Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1994, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ1994
A AEG MG AEG AIG AIG AEG AEG AiG AEG AEG AEG AEG A
c E
G
AEG kostar minna en þú heldur.
Mjög hagstætt verð á eldavélum, ofnum,
■ w V ■■ ■ w . m ' •
elluborðum og viftum.
▲ Eldavél
*
A nálægt
20.00$ r
íslenskum "
heimilum f
eru AEG eldavélar. G
Engin eldavélateaund
er á fleiri heimilum.
Kaupendatryggð við
AEG er 82.5%*
Hvað segir þetta þér
um gæði AEG í
*Samkvæmt morkaðskönnun
Hogvongs í des. 1993.
BRÆÐURNIR
ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
Umbo&smenn um land allt
Competence 5000 F-w:
^ 60 cm. Undir- og yfirhiti,
blástursofn, bástursgrill, grill,
A geymsluskúffa.
| Ver& kr. 62.900,-
G AEG AEG AiG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG AEG C
Útlönd
Poul Nyrup Rasmussen og Lone Dybkjær:
Giftust á laun
fyrir mánuði
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráöherra Danmerkur, og Lone
Dybkjær, sambýliskonu hans og ný-
kjörnum Evrópuþingmanni, tókst
heldur betur að varðveita leyndar-
mál fyrir fjölmiðlum en í gær kom í
ljós að þau höfðu gift sig fyrir mán-
uði.
Það var danska forsætisráðuneytið
sem gaf út tilkynningu rnn að hjóna-
leysin, sem hafa búið saman í tvö ár,
hefðu gift sig þann 14. maí sl. í ró og
næði á heimili sínu. Þeir einu sem
vissu um hjónabandið voru tvær
uppkomnar dætur Dybkjær og kær-
astar þeirra.
Poul Nyrup Rasmussen og Lone
Dyþkjær, sem ætla þæði að halda
sínum eftirnöfnum, efndu til blaða-
mannafundar á veitingahúsi í Frið-
riksbergi í gær eftir að tilkynnt hafði
verið um ákvörðun þeirra. Þau sögð-
ust ætla að halda veislu innan tiðar
og einnig að fara í brúðkaupsferð en
gáfu þó ekki upp hvert eða hvænær
þau myndu fara.
Það vakti mikla athygli á sínum
tíma þegar Poul Nyrup, sem er fimm-
tugur jaíhaðarmaður, og Lone, sem
er 54 ára gömul og í Róttæka vinstri-
flokknum, fóru að vera saman en
flokkarnir eru saman í stjórn.
Það fór vel á með Poul Nyrup og
Lone á blaðamannafundinum í gær
og þau stilltu sér upp og brostu sínu
breiðasta fyrir fjöldann allan af *J°U* NyruP Rasmussen og Lone Dybkjær voru alsæl a blaðamannafundin-
blaðamönnum sem vildu ólmir ná umígærogkysstustogkjössuðusteinsogástfangnirunglingar.
myndumafnýgiftaparinu. Ritzau Símamynd Reuter
Hillary Clin-
ton, forsetafrú í
Bandarikjun-
um, sagði í gær
að hún hefði
einu sinní leitt
hugann að því
að ganga í her- |
inn en heföi
hætt viö eftir að leiðbeinandi þar
sagði við hana: „Þú ert of gömul,
þú sérð ekkert og þú ert kona“,
Hillary sagði frá þessu í hádeg-
isverðarboði þar sem verið var
að heiðra konur sem þjónuðu í
bandaríska hernum.
Hún var 27 ára gömul og með
þykk gleraugu þégar hún hitti
leiðbeinandann áriö 1975. For-
setairúin gengur hins vegar ineö
linsur núna og er ánægð með aö
maður hennar hefur losað um
hömlur á herþjónustu kvenna.
Zhírínovskí
hættirviðmeið-
yrðamál gegn
JegorGajdar
Rússneski þjóðenúsöfgamað-
urinn Vladimir Zhírinovskí hætli
i gær við meiðyrðamál á hendur
umMiasinnanum Jegor Gajdar
sem hafði líkt honuro við Adolf
Hitler, leiðtoga þýskra nasista.
Itar-Tass fréttastofan haföi það
eftir starfsmönnum héraðsdóms
í Moskvu að Zhírínovskí hefði
dregið málshöföunína til balta eri
dómurinn átti að fjalla um hana
í gær.
Það þykir hin grófasta móðgun
í Rússlandi að láta líkja sér við
Hitier, enda rnisstu fyrrum Sov-
étiikin rúmlega 20 miiljónir
mannai baráttunni gegn Hitlers-
Þýskalandi í heimsstyrjöldinni
síðari. Reuter
Leiðtogar funda 1 Rómönsku Ameríku:
Castro hellti úr
reiðiskálunum
Fidel Castro, forseti Kúbu, hellti úr
skálum reiði sinnar yfir leiðtoga
ríkja Rómönsku Ameríku, Spánar og
Portúgals fyrir að meta ekki að verð-
leikum árangur lands síns, fyrir að
fordæma ekki viðskiptabann Banda-
ríkjanna og fyrir að reyna að segja
honum fyrir verkum.
„Ég virði hugmyndir allra og ég tel
að ef við ætlum að ræða um lýðræði
ættum við að tala um fjplbreyttar
skoðanir og viðmiðanir. Ég bið um
að viðmiðunum okkar sé sýnd virð-
ing á sama hátt og við sýnum ykkar
viðmiðunum virðingu," sagði Castro
á fundi leiðtoga Rómönsku Ameríku,
Spánar og Portúgals sem haldinn er
í kólumbísku borginni Cartagena.
Hann var þar að svara áskorunum
m.a. Itamars Francos, forseta Brasil-
íu, um að koma á breytingum á
Kúbu.
Castro haíði setið undir ræðum þar
sem frjálst markaðshagkerfi var lof-
að og hvatt var til aukins frelsis í
viðskiptum og minnti menn reiðilega
á að Kúba væri komin lengst allra
ríkja álfunnar í félagsmálum, ekki
einum einasta skóla eða sjúkrahúsi
hefði veriö lokað þrátt fyrir erfitt
ástand.
Fidel Castro, forseti Kúbu, lét aðra
leiðtoga fá það óþvegið á fundi I
Kólumblu. Simamynd Reuter
Kúbversk stjómvöld hafa hrundið
af stað hægfara umbótum á efna-
hagskerfi sínu en halda fast í stjórn-
kerfi sitt. Efnahagslíf á eyjunni lagð-
ist nánast í rúst eftir hmn Sovétríkj-
anna, helsta viðskiptalandsins.
Reuter
Honecker kennir
um umfallið
: Erich sálugi
Honecker,
íymim leiðtogi
í Austur-
Þýskalandi,
kennir land-
ráðamönnum
innan fomstu
kommúnista
um fall stjórnar sinnar árið 1989.
Mennirnir sem þar oiga mesla
sok á eru Egon Krenz, eftirmaður
hans, og Míkhaíl Gorbatsjov, þá-
verandi leiðtogi Sovétríkjanna.
Þetta kemur fram í éndurminn-
ingum foiingjans sem Berlínar-
blaðið Super-Illu birti útdrátt úr.
Danskurtekur
doktorsprófí
Mýrdalsjökli
Danski vísindamaðurinn Jo-
hannes Kröger við Kaupmanna-
hafnarháskóla varði doktorsrit-
gerö sína um Mýrdalsjökul við
jarðfræðideild skólans í gær.
Kröger safnaöi efni í ritgerðina í
sex Islandsferðum á áranum 1977
til 1989.
Mestur hluti Danmerkur ber
ummerki jökla frá isöldinni og
segir Johannes Kröger að nauð-
syrúegt sé að þekkja ísaldarlands-
lag betur ef takast á að nýta jörð-
ina á sem bestan hátt og taka til-
lit tii umhverfisins um leið.
Kröger stjómar leiðangri til ís-
lands í ágúst til að kynna öðmm
vísindamönnum ísaldartilrauna-
stofuna sem Mýrdaisjökull er.
Ástralirmót-
mæla hvalveið-
um Norðmanna
Áströlsk stjórnvöld fordæmdu
í gær þá ákvörðun Norðmanna
að hefja á ný hvalveiðar i ábata-
skyni og sögöu slíkar veiðar bæði
ónauðsynlegar og grimmdarleg-
ar.
Bob McMullan, starfandi utan-
ríksráðherra Ástralíu, sagði að
norska sendiherranum hefði ver-
ið skýrt frá vanþóknun ríkis-
stjórnarinnar.
„Ástralska stjórmn telur að
Norðmenn ættu að viðurkenna
að sifellt stærri hluti almennings
í heiminum ér andvigur hval-
veiðum í áhataskyni á þeim for-
sendum aö þær séu ónauðsynleg-
ar og of grimmilegar," sagði í yfir-
lýsingu ráöherrans.
stöðugan hag-
vöxtframundan
Lloyd Bent-
sen. tjármála-
ráðherra
Bandaríkj-
anna, spáir því
að hagvöxtur
vestanhafs
verði traustur
á þessu ári og
að bandaríski seðlabankinn muni
halda vöxtum stöðugum um sinn.
Bentsen segir úthtið í efnahags-
málum hjart, vöxtur sé í efna-
hagslífmu og verðbólgunni sé
haldið í sketjum.
Ráðherrann gerir ráð fyrir að
hagvöxtur í Bandaríkjunum
verði þrjú til þrjú og hálft prósent
á árinu, meiri en bæði í Evrópu
OgJapan. Reuter, Ritzau