Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1994, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1994, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 5 Fréttir Smásagnasamkeppnin Tígrapenninn: Á annað hundrað manns við verðlaunaaf hendinguna Á annaö hundrað manns voru viö- stödd þegar verðlaunin í smásagna- samkeppninni Tígrapennanum voru aíhent í Kringlunni á laugardag. í keppninni áttu þátttakendur að skrifa smásögu um íslandsævintýri Tígra, lukkudýrs Krakkaklúbbs DV. Var þátttaka mjög góð en um 1.500 smásögur bárust í keppnina. Voru sögur 50 ungra höfunda valdar til birtingar í bók sem kemur út síðar. Af þessum 50 voru síðan valdir tólf úr fjórum aldursflokkum sem verð- launaðir voru sérstaklega með áletr- uðum Lamy penna eöa htakassa. í dómnefnd áttu sæti þær Sigríður Sigurðardóttir og Halldóra Hauks- dóttir frá DV, Páll Dungal frá Penn- anum og Einar Halldórsson frá Pennanum. Þeir sem fá smásögu sína um ís- landsævintýri Tígra birta á bók eru: Auður Magndís Leiknisdóttir, He- lena Kristinsdóttir, Guðbjörg Þóra Ingimarsdóttir, Linda Dögg Þorgeirs- dóttir, Ámi Már Ólafsson, Ragnheið- ur Gísladóttir, Sturla Viðar Jaokobs- son, Hafþór Magnús Kristinsson, Tinna Kristín Þórðardóttir, Ásta Ey- björg Þorsteinsdóttir, Hilmir Hall- dórsson, Elva Díana Daviðsdóttir, Eva María Pálsdóttir, Brynjólfur Már Georgsson, Bjamey Sigurðar- dóttir, Amfríður Hafþórdóttir, Halla Marinósdóttir, Guörún Stella Ág- ústsdóttir, Kolbrún Hauksdóttir, Andri Freyr Jónsson, Sigríður Anna ísleifsdóttir, Anna Margrét Amar- dóttir, Elín Ósk Helgadóttir, Pétur Ingi Gíslason, Elfa Steinarsdóttir, Rakel Magnúsdóttir, Katrín Ösp Magnúsdóttir, Katrín Kolka Jóns- dóttir, Rósa Konný Jóhannesdóttir, Tinna Guðbjartsdóttir, Kristín Erla Jónsdóttir, Aðalheiöur Kristjáns- dóttir, Stemþór Hróar Steinþórsson, íris Dögg Oddsdóttir, Kristjana Margrét Svansdóttir, Pétur Logi Stef- ánsson, Andri Ómarsson, Ketill Sig- urður Jóelsson, Hildur Káradóttir, Silja Rós Sigurmonsdóttir, Sunna Axelsdóttir, Andri Bucholz, Jón Óli Helgason, Guðrún Eva Sigurðardótt- ir, Vala Margrét Árnadóttir, Linda Hrönn Armannsdóttir, Pálína Valdi- marsdóttir, Karitas Sveinsdóttir, Eyjóhur Fannar Scheving Jónsson og Jóhanna Sigurjónsdóttir. milljóna tap á hitaveitu Tap á Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar árið 1993 var um 204 milljónir króna. Eígnir eru um 1253 milljónir en skuldir sam- tals 1889 milljónir. „Það má segja að þetta fari versnandi en mikill hluti tapsins, eöa um 160 milljónir, er vegna gengistaps umfram verðlags- breytingar," segir Ingólfur Hrólfsson hitaveitustjóri, Að sögn Ingólfs ríkir enn ósam- komulag milli Akurnesinga og Borgnesinga um stofhun orku- bús. Skrifað var undir samning um stofhun undirbúningsfélags 1987 sem átti að kanna hag- kvæmni þess að stofna orkubú á svæðinu. „í samningum er gert ráð fyrir því aö menn stofni orkubú leiði athuganir í Ijós aö það sé hag- stæöur kostur. Við teþum að svo sé. Borgnesingar vilja hins vegar selja rafmagnsveituna til Raf- magnsveitna ríkisins og létta þannig ó skuldum," segir Ingólf- ur. býður fram í Bessastaðahreppi hefur verið lagður frara Álftaneslistinn til komandi sveitarsfjórnarkosn- inga. Álftaneslistinn er boðinn fram af félaginu Álftnesingur en það er nýtt félag sem býöur nú fram í fyrsta sinn. Eftirtaldir skipa efstu sæti Álftaneslistáns: 1. Kjartan Sigtryggsson örygg- isfulltrúi, 2. Sigrún Jóhannsdótt- ir kennari, 3. Janus Guölaugsson námsstjóri, 4. Bragi J. Sigurvins* son, starfsmaður ÍSAL, 5. Guðrún Gísladóttir kennari. Andri Ómarsson tekur við hér verðlaunum sínum, litakassa, úr hendi Halldóru Hauksdóttur, umsjónarmanns Krakkaklúbbs DV. DV-myndJAK Garöaúðun: Nauðsynlegt aðsækjaum starfsleyfi „Mikil óánægja hefur veriö með gömlu reglurnar og því þótti ástæða til aö setja nýja reglugerð. Fólk hefur kvartað við okkur um að þeir sem stunda garðaúöun kunni ekki til verka og séu bara með vatn í brúsunum. Sam- kvæmt gömlu reglunum sóttu bara þeir sem notuðu mjög sterk eiturefni um leyfi til okkar þann- igað allir sem vildu gátu stundað garöaúðun. Núna þurfa þeir sem hafa garðaúðun að atvinnu að sækja um leyfi og fá það ef þeir uppfylla skilyröi um lágmarks- menntun," segjr Sigurbjörg Gísladóttir, forstöðumaður eitur- efnasviös Hollustuverndar ríkis- ins. Samkvæmt nýjum reglum um garðaúðun þurfa einstaklingar, sem stunda garðaúðun í atvinnu- skyni, að sækja um starfsleyfi til Hollustuverndar ríkisins áður en garöaúðun hefst í vor og hefur enginn heimild til aö stunda garðaúöun nema hann hafi leyfi. Þeir sem hafa leyfi eíga að bera á sér leyfisskírteini við störf sín og framvísa þeim þegar þess er óskað. Samkvæmt reglugerðinni er hægt að beita refsiákvæðum sé eitri úðað í leyfisleysi. „Enginn hefur enn sótt um leyfi til okkar en við ætlum að fylgja reglugerðinni eftir og auglýsa reglurnar. Allir sem stunda garðaúðun í atvinnuskyni þurfa leyfi þó að einstaklingamir geti áfram eitrað i görðum sínum án þess að þurfa leyfi," segir hún. íslenskt forrit fyrir framhaldsskóla lagað að sænskum aðstæðum: Heildarpakkinn af hentur í haust - hefiirþegar fært þjóðarbúinu 200 miUjónir, segir Þórhannes Axelsson hjá Tölveli Unnið er að því að lagfæra íslenskt töfluforrit, sem notað er í flestum framhaldsskólum hérlendis til að halda utan um nemendabókhald og töflugerð, með sölu til Svíþjóöar í huga. Gert er ráð fyrir að endurbótum á kerfinu verði lokið í september og verði þá hægt aö taka það í notkun. Búist er við að markaður með allt að 500 framhaldsskólum geti opnast í Svíþjóð ef kerfið reynist vel. Um þessar mundir er verið aö setja það upp til reynslu í framhaldsskóla í smábænum Engelholm syðst á Skáni en skólayfirvöld þar eru að þróa áfangakerfi svipað því íslenska eins og annars staðar í Svíþjóð. „Hátt í 2.000 Svíar hafa komið hing- að til lands síðustu tvö árin sem þýð- ir lágmark um 200 milljónir fyrir þjóðarbúið þannig að þetta tölvu- verkefni er þegar farið að skila okkur miklum peningum. Við værum ekki að þessu nema við gerðum okkur góðar vonir um að geta markaðssett þessa vöru enda er þetta okkar sér- svið og 20 ár frá því við íslendingar byggöum áfangakerfið upp,“ segir Þórhannes Axelsson, eigandi tölvu- fyrirtækisins Tölvalar, en hann hef- ur unnið að markaðssetningu á for- ritinu og kynnt það á ráðstefnum erlendis að undanfomu. „Við stefnum að því að afhenda kerfiö í september. Sveitarfélögin hafa ekki pantaö kerfið beint en það em margir sem bíða. Við erum að vinna með Svíunum í því að setja þetta upp í Engelholm gymnasie- skola en þar em okkar samstarfsað- ilar. Við ætlum að setja kerfið upp á einum stað nú í vor og prófa það þar. Við látum það ekki neitt annað fyrr en komið hefur í ljós hvernig það gengur,“ segir hann. „Ég er tiltöiulega sáttur við það verð sem við fáum fyrir kjötið miðað við það verð sem gildir á heimsmarkaði," sagði Guðmund- ur Lárasson, formaöur Lands- sambands kúabænda, í samtali við DV í gær. Kúabændur munu í vikunni ganga frá sölu á um 70 tonnmn af kýrkjöti til Slóveníu. Guðmundur vildi að svo stöddu ekki gefa upp nákvæmt verð þar sem ekk hefur verið skrifað undir samninga ennþi Beöið er eftir að hægt verði að skipa kjötinu út þar sem það er geymt í frystigeymslum í Haíhar- firði. Viðeigandi yfirvöld í Slóve- niu eiga eftir að viðurkenna þau íslensku sláturhús sem um var að ræða en síðan mun að líkind- um verða gengið frá samningum. Guðmundur sagði að eiginlega heíði verið búið aö seljakjötiö til Albaníu sem framlag íslands í þróunaraðstoð en fiármagn hefði ekki dugaö fyrir öilu kjötinu þeg- ar upp var staðið. LaxáíKjós: Fyrsti laxinn „Þetta var 7-8 punda lax og lá rétt fyrir neöan Laxfossinn. Við Ragnheiður, konan mín, sáum fiskinn vel í fossinum. Á þessum stað sér maður yfirleitt fyTstu laxana á vorin,“ sagði Þórarinn Sigþórsson tahnlæknir en liann sá fyrsta lax sumarins i Laxfoss- inum í Laxá í KSós í gærdag. „Þessi iax er mættur snemma í ána og hann var einn þarna 1 foss- inum. Yfirleitt koma fyrstu lax- arnir um og eftir hvítasunnuna. Þetta var ekki niðurgöngufiskur, við vorum sammála um það, við Óli veiðivörður á Valdastöðum,“ sagði Þórarinn sem mun opna Laxá í K)ós þann 15. júní næst- komandi. Það boðar gott fyrir Laxá að laxmn mætir svona snemma í ána. leiningí Kosiðum nöfnásuður- fjörðum íbúar í Patreksfirði, Barða- strandarhreppi, Rauðasands- hreppi og á Bíldudal greiða at- kvæöi um nýtt nafn á sameinaö sveitarfélag þessara fiögurra sveitarfélaga um leið og nýir bæjarfulltrúar verða kosnir í kosningunum 28. maí. Greidd verða atkvæði um fimm tillögur: Vesturbyggð, Suðurfiarðabyggð, Baröabyggð, Suðurfiarðabær og Pjallabyggö. Auglýst var eftir nöfnum á nýja sveitarfélagið í vetur og bárust 180 tillögur með 93 nöfnum. Björn Gíslason, forraaður sameiningar- nefndarinnar í Vestur-Barða- strandarsýslu, segir að mikið hafi verið stungið upp á sömu nöfnun- um með mismunandi endingum. Þannig hafi nafnið Suðurfirðir komið f ýmsum útgáfum, til dæmis Suðurfirðir, Suðurfjarða- byggð og Suðurfiarðabær. Aðrar tiUögur voru meðal ann- ars þessar: Fjarkinn, Tröllaströnd, Trölla- sveit, Vesturhyma, Fagralands- hérað, Látravík, Látrabyggð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.