Alþýðublaðið - 03.05.1967, Síða 11
Jafniefli ÍA og UBK, en
IBK sigraði ÍBH 1 gegn 0
OSKAR VARÐ 3. A
ÍLYFTINGUM UM HELGINAí
Óskar Sigurpálsson varð
þriðij í léttþungavigt á Lyft'-
ingamóti Norðurlanda, sem
fram fór í Stavanger í Noregi
um helgina. Óskar lyfti sam-
tals 400 kg. (130 — 115 — 155).
Sigurvegari í léttþungavigt
varð Finninn Karlo Kanganni-
emi mpð 460 kg. og annar Bor-
mann, Svíþjóð með 412,5 kg.
Þessi árangur Óskars er mjög
góður og bendir til þess, að ís-
lendingar geti náð langt í þess-
ari íþrótt, því að hér er um,
fyrstu keppni íslenzkra lyft-
ingamanna að ræða á erlend-
um vettvangi.
Auk Óskars tók Guðmundur
Sigurðsson þátt í millivigt og
varð fimmti með 362,5 kg. 115
— 110—137,5), sem er mjög
gott. ,
hvert sem þér farið
# ferðatrygging
ALMENNAR
TRYGGINGAR f
PÓSTHÚSSTRÆTI 9
SlMI 17700
Akranesi, — Hdan.
Síðari leikur Akurnesinga og
Kópavogs í Litlu bikarkeppninni
fór fram á Akranesi á sunnudag
í norffan roki og kulda. Þrátt fyr-
ir mikla yfirburði Skagamanna í
leiknum tókst Kópavogi að jafna
rétt fyrir leikslok og lauk því
leiknum eins og þeim fyrri, með
jafntefli 2 mörk gegn 2.
Skagamenn léku undan vindin
um fyrri hálfleik og héldu uppi
látlausri sókn og höfðu ekki á-
rangur sem erfiði. Það var ekki
fyrr en undir lok hálfleiksins, að
þeim tókst að skora og var þar
að verki Guðjón Guðmundsson,
sem fékk góða sendingu frá Birni
Lárussyni. Snemma í síðari hálf-
leik bætti Guðjón öðru marki við.
Héldu nú flestir, að sigurinn yi-ði
þeim auðveldur, þar sem þeir
höfðu í öllu við Kópavogsmönnum
þótt gegn vindi væri að sækja,
enda voru sóknarlotur þeirra í
síðari hálfleik mun hættulegri, en
í þeim fyrri. En Kópavogsmönn-
um tókst að svara fyrir sig með
marki, sem Guðmundur Þórðar-
son skoraði um miðjan hálfleik-
inn og rétt fyrir leikslok tókst
Jóni Xnga Ragnarssyni að jafna.
Bæði mörkin eiga það sameigin-
legt, að þau voru mjög ódýr, eins
og reyndar flest mörkin hafa ver
ið, sem Skagamenn hafa fengið
á sig í vor.
Þröstur. Lárus Skúlason, Björn
og Guðjón áttu allir góðan leik
hjá Skagamönnum, en að þessu
sinni vantaði þá þrjá menn í lið-
ið, þá Jón Alfreðsson, Benedikt
Valtýsson og Matthías Hallgríms
son.
Lið Kópavogs var mjög jafnt,
með Júlíus Júlíusson sem bezta
mann.
Áhorfendur voru fjölmargir, en
leikinn dæmdi Guðjón Finnboga-
son og gerði því hlutverki góð
skil.
ÍBK - ÍBH 1:0
Keflvíkingar voru greinilega
betri aðilinn í leiknum við Hafn-
firðinga á sunnudaginn. Þeim
tókst þó ekki að skora fyrr en 15
mínútur voru til leiksloka. Þá
fékk Jón Jóhannsson sendingu
frá hægri og skoraði eina mark
leiksins. Hafnfirðingar höfðu þá
bjargað a.m.k. tvívegis á línu.
Keflvíkingar eru nú nær örugg
ir um sigur, þurfa aðeins eitt
stig í tveim leikjum.
Staðan er nú þessi
Keílavík 4 4 0 0 8—1 8
Akranes 4 1 2 1 7-7 ' 4
Kópavogur 4 0 2 2 6—9 2
Hafnarfj. 4 1 0 3 7-11 2
Næstu leikir eru á fimmtudag-
inn. Þá leika Keflavík og Kópa-
vogur í Keflavík og e.t.v. Akranes
og Hafnarfjörður, þó ekki endan-
lega ákveðið því að Akranes átti
Enskur þjálfari
til Akurnesinga
Hingað er kominn ensk-
ur knattspyrnuþjálfari, B.
Greenough að nafni, og mun
dveljast á Akranesi um 6
vikna skeið og annast þar
þjálfun allra aldursflokka
í samstarfi við aðalþjálfara
Akraness, Helga Hannesson,
íþróttakennara.
Greenough, sem kominn
er hingað fyrir milligöngu
Björgvins Schram, formanns
KSÍ, er ungur maður, sem
ætlar sér að gera knatt'-
spyrnuþjálfun að aðalstarfi,
en á eftir að ljúka loka-
prófi til þess að fá full rétt-
indi. Hann mun væntanlega
ljúka því prófi á þessu ári.
Þá er Greenough knatt-
spyrnudómari með fullum
réttindum og hefur gert
töluvert að því að dæma
leiki í London og á suður-
Englandi.
að leika við Reykjavíkurúrval
þann dag samkvæmt mótaskrá.
Fjölmenni
Frh. af 2. síðu.
því, sem fyrir þá hafði borið.
Þeim sagðist svo frá, að skip-
stjórinn hefði boðið þeim nið-
ur í káetu sína til tedrykkju,
og hefðu þeir talið það óhætt.
Eftir nokkra stund fór skip-
stjórinn út, og skömmu síðar
heyrðu þeir að togvinda skips-
ins var komin í gang og urðu
þess um leið varir að skipið
var komið á hreyfingu. Ætl-
uðu þeir þá út, en dyrnar voru
læstar. Þeir brutu hurðina og
komust þannig út og fóru upp
í brú. Var skipið þá að fara
út úr höfninni. Þeir skipuðu
skipstjóranum að nema þegar
staðar og snúa við og Þorkell
færði vélsímann um leið á stopp
Þe&n var þá hrundið frá og
sagt, að skipstjórinn réði skip
inu og hótað að þeir yrðu beitt
ir ofbeldi, ef þeir hefðu sig
ekki hæga. Söfnuðust margir
skipverjar saman í brúnni,
vopnaðir bareflum og virtust
til alls vísir. '
Lögregluþjónarnir sögðu að
greinilegt hefði verið að skip-
stjóri og sumir skipverjar
hefðu verið ákveðnir að fara,
hvað sem það kostaði, og væri
greinilegt að strokið hefi ver-
ið undirbúið frá byrjun. Skip-
verjar hefðu þó ekki allir ver-
ið sammála skipstjóra um
þetta, en margir þeirra, eink-
um hásetarnir hefðu staðið
með honum. Strax og út úr
höfninni var komið, voru
menn settir til að mála yfir
nafn og númer skipsins og
falsa nýtt númer á það, og
öll Ijós voru slökkt, þau sem
ekki var hægt að slökkva voru
brotin. Fyrst var tekin stefna
í átt' að Garðskaga, en síðan
breytt í norð-vestlæga stefnu
og farið eins og skipið frek-
ast komst alla nóttina og morg
uninn. Þegar Óðinn kom að
togaranum fóru undirmennirn-
ir að tínast út úr brúnni, en
þar höfðu þeir áður verið, m.a.
til þess að líta eftir lögreglu-
þjónunum, og urðu þar að lok
um ekki aðrir eftir en skip-
stjórinn, 1. stýrimaður og þeír
Þorkell og Flilmar. Þegar Óð-
insmenn skipuðu togaranum
að nema staðar, svaraði skip-
stjórinn því engu, en Þorkell
setti vélsímann á stopp og lét
skipstjórinn það viðgangast og
hreyfði ekki mótmælum. Var
engin mótspyrna sýnd, þegar
Óðinsmenn komu um borð og
tóku við stjörninni, en skip-
stjórinn og 1. stýrimaður flutt
ir yfir í varðskipið.
Á sunnudag var Newton
skipstjóri svo úrskurðaður í
allt að 30 daga gæzluvarðhald
og skýrslur teknar af aðiljum
málsins.
3. maí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ JJ,