Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1994, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1994, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Eitt síðasta tækifærið Nú eru að verða síðustu forvöð að byija að fara alveg eftir tillögum fræðimanna um minni sókn í þorskstofn- inn. Hingað til hefur árleg veiði verið töluvert umfram tillögur Hafrannsóknastofnunar, síðustu árin yfir hættu- mörkum, svo að hrun þorskstofnsins blasir nú við. Nýtingamefnd fiskistofna hefur lagt til þá reglu, að þorskafli verði á hveiju ári ekki meiri en 22% af veiði- stofni þorsks. Þar sem veiðistofninn er nú um 600 þúsund tonn, jafngildir þetta tillögu um 130 þúsund tonna þorsk- veiði á næsta fiskveiðiári. Þetta er raunar reiðarslag. Á yfirstandandi fiskveiðiári stóð til að veiða 165 þús- und tonn. Veiðin fer hins vegar langt yfir hættumörk, sem eru talin vera 175 þúsund tonn. Hún fer í um það bil 200 þúsund tonn á fiskveiðiárinu og stuðlar eins og veiði fyrri ára að hruni þorskstofns og þorskveiða. Við höfum búið við það böl í mörg ár, að ráðherra leyfir nokkru meiri veiði en fiskifræðingar mæla með og að síðan verður aflinn í raun töluvert hærri en ráð- herrann leyfði. Stafar það einkum af leyfilegum veiðum utan kvóta, sem menn spara sér að reikna með. Vítahringurinn hefnir sín nú, þegar þjóðin á aðeins tvo kosti, annan slæman og hinn ófæran með öllu. Fyrri kosturinn er að byrja að haga sér eins og menn og hætta að éta útsæðið. Síðari kosturinn er að halda áfram núver- andi veiðum, unz þorskveiði leggst senn af með öllu. Sérstaklega verður að víta þá stjómmálamenn, sem mestu ráða um sjávarútveg. Þeir hafa leikið sér að því að setja aflahámark, sem er marklaust, af því að hluti aflans er utan útreiknings um hámark. Þannig hafa til dæmis sjávarútvegsráðherrar hagað sér án ábyrgðar. Lengi hefur verið ljóst þeim, sem vita vilja, að setja þarf miklu strangari skorður við trilluveiðum. Stjórn- málamenn hafa hins vegar glúpnað fyrir frekju og hótun- um hagsmunaaðila á því sviði. Það er hluti skýringarinn- ar á, hversu illa er komið fyrir þorskstofninum. Enginn skortur er á skottulæknum og töframönnum, sem vilja færa mönnum huggun og sælu á þessu sviði. Þeir eru studdir nokkrum vatnalíffræðingum og veður- fræðingum, sem leika sér að eldi með því að egna óbil- gjaman. Saman ráðast þessir aðilar á fiskifræðina. Niðurstaðan af þessum ljóta leik er alltaf hin sama: Þar sem fiskifræðin er ónákvæm fræðigrein, er óhætt að fara ekki eftir henni og ævinlega í þá átt að veiða meira en hún mælir með. Þessi óskhyggja er alfa og ómega ofveiðinnar og helzta orsök íslenzku kreppunnar. Fyrir ári mátti öllum ljóst vera, að leyfilegur afli sam- kvæmt ákvörðun ráðherra og afli utan kvóta mundu samanlagt fara yfir hættumörk. Á þetta var meðal ann- ars bent hér í blaðinu. Samt ímynduðu menn sér, að niðurstaðan væri upphaf að bjartari tíma í sjávarútvegi. Enn er bjartsýni á ferð. Þegar fisknýtingamefnd seg- ir, að bezt sé að veiða ekki meira en 130 þúsund tonn og að hættumörk séu við 175 þúsund tonn, em ráðherra og hagsmunaaðilar þegar famir að gæla við hærri töluna og við framhald á veiðum utan skömmtunarkerfisins. í mörg ár hafa ráðamenn stjómmála og sjávarútvegs haft árlegt tækifæri til að líta raunsætt á möguleika líð- andi stundar. Þeir hafa á hverju ári fallið á prófinu með þvi að stuðla að veiðum, sem em langt umfram markið, sem gefur mestan arð, þegar til langs tíma er htið. Enn höfum við tækifæri til að snúa af óheillabraut Færeyinga. Við getum enn gripið í taumana og farið nið- ur í 130 þúsund tonn til að tryggja framtíð þorskveiða. Jónas Kristjánsson „Hugmyndin um sjálfstæða einstaklinginn á ekki samleið með hegðun okkar.“ Kosningaóskhyggja Það eru ýkjur að kosningarnar í vor verði spennandi, jafnvel ekki einu sinni þser í Reykjavík. Einu gildir þótt ýmsir hafi geflð sér gleðileg úrslit fyrirfram. Það er þjóðarsiður að halda galvaskir út í vissuna í von um að rekast á hið óvænta og sætta sig síðan við það sama. Krókur á móti bragði Til að tryggja sér tálvon vissunn- ar virti Sjálfstæðisflokkurinn ekki niðurstöður forkosninganna og lét þann „vægja sem vitið hefur meira“ af ótta við að herskáa sam- fylkingin með góðhjartaða málæð- ið mundi sigra. Þeir kjósendur sem lifa á háði töldu að minnihlutinn í borgar- stjórn hefði valið litlu gulu hænuna fyrir borgarstjóraefni sitt af því að hún hefði farið svo oft á stjórn- málaferli sínum á milli hænsna- kofa hugsjóna og flokka, að hún hefði glatað litnum fyrir löngu og væri því heppilegt sameiningar- tákn fyrir upplitað framboð. Klækir eru ekki sniðmr fyrir sér- staka hópa, í þeim er flest á sömu bókina lært, og enginn í stjórnmál- um lærir það vel af reynslunni að hann læri aö forðast sömu bókina. Þess vegna kemur stöðugt sami krókur á móti bragði með þeim af- leiðingum að útvaldir vita alla skapaða hluti, en kunna ekki að skapa neinn. Þetta á einkum við um íslensk stjórnmál. Þau eru fremur í ætt við neyslu, einkum fréttaneyslu, en ferskar hugmynd- ir. Þriðja eða fjórða aflið Vilji kjósenda er órannsakanleg- ur á tímum upplausnar og óvissu. Þannig tímar eru núna. Afleiðingin er hræðslubandalag og átök út í KjáUarinn Guðbergur Bergsson rithöfundur hött. Flestir viti að traust samfélög forðast átök en vinna í staðinn jafnt og þétt. Oft hendir við aðstæður óvissunnar, að fram kemur þriðja eða fjórða aflið, sem vekur vonir og sópar að sér atkvæðum á síðustu stundu. Aflið sem birtist er illu heilh stundum framgangur einhverrar fígúru, sem fólk kýs vegna þess að þegar trausta forræðið bregst, þá taka þegnamir upp á því að nota skopskynið og kjósa fígúruna. Með háðsbros á vör Stór hluti kjósenda getur ekki kosið R-Ustann af því að hjá honum er á oddinum fuUtrúi aðskflnaðar- stefnu, ekki bara kynjanna, heldur boðar KvennaUstinn þá stagl- kenndu, gaggandi hugmyndafræði, að reginmunur sé á þörfum þeirra og ábyrgð í samfélaginu. Þegar flokkur með þannig gildis- mat sameinast öðrum, geta róttæk- ir ekki kosið bandalagið. Annað mundi stríða gegn hugmyndum þeirra um samvirkt lýðræði karla og kvenna, hvítra og svartra. í væntanlegum kosningum verða slíkir kjósendur að sitja heima með háðsbros á vör, vegna þess að kosið er um það sem kynni að henta öll- um. Von var, að gefnar niðurstöður mundu raskast, ef maður á borð við Albert Guðmundsson byði sig fram. í margra augum var hann íslenski draumurinn um manninn sem fer sína leiö. Þetta er tálsýn. Hugmyndin um sjálfstæða ein- staklinginn á ekki samleið með hegðun okkar. Þegar á reynir víkur draumurinn fyrir veruleika smá- borgarans. Guðbergur Bergsson „Klækir eru ekki sniðnir fyrir sérstaka hópa, í þeim er flest á sömu bókina lært, og enginn í stjórnmálum lærir það vel af reynslunni að hann læri að forð- ast sömu bókina.“ Skoðanir annarra íslenskur hugbúnaður „Töluverðar væntingar hafa verið bundnar við hugbúnaðargerð hér á landi undanfarin ár... Er- lend samkeppni getur leitt af sér nauðsynlegt aðhald í hugbúnaðarframleiðslú líkt og annarri framleiðslu. Forráðamönnum íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja þykir þó samkeppnin ekki alveg vera á jafnréttis- grundvelli þegar þeir frétta af íslenskum fyrirtækj- um og stofnunum sem kaupa erlenda hugbúnaðar- pakka án þess svo mikið sem að kíkja á þá íslensku sem eru í boði.“ HKF í Viðskiptabl. Mbl. 12. maí. Gegn EES, gegn GATT! „ Hjól atvinnulífsins snúast hægar þar sem hag- vöxtur er enginn. Áfram er treyst á flskveiðar sem lífakkeri hins unga lýðveldis. Óg stjómmálamenn- imir standa í hópum niður á Alþingi og berjast með kjafti og klóm gegn öllum framfórum í íslensku at- vinnulífi: Gegn ESS, gegn GATT, gegn afnámi sér- hagsmuna og einokunar, gegn eðlilegri samkeppni, gegn innflutningi á matvöm og öðrum nauðsynja- vömm sem stórlækkar vöruverð til neytenda, gegn sjálfvirkni í ríkisútgjöldum og óhóflegri eyðslu á fjár- munum skattgreiðenda.“ Ur forystugrein Alþbl. 12. maí. NAFTA-aðild íslands „íslensk stjómvöld hafa undanfarin misseri fylgst með þróun mála vestanhafs... Ef ísland ákveður að vera utan ESB, eitt fárra Evrópulanda, liggur fyrir að tryggja verður viðskiptalega hags- muni með öðrum hætti..Ef ísland nær fríverslunar- samningi við Bandaríkin eða jafnvel aðild að NAFTA verður landið væntanlega í þeirri einstöku aðstöðu að hafa fríverslun bæði við Evrópu og Bandaríkin. Þetta er aðstaða sem ekkert annaö land hefur.“ Ólafur Arnarson í Viðskiptablaðinu 11.-17. maí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.