Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1994, Side 12
12
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ1994
Spumingin
Ætlarðu á Þingvöll á þjóð-
hátíðardaginn?
Júlía Þorvaldsdóttir: Já, ég ætla aö
fara þangað.
Sif Sumarliðadóttir: Nei, verö aö
vinna.
Arnar Atlason: Er ekki búinn að
ákveöa það.
Sigurjón Þórhallsson: Reikna með
því að kíkja þangað.
Jóhanna Símonardóttir: Já, býst við
að kíkja þangað.
Magnús Hallbjörnsson: Nei, verð far-
inn af landi brott í sumarfrí.
Lesendur
„Okur og ofbeldi“ bankanna:
Debetkort
- meö góðu eða illu
„Debetkortin eru ágæt,“ segir bréfritari en vill ekki láta bankana troða
þeim ofan í kokið á sér.
Geir Sigurðsson skrifar:
í DV fyrir liðna helgi er frétt þar
sem talað er við Bjöm Grétar Sveins-
son, formann Verkamannasambands
íslands, vegna gjaidtöku bankanna
af ávísanaviðskiptum. Bjöm Grétar
talar um „okur og ofbeldi“ og tek ég
heils hugar undir orð hans. Eg hafði
satt að segja ekki gert mér fulla grein
fyrir því hvað hér er í rauninni á
ferðinni fyrr en ég las þessi ummæli
Bjöms Grétars.
Er það ekki alveg með eindæmum
að bankamir skuli leyfa sér að stilla
fólki upp við vegg með þessum hætti?
Hvemig má það vera að bankamir
geti komið svona fram? Það eitt að
kostnaður við notkun á einu ávís-
anahefti er kominn í 725 kr. er hrein-
asti glæpur. Þeir em að þvinga fólk
til þess að taka þessi debetkort með
góðu eða illi. Fólki er ekki gefinn
neinn valkostur. Hvað segja sam-
keppnislög við þessu? Eru engin
markaðslögmál hér á ferð? Það er
alltaf verið að tala um að olíufélögin
vinni svo og svo mikið saman og
engin samkeppni ríki á markaðnum
á þeim bæ. Mér finnst það satt aö
segja smámunir hjá þessu ofbeldi
bankanna.
í áðumefndri frétt kemur fram að
miðstjóm ASÍ mótmæli hárðlega
aukinni gjaldtöku bankanna og að
hún hvetji allt launafólk til þess að
gera slíkt hiö sama. Það sé ekki á-
sættanlegt að bankarnir æth launa-
fólki að greiða tap og áskriftir liðinna
ára með þessum hætti.
Hvað er til ráða? Kánnski er eina
ráðið að hætta að nota tékkheftiö og
taka fram gömlu sparisjóðsbókina?
Maður þyrfti að vísu líklega að hafa
með sér burðarmann með pening-
ana, eins og dýrtíðin er í landinu, en
líklega myndu bankarnir þá ranka
við sér.
íslendingar era seinþreyttir til
vandræða og láta of oft vaöa yfir sig.
Nú er mælirinn fullur og ég segi
hingað og ekki lengra. Debetkortin
eru ágæt en á meðan ekki er hægt
að nota þau nema á sárafáum stöðum
er ekki hægt aö troða þeim ofan í
kokið á manni án þess að maður æh.
í þessu máh er ekki nóg að kúgast,
kæru landsmenn.
Fótboltabullur í forqanqsröð
Guðmundur skrifar:
Nú fer að hða að því sem ég hef
kviðið í langan tíma; ekki verður
hægt að opna sjónvarpiö vegna fót-
bolta, eina ferðina enn.
Sem sagt, Ríkissjónvarpið ætlar að
fara að bruðla með almannafé í eitt-
hvað sem aðeins hluti landsmanna
fær notið. Það er alveg meö ólíkind-
um hve mikih fjárausturinn er í
suma neytendur sjónvarpsins á meö-
an öðrum er htt eða ekki sinnt. Fót-
boltabuhurnar eru greinilega í for-
gangsröð. Er ekki tími til kominn að
jafna örhtið þetta hlutfall og reyna
að koma til móts við okkur sem ekki
höfum áhuga á íþróttum. Hvernig
væri t.d. aö sýna gamla íslenska
skemmtiþætti, spumingaþættina
sem öh þjóðin sat dolfalhn yfir, nú
eða íslensku leikritin sem tekin vora
upp og sýnd á sínum tíma?
Mér leikur forvitni á aö vita hversu
stór hluti þjóðarinnar það er sem
nennir að sitja fyrir framan sjón-
varpið og horfa á kappleik þar sem
kannski ekkert mark er skoraö. Ég
er ekki svo viss um að það séu svo
margir. Að minu mati taka íþróttir
aht of mikið pláss í sjónvarpinu því
annað situi' á hakanum á meðan. Við
borgum líka afnotagjöldin, hvort sem
okkur líkar betur eða verr, og viö
þurfum líka að fá eitthvað fyrir okk-
ar snúð.
Þjóðbúningur karla góður
Valgerður skrifar:
Loksins era karlmenn komnir með
þjóðbúning til aö skrýðast við hhð
okkar kvennanna. Mikið hefur verið
rætt og ritað um hvort fara ætti þessa
leið, að láta hanna og sauma þjóð-
húning á karlana okkar, og hefur það
verið dregið aht of lengi að mínu
mati. Nú er máUð sem sagt í höfn og
mér finnst árangurinn góður. Bún-
ingurinn hefur þjóðlegan blæ en er
hvorki púkalegur né óþægilegur í aö
vera.
Fólki er frjálst að segja skoðanir
sínar á þessu máh sem öðrum en
mér fmnst einkennhegt þegar talað
er um að búningurinn, sem varð fyr-
ir valinu, sé ekki nógu þjóðlegur.
Hvað vhja menn? Það er alveg Ijóst
að það þjóðlegasta af öllu er gamla
ulhn, í sauðahtunum að sjálfsögðu,
en henni myndi enginn vhja klæðast
í dag.
Nýi búningurinn er ákaflega spari-
legur og ég hefði a.m.k. ekki látið sjá
mig með mínu karh, uppbúin og fin,
en hann í uUarbrókum með snæris-
spotta um mittið, rétt eins og Jón
Hreggviðsson væri á ferð.
Mitt álit er að vel hafi tekist th og
ég vona að ungir menn í dag sjái
sóma sinn í að klæðast honum.
Hiingid í síma
63 27 00
millikl. 14 og 16
-eða skriíið
Nafn osslmanr. verður aófylgja bréfum
Bréfritari er ánægður með nýjan þjóðbúning karla og vonast tii að ungir
menn klæðist honum.
Guðfuma skrifar:
Mháð varð ég glöð þegar fréttist
af því að lýðveldishátíðin yrði
haldin á Þingvöllum. Það er eins
og maður sé að byrja að upplifa
þennan mikla atburð fyrir 50
árum upp á nýtt Vonandi lætur
unga fólkið sig ekki vanta á hátíð-
ina því hana mun það muna um
ókomna tíð. Ekki er að efa að
margt gerir það sér ekki grein
fyrir því hvað það er að hafa öðl-
ast lýðveldi en með því að upplifa
atburðinn nú munu spumingar
vakna og kalla á svör. Við sem
eldri eram ættum að sjá sóma
okkar í því að sjá fil þess að eng-
inn telji fullveldi og lýðveldi sjálf-
sagðan hlut Th hamingju, ísiend-
ingar.
Gettogódýri
Siggeir hringdi:
Mig langar aö gefnu thefni að
koma á framfæri þökkum th pít-
sugerðarmanns viö Hlemm, De-
vito’s pizzur. Þar fær maður, að
því er ég best veit, ódýrastu flat-
bökur bæjarins og það sem meira
er, þær eru mjög góðar. Ég hefði
líklega kvartað ef ég hefði ekki
fengið þar góða þjónustu. Ég kem
þar oft viö og kaupi mér í svang-
inn og undantekningarlaust fæ
ég góðan mat og góöa þjónustu.
Það góða ber að þakka.
Furðuleg fram>
koma Búnaðar-
bankans
Reyuir hringdi:
DV sagði frá því á dögunum að
tveir menn frá Olíufélaginu hefðu
ranglega verið grunaðir um stuld
á peningatösku sem átti aö hafa
horfið úr peningahólfi Búnaöar-
bankans. Mér th mikillar undr-
unar segir bankastjóri bankans
að þeir skuldi mönnunum enga
afsökunarbeiöni, hvað þá skaða-
bætur. Hann segir bankann aldr-
ei hafa sakað mennina um neitt.
Þetta finnst mér vægast sagt
furðuleg framkoma því heföi
taskan ekki lent í stokk 1 nætur-
hólfi bankans, eitthvað sem að
sögn átti ekkiað geta gerst, heföu
peningamir aldrei horfið.
Metnaðarleysá
Stöðvar2
Guðni hringdi:
MLkiIl munur var á fréttaflutn-
ingi sjónvarpsstöövanna tveggja
af Alþýöuflokksþinginu um síð-
ustu helgL Stöð 2 sýndi af sér
mikiö metnaðar- og kæruleysi.
Fréttamaöur kom móður og más-
andi og klipptir voru saman ör-
stuttir bútar úr ræöum Jóns
Baldvins og Jóhönnu og ekki
höföu menn þar á bæ metnað th
þess aö bíöa eftir varaformanns-
kjörinu. Á Ríkissjónvarpinu var
Helgi Már Artúrsson hins vegar
öryggið uppmálað. Khppt var á
hann á réttum stöðum og allt
gekk sem smurt fyrir sig. Þama
sýndi Ríkissjónvarpið enn einu
sinni hversu yfirburðirnir era
miklir á sviði fréttaflutnings.
Múlamir
Sigríður hringdi:
Mig langar aö koma á framfæri
þeirri ábendingu th verslunareig-
enda við Síðumúla og Ármúla að
þar er ákaflega erfitt að vera á
ferð gangandi, ekki síst ef maður
er með barnavagn. Maður þarf
að ganga á bílastæðum og ef þar
eru bhar fyrir þá á götunni. Allir
vita hve mikh umferö er um þess-
ar götur og maður setur sig og
sína í stórhættu. Ég mun hugsa
mig vel um áöur en ég hygg á
rð í þessar götur i