Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1994, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994
35
,Stúlkan var alin upp á sannkristnu heimili undir ströngu eftirliti foreldra sinna.
Ung stúlka með
bráðageðveiki
Heimur geöveikinnar hefur um
aldir freistað landkönnuða manns-
hugarins. Menn hafa heillast af
óheftu frelsi þess geðveika tíl að
gera, hugsa og segja það sem hon-
um býr í brjósti hverju sinni. Sum-
ir spekingar hafa gengið svo langt
að telja alla geðveiki eðlileg við-
brögð við ringulreið og skipulags-
leysi daglegs lífs. Margir hafa notað
ólyfjan eins og LSD eða berserkja-
sveppi sem farmiða inn í heim geð-
veikinnar. Nokkrir hafa ekki átt
þaðan afturkvæmt en aðrir hafa
sloppið lítt skaddaðir úr ferðalag-
inu. Stundum verður álag og
streita tíl þess að ýta fólki inn í
veröld óraunveruleikans þar sem
lögmál geðveikinnar gilda ein.
Þekkt er sagan um Ófelíu, unnustu
Hamlets, sem missti vitíð þegar
hann yfirgaf hana og sveif um haU-
arsalina í stjarfri vitfirringu. Sama
máh gegnir um Gretchen í Faust.
Hún bilaðist á geði þegar nýfætt
barn hennar lést. Nökkvi læknir
telur að í þessum tilvikum sé geð-
veikin eins konar vörn sjálfsins
gagnvart áreiti, sorg og áföllum líð-
andi stundar. Mannshugurinn
kiknar um stundarsakir undan
ábyrgð og álagi daglegs lífs og leitar
skjóls inni í draumaheimi geðveik-
innar um stundarsakir.
Ruglaður
Þýskalandsfari
Nökkvi hafði nýlega til meðferðar
19 ára stúlku sem birtist skyndilega
á stofunni hjá honum, berfætt með
bláa skó undir hendinni. Hún
brosti breitt og blítt en svaraði
engu þegar hann spurði hvað henni
væri á höndum. „Hvernig líður
þér? sagði Nökkvi. “Eins og hvítu
skýi á bláum himni,“ svaraði stúlk-
an. „Rautt verður svart. Hvitir
máfar höfðu Helenu Eyjólfsdóttur
á brott með sér,“ bætti hún við og
fór að gráta. Nökkvi reyndi að ræða
við hana en náði engu vitrænu
sambandi. Hún hélt áfram að brosa
og tala líkingamál úr heimi lita og
gamalla dægurlaga. Ekki sagði hún
tii nafns en afhenti gamalt nafn-
skírteini svo að Nökkva tókst að
ná sambandi við foreldra hennar.
Móðirin kom að vörmu spori en
faðirinn ekki. Hún sagði að hann
ætti ekki heimangengt sakir erfiðr-
ar flogaveiki. Stúlkan var lögð inn
á deild og kom þá í ljós að hún var
nýkomin frá Þýskalandi. Nökkvi
og fleiri sátu lengi meö henni og
reyndu að ráða í dulúðug skilaboð
hennar. Móðirin sagði hana hafa
Á lækmvaktiniú
Óttar
Guðmundsson
læknir
átt þýskan kærasta sem hefði yfir-
gefið hana. Smám saman kom þó í
ljós að það var ekki eina skýringin.
Hún talaði mikið um hti og „blóðið
sem allt í einu varð svarf‘. Mönn-
um skildist þá að hún hefði senni-
lega farið í fóstureyðingu.
Ættog uppruni
og söguþráður
Stúlkan var ahn upp á sann-
kristnu heimili undir ströngu eftir-
htí foreldra sinna. Móðirin sagði
henni alltaf að öh víxlspor út af
mjóa veginum gætu leitt til þess að
faðir hennar fengi krampaflog og
jafnvel dæi. Hún var reynslulítil í
kynferðismálum, gekk fremur iha
í skóla og átti sér fáa vini. í Þýsk-
landi varð hún strax ákaflega ást-
fangin af glæsilegum bílasala sem
hún hitti á fómum vegi. Hún fór
að sofa hjá honum og varð fljótiega
ófrísk enda hirti hún ekki um getn-
aðarvarnir en treysti á guðlega for-
sjá. Hún fagnaði þunguninni en það
gerði bílasalinn ekki. Hann sagðist
ekki hafa neinn áhuga á þessu
barni, bað hana vel að lifa og hvarf
á braut á 300 hestafla glæsibifreið.
Stúlkan vildi eignast bamið en gat
ekki fengið sig th að segja pabba
sínum frá þessu öllu. Hún var þess
fullviss að hann yrði fyrir miklu
áfahi enda var hún einkadóttir
hans. Hann gæti jafnvel fengið
krampaflog og hjartaslag og dáið
af skömm og hneysklan. Stúlku-
kindin var komin í mikinn vanda
milh þeirra stallsystra Skyllu og
Karibdísar eins og Ódysseifur forð-
um. Hún var þess fullviss að faöir-
inn mundi deyja ef hún ákvæði að
eignast barnið en á sama tíma
hraus henni hugur við fóstureyð-
ingu. Hún ákvað að losa sig við
fóstrið og fór að hoppa niður af
húsþökum, baða sig í sjóðandi
heitu vatni og éta alls konar iha
lyktandi, bragðvond náttúrulyf
sem hún keypti af dularfuhum sí-
gaunakonum. En allt kom fyrir
ekki og hún hélt heim til íslands. Á
leiöinni fékk hún skyndhega mikla
verki í kviðinn og blæðingu vegna
fósturláts. Hún taldi að sér hefði
tekist að deyða fóstrið. Fljótlega
eftir þetta ruglaðist hún og tók ber-
fætta stefnu á lækningastofu
Nökkva læknis. Meðferð Nökkva
fannst greinilegt aö stúlkan hefði
ruglast undan öllu þessu líkamlega
og andlega álagi. Hún fékk lyf th
að minnka spennu og óróleika og
koma á jafnvægi í ringulreið hug-
ans. Nökkvi sat lengi og talaði við
hana um líflð og thveruna, sam-
bandið við Þjóðverjann, fóstrið og
fósturlátið. Hann benti henni á það
að hún gæti ekki borið ábyrgð á
lífi og hehsu föður síns um alla
framtíö. Hún yrði að sinna eigin
lífi og lífshamingju og hætta að lifa
undir heljarfargi trúarsetninga og
ótta við refsingu og fordæmingu
almættisins. Nökkvi viðraði þá
skoðun sína að Guð væri í raun
miskunnsamur og fyrirgæfi börn-
um sínum misgjörðir þeirra. „Guð
er alls staðar,“ sagði Nökkvi.
„Hann er í öllum hlutum sem byija
á gé (g) eins og Megas kemst að
orði, gaddavímum, góðmennsk-
unni, gasbindinu og garðslöngunni
Kannski býr hann líka í girnd-
inni.“ Stúlkan braggaðist og komst
til ágætrar hehsu. Hún flutti að
heiman, leigði sér kvistherbergi í
vesturbænum og skóp sér þá til-
veru sem hún sætti sig ágætlega
við. Ööm hverju mætti hún th við-
tala við Nökkva til að ræða um
syndir og freistingar umheimsins
og aha þá fjölmörgu hluti sem byij-
uðu á bókstafnum gé (g).
eil Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra við leikskólann Staðarborg við Mos-
gerði er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 15. júlí
nk. Leikskólakennnaramenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefur Margrét Vallý Jóhannsdóttir
deildarstjóri í síma 27277.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
Auglýsing um starfslaun
listamanna til 3|a ára
Þeir einir koma til greina við veitingu starfslauna sem
búsettir eru í Reykjavík og að öðru jöfnu skulu þeir
ganga fyrir sem ekki geta stundað listgrein sína sem
fullt starf. Listamennirnir skuldbinda sig til að gegna
ekki fastlaunuðu starfi meðan þeir njóta starfslauna.
Starfslaunin verða kunngerð á afmælisdegi Reykja-
víkur, hinn 18. ágúst, og hefst greiðsla þeirra 1. sept-
ember, eftir tilnefningu.
Umsóknum um starfslaunin skal skila menningar-
málanefnd Reykjavíkurborgar, að Kjarvalsstöðum,
fyrir 1. ágúst nk.
Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar
iis Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað uppeldis- n
menntað starfsfólk í neðangreinda leikskóla:
( fullt starf:
Bakkaborg v/Blöndubakka, s. 71240
Brákarborg v/Brákarsund, s. 34748
Efrihlíð v/Stigahlíð, s. 18560
Gullborg v/Rekagranda, s. 622455
í hálft starf:
Lækjarborg v/Leirulæk, s. 686351
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Baldursgata 28, hluti, þingl. eig. Björg
Stefánsdóttir, gerðarbeiðandi þb. Bfla-
borgar hf., 6. júlí 1994 kl. 14.30.
Bragagata 22, neðri hæð og neðri
kjallari m.m., þingl. eig. Smári Guð-
mundsson, gerðarbeiðendur Bygging-
arsjóður ríkisins, Bókaútgáfan Þjóð-
saga og Ríkisútvarpið, 7. júlí 1994 kl.
15.00,__________
Efstasund 6, kjallari, þingl. eig. Hörð-
ur Einarsson, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsj. ííkisins, húsbréfadeild, Ríkis-
útvarpið og íslandsbanki hf., 6. júlí
1994 kl. 16.00.____________________
Engihlið 16, efri hæð og ris, þingl.
eig. Þorsteinn Guðmundsson, gerðar-
beiðendur Lífeyrissjóðurinn Skjöldur
og íslandsbanki hf., 6. júli 1994 kl.
16.30._____________________________
Faxafen 9, ca 590 fin. vörugeymslu-
rými í suðvesturh. kjallara, þingl. eig.
Veitingastofan Jarliim sf., gerðarbeið-
endur Gjaldheimtan í Reykjavflc og
H/F Eimskipafélag íslands, 7. júlí 1994
kl. 13.30._________________________
Garðsendi_ 9, kjallari, þingl. eig. Snjá-
fríður M. Ámadóttir, gerðarbeiðendur
Rfltisútvarpið og Óskar K. Ásgeirs-
son, 7. júlí 1994 kl. 14.00.
Gnoðarvogur 36, 1. hæð t.v„ þingl.
eig. Anna Óskarsdóttir, gerðarbeið-
endur Amarson og Hjörvar sf., Bygg-
ingarsjóður ríkisins, Gjaldheimtan í
Reykjavík, Sparisjóður Rvíkur og
nágrennis, Þórarinn A. Magnússon
og íslandsbanki hf., 6. júlí 1994 kl
15.30.
Grýtubakki 24, 3. hæð t.v., þingl. eig.
Bima Tyrfingsdóttir, gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður verkamanna, Gjald-
heimtan í Reykjavík, Húsfélagið
Grýtubakka 18-24 og Skarð hf., 6.
júli 1994 kl. 15.00.________
Háagerði 53, kjallari ásamt tilh. sam-
eign og leigulóðarr., þingl. eig. RagiÆ
Sveinþjörnsdóttir, geiðarbeiðendur
Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Líf-
eyrissjóður starfemanna ríkisins, 7.
júlí 1994 kl. 14.30._________________
Hringbraut 119, hluti, þingl. eig. Verð-
bréfamarkaður Fjárfestingarf. Islands,
gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í
Reykjavík, 7. júlí 1994 kl. 16.30.
Stangarholt 10, hluti, þingl. eig.
Magnús Magnússon, gerðarbeiðend-
ur Ammundur Backman, Húsasmiðj-
an hf., Söluumboð L.Í.R. hf. og toll-
stjórinn í Reykjavík, 6. júh' 1994 kl.
11.00._______________________________*
Þorfinnsgata 12, hluti, þingl. eig. Val-
gerður Kr. Guðmundsdóttir, gerðar-
beiðendiir Byggingarsj. rfltisins, hús-
bréfadeild, Byggingarsjóður ríkisins,
Gjaldheimtan í Reykjavík og Spari-
sjóður Kópavogs, 6. júlí 1994 kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVffi.