Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1994, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 17. MAl 1994
Stjómmál
Spurt í Grindavík:
Hver verða úrslit
kosninganna?
Aldís Einarsdóttir húsmóðir: Ég á
von á því að þetta verði svipað áfram,
verði óbreytt.
Þórður Stefánsson hótelstjóri: Sjálf-
stæðismenn tapa manni til Fram-
sóknar sem fær þrjá menn, ég held
það. Hitt verður óbreytt. Alþýðu-
flokkurinn mun örugglega halda sín-
um mönnum, þeir eru meö ansi góð-
an mannskap.
Jónatan Hallgrímsson sjómaður: Eg
veit þaö ekki en það mun breytast.
Ég held að Framsókn fái þrjá, sjálf-
stæðismenn haldi sínum tveimur,
Alþýðuflokkurinn muni tapa einum
og Alþýöubandalagið haldi sínum
manni.
Óskar Gislason, fyrrverandi sjómað-
ur: Ég veit það ekki en ég er helst á
því að einn falli út hjá krötum eða
Alþýðubandalaginu yfir til sjálfstæð-
ismanna sem fá þá þrjá menn, ef ein-
hver breyting verður.
Bjarni Ólason matreiðslumeistari:
Mín spá er að framsóknarmenn fái
þijá menn, Sjálfstæðiflokkurinn tvo,
Alþýðuflokkurinn einn og Alþýðu-
bandalag einn.
Guðjón Jónsson framkvæmdastjóri:
Sjálfstæðismenn halda sínum tveim-
ur, framsóknarmenn rétt halda sín-
um tveimur, Alþýðubandalagið mun
ná tveimur mönnum á kostnað Al-
þýðuflokksins sem fær þá einn
mann.
Grindavlk
Atvinnumálin efst á baugi
Aðalkosningamál flokkanna í
Grindavík eru atvinnumál og að
menn séu vakandi fyrir nýjum at-
vinnutækifærum sem bjóðast. Hafn-
armálin, dýpkun hafnarinnar og
smábátahöfnin eru ofarlega á baugi.
Stærstu skip Grindvíkinga komast
ekki inn til löndunar þar.
Þá eru það skólamálin. Grunnskól-
inn er orðinn alltof lítill og er fyrir-
hugað að byggja nýjan og glæsilegan
skóla. Flokkamir hafa allir áhuga á
Margrét Gunnarsdóttir, D-lista:
Höfnin stórmál
„Atvinnumálin eru ofarlega á
stefnuskrá okkar. Áfram verði hald-
iö uppbyggingu í atvinnumálum í
bænum og að styrkja einstaklingana,
styðja við bakið á þeim, og það eru
þeir sem hafa frumkvæðið. Atvinnu-
þróunarsjóður var stofnaður á síð-
asta kjörtímabili til að styrkja ný-
sköpun í atvinnu og stuðla að at-
vinnumálum hér. Við þurfum að
byggja nýjan skóla og verður það
stærsta verkefnið á næsta ári og sem
mun taka stærsta hluta af fram-
kvæmdafé bæjarins næstu árin. Við
verðum að vinna vel að því máli,“
sagði Margrét Gunnarsdóttir, efsti
maður á D-lista Sjálfstæðisflokks.
„Vinna þarf áfram að uppbyggingu
hafnarinnar með dýpkun innan
hennar og innsiglingin verði löguð.
Hugað verði betur að smábátahöfn-
inni og unniö að langtíma skipulagi
fyrir hafnarsvæðið. Aðalatvinnuveg-
ur okkar verður alltaf sjávarútvegur
en nú munum við fara að vinna að
ferðamannaþjónustunni og þeim at-
vinnutækifærum sem þar eru. Vinna
að málum sem vekja áhuga ferða-
mannsins til að koma hingað og það
mun auka alla þjónustu í bænum.
Það verður stefnt að því að fegra
gamla bæinn og umhverfi hans sem
er mjög fagurt svæði. Fjárhagsstaða
bæjarins er mjög góð og munum við
Hallgrímur Bogason, B-lista:
Allir haf i vinnu
„Atvinnumáhn eru sett í fyrsta
sæti. Við ætlum að vinna með opnum
huga í leit að nýjum atvinnutækifær-
um. Ætlum þó ekki að lokka til okk-
ar fyrirtæki og veita bæjarábyrgðir
á báða bóga, þannig verður ekki far-
ið að. Það sem mest brennur á okkur
er fyrirhuguð skólabygging - að
tryggja framtíðarlausn húsnæðis
grunnskólans. Höfnin verður alltaf
lífæð okkar um ókomna framtíð. Þar
verður að gera stórátak. Hún er orö-
in of grunn fyrir okkar stóru skip.
Vinna þarf af krafti að uppbyggingu
og dýpkun hafnarinnar og strax haf-
in bygging smábátahafnar sem er lít-
il og aðstaða léleg,“ sagði Hallgrímur
Bogason, efsti maður á B-lista Fram-
sóknarflokks.
„Öll málefni sem við erum með á
stefnuskránni tengjast fjölskyldu-
málum. Meðan atvinnuleysi er þá er
fyrsta fjölskyldumálið að allir fái að
halda sinni atvinnu. Við viljum að
þrýst verði á vegaframkvæmdir á
milli Grindavíkur og Þorlákshafnar
og lokið verði við vegarkaflann frá
Stað að Reykjanesi. Við ætlum að
halda áfram að vera í sérstöðu með
góða stöðu bæjarsjóðs. Meðan önnur
bæjarfélög eru skuldug miðað við
að snyrta gamla bæinn. Nýta hann
til útivistar og fegra umhverfi hans.
Lítið sem ekkert er farið aö spá í
úrsht kosninganna í Grindavík og
segja menn að þetta sé rólegasta
kosningabarátta sem þar hefur verið.
Margrét Gunnarsdóttir.
stuðla að svo verði áfram ef við verð-
um við stjórn.“
Hallgrímur Bogason.
hvern íbúa þá eru Grindvíkingar
með eignir á hvern íbúa og það má
ekki slaka á þar.“
Hinrik Bergsson, G-lista:
Látum ekki kaupa okkur
„Atvinnumáhn eru ofarlega hjá
okkur. Fyrir flórum árum lögðum
við til að stofnaður yrði atvinnuþró-
unarsjóður sem var síðan reyndar
stofnaður en við vorum ekki sáttir
hvernig það þróaðist. Þessi sjóður
hefur bjargað einhveiju hér í bænum
og við munum vinna að því að hann
nýtist okkur á næsta kjörtímabili,"
sagði Hinrik Bergsson, efsti maður á
G-hsta Alþýðubandalags.
„Atvinnumáhn tengjast ferða-
mannaþjónustunni. Við htum til
Svartsengissvæðisins og ætlum að
þrýsta á að heilsufélagið við Bláa
lónið haldi vöku sinni og standi við
þau fyrirheit sem gefin hafa verið
um uppbyggingu á svæðinu. Það er
loforð ahra flokka að nú sé komið
að skólanum; að húsnæðismál hans
verði leyst. Við vhjum leysa þau á
annan hátt en meirihlutinn hefur
samþykkt. Við viljum gera það í
áföngum, sem nýtist okkur strax og
við ráðum við flárhagslega. Þannig
að við stofnum ekki til það mikhla
skulda að við verðum keyptir tU að
sameinast Suðumesjabæ. Ég var
mjög ósáttur með meirihlutann á síð-
asta kjörtímabili þegar Grindavíkur-
bær afsalaði sér forkaupsrétti á land-
inu sem Vatnveita Suðurnesja keypti
Kristmundur Ásmundsson, A-lista:
Höf nin forgangsverkef ni
„Atvinnumálin eru efst hjá okkur.
í Grindavík höfum við þurft að búa
við sl. 3 ár aö aht að 10% af vinnu-
færu fólki hafi gengið um atvinnu-
laus. Við viljum að mörkuð verði
ákveðin stefna í atvinnumálum sem
taki mið af því sem fyrir er í bænum
þannig að atvinnurekendur hér í bæ
viti nákvæmlega að hveiju þeir gangi
næstu 10-20 árin. Höfnin verður allt-
af lífæð Grindavíkur og er næst-
stærsta fiskihöfn landsins en samt
komast ekki stærstu bátamir að hér
vegna slæmrar innsighngar.
Þaö hefur engin stefna verið mörk-
uð í málefnum hennar þrátt fyrir að
komi í ljós hvað aökallandi það er.
Við munum hafa það forgangsverk-
efni að finna á því máli varanlega
lausn og marka málefni hennar vel.
Það þarf líka að verja höfnina fyrir
sjógangi því þegar háflæði er hggja
mannvirki undir skemmdum," sagði
Kristmundur Ásmundsson, efsti
maður á A-hsta Alþýðuflokks.
„Ofarlega hjá okkur er gmnnskól-
inn sem er orðinn ahtof þröngur og
lítiU. Við verðum að taka á brýnustu
þörfmni strax, að koma upp bygg-
ingu, sem verður rúmgott húsnæði
fyrir börnin í bænum á næstu 5-6
ámm. Það er mest aökahandi allra
verkefna bæjarins er varða þjónustu
við flölskyldumar.
Varðandi flármál bæjarins vUjum
við benda á möguleika á hagstæðari
lánum á stærri lánamarkaði sem
Hinrik Bergsson.
á 18 miUjónir. Þar með á nýja sveitar-
félagið 25 hektara lands í landi
Grindavíkur."
Kristmundur Ásmundsson.
skapast hefur með tilkomu EES um
áramótin og gæta ýtrustu aðhalds-
semi í hvívetna."
Miklar breytingar verða á næstu
bæjarstjórn. Fjórir núverandi bæjar-
fulltrúar hætta. Þeir sem ekki gáfu
kost á sér voru báðir framsóknar-
mennirnir sem sitja í bæjarstjóm,
HaUdór Ingvason og Bjarni Andrés-
son, Jón Gröndal, Alþýöuflokki, og
Eðvarð Júhusson, Sjálfstæðisflokki.
Þrír flokkanna, Alþýðuflokkur,
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur, fengu tvo menn kjöma í síð-
ustu kosningum. Alþýðubandalagið
einn mann. Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur mynda meiri-
hluta í bæjarstjórn. A kjörskrá í
Grindavík eru 1430. íbúar era 2200.
Bæjarstjóri Jón Gunnar Stefánsson.
Umsjón
Ægir Már Kárason
Úrslitin 1990
í kosningunum 1990 voru flórir Ust-
ar í framboði, þeir sömu og nú.
A-Usti Alþýðuflokks fékk 358 atkvæði
og tvo menn kjörna. B-listi Fram-
sóknarUokks fékk 326 atkvæði og tvo
menn kjörna. D-hsti Sjálfstæðis-
flokks fékk 306 atkvæði og tvo menn
kjörna. G-hsti Alþýðubandalags fékk
154 atkvæði og einn mann. Þessir
voru kjömir í bæjarstjórn 1990. Jón
Gröndal (A), Kristmundur Ás-
mundsson (A), Bjami Andrésson (B),
Hahdór Ingvason (B), Eðvarð Júhus-
son (D), Margrét Gunnarsdóttir (D),
Hinrik Bergsson (G).
Framboðslist-
ar í Grindavík
A-listi Alþýöuflokksfélags:
1. Kristmundur Ásmundsson
2. Hulda Jóliannsdóttir
3. Pálmi Ingólfsson
4. Sigurður Gunnarsson
5. Höröur Helgason
6. Faimý Erlingsdóttir
7. Magnús Andri Hjaltason
B-listi Framsóknarflokks:
1. Hallgrimur Bogason
2. Valdís Kristinsdóttir
3. Sverrir Vilbergsson
4. Kristrún Bragadóttir
5. Róbert Tómasson
6. Anna Maria Sigurðardóttir
7. Símon Alfreösson
D-listi Sjálfstæðisflokks:
1. Margrét Gunnarsdóttir
2. Hahdór Halldórsson
3. Ólafur Guðbjartsson
4. Ólöf Þórarinsdóttir
5. Jón EmU Halldórsson
6. Þorgerður Guðmundsdóttir
7. Kjartan Adolfsson
G-listi Alþýðubandalags:
1. Hinrik Bergsson
2. Valgerður Á. Kjartansdóttir
3. Guðmundur Bragason
4. Hörður Guðbrandsson
5. Sigurður Jónsson
6. Unnur Haraldsdóttir
7. Eyþór Björnsson