Alþýðublaðið - 03.05.1967, Side 9
% TÖKIN
* Stjórn Francos hefur sam-
þykkt lög, sem kveða á um
endurreisn Þjóðarhreyfíngar-
innar svokölluðu, en hún túlk-
ar hugmyndakerfi Franco-
stjórnarinnar. Grundvöllur
stefnu hreyfingarinnar er fal-
angismi, og almennt hafði ver
ið við því búizt, að hreyfing-
in mundi smám saman hverfa
af sjónarsviðinu. Nú er hún
aftur komin til sögunnar í
samræmi við hina nýju stjórn-
arskrá, og hlutverk hennar er
að treysta stjórnina í sessi
og tryggja það að stefna henn-
ar haldi áfram að móta spönsk
stjórnmál, jafnvel eftir að
Franeo fellur frá,
★ ÓFRJÁLSAR KOSNINGAR.
Bæjar- og sveitarstjórnir og
verkalýðsfélögin, sem eru und-
ir stjórn ríkisins, hafa nákvæmt
eftirlit með því hverjir fá sæti
á þinginu, Cortes. Samkvæmt
nýju stjórnarskránni, sem stað-
fest var í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni í desember, skal fimmti
hver þingmaður kosinn beinni
kosningu „með þeim hætti sem
lög kveða á um.” En í lagafrum-
varpi, sem lýsir í einstökum at-
riðum hvernig kjör frambjóð-
enda fer fram, kemur í ljós, að
þessar svokölluðu beinu kosn-
ingar geta tæplega talizt frjáls-
ar nema að takmörkuðu leyti.
Samkvæmt lagafrumvarpinu
skal frambjóðandi fyrst gefa
skriflega yfirlýsingu, þar sem
hann lýsir yfir stuðningi við
meginreglur Þjóðarhreyfingar-
innar. Ef hann nær kosningu,
hefur hann því hvorki lagalega
né siðferðilega frelsi til að víkja
frá meginreglum falangista-
stjórnarinnar og stefnu hennar,
og hann getur ekki gagnrýnt
stjórnina.
Enn fremur er þess krafizt í
lagafrumvarpinu, að frambjóð-
andi skuli vera meðlimur eða fyrr
verandi meðlimur þingsins eða
að öðrum kosti hljóta meðmæli
fimm þingmanna eða meðmæli 7
embættismanna viðkomandi kjör-
dæmis. Ella verði hann að safna
2.000 gildum undirskriftum eða
jafnmörgum undirskriftum og
sem svarar einum af hverjum
hundrað kjósenda í kjördæmi
hans.
Þessar kröfur tákna, að þeir
frambjóðendur, sem eru að hafa
verið í þjónustu stjórnarinnar
eða njóta stuðnings embættis-
manna ríkisins, standa langtum
betur að vígi en þeir frambjóð-
endur, sem safna verða 2.000
undirskriftum án opinbers stuðn-
ings.
Á síðari árum hefur stjórnin
sýnt verkamönnum aukið um-
burðarlyndi. Áður fyrr voru verk
föll ólögleg,' en nú eru þau það
ekki lengur, ef yfirvöldin líta svo
r
á, að þau séu ,,efnahagsleg“ en
ekki „pólitísk” verkföll. Verka-
mönnum var leyft að koma á
fót verkamannanefndum í verk-'
smiðjum og iðnfyrirtækjum víðs
vegar um landið, og voru þess-
ar nefndir með öllu óháðar hin-
um opinbcru verkalýðsfélögum,
sem eru undir eftirliti stjórn-
valda. Nú hefur því verið lýst
yfir, að verkamannanefndirnar,
sem kommúnistum hefur tekizt
að þrengja sér inn í að einhverju
leyti, séu ólöglegar, og vinnu-
veitendur eru neyddir til að
segja upp verkamönnum, sem
stofna til óleyfilegra funda.
★ TAKMARKAÐ
TRÚFRELSI
Rómversk-kaþólska kirkjan á
Spáni, sem er ein af máttar-
stoðum Francos, hefur hert' á
aga í röðum sínum og nokkrum
prestum hefur verið refsað fyrir
agabrot. Sjálf yfirstjórn kirkj-
unnar er stjórninni trú, en nokkr-
ir prestar, sem engin völd hafa,
eru það ekki. Prestar þeir, sem
gagnrýna st'jórnina, eru sendir
úr landi eða fluttir til annarra
landshluta.
Fyrir skömmu beittu biskup-
arnir völdum sínum gegn sam-
tökum leikra, er kallast ,,Kaþ-
ólsk barátta,” og frestuðu lands-
fundi samtakanna um óákveðinn
tíma. Leiðtogar samtakanna
höfðu látið opinberlega uppi
frjálslyndar skoðanir i stjórn-
málum og töldu að samþykktir,
sem gerðar hefðu verið í Páfa-
garði, yrðu einnig að ná til
Spánar. Páfinn hefur lýst yfir
stuðningi við hugmyndirnar um
að starfsemi margra stjórnmála-
flokka verði leyfð og leyft verði
að halda opinbera fundi og hef-
ur kallað stofnun frjálsra verka-
Frh. á bls. 15.
jafnvel ekki ráð á því að eignast
biblíuna.
Vafalaust hefur Jóni Þor-
kelssyni, þeim ágæta fræði-
manni, runnið til rifja hið bága
ástand í menningarmálum al-
mennings og lestrarkunnátta
barna. Var það svo í sumum
sveitum og landshlutum, að að-
eins einn af hverjum þremur
mátt'i kallast læs á bók og flest-
ir illa skrifandi, enda var land-
i? þá barnaskólalaust. • Sum;s'
staðar voru munaðarlaus börn
jafnvel á vergangi. — Jón Þor-
kelsson var vel efnum búinn og
skömmu fyrir andlát sitt ákvað
hann að gefa allar eigur sínar
fátækum og munaðarlausum í
Kjalarnesþingi til uppeldis og
menningar og fékk hann stað-
festingu konungs á þeirri erfða-
skrá. Eignir þær, er runnu í
þennan sjóð voru tíu jarðir og
jarðarhlutar á íslandi og rífleg
fjárhæð á vöxtum í banka í Kaup
mannahöfn. — Bókasafn Jóns
var einnig með í gjöfinni og
átti það fyrst um sinn að geym-
ast í kirkjunni í Njarðvík, en þar
var æskuheimili gefandans. —
Koma átti á fót skóla eða stofna
fyrir ágóða af eignum sjóðsins,
og áttu bækurnar þá að flytjast
þangað. í stofnun þessari „áttu
börnin að njóta fæðis og klæða
Framhald á 15. síðu.
SOKKARNIR
sem sameina all'a góða kosti með langri end-
ingu, hóflegu verði og nýjustu tízkulitum.
Kostakfdr
Enn á ný hafa hinar miklu sokkaverksmiðj-
ur í Tekkóslóvakíu lækkað verðið á fram-
leiðslu sinni.
Hinir viðurkenndu, fallegu og óslítandi 30
DENIER ÍSABELLA-REGINA sokkar kosta
nú í smásölu um kr. 34,00 (í stað kr. 42,00
áður) og ÍSABELLA 20 den um kr. 27,00
(í stað kr. 35,00 áður). Vörugæðin ætíð hin
sömu. Fallegir sokkar, sem fara vel og end-
ast lengi. Notið þessi kjarakaup.
Heildsala.
Þérður Svetnsson & Co. 'hf.
ÖKUMENN - ÖKUMENN
Gatnamálastjórinn beinir þcim tilmælum til ökumanna, að
aka ekki Iengur á negldum hjólbörðum og' stuöla með því
að minni gatnaskemmdum í borginni. j
GATNAMÁLASTJÓRINN í REVKJAVÍK. |
3. maí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9