Alþýðublaðið - 09.05.1967, Síða 11
40 ÁRA AFMÆLISSUNDMÖT SUND-
DEILDAR ÁRMANNS í KVÖLD
1
Sigursveit ÍK, talið frá vinstri: Haraldur Pálsson, Helgi Axelsson, Þorbergur Eysteinsson, SigurðuP
Einarsson Þórir Lárusson og Guðni Sigfússon.
ÍR-ingar sigruðu
í Steinþórsmótinu
í kvöld, þriðjudag fer fram hið
árlega sundmót Ármanns í Sund-
höll Reykjavíkur og hefst kl. 8,30.
Mótið er helgað 40 ára afmæli
deildarinnar en hún var stofnuð
29. apríl 1927. Keppt verður í 9
sundgreinum auk boðsunda en
greinarnar eru 200 m. bringusund
karla, en þar má búast við mjög
spennandi keppni á milli Leiknis
Jónssonar, Árna Krstjánssonar,
Gests Jónssonar og Guðmundar
Gíslasonar, 100 m. skriðsund
karla þar keppa Guðmundur Gísla
son, Guðmundur Harðarson, og
hinn ungi Akurnesingur Finnur
Garðarsson, 100 m. flugsund karla,
200 m. fjórsund kvenna, 100 m.
skriðsund kvenna, þar keppa Hrafn
hildur Kristjánsdóttir, Ingunn
Guðmundsdóttir’ og Guðmunda
Guðmundsdóttir frá Selfossi en
hún varð óvænt Selfossmeistari í
þessari grein fyrir skömmu, 100
m. bringusund kvenna, þar eru með
al keppenda Ellen Ingvarsdóttir
og Ingibjörg Haraldsdóttir, auk
þess er keppt. í þremur unglinga
greinnm í 50 m. skriðsundi drengja
50 m. baksundi telpna 14 ára og
yngri og 50 m. bringusundi 12 ára
og yngri. í 4x50 m. fjórsundi karla
Guðmundur Gíslason.
Vormót fR fer
fram 18. maí
Vormót ÍR verður haldið á Mela
vellinum 18. þ.m. og verður keppt
í eftirtöldum greinum.
Fyrir karla. ;
Hástökk, kúluvarp, kringlukast,
sleggjukast, langstökk, 1500 m.
hl. 400 m. hl. 100 m. lil. og 4x100
m. boðhlaup.
Fyrir konur:
Hástökk, 100 m. hl. og 4x100 m.
boðhlaup.
Fyrir drengi og sveina:
100 m. hl. og 4x100 m. boðhlaup.
Þátttökutilkynningum sé skilað
á Melavöllinn til Karls Hólm eða
Jóhannesar Sæmundssonar fyrir
14. þ.m.
má búast við skemmtilegri keppni
milli Ármanns, SH og Ægis og að
lokum er 3x100 m. þrísund
kvenna.
Keppt er um 6 bikara, á mótinu.
Keppendur eru mjög margir milli
80 og 90 frá 8 félögum og héraðs
samböndum, og vegna fjölda þátt
takenda urðu að fara fram undan
rásir í 6 greinum.
HEARTS leikur
3 leiki hér
Valur hefur heimild til að bjóða
heim erlendu liði í vor og hafði
verið samið við austur-þýzka lands
liðið að leika hér tvo aukaleiki
á vegum Vals, en þegar slitnaði
upp úr þeim samningum, var úr
vöndu að ráða þar sem tími til
stefnu var stuttur orðinn. En nú
hefur svo vel til tekist, fyrir milli
göngu Éjörgvins S-chram form. K.
S.í. að ákveðið er að hið vel þekka
fyrstu deildar lið HEARTS frá
Edinborg komi hingað hinn 18.
maí og leiki 19. 22. og 24. maí.
Skozk lið eru nú mjög eftirsótt
þar sem mörg þeirra hafa skarað
fram úr í ár í keppni um eftirsótt
ustu bikara sem keppt er um af
beztu liðum Evrópu og eru nú í úr
slitum í a.m.k. tveimur þeirra.
Vonandi verður Laugardalsvöll
urinn þannig að leikirnir við skot
ana geti farið þar fram.
Enskur þjálf-
arí til KR
KSÍ hefur útvegað KR þjálfara
sem mun koma hingað 22. maí n.
k. og dvelja í 6—7 vikur til að
þjálfa ýmsa aldursflokka KR. Þjálf
ari þessi, Mr. R. Lewin að nafni,
hefur í nokkur ár verið aðalþjálf
ari Newcastle United, sem nú leik
ur í I. deild ensku keppninnar.
MYND sú er hér birtist, átti að
fylgja afmælisgrein um Ragnar
Lárusson sem kom i blaðinu sl.
sunnudag en Ragmr varð sex-
tugur í gær, 8. mai.
Steinþórsmótið er haldið árlega
til minningar um Steinþór heit
inn Sigurðsson, sem var fyrsti for
maður Skiðaráðs Reykjavíkur og
jafnframt brautryðjandi í skíða
mótum, sem haldin voru hér sunn
an lands.
Steinþórsmótið fór að þessu
sinni fram í Ólafsskarði í Jós-
efsdal.
Evrópukeppni bikarmeistara í i
körfuknattleik er nýlokið með
sigri ítalska liðsins IGNIS frá
Varese. Ignis sigraði ísraelska
liðið MACCABI frá Tel Aviv í úr
slitaleikjum keppninnar með 77:67
í Varese, og 68:67 í Tel Aviv.
Ignis var í öðru sæti ítölsku
meistarakeppninnar, aðeins á eft
ir Simmentahl, sem lék til úrslita
í Evrópumeistarakeppninni gegn
Real Madrid.
Philapelphia 76ers og San Frans
isco Warriors léku til úrslita um
efsta sætið í amerísku atvinnu
mannakeppninni, sem Bandaríkja
menn kalla World Championship
Til að sigra verður að vinna 4
mki af 7, sem fara fram ýmist
heima eða heiman. Eftir fjóra
iki var staðan jöfn, 2:2, en Phila
delphia vann síðan tvo leiki í
röð, þann síðari með 125:122.
Chamberlain var aðalmaður Phil
adelphia, skoraði að vísu aðeins
Mót þetta er sveitakeppni og eru
sex menn í sveit. Þrjár sveitir
tóku þátt í móti þessu frá KR, ÍR
og Ármanni.
Ásgeir Eyjólfsson Á, lagði braut
ina, sem var 50 lilið og mjög
skemmtileg.
Eftir fyrri umferð var KR með
266,1 sek. en ÍR með 267.6 sek.
og mátti því búazt við harðri
18 stig að meðaltali í leik, en hirti
að jafnaði 29 fráköst og átti 7
körfusendingar '(assist) á leik.
Þetta er í fyrsta sinn sem Chamb
erlain á sæti í liði, sem sigrar í
þessari keppni, þrátt fyrir að hann
hefur sl. 8 ár slegið nær öll hugs
anleg met í amerískum körfuknatt
leik.
Bill Bradley hinn kunni amer
íski körfuknattleiksmaður hefiu-
verið ráðinn til New York NICK
ERBOCKERS til fjögurra ára fyr
ir 500.000 dollara eða tæplega 22
úlljónir ísl. kr.
Tennis og badmintonfélag
Reykjavíkur mun í sumar 'hafa
fasta* æfingatíma í íþróttahúsi
Vals, alla þriðjudaga kl. 6—9 að
kvöldi.
Eiga allir félagsmenn jafnan
rétt á að nota þessa tíma gegn 25
krónu gjaldi hverju sinni.
keppni í seinni umferð.
í .seinni umferð keyrðu ÍR-
ingar af miklu öryggi og tryggðu
sér sigur. 548,1 sek. KR og Ár-
mann sveitirnar voru báðar dæmd
ar úr leik. Bj. Ólsen KR fékk bezb
an brautartíma 38,6 sek.
Mikill snjór er nú í skíðalönd
um í nágrenni Reykjavíkur og
mjög gott verður hefur verið að
undanförnu, enda margir sem not
færa sér það.
í sveit ÍR voru:
Sigurður Einarsson, Guðni Sig-
fússon, Helgi Axelsson, Þorbergur
Eysteinsson, Þórir Lárusson, Iíar-
aldur Pálsson.
Hver hlýtur
HM titilinn?
Eins og kunnugt er hefur
Cassius Clay verið sviptur
heimsmeistaratitlinum í þunga
vigt af heimssambandi hnefa
leikamanna og hnefaleikanefnd
New York-borgar. Ástæðan er
sú, að Clay neitar að gegna
herþjónustu.
Nú þegar eru menn farnir
að velta vöngum yfir því hver
hreppa muni hinn eftirsótta tit
il. Helzt eru taldir koma til
greina, Floyd Patterson, Bona
vena, Argentínu, Mildenberger
V-Þýzkalandi, Thad Spencer U
SA, Fraizer USA, Chuvalo, Kan
ada og Terrell, og Elles USA.
Talið er líklegt, að þessirmenn
myndu þreyta keppni um titil
inn.
Erlendar körfu-
knattleiksfréttir
9. maí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ H