Alþýðublaðið - 11.05.1967, Síða 4
mmM)
Ritstjóri: Be-nedikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasími:
14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Rvík. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins. Sími 14905. — Askriftargjald kr. 105.00. — í lausa-
Bölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ábyrgðarleysi - Afturhald
\ FRAMSÓKNARFLOKKURINN er á undanförnum
árum, undir forystu Eysteins Jónssonar, orðinn furðu
fyrirbæri á sviði íslenzkra stjómmála. Öðrum þræði
er hann ábyrgðarlausari en kommúnistar. Kom þetta
t. d. fram um daginn, er Eysteinn Jónsson taldi sjálf
sagt í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins, að ekkert til-
lit þyrfti að taka til verðlækkunar á síldarafurðum á
erlendum mörkuðum, heldur skyldi ríkissjóður greiða
uppbætur, sem nema verðfallinu. Það er ekki nýtt
vandamál í íslenzkum síldveiðum, hvenær hefja
.skuli veiðarnar. Fyrsta síldin er svo rýr, að veiði
hennar skilar yfirleitt ekki arði, nemia verðlag sé
hagstætt. Nú er verðlag hins vegar óvenjulega óhag-
stætt. Engu að síður er Eysteinn Jónsson ekki í nein
um vafa. Verðlagið erlendis skiptir engu máli. Rík-
issjóður á að borga brúsann. Þessa stundina hugsar
Eysteinn aðeins um þá, sem hafa hug á að veiða síld.
Én eins og fyrri daginn gleymir hann þeim, sem eiga
að greiða skattana. Það hefur aldrei verið sterka hlið
i'n hjá Framsóknarflokknum og Eysteini Jónssyni að
minnast skattgreiðendanna.
Að hinu leytinu er Framsóknarflokkurinn afturhalds
samari en nokkur annar flokkur á Íslandi. Kemur
þetta t. d. fram í afstöðu hans til álbræðslunnar. Af
hálfu flokksins var látið í það skína á Alþingi, að ef
stórt raforkuver yrði byggt á Norðurlandi, væri flokk
urinn reiðubúinn til þess að samþykkja að svissneska
fyrirtækið fengi leyfi til þess að starfrækja hér ál-
verksmiðju. Flokkurinn hafði enga grundvallarskoð-
un á hagnýtingu vatnsaflsins sem undirstöðu stóriðju
á íslandi. Flokkurinn hafði enga grundvallarskoðun
á því, hvers konar stóriðju skyldi komið hér á fót né
hvaða sjónarmið skyldu ráða staðsetningu hennar.
Skoðun Framsóknarflokksins byggðist á því, hvort
'hægt væri að fá orkuver í kjördæmi, sem þeir höfðu
áhuga á. Ef Fi amsóknarþingmenn fengju framkvæmd
ir í kjördæmi, sem þeir höfðu velþóknun á, þá
skyldi erlendur atvinnurekstur, sem væri þjóðhættu-
legur annars staðar, vera velþóknanlegur.
Þar eð stjórnarflokkarnir létu heilbrigð fjárhags-
sjónarmið ráða í þessu máli, snerist Framsóknarflokk
urinn gegn því. Framtíðin á eftir að dæma afstöðu
hans spn ein hatrömmustu afturhaldssjónarmið þess
ara ára.
4 11. maí 1967
BÆNDUR
Nú er rétti tíminn til að skrá
vélar og tæki sem á að selja.
TRAKTORA
MÚAVÉLAR
BLÁSARA
SLÁTTUVÉLAR
ÁMOKSTURSTÆKI
Við seljum tækin.
Bíla- og
Búvélasalan
v/Miklatorg, sími 23136.
Allt til raflagna
RAfmagnsvörur
Heimilistæki.
Útvarps- og sjónvarps-
tæki.
RAFMAGNSVÖRU-
BÚÐIN S.F.
Suðurlandsbraut 12
OK MELAVÖLLUR
Rey k j avíkurmótið:
í kvöld kl. 8 keppa
VALUR - ÞRÚTTUR
MÓTANEFND.
NJARÐVÍKURHREPPUR
Verkamenn óskast strax. Upplýsingar hjá
verkstjóranum í síma 1696 eða í heimasíma
2521.
Sveitarstj órinn, Nj arðvíkurhreppi.
Ég þakka innilega þeim sem mundu
mig í apríl.
Vilborg Magnúsdóttir.
krossgötum
★ ELDSVOÐAR OG BRUNA-
VARNIR.
Varla líður svo vika, að ekki verði
einn eða fleiri húsbrunar á landinu. Verksmiðjur
og vörugey'mslur verða eldinum að' bráð; hlöður
og gripahús brenna til kaldra kola, íbúðarhús fuðra
upp á svipstundu og oftast bjargast lítið sem ekk-
ert af innanstokksmunum. Tjónið verður því ein-
att tilfinnanlegt.
Orsakir til eldsvoða eru auðvitað
margar. Enginn vafi er á, að trassaskap og að-
gæzluleysi er oft um að kenna. Fólk fleygir frá sér
logandi eldspýtu eða sígarettustubb, skilur við
rafmagnstæki í sambandi eða fer ógætilega með
eld á annan hátt. Auk þess virðist ekki lögð nógu
rík áherzla á að framfylgja lögum og reglum um
brunavarnir, eftirlitið er kannski í slappasta lagi.
Að sjálfsögðu ber að gera allt sem unnt er til að
koma í veg fyrir eldsvoða og húsbruna og efla
brunavarnir í hvívetna. Gæta þarf stranglega, að
lög og reglur um brunavarnir séu virt' og ekki
slegið af neinum öryggisráðstöfunum í þeim efn-
um. Með öflugu brunavarnaeftirliti ætti að mega
fækka eldsvoðum til mikilla muna.
★ BRUNATRYGGINGAR.
En þrátt fyrir allar varúðarráð-
stafanir og eftirlit verður þó aldrei komið al-
gerlega í veg fyrir eldsvoða og brunatjón. Hús-
brunar munu alltaf eiga sér stað. Þess vegna er
nauðsynlegt, að fólk láti ekki hjá líða að tryggja
eigur sínar gegn eldsvoða, hvort heldur er um
hús eða innbú að ræða, svo að tjónið verði ekkl
eins tilfinnanlegt og ella. — Mörg tryggingafélög
eru starfandi í landinu, sem hafa brunatrygging-
ar með höndum. Skyldutrygging mun vera á hús-
um, en ekki á innbúi. Samt skyldi maður ætla,
að enginn léti vera að tryggja innbú sitt, eins oft
og eldsvoðar minna á sig. Þó ótrúlegt sé, mun
það nokkuð algengt, að um enga tryggingu sé að
ræða, enda heyrist æði oft í fréttum af húsbrun-
um, að innbú hafi verið óvátryggt'. Hitt mun þó
enn algengara, að brunatrygging sé mjög lág, að
eins brot af verðmæti hins tryggða. Hér er ein-
mitt komið að atriði, sem hver og einn ætti að
athuga gaumgæfilega, ekki sízt vegna hins óstöð-
uga verðlags, sem hér hefur átt sér stað á undan-
förnum árum og áratugum. Brunatrygging, sem
var nokkurn veginn við hæfi fyrir t. d. áratug síð-
an, er nú orðin alltof lág og í engu samræmi við
verðmæti það, sem um er að ræða. Auk þess er
fólk oft að bæta við eða endurnýja húsgögn og
heimilistæki. Allt þetta þarf að hafa í huga og
taka með í reikninginn í sambandi við trygginguna.
-Segja má, að tjón af eldsvoða
verði sjaldnast' að fullu bætt, jafnvel þótt tryggt
sé á eðlilegu verði. Fólk missir einatt ýmsa per-
sónulega muni og minjagripi, sem eftirsjá er að
og naumast verða að fullu bættir, enda oft ekki
til peninga metnir. Engu að síður getur fólk
vænzt þess að komast hjá fjárhagslegum skakka-
föllum að verulegu leyti, ef allt, fast og laust,
er sómasamlega tryggt. Þess vegna ætti enginn að
láta hjá líða að brunatryggja eigur sínar og fylgj-
ast með því að tryggingin sé í fullu samræmi við
verðmæti á hverjum tíma. — Steinn.
ALÞYÐUBLAÐIÐ