æviágrip
forsetanna fjögurra í bókinni, en við
upphaf hvers kafla verður frímerki
með mynd hvers þeirra. í bókinni
veröur því að finna frímerki fyrir
samtais 600 krónur. Hrefna Ingólfs-
dóttir, blaðafuUtrúi Pósts og síma,
segir að bæði frímerkin og bókin
hafi mikið söfnunargildi. Hún segir
að vandað verði sérstaklega til þess-
arar útgáfu en frímerkin eru prentuð
hjá Helio Courvoisier.
Einnig er væntanlegt, í tilefni lýð-
veldisafmælisins, frímerki með
mynd Gísla Sveinssonar sem var for-
seti Alþingis viö lýðveldistökuna á
Þingvöllum árið 1944.
Efnahags- og framfarastofnunin í
París, OECD, birti í gær ársskýrslu
sína um íslensk efnahagsmál. í heild
mega stjómvöld þokkalega vel við
niðurstöðu skýrslunnar una hvað
snertir efnahagsstjómun nema hvað
landbúnaðarstefnan er gagnrýnd
harðlega. OECD gerir ráð fyrir halla
á viðskiptajöfnuði þar sem útflutn-
ingsgreinamar muni ekki stuðla að
hagvexti á þessu ári. „Langvarandi
lægð í þjóöarbúskapnum er gjaldið
sem íslendingar þurfa að greiða fyrir
óhjákvæmilega eflingu þorskstofns-
ins vegna ofveiði um árabil," segir
m.a. í skýrslu OECD.
OECD telur að stjómvöld verði
framvegis að fylgja ráöleggingum
fiskifræðinga og miða veiðina við það
sem þeir telja öraggt ef takast eigi
að ná fram hámarksnýtingu á fisk-
stofnunum. Að mati OÉCD er kvóta-
kerfiö „prýðilegt og sanngjamt fyrir-
komulag" en sníða þurfi af því ýmsa
annmarka. Stofnunin tekur undir
hugmyndir um auðlindaskatt í sjáv-
arútvegi.
í skýrslunni kemur fram að stuðn-
ingur ríkisins við íslenska bændur
sé með því mesta sem þekkist innan
OECD-ríkja. Hátt matvælaverö er
gagnrýnt og verðmyndunin sömu-
leiöis. „Verðmyndun, sem byggist á
kostnaðarframreikningi og ákveðin
er í nefndum og ráðum, ásamt
ákvæðum um hámarksálagningu í
heildsölu, dregur úr hvata til að nota
bestu framleiöslutækni til aö há-
marka hagkvæmni bæði til skamms
og langs tíma. Þetta fyrirkomulag ber
að leggja af hið fyrsta og taka í stað-
inn upp kerfi þar sem markaðsöflin
fá að ræöa,“ segir skýrsluhöfundur
OECD m.a. um íslenska landbúnað-
inn.
Að mati OECD em beingreiðslur
til bænda og meðfylgjandi 36% lækk-
un útgjalda ríkissjóðs til landbúnað-
armála „lofsverð stefnubreyting" en
smám saman verði hægt að afnema
beingreiðslurnar. Einnig ætti að end-
urmeta önnur inngrip stjórnvalda í
landbúnaðinn eða afnema þau með
öllu. Þá segir í skýrslunni að land-
búnaðarstefnari hafi óbeint stuölað
að gróðureyðingu, stærsta umhverf-
isvandamáli íslendinga, en hægt yrði
að útrýma þeim vanda með því aö
afnema verðstuðning við landbúnað-
inn.
Stuttar fréttir
Athugasemdir
Athugasemdum hefur veriö
komið á framfæri viö útvarps-
stjóra vegna stuöningsyfirlýsinga
nokkurra starfsmanna Rásar 2
við R-listann, þ.á m. Sigurðar G.
Tómassonar dagskrárstjóra.
Bylgjan greindi fyrst frá þessu.
Þröstur í bankaráð
Alþingi hefur kosið Þröst Ólafs-
son, aðstoðarmami utanríkisráö-
herra, í bankaráð Seðlabankans
i stað Ágústs Einarssonar sem
eins og kunnugt er sagði af sér
formennsku í ráðinu.
Hættulegt bland i poka
Slysavamafélag íslands varar
við sælgæti sem kallaö hefur ver-
ið „bland í poka“. Dæmi eru um
að sælgætiö hafi setiö fast í koki
ungra bama.
Ekkertkaiítúnum
Til þessa hafa engar fregnir
borist um meiri háttar kal í tún-
um. Samkvæmt Timanum er
lúns vegar viöa klaki í túnum.
Móðgaðir embættismenn
Stjórnvöld og borgaryfirvöld
móðguðu stóran hóp háttsettra
embættismanna og ráðherra frá
mörgura noröurþjaralöndum
með því að virða þá eklú viðlits
þegar þeir heimsóttu ísland í
gær. RUV greindi frá þessu.
Ráðstefna fatlaðra
Alþjóðleg ráðstefria um málefni
fatlaöra verður haldin í Reykja-
vík í byrjun júni nk.
Útiiegukindur til byggða
Fjórar útilegukindur komu til
byggða á Reykjaströnd í Skaga-
firði í gærmorgun en talið var að
þær höfðu drepist i haust. Ein
þeirra var nýborin og önnur
komin að burði. RÚV greindi frá
þessu.
Þokkaleg humarveiði
Fyrstu humarbátarnir eru
farnir að landa afla sínum eftir
að humarveiðin hófst um síðustu
helgi. Veiöín hefur verið þokka-
leg en gott verö fæst fyrir humar
á erlendum mörkuöum.
TaphjáBorgey
Borgey hf. á Höfn tapaði 114
milljónum í rekstri síðasta árs.
Þetta kom fram í Morgunblaðinu.