Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1994, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1994
Listasmiðjan er flutt að
Dalshrauni 1, Hafnarfirði.
Mesta úrval landsins af keramikvörum.
íslensk framleiðsla.
Opnunarafsláttur W
15-30P/o í Jk
nokkra daga. W]pF
Lístasmiðjan
Dalshrauni 1, Hafnarfirði
sími 652105, fax 53170.
A NÆSTA SOLUSTAÐ
EÐA í ÁSKRIFT í SÍMA
tímarit fyrir alla
(327-00
eynmn
Osta- og smjörsölunni
Vegfna breytingfa í símaskrá er
faxnúmer okkar í sölude ild nú
87 69 06
stað 68 69 06.
GSmjöp6^V
Menning
Náttúrasýn Asmundar
og Kjarvals á Akureyri
í Listasafni Akureyrar hefur veriö opnuð sýning þar
sem verkum tveggja helstu meistara íslenskrar mynd-
listar, þeirra Jóhannesar Kjarvals og Ásmundar
Sveinssonar, er teflt saman. Sýningin er samstarfs-
verkefni Listasafns Akureyrar og Listasafns Reykja-
víkur, Kjarvalsstaöa og Ásmundarsafns. Sýningin fer
frá Akureyri til Prag og Edinborgar, en ekki er ráð-
gert að setja hana upp annars staðar hér á landi og
er sýningin þeim mun merkari fyrir hið nýja og vax-
andi listasafn þeirra Norðlendinga. Náttúra - náttúra
Titill sýningarinnar er Náttúra - náttúra og á að undir-
strika að báðir listamennirnir vinna út frá náttúrúnni
og landinu í verkum sínum. Með eilítilli fyrirhöfn og
stórum skammti af áræöi hefði verið hægt að gera
sýningu þessa að því sem henni virðist hafa verið
ætlað; að sviösetja sjónleik frá íjórða og flmmta ára-
tugnum þar sem tröll Ásmundar fara hamforum í fjöll-
um Kjarvals. Því er þó ekki að heilsa, því miður. Val
á verkum á þessa sýningu virðist næsta handahófs-
kennt og hér er hvorki um að ræða merkustu verk
listamannanna né markverða tilraun til að láta verk
listamánnanna kallast á, jafnvel þó hugmyndin sé
góðra gjalda verð. Það er helst í klefasalnum að neisti
á milh „Hrafnabjarga“ Kjarvals og „Tröllkonu" Ás-
mundar. Ólíkur stíll Stíll listamannanna er það óhkur
að hreint ekki er gefið mál að samspil á við það sem
að ofan greinir gangi upp. Þegar sýningar eru skipu-
lagðar með það fyrir augum að gera slika thraun er
frumskyldan að kanna grundvölhnn. Sýningunni fylg-
ir ítarleg og innbundin skrá með ritsmið Kristínar G.
Guðnadóttur um náttúrusýn Kjarvals og grein eftir
Gunnar Kvaran sem birtist í fyrra í bók um náttúruna
í hst Ásmundar. Sameiginlegt viðfangsefni í hstinni
Sameiginleg niðurstaða þessara greina er í sem stystu
máh sú að hér sé í báðum thvikum um að ræða næma
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
listamenn sem ólust upp í faðmi náttúrunnar og hta
á hana sem eigirJegt \nðfangsefni sitt í hstinni. Því sé
útgangspunktur þeirra nánast sá sami þótt nálganir
séu óhkar. Fróðlegt hetði verið að hafa hér samanburð-
argrein á hst þessara tveggja meistara íslenskrar sam-
timahstar eða grein þar sem áþekkir fletir í hst þeirra
væru gaumgæfðir. En nálgunin er hér öh með hefð-
bundnum hætti líkt myndimar hefðu ekki komið fram
í dagsljósið áður. Ósamræmið á milli skrár og sýning-
ar er meira fyrir þær sakir að í skránni er að finna
gnægð verka sem ekki em á sýningunni. Listasafn
Akureyrar er aht um það góður sýningarstaður sem
hefur til að bera hæfhegan hráleika og hæfhega birtu
svo verkin eru ekki borin ofurhði. Þangað eiga von-
andi eftir að rata margar betur skipulagðar sýningar
og ekki væri verra að þær væni alnorðlenskar. Sýn-
ingin á verkum Kjarvals og Ásmundar í Listasafni
Akureyrar stendur th 28. júní.
Smáauglýsingar
OPIÐ:
Miðvikudaginn 15. júní kl. 9-22
Fimmtudaginn 16. júní kl. 9-22
Sunnudaginn 19. júní kl. 18-22
LOKAÐ:
Föstudaginn 17. júní
Laugardaginn 18. júní
DV kemur út fimmtudaginn 16. júní
DV kemur ekki út föstudaginn 17. júní
og laugardaginn 18. júní
DV kemur næst út mánudaginn 20. júní
Smáauglýsingar - Þverholti 11 - sími 632700
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Tómas R. Einarsson:
Einslags stórt hrúgald af grjóti
Laugardagskvöldið 11. júní var í íslensku óperunni
fluttur tónleikur um ísland fyrir fimm söngvara, ljóð-
skáld og sjö manna djasshljómsveit eftir Tómas R.
Einarsson, djasstónskáld og kontrabassaleikara. - Þaö
hlaut að koma að því að jafn bókmenntalega sinnaður
músíkant og Tómas sækti sér efnivið í íslenska ljóða-
gerð að einhveiju marki. Ljóöin, sem hann hefur vahö
að tónsetja, eru frá síöari hluta þessarar aldar og auk
þeirra gamah texti úr oröabókarhandriti eftir Jón
Grunnvíking og þaöan fengin yfirskrift tónleiksins.
Hljóðfæraleikarar voru, auk höfundar, Eyþór Gunn-
arsson á píanó, Matthías Hemstock á trommur, Einar
Öm Benediktsson á trompet, Óskar Guðjónsson á te-
nórsaxófón, Siguröur Flosason á altsaxófón og Þórir
Baldursson á orgel og píanó.
Söngvaramir, sem komu fram, voru Bergþór Páls-
son, Einar Öm, Guðmundur Andri Thorsson, Ragn-
hhdur Gísladóttir og Sif Ragnhildardóttir. Ekkert
þeirra hefur einbeitt sér að djasssöng sérstaklega en
þau stóðu sig öh vel, hvert á sína vísu.
Þrátt fyrir val söngvaranna fór ekkert á mhh mála
að þetta vom djasstónleikar. Lagið „S.S. Montclare"
við undarlegt kvæði eftir Laxness gat eiginlega ekki
verið öömvísi en það var. Byggt á nokkrum ahólíkum
köflum, hresshegur takturinn í byrjun vel við hæfi
og endaö á fahegu stefi. Ragnhhdur brá sér öðm hvora
í hki tenórsöngvara og gerði verki þessu góð skh. Sif
söng ljóðið „Dagur“ eftir Pétur Gunnarsson með sinni
djúpu rödd. Sveiflan var létt en lagið með líku yfir-
bragði og hin hægu verk Tómasar, „Landsýn" við Ijóð
Steins Steinarrs, sem KK söng, „Nostalgía" við ljóð
Ingibjargar Haraldsdóttur og „Þau“, við ljóð Stefáns
Harðar Grímssonar, en Ragnhildur söng þau tvö síð-
ari. í „Nostalgíu" blés Sigurður Flosason í bassaklarí-
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
nettu mjög lýriskt með Websterlegum thþrifum. Höf-
undareinkenni Tómasar koma einna sterkast fram í
þessum framantöldu verkum sem rísa og hníga eins
og mjúkur öldugangur, mohhljómar veita eihtið stríð-
um eða stríðnislegum dúrhljómum lausn en aldrei
lengi í senn. Útsetningamar eins og aht að því brot-
hættar ef þær væm ekki í svo ömggum höndum. Lagl-
ínurnar gerast sterkari og áleitnari en áður hjá Tóm-
asi þótt ekki séu famar fjöltroðnustu slóðir í hljóm-
setningum.
Einar Öm „rabbaði" lýsingu íslands eftir Grunnvík-
inginn og Flosason og Óskar fretuöu mikinn í fóna
sína sem og þeir gerðu líka er Sjón steig á svið og fór
með frásögn af Sigurjóni hrotta búsettum í Breiðholti.
Bergþór Pálsson söng örstutt draugalegt ljóð eftir
Gyrði Ehasson við undirleik Matthíasar á trommur
og síöan las Ragnhhdur blúsað prósaljóð eftir Lindu
Vhhjálmsdóttur og mætti þá Þórir Baldursson á svið
og fór fimum höndum um virðulegt Hammond B-3
orgel sem skapaöi fína blússtemningu. Að lokum söng
og las Guðmundur Andri „Þú ert“ eftir Sigurö málara
Guömundsson en það kvæði er ort th íslenskrar tungu.
AUur flutningur var með ágætrnn. Fjölbreytnin mik-
h og skiptust á gaman og alvara í textum, róleg lög
og hröö, Ijóöræna og hreinn hávaði. Ekki er hægt að
segja annað en að hér hafi vel tekist th við að finna
hinum ýmsu textum samræmda tónaumgjörð nýja.