Alþýðublaðið - 03.05.1967, Síða 10
Guðmundur Hermannsson
varpaði kúlunni 17,20mJ
Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ setur íslandsmótið i badminton.
Jón Árnason, TBR var<5
þrefaldur Isl. meistari
Velheppnað og fjölmennt íslands-
mót í badminton um helgina
Jón Árnason, TBR verður þrefaldur íslandsmeistari í badminton,
en mótið fór fram í KR.húsinu um hclgina. Gísli Halldórsson, for-
seti ÍSÍ setti þetta 19. íslandsmót á laugardagr, en þátttaka varð
óvenjugóð víðsvegar að af landinu.
MEISTARAFLOKKUR
Jón Árnason, TBR sigraði Ósk-
ar Guðmundsson, KR nokkuð auð
veldlega í einliðaleik karla með
15:8 og 15:10. Hefur barátta þess-
ara beztu badmintonleikara okk-
ar oft verið meira spennandi.
Jón Arnason, TBR(
í tvíliðaleik var keppnin jafn-
ari og raunar mjög skemmtileg
milii Jóns Árnasonar og Viðars
Guðjónssonar, TBR og Óskars
Guðmundssonar og Reynis Þor-
steinssonar, KR, en lauk með
sigri þeirra fyrrnefndu 15:10 —
14:17 og 15:13.
Jón Árnason krækti í þriðja
meistarapeninginn, er hann sigr-
aði í tvenndarkeppni ásamt Lov-
ísu Sigurðardóttur, TBR. Þau
sigruðu hjónin Lárus Guðmunds-
son og Jónínu Niljóhníusdóttur,
TBR með 15:4 og 15:5.
í tvíliðaleik kvenna urðu Hulda
Guðmundsdóttir og Lovísa Sig-
urðardóttir, TBR meistarar.
I. FLOKKUR
Friðieifur Stefánsson, KR varð
þrefaldur sigurvegari í 1. flokki.
Hann sigraði Björn Finnbjörns-
son, TBR í einliðaleik með 15:17
—15:7 og 15:8. Þá sigruðu Frið-
leifur og Gunnar Felixson, KR,
þá Guðmund Jónsson og Hilmar
Steingrímsson, KR í tvíliðaleik
með 15:10 og 15:0. Loks sigruðu
Friðleifur og Sigurbjörg Nilsen,
KR þau Sigríði Agnarsdóttur og
Kolbein Kristinsson, TBR í tvennd
arkeppni með 15:2 og 15:6.
UNGLINGAFLOKKUR
í unglingaflokkunum var
keppni mjög skemmtileg og
fram komu mjög efnilegir bad-
mintonleikarar. í einliðaleik
unglinga sigraði Haraldur Korni-
líusson, TBR í drengjaflokki Jó-
hannes Guðjónsson, Akranesi og
í sveinaflokki Jón Gíslason, TBR.
í tvíliðaleik unglinga sigruðu
Finnbjörn Finnbjörnsson og Har-
aldur Kornilíusson, TBR. í tví-
liðaleik drengja sigruðu Jóhann-
es j'Guðjónsson og Þorgeir Gríms-
son og í tvíliðaleik sveina Jón
Gíslason og Helgi Benediktsson.,
Guðmundur Hermannsson, KR
setti glæsilegt íslandsmet í kúlu-
varpi innanhúss á laugardag,
þegar hann varpaði 17,20 m. á
innanfélagsmóti ÍR og KR. Gamla
metið, sem Guðmundur átti sjálf-
ur var 16,96 m. Guðmundur hef-
ur nú þrívegis bætt metið á ein-
um mánuði, 31. marz varpaði
hann 16,87 m. og nokkru síðar
16,96 m.
Tvær af tilraunum Guðmundar
voru yfir 17 metra, 17,02 m. og
svo metkastið, 17,20 m. Auk þess
átti Guðmundur ógild köst yfir
17 metra.
Annar í keppninni varð Erlend
ur Valdimarsson, ÍR með 14,53
m., sem er nýtt unglingamet.
Gamla metið 14,46 m. átti Arnar
Guðmundsson, KR, en hann varð
nú þriðji með 14,49 m.
Valbjörn Þorláksson, KR sigr-
aði í stangarstökki með 4,21 m.,
en fjórir menn stukku 3,17 m.,
þeir Björgvin og Karl Hólm, og
'Guðjón Magnússon og Erlendur
Valdimarsson, allir úr ÍR.
í hástökki án atrennu sigraði
Jón Þ. Ólafsson, ÍR með 1,70 m.,
annar varð Valbjörn Þorláksson
með 1,57 m. þriðji Björgvin
Hólm, ÍR 1,55 m. og fjórði Karl
Hólm, 1,50 m.
Loks var keppt í hástökki með
atrennu og þar sigraði Jón Þ.
Ólafsson, stökk 2 metra rétta.
Guðm. Hermannsson, KR.
Ármann 1 Lárusson hlaut
Grettisbeltið í 15. sinn
Ármann J. Lárusson, UBK sigr-
aði í 57. Íslandsglímunni, sem
fram fór í íþróttahúsinu að Há-
logalandi um helgina. Þetta er í
15. sinn, sem Ármann vinnur
Grettisbeltið, en enginn hefur
unnið það svo oft.
Annar í keppninni var Sveinn
Guðmundsson, HSH, en hann
vakti verðskuldaða athygli. Nán-
ar verður skýrt frá glímunni í
blaðinu síðar.
Guðjón Einarsson varaforsetl fSÍ afhendir verðlaun íslandsmótsins í badminton.
10 3- maf
1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
I