Alþýðublaðið - 11.05.1967, Qupperneq 2
PAPANDREOU
FORMLEGA ÁK
AÞENU, 11. maí (NTB-Reuter)
Gríski stjórnmálamaðurinn
Andreas Papandreou, sonur Ge-
org-s Papandreous fyrruni forsæt-
isráðherra, var í dagr formlega á-
kærður fyrir landráð jafnframt
því sem ákveðið var að varpa hon
um í fangelsi. Hann hefur verið í
stofuvarðhaldi í hóteli skammt frá
Aþenu siðan herinn tók völdinn.
Andreas Papandreon er ákærð-
Igor Oistrach heldur
tónleika í Reykjavík
'UM næstu helgi kemur liingað
til Keykjavíkur á vegum Tónlist-
arfélagsins, rússneski fiðlusnill-
ingurinn Igor Oistrakh og heldur
Iiér tvenna tónleika, mánudaginn
15. maí (annan í hvítasunnu) kl.
3 e.h. og þriðjudaginn 16. maí kl.
7 síðdegis í Austurbæjarbíói.
Á efnisskránni eru þessi verk:
Fiðlusónata nr. 5 í F-dúr, op. 24
Ný Surtseyjar-
mynd eftir
Ósvald Knudsen
Rvík — SJÓ
Blaðamönnum var um daginn
fooðið að skoða nýjustu Surtseyj
arkvikmynd Ósvalds Knudsen,
isem hefur hlotið nafnið „Með
sviga lævi“. Þetta er 16 mm.
írtkvikmynd. Textann við mynd
ina hefur Sigurður Þórarinsson
gert, sem liann jafnframt flytur.
Tónlistin er eftir Magnús Bl. Jó
liannsson.
Tímabil þessarar kvikmyndar
nær frá útmánuðum ‘65 til októ
foer . ‘66. Sýnir hún að nokkru
fiosið í Surtsey, en einnig er
brugiðið upp myndum frá fæðingu
Syrtíings, sem byrjaði að gjósa
vorið ‘65 og Jólnis er byrjaði að
giósa um jólin sama ár og hélt
éfram um sumarið. Bi-ugðið er
upp myndum frá störfum vísinda
manna.
„Með sviga læi“ verður sýnd
fojá Ferðafélaginu nk. miðviku
Uagskvöld kl, 20,30 en ekki eru
ráðgerðar sýningar annars staðar
enn sem komið er. Svningartími
myndarinnar er 17 mín.
(Vorsónatan) eftir Beethoven, són
ata nr. 1 í f-moll op. 80 eftir Pro-
kofiev, Chaconne eftir Bach og
sónata í G-dúr eftir Ravel.
Með Oistrakh kemur hingað
landi hans, píanóleikarinn Vsevo-
lod Petrushansky og leikur með
honum.
Oistrakfo feðgarnir David og I-
gor eru fyrir löngu síðan orðnir
heimsfrægir menn og mun óþarfi
að kynna þá, enda vel þekktir hér
af hljómplötum þar sem þeir ým-
ist spila saman, eða hvor fyrir sig,
einnig þar sem Igor er einleikar-
inn en faðirinn hljómsveitarstjór
inn.
David Oistrakh er talinn eixm
allra fremsti fiðluleikari sem nú
er uppi, en margra álit er að son
urinn sé jafningi hans sem fiðlu-
leikari.
Vsevolod Petrushansky er fædd
ur árið 1927 í Moskvu. Þar stund-
aði hann tónlistarnám hjá færustu
Framhald á 15. siðu.
Alþjóðaþing Tryggingastofnana
hófst í gær í Leningrad og er
þetta 16. þign alþjóðsamtaka trygg
ingastofnanna ISSA og taka þátt
í þinginu fulltrúar frá rúmlega
50 þjóðum.
Þingið er haldið þriðja hvert
ár og síðast var þingið haldið
í Washington árið 1964, í Istan
bul árið 1961 og í London árið
1958. ísland er meðlimur í ISSA
en Tryggingastofnun ríkisins send
ir að þessu sinni ekki fulltrúa á
þingið. Áður hafa þó fulltrúar
frá íslandi sótt þingið.
Á þinginu nú verður haldið há
tíðlegt 40 ára afmæli ISSA en
það var stofnað árið 1927 í Bruss
el í Belgíu.
Þar verður meðal annrs tekið
fyrir til umræðu á þinginu hvort
taka eigi upp fræðslu í almanna
tryggingum í háskólum.
ur fyrir þátttöku í smsæri „As-
pida“, félags vinstrisinnaðra for-
ingja í hemum, sem nýlega voru
dæmdir í 2-18 ára fangelsi fyrir
hlutdeild í samsæri um að steypa
stjórn Grikklands af stóli og taka
upp breytta utanríkisstefnu,
Hreinsun embættismanna.
□ Jafnframt var frá því skýrt op
inberlega í Aþenu í dag, að stjóm
in ’hefði skipað, svokallaða ör-
yggismálanefnd til að rannsaka
mál þeirra 6.138 pólitísku fanga,
sem haföir eru í haldi á eynni Jar
os. í opinberri tilkynningu segir,
að öldruðum og sjúkum föngum
verði fyrst sleppt úr haldi og síð-
an mönnum, sem ekki hafa verið
viðriðnir kommúnistíska starf-
semi á liðnum árum og ekki sé
unnt að líta á sem hættulega í
pólitísku tilliti.
Konstantín Kolias forsætisráð-
herra skýrði ennfremur frá því í
dag að stjórnin hyggðist víkja fjöl
mörgum embættismönnum ríkis-
ins úr embætti til þess að tryggja
dugandi stjórn. Hann sagði að
nýja stjórnin mundi stjórna land-
inu með stjórnarskrárlegum lög-
um gefnum út í nafni Konstan-
tíns konungs. Lögin yrðu birt í lög
birtingartíðindum Grikklands og
hefðu sama gildi og konunglegar
tilskipanir.
Forsætisráðherrann greindi
einnig frá því að 12 æðstu höfð7
ingjum grísku rétttrúnaðarkirkj-
unnar yrði vikið frá störfum og
enn fremur yrði æðsta stjórn
kirkjunnar og kirkjuþing leyst
upp. Nýtt kirkjuþing níu biskupa
ætti síðan að taka við stjórn kirkj
unnar og ákveða hverjum falið
skyldi að stjórna biskupsdæmum
landsins.
0 Aukafundar krafizt.
Forsætisráðherrarnir Tage Er-
lander, Jens Otto Krag og Per
Borten urðu ásáttir um það í við-
ræðum í Osló sem lauk í dag að
fresta ákvörðunum um að viður-
kenna hina nýju stjórn Grikk-
lands og fara þess á leit að ráð-
herranefnd Evrópuráðsins verði
kölluð saman til aukafundar til
að ræða byltingu hersins í Grikk-
landi.
Krag, forsætisráðherra var að
því spurður á blaðamannafundi
hvort Danir mundu fagna Kon-
stantín konungi ef hann mundi
sækja brúðkaup Margrétar krón-
prinsessu 11. júní og sagði dönsku
stjórnina mundu sýna einlægan
skilning ef konungurinn kæmi
ekki.
Laust eftir miðnætti sl. sunnu
gabbað í gegnum síma að Hóla
dag var slökkvilið Hafnarfjarðar
braut 7. En þar sem sími slökkvi
liðsstöðvarinnar er með útbúnaði
sem hægt er að komast að því
hveðan hringt er, er ekki undan
komuleið fyrir þá, sem haldnir
eru slíkri áráttu, sem er stór víta
verð og ættu menn að sæta á-
byrgð fyrir slíkar gjörðir.
„Dómstóllinn"
lýkur störfum
(NTB-TT).
Hinn svokallaði Russel-„dóm-
stóll“ lýsti því yfir í dag, að
Bandaríkjamenn hefðu gerzt sek-
ir um árás í Vietnam og gert
skipulagðar árásir á borgaraleg
skotmörk. Frá þessu var skýrt er
)rdómstóllinn“ lauk störfum sínum
í Stokkhólmi í dag og fögnuðu
boðsgestir sem fengu að fylgjast
með „réttarhöldunum“, „dómsnlð
urstöðum“ með 10 mínútna lófa-
taki.
Ofursti úr her Kambódíu og
Norður-Vietnammenn, sem leiddir
voru fram í „réttarhöldunum“,
föðmuðu að sér meðlimi „dóm-
stólsins" til þess að láta í ljós
þakklæti sitt fyrir störf „dóm-
stólsins“.
„Dómstóllinn“, sem var skip-
aður 17 mönnum undir forsætl
franska rithöfundarins Jean Paul
Sartre, kvaðst byggja cinróma úr
skurð sinn á Briand-KelIogg-samn
ingnum frá 1928, sáttmála Sþ,
Niimbergreglunum og Genfars-
samningnum frá 1954. Því var
haldið fram að Bandaríkjamenn
hefðu gert ítrekaðar og ólöglcgar
árásir á Kambódíu og að Ástralíu
menn Suður-Kóreumcnn og Ný-
Sjálendingar væru samsekir
Bandaríkjamönnum.
Ritari Bertrand Russels, sem
sótti ekki „réttarhöldin", las boð
skap frá hlnum aldna heimspek-
ingi, sem líkti Bandaríkjamönn-
um við Golíat.
Gerhardsen hylltur sjötugur
OSLÓ, 10. maí (NTB)
Einar Gerhardsen fyrrum for-
sætisráðherra var innilega hyllt-
ur á sjötugsafmælinu í dag og
baxst fjöldi heillaóska og gjafa.
Á hádegi var boð inni í Alþýðu-
húsinu í Osló fyrir alla þá sem
vildu heiðra afmælisbamið.
Per Borten forsætisráðherra
mælti fyrir hönd stjórnarinnar og
skýrði frá-því að Agnes Hiorth list
málara yrði falið að mála mynd
af Gerhardsen. Kveðjur bárust
frá erlendum jafnaðarmannaflokk
um og leiðtogum þeirra, þeirra á
meðal Jens Otto Krag, Tage Er-
lander, K.A. Fagerhölm og Willy
! Brandt, og auk þess fjöldi gjafa,
! innlendra og erlendra.
Frá íslandi bárust heiltaóska-
skeyti frá Bjarna Benediktssyni
forsætisráðherra og Emii Jónssyni
utanríkisráðherra.
Meðal Norðmanna sem hylltu
afmælisbarnið voru Trygve Bra-
teli, formaður norska Verka-
mannaflokksins, Brynjulf Bull,
forseti borgarstjórnar Osló, Hal-
vard Lange fv.utanríkisráðherra
og fjöldi fulltrúa ýmissa samtaka
og stofnana.
í kvöld var haldinn fundur til
heiðurs Gerhardsen í Alþýðuhús-
inu og flutti Bratteli aðaræðuna.
Hann sagði, að foringjadýrkun
væri norskum jafnaðarmönnum
framandi. Flokkurinn byggðist á
samvinnu margra, en Gerhardsen
hefði oröið mikilhæfur stjórnmála
leiðtogi vegna mannkosta sinna
og stjórnað sameiginlegu átaki
margra, í opinberu lífi, stjóminni
og á Stórþinginu.
Gerhardsen hafði hæfileika til
að hlusta og læra, tala og sann-
færa, hæfileika til að komast í
snertingu við fólk í öllum kring-
umstæðum. Allt gerði þetta það
að verkum að Gerhardsen hefur í
rúmlega 20 ár verið hinn óum-
deilanlegi forystumaðúr norsku
verkalýðshreyfingarinnar og
gengt mikilsverðum embættum á
þann veg að hann hefur öðlazt
innilegt þakklæti allra greina
verkalýðshreyfingarinnar og
þetta þakklæti látum við i ljós á
þessum degi, sagði Brattali.
2 M. maí 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ