Alþýðublaðið - 03.05.1967, Blaðsíða 4
Ritstjóri: Bencdikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasfml:
14906. — Aðsetur: Alþýöuhúsið við Hveríisgötu, Evík. — Prentsmiðja
AlþýðublaSsins. Sími 14905. — Áskriltargjald kr. 105.00. — í lausa*
sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Gegn einræðissfjórn
ÞAÐ VAR ATHYGLISVERT, að hétíðahöldin 1. maí
í vestanverðri Evrópu mótuðust af mótmælum gegn
valdatöku herforingjaklíkunnar og hinu nýja einræði
í Grikklandi. Þessi mótmæli bar jafnvel hærra en
kröfuna um frið í Vietnam. Menn eins og Tage Erland
er, Einar Gerhardsen og Jens Otto Krag tóku allir
sterklega í þennan streng.
Það hefur verið áberandi á síðustu árum hve áhugi
verkalýðshreyfingarinnar á Norðurlöndum, ekki sízt
yngra fólksins, er mikill á utanríkismálum. Er á-
stæða til að fagna því, að fólk í hinum frjálsu vel-
ferðarríkjum beiti áhrifum sínum til að auka velmeg-
un og frelsi í öðrum hlutum heims, þar sem skortur
og ófrelsi ríkja. Þessum öflum eru það sérstök von-
brigði, er valdarán og einræði viðgangast jafnvel í
Evrópu, sem ætti að vera vaxin upp úr slíkum stjórn-
háttum. Mun leit að nokkrum stjórnmálaviðburði,
sem hefur vakið jafn almenn mótmæli á Norðurlönd-
um sem byltingin í Grikklandi.
Alþýða Spánar reis einnig upp á hátíðisdegi verka
lýðsins — í ríkari mæli en hún hefur þorað að gera
um langt árabil. En hnefi ei'nræðisins var jafnskjótt
á lofti. Her og lögregla hröktu mannfjölda á brott í
mörgum borgum og skaut jafnvel til bana. Fasista-
stjórn Frankós, sem hefur sýnt ýms merki frjálsari
stjórnarhátta undanfarin misseri, ætlar sér ekki að
sleppa takinu. Sjálfur hefur Frankó lýst yfir, að
Spánn hafi ekkert við stjórnmálaflokka að gera.
í ríkjum kommúnista var 1. maí með svipuðu móti
og áður, nema hvað minna var um vopnasýningar á
Rauða torginu í Moskvu en venja hefur verið. Þetta
er dagur til dýrðar Stjórnvöldunum, þegar menn fá
að geta sér til um eftir röð tignargesta á grafhýsi
Lenins, hvort breytingar hafi orðið á raunverulegum
valdahlutföllum innan múra Kreml. Um frjálsan bar-
áttudag er þar að sjálfsögðu ekki að ræða.
Skipulagsmálin
ÍSLENZK VERKALÝÐSHREYFING hefur um ára-
bil unnið að víðtækum skipulagsbreytingum til þess
að tryggja, að samtökin séu jafnan í samræmi við tím-
ann og nái sem mestum og beztum árangri. Er fátt
hættulegra en að halda um of í úrelt skipulag, þegar
svo miklar breytingar verða á öllum sviðum þjóðfé-
lagsvns. sem orðið hafa síðustu árin.
í ávarpi Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík 1. maí segir svo um þetta atriði: „Þetta ár vinnur
verkalýðshreyfingin á íslandi að breytingum á skipu-
lagi sínu, og veltur á miklu hvort með því tekst að
gera verkalvðshreyfinguna að öflugra baráttutæki ís-
lenzkrar alþýðu til sóknar og varnar. Þar um ræður
mestu, að takist að gæða samtökin eldmóði þeim og
fómfýs’ b’artsvni og hugsjónatryggð, sem einkenndu
störf brautryðjenda verkalýðshreyfingarinnar og
beztu manna hennar ævinlega.“
4 3. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Starf kaupfélagsstjóra
við Kaupfélag Berufjarðar, Djúpavogi, er laust til
umsóknar og veitist frá 1. júní nk.
Umsóknir ásamt nauðsynlegum upplýsingum send-
ist Gunnari Grímssyni, starfsmannastjóra S.Í.S. eða
Elías Þórarinssyni, stjómarformanni félagsins.
Glæsilget úrval í
VÖNDUÐUM ENSKUM HERRASKÓM
NÝKOMIÐ.
Skóverzlun Péturs Andréssonar,
Laugavegi 17 — Framnesvegi 2.
rmmw
■ 9
VANTAR BLAÐBURÐAR-
FÓLK S
EFTIRTALIN HVERFI:
MIÐBÆ I og II
HVEBFISGÖTU EFRI
HVEBFFSGÖTU NEÐRI
LAUGAVEG NEÐRI
GNOÐARVOG
RAUBARARHOLT
BRÆÐRABORGARSTÍG
LAUGARÁS
FRAMNESVEG
★ ÍBÚÐAVERÐIÐ.
„Það eru sannarlega athyglis-
verðar upplýsingar, sem fram hafa komið í blöð-
unum undanfarið um hinn raunverulega bygging-
arkostnað," segir í bréfi, sem okkur liefur borizt
frá „einum, sem er nýbúinn að byggja.” Hann
segir síðan: „Vafalaust hefur margan grunað, að
ekki væri allt með íelldu með hið gífurlega háa
íbúðaverð hér í Reykjavík og grennd. Hafa sumir
meira að segja gengið svo langt, að fullyrða
að gróði byggingameistaranna af meðal íbúð í
f jölbýlishúsi, næmi að öllum líkindum svipaðri upp-
hæð og lánið frá Húsnæðismálastjóm. Enginn
dómur skal hér lagður á réttmæti þessarar full-
yrðingar, en víst er að margir byggingameistarar
hafa auðgast bærilega á braski sínu og húsnæðis-
ástandinu hér í höfuðborginni. Það er þess vegna
vel, að lireyfing skuli nú vera að komast á þessi
mál og hefði þó sannarlega mátt vera fyrr. Það
hefur nú verið sýnt' svart á hvítu að mikill mun-
ur er á markaðsverði íbúða og raunverulegum bygg
ingakostnaði. Hlýtur þetta óhjákvæmilega að leiða
til þess að á næstunni fari íbúðaverðið ívið lækk-
andi. Ber sérstaklega að fagna þeirri tilraun, sem
framkvæmdanefnd byggingaáætlunar er að gera.
Ég vildi bara, að ég hefði getað fengið jafn ódýra
eldhúsinnréttingu í mitt hús, eins og þeir fá sam*
kvæmt tilboðunum í fjölbýlishúsin, sem þeir eru
að byggja.
★ HRAÐINN EYKST.
Fyrst farið er að ræða þessi mál,
er ekki úr vegi að víkja, að þeirri staðreynd, að
byggingarhraðinn er að aukast, eða með öðrum orð
um byggingartíminn er að styttast. Alla rak f
rogastanz, þegar Loftleiðahótelið reis á sluttum
tíma, en þar fór það saman að skipulagning var
framúrskarandi og allt hugsað fyrirfram, en ekki
látið ráðast dag frá degi og, að líkindum hefur þar
aldrei þurft að stöðva vinnu eða segja mönnum
upp vegna þess að fé var ekki fyrir hendi. Hinn
langi byggingartími hefur átt nokkurn þátt í hin-
um háa byggingarkostnaði hér og- er vel að menn
skuli nú hafa gert sér grein fyrir því. Læt ég nú
útrætt um þessi mál, að sinni, en vona að eitthvað
sé að rofa til í þessum efnum, þar sem allt' of lengi
liefur ríkt svartnætti.” —