Alþýðublaðið - 03.05.1967, Síða 1

Alþýðublaðið - 03.05.1967, Síða 1
Tíu skipverjar settir í Síðumúla Kvík, SJÓ. Laust lyrir kl. 6 í gærdaff kom upp mikill eldur í brezka togaran- um Brandi frá Grimsby, þar sem hann- la við Faxagarö. Átti eldurinn upptök sía í lýsisbræðslu kiefa og myndaðist mikill reyk- ur. Um borö í togaranum voru 11 af áhöfn skipsins, auk tveggja lögregíuþjona, er voru á vakt. Voru skipverjar allir ölvaöir mjög að undanteknum vélstjóra, og varð að flytja jiá í Síðumúlann. KI. 17.52 fékk slökkviliðið til- kynningu um, að mikill eldur væri laus í togaranum Brandi. Voru 3 plt\kki(iliösbílar .þajgar sendi'r á vettvang ásanit sjúkrabíl. Allt slökkviliðið var að störfum við að ráða niðurlögum eldsins. Hafði myndazt nokkur eldur í afturhluta skipsins og mjög mikill reykur. Lá Brandur utan á tveim ur togurum, en utan á Brandi lá vitabáturinn Árvakur. Vegna reyks var mjög eríitt að komast að eldinum. Var loks hægt að sjá, livar eldurinn var, er járnklæðn- ingin tók að þrútna. Reyndist eld- urinn ciga upptök sín í lýsis- bræðsluklefa og var farið þar nið- ur með grímur og sprautað vatni. Brann allt sem brunnið gat í þess ari geymslu, en hiín var full af drasli. Einnig brunnu tvær káet- ur, er voru hinum megin við gang- inn niðri. Um tíma var álitið, að eldurinn kynni einnig að læsa sig í olíu, er geymd var í klefa við Iiliðina og óttazt að ketilspreng- ing yrði, en sá ótti reyndist ástæðu laus, því járnþil var á milli. Tókst einnig að loka fyrir vélarrúmið, þannig að eldurinn barst ekki fram með skipinu. Skemmdir urðu þó talsverðar. 1. vélstjóri á togaranum aðstoð- aði slökkviliðið og gekk fram með oddi og egg við að ráða niður- lögum eldsins. Lagði vélstjóri svo hart að sér, að hann mun hafa fengið snert af reykeitrun og var hann fluttur á slysavarðstofuna. Varð að gefa honum súrefni á leiðinni. 1. stýrimaður kom að tog- togaranum meðan eldur var laus og aðstoðaði hann slöltkviliðið einnig. Eins og fyrr greinir voru skips- menn ölvaðir mjög og tók lög- reglan þá alla höndum, alls 10 manns, og voru þeir fluttir í fang geymsluna að Síðumúla. Voru skipsmenn ýmist teknir á bryggj Framhald á 13. síðu. BRETAR GANGA FYRIR Þessa mynd af Newton skipstjóra á Brandi tók brezkur blaðam. í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg á sunnudag. ís- lenzkir fréttamenn höfðu margir farið þess á leit við rétt yfir- völd að fá að ræða við skipstjórann í varðhaVlinu og taka myndir af honum í því sambandi, en því var ætíð synjað. Hins vegar virðast þar allar dyr hafa upplokizt, þegar Bretinn kom á vettvang og er það ekki I fyrsta skipti, sem erlendir frétta menn fá hér á landi aðra og betri fyrirgreiðslu en stéttar- bræður þeirra innlendir. retar um fnahassbanda LONDON, 2. maí (NTB-Reuter). Harold Wilson forsætisráðherra skýrffi frá því I Neðri málstofunni í dag, að brezka stjórnin hefffi á- kveðið að sækja á ný um aðild að Efnahagsbandalaginu og keppa markvisst að því að fá aöild að bandalaginu. Þetta er söguleg á- kvörðun, sem getur reynzt afdrifa rík fyrir framtíð Bretlands, Ev- rópu og heimsins sagði forsætis- ráðherrann, sem var fagnað með áköfu lófataki. Umsókn brezku stjórnarinnar verður lögð fram fljótlega eftir að þriggja daga umræðum Neðri málstofunnar um málið lýkur í næstu viku, að því er Wilson sagði í ræðu sinni. Hann tók fram, að hann vildi ekki ræða í einstökum atriðum þau vandamál, sem umsóknin hefði í för með sér, og vildi engu spá um árang- ur. Jafnaðarmaðurinn Michael Foot sem er andvígur brezkri aðild að EBE, reyndi árangurslaust að fá Wilson til að láta uppi hvort hann teldi að Frakkar væru samvinnu þýðari nú en fyrir fjórum árum, þegar þeir beittu neitunarvaldi gegn inngöngu Breta, en forsætis ráðherrann sagði að Bretar ætluðu ekki að fara skríðandi á hnjánum inn í Efnahagsbandalagið. Að_ spurður sagði Wilson að ekki hefði verið rætt um varnar- og kjarn- orkumál á fundum hans og leið- toga Efnahagsbandalagsins fyrr á þessu ári og sér vitanlega lægju ekki fyrir tillögur um samræm- ingu þessara mála milli EBÉ-land anna og Breta nema innan NATO. □ PÓLITÍSK VANDAMÁL. í Brússel sat ráðherranefnd EBE á fundi þegar fréttin barst um yfirlýsingu Wilsons, en engar Framhald á 13. síðu. HRAPAÐI í KLETTUM Það slys varð að morgni 1. maí, að 16 ára piltur frá Stöðvarfirði Hannes Pálsson, hrapaði í klett- mn og beið bana. Hannes var á lcið heimleiðis frá dansleik á Fáskrúðsfirði, og' mun hafa farið fram af um 30 metra háu hcngi- flugi í fjalllendinu milli fjarð- anna. Mikill mannfjöldi tók þátt í ieit að Hannesi í fyrradag og 2 flugvélar, en lík hans fannst um kl. 19 i fyrrakvöld. Læknir, sem kom á vettvang, taldi að hann hefði látizt samstundis við fallið. Miðvikudagur 3. maí 1967 - 48. árg. 97. tbl. - VERÐ 7 KR.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.