Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1994, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1994
Fréttir_____________________________
Óraunhæfar væntingar um nýtt síldarævintýri:
Takmarkaðir mögu-
leikar á sölu saltsíldar
- lækkandi verð á lýsi
„Það eru takmarkaðir sölumögu-
leikar á síld til manneldis og mikið
framboð á síldarmörkuðum. Við höf-
um verið í sambandi og viðræðum
við fjölda síldarkaupenda á öllum
helstu markaðssvæðum undanfama
daga og látið þá vita af þessum nýja
möguleika að geta boðið sOd úr
norsk-íslenska síldarstofninum eftir
26 ára hlé. Til dæmis hefur heyrst
að 40 þúsund tonn af frystri síld séu
til í frystigeymslum í Murmansk.
Kvótaaukningin úr þessum stofni,
sem við erum að veiða úr, nemur 350
þúsund tonnum á tveimur árum og
það hefur auðvitað áluif á sölumögu-
leika á okkar afurðum," segir Gunn-
ar Jóakimsson, framkvæmdastjóri
Síldarútvegsnefndar.
Síldveiðin norður af landinu hefur
kallað á spumingar um möguleika á
sölu á þeim afurðum sem þetta silfur
hafsins gefur af sér. Væntingar um
að síldin verði þjóðinni sá bjargvætt-
ur sem hún var fyrir þremur áratug-
um virðast óraunhæfar í ljósi þess
ástands sem ríkir á mörkuðum.
Gunnar bendir á að kaupendur
hafi ekki gert ráð fyrir þessu óvænta
framboði á síld og séu almennt búnir
að birgja sig upp af síld af þeirri
stærð sem nú veiðist.
„Við erum í samkeppni við aðra
fæðu, yngra fólk borðar minna af
síld en þeir sem eldri em. Það auk
þeirrar aukningar sem orðið hefur í
veiðinni leiðir til þess að möguleikar
okkar varðandi sölu em takmarkað-
ir,“ sagði Gunnar.
Horfur á sölu þeirra afurða sem til
falla við bræðslu virðast þokkalegar
en þó hefur þegar orðið verðlækkun
á lýsi vegna framboðs frá Perú. Teit-
ur Stefánsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra fiskimjölsframleið-
enda, sagði 1 samtali við DV að mikil
veiði Perúmanna hefði enn ekki haft
sýnileg áhrif á mjölverð en lækkun
á lýsisverði væri staðreynd.
Sæmundur Guðmundsson, aðstoð-
arforstjóri hjá íslenskum sjávaraf-
urðum h/f, sagði að varðandi sölu á
frystri síld væri verið að skoða mark-
aði í Japan og Þýskalandi.
„Þetta er mjög spennandi en mál
eru ekki komin það langt að hægt sé
aö spá um verö. Nokkur frystihús
hafa sýnt áhuga á því aö hefja fryst-
ingu en til þess að hægt sé að frysta
verður hráefnið að vera nýtt, helst
ekki nema nokkurra tíma gamalt.
Þá má ekki vera áta í síldinni,“ sagði
Sæmundur Guðmundsson.
Stuttarfréttir
Fjárhagsstaðan könnuð
Borgarráð samþykkti í gær aö
fela óháðum aðila utan borgar-
kerfisins að gera úttekt á fjár-
hagsstöðu borgarinnar. Fulltrúar
minnihlutans settu sig ekki upp
á rnóti tillögunni.
Minnihlutinnámóti
Borgarráð fjaliaöi í gær um til-
lögu meirihluta borgarstjómar
að ráðúin verði aðstoðarmaður
borgarstjóra. Tillögunni var að
kröfu minnihlutans vísað til
borgarstjómar.
SvenrirsækH-um
Sverrir Hermannsson hefur
ákveðið að sækja um stöðu
bankastjóra í Landsbankanum.
Morgunblaðið greindi frá þessu.
Um er að rajða stöðu sem Sverrir
gegnir nú þegar en var auglýst
vegna ákvæða í lögum.
Stöð 2 ekki videoieiga
Stöð tvö verður fjölmiöill en
ekki videoleiga eftir eigenda-
skipti. Tíminn hefur þetta eftir
fréttastjóra stöðvarinnar.
Táningur í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás:
Kastaði skipti-
lykli í höfuð
jaf naldra síns
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í gær 18 ára pilt í 8 mánaða fangelsi,
skilorðsbundið til 3 ára. Dóminn
hlaut hann fyrir að hafa kastað
skiptilykli í höfuð jafnaldra síns.
Atvikið átti sér stað í Árbænum 28
ágúst síðastliðinn. Við höggið höfuð-
kúpubrotnaði pilturinn og kýldist
bein inn í höfuðið. Beinflisar stung-
ust í gegnum heilahimnu og hann
hlaut mar og blæðingar í heilavef og
varanlega skemmd á litlu svæði heil-
ans.
í niðurstöðum dómsins segir að
ljóst sé að upphaf samskipta piltanna
umrædda nótt megi rekja til þess að
fómarlambið hafi hlaupið að ákærða
og barið hann með homaboltakylfu
í síðuna. Homaboltakylfuna var
hann með sér til vamar þar sem
hann taldi ófriðvænlegt að næturlagi
í hverfinu þar sem hann býr. Ákærði
var þá með hnúajám en treysti sér
ekki til að nota það þar sem hann
taldi kylfuna, sem var úr jámi, meira
verkfæri. Einnig barði fómarlambið
félaga ákærða í höfuðið með kylfunni
en fór eftir það í burtu.
Síðar kom fómarlambið á bfl og
gerði sig líklegt til að slá tfl ákærða
með sömu kylfu út um opinn glugga
jeppabifreiðar. í sömu mund kastaði
ákærði skiptilykli, sem félagi hans
hafði náð í, í höfuð fómariambsins
með fyrrgreindum afleiðingum.
Hélt ákærði því fram að hann hefði
þurft skiptilykflinn til að veija sig. Á
það var ekki faliist þar sem hann
hefði átt alla möguleika á að hlaupa
á brott.
Dóminum þótti jafnframt sannað
að fómarlambið hefði átt upptökin
að átökunum um nóttina. Hins vegar
hefði ákærða mátt vera ljóst að sú
háttsemi aö kasta lyklinum í átt til
bifreiðarinnar var stórhættuleg.
Héraðsdómur dæmdi því pfltinn,
sem kastaði skiptilyklinum, í 8 mán-
aða fangelsi skilorðsbundið. Tillit
var tekið til þess að hættulegt verk-
færi var notað og að ákærði hafði
áður gengist undir dómsáttir vegna
líkamsárásar og skemmdarverka. Þá
var tekið tillit tfl ungs aldurs ákærða
tfl refsflækkunar.
Sá sem fyrir lyklinum varð gerði
kröfur um 250 þúsund króna skaða-
bætur. Var fallist á helming þeirrar
fjárhæðar þar sem hann átti upptök-
in. Hann hefur áður hlotið skilorðs-
bundinn dóm, meðal annars fyrir
barsmíðar á þremur aðilum
Tannlæknirinn ekur hnarreistur i hestakerru sinni og ýmsir hafa notað tækifærið og fengið far hiuta leiðarinnar.
DV-mynd Magnús
í hringferð í hestakerru
- og ferðirtni lýkur á landsmóti hestamanna á Hellu
Magnús Ólafsson, DV, Húnaþingú
Þýski tannlæknirinn Dieter Kolb
er mikill aðdáandi íslenska hestsins
og á slíka gripi í heimalandi sínu.
Nú dvelur hann hér á landi og er á
hringferð um landið í hestvagni.
Til ferðalagsins flutti hann hingað
nýja hestakerru, sem tekur fimm far-
þega auk ökumanns, og sex hesta
hefur hann að láni til þess að draga
kerruna. Venjulega spennir hann tvo
fyrir ækið í einu og hina hestana flyt-
ur hann á bfl.
, Með tfltæki sínu vfll hann kynna
íslendingum þennan skemmtflega
ferðamáta, kerruaksturinn. Meðal
annars segir hann tilvahð og eftir-
minnflegt fyrir brúðhjón að fara í
hestvagni til kirkju. Þá bendir hann
á mikla möguleika hestakerrunnar
varðandi ferðaþjónustu. Samhiiða
þessu kynningarátaki nýtur tann-
læknirinn þýski samveru hestanna í
íslenskri náttúru.
Kerruferðalagið hófst í Rangár-
vallasýslu og var farið austur um
land. Nokkra daga var stansað á
Blönduósi og 13. júní haldið vestur
Húnavatnssýslu að Brú. í dag, 15.
júní, verður haldið með Akraborg tfl
Reykjavíkur og þaðan um Suðurnes.
Ferðinni lýkur svo á landsmóti
hestamanna á Heliu.
Nýi meiriHutiim á Stöð 2:
Hyggst sækja rétt sinn með öllum ráðum
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður,
fyrir hönd nýs meirihluta í sljórn
íslenska útvarpsfélagsins, hefur sent
Ingimundi Sigfússyni, fráfarandi
stjómarformanni felagsins, mjög
haröort bréf í tflefni af sölu fráfar-
andi meirihluta á hlut félagsins í
Sýn. Samkvæmt bréfinu hyggst nýr
meirihluti sækja rétt sinn og Stöðvar
2 „með öllum tiltækum ráðum“.
Krafist er bótakrafna og boðuð frek-
ari málsókn en komin er vegna lög-
bannsins.
í bréfinu segir að krafa um lögbann
hafi verið sett fram frá nýjum meiri-
hluta á sölu Sýnarbréfanna í þeim
tilgangi að tryggja að hægt verði að
framfylgja væntanlegum úrskurði
dómstóla um að ráðstöfun hlutabréf-
anna hafi verið ólögmæt með þeim
hætti að bréfin gangi aftur til félags-
ins. Síðan segir í bréfinu:
„Við fyrirtekt lögbannsmálsins hjá
sýslumanninum í Reykjavík hefur
lögmaður gerðarþola lýst því yfir að
umbjóðandi hans hafi þegar framselt
hluta hlutabréfsins. Er því jafnframt
haldið fram að framsalið sé til aðila
sem enga vitneslgu hafi haft um að-
draganda málsins. Því þurfi sá aðili,
vegna grandaleysis síns, ekki að þola
lögbann við ráðstöfun þeirra réttinda
sem bréfinu fylgja. Með þessu móti
er sýnilega verið aö gera tflraun til
þess að koma í veg fyrir að meiri-
hluti hluthafa í íslenska útvarpsfé-
laginu geti náð fram rétti sínum.
Virðist hér um lítt dulbúið brot á
249. grein almennra hegningarlaga
að ræða.“ Þess má geta að samkvæmt
greininni getur brot á henni varðað
fangelsi frá 2 tfl 6 árum.
Undir lok bréfsins til Ingimundar
segir: „Komi í ljós að frekari tflraun-
ir verði viðhafðar af hálfu fráfarandi
meirihluta stjómar félagsins tfl þess
að koma í veg fyrir að nýr meiri-
hluti hluthafa geti náð rétti sínum,
t.d. með frekari framsölum eða sýnd-
argemingum, verður ekki hikað við
að krefiast opinberrar rannsóknar á
aðdraganda sölunnar og þér, ásamt
öðrum stjómarmönnunm sem á mál-
inu hafa staðið, verðið kærðir fyrir
brot á 249. gr. alm. hegningarlaga."
Ingimundur Sigfússon kaus ekki
að fiá sig frekar um málefni Sýnar
og Stöðvar 2 í fiölmiðlum þegar DV
hafði samband við hann í gær.
Eins og kom fram í DV í gær synj-
aöi fulltrúi sýslumanns í Reykjavík
kröfu um lögbann á sölu Sýnarbréf-
anna. Um var að ræða sölu á 1,8
mifljóna króna hlut að nafnvirði tfl
Jóhannesar Torfasonar, bónda á
Torfalæk í A-Húnavatnssýslu, með
samningi dagsettum 10. júní sl. Lög-
bannskröfunni var synjað á þeirri
forsendu að lögbann verði ekki lagt
á athöfn sem þegar sé lokið og gerð-
arbeiðendum hafi ekki tekist að
sanna lögbrot. Gerðarbeiðendur hafa
ákveðið að kæra úrskurðinn.
Jafnframt var farið fram á lögbann
hjá sýslumanni á Blönduósi í gær
vegna kaupa Jóhannesar Torfasonar
Málið var tekið fyrir í gærkvöldi og
syifiaö um lögbann. Hefur úrskurð-
inum verið skotið tfl Héraðsdóms
Norðurlands vestra.