Alþýðublaðið - 12.05.1967, Qupperneq 1
Föstudagur 12. maí 1967 - 49. árg. 104. tbl. -- VERO 7 Kt.
Togararnir
afla vel
Síðustu tvær vikur hafa togar-
amir verið að veiðum aðallega við
Austur-Grænland, en nokkur skip
hafa stundað heimamið. Afla-
brögð hafa yfirleitt verið ágæt. í
fyrradag var landað úr Ingólfi
Arnarsyni sirka 160. lestum eftir
5 daga veiðiíör og í gær og í dag
er verið að landa úr Júpiter, en
liann var með fullfermi. Afli Júpi
ters er þorskur sem skipið 'fékk
á 10 veiðidögum við Austur-Græn
land.
Áttunda maí landaði Harðhakur
159 lestum á Akureyri eftir sex
daga útivist og fékkst sá afli á
Hryggnum VNV frá Patreksfirði.
Nú eru 10 togarar að veiðum
við Austur-Grænland og enn er
þar reitingsafli. Þar er einnig að
togveiðum Jón Kjartansson, sem
upphaflega hét Jörundur, en sem
Þorsteinn Gíslason hefur nú
keypt og hyggst gera út á síld-
veiðar á þessu sumri. Nokkrir
norskir línubátar eru að veiðum
við Nýfundnaland Maí frá Hafnar
vel.
í gær hóf veiðar á Ritubanka
við Nýfundnaland Maí frá Hafnar
firði, og eins og við var að búast
slí'ku aflaskipi var þar strax um
reitingsafla að ræða. Fékk Maí
um 30 lestir fyrstu 12 klst. á
veiðum.
USA hóta að svipta
Grikki stuðningi
Washington og Aþenu 11. maí
(NTB-AFP/REUTER.) — Land
varnaráðherra Bandaríkjanna, Rob
ert MacNamara, sagði í gær að
Bandaríkjamenn mundu ekki
halda áfram hernaðarlegri aðstoð
sinni við Grikki ef nýja stjórnin
í landinu kæmi ekki á lýðræðis
legum stjórnarháttum. I
MacNamara sagði þetta við
Dráttur á merk-
ingu listanna
Yfirkjörstjórn Reykjavíkur umboðsmönnum þessara tveggj
hélt fund í giærdag til að úr- lista frest þar til kl. 9 í gaer-
skurða um merkingar fram- kvöld til að ganga frá greinar-
boðslistanna í Reykjavík. Ekki gerðum um málið og var nýr
tókst þó betur til en svo, að fundur yfirkjörstjórnar boðað-
umboðsmenn flokkanna voru ur kl. 9 í morgun og skyldu
ekki boðaðir á fundinn, nema að því sinni boðaðír umboðs-
umboðsmenn þeirra tveggja menn allra lista á þann fimd.
lista, sem boðnir eru fram í
nafni Alþýðubandalagsins, enda
var oddviti kjörstjórnarinnar
yfirborgarfógetinn í Reykjavík,
ekki vel fyrir kallaður. Um-
boðsmaður lista Framsóknar-
flokksins var kallaður á vett-
vang, eftir að kjörstjórnin var
komin saman, en umboðsmenn
annarra flokka komu þangað
ekki. Þrátt fyrir fjarvist um-
boðsmannanna voru bókstafir
settir við lista Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Sjálfstæð
isflokks, en ekki við lista Ó-
háða lýðræðisflokksins og held-
ur ekki við lista Alþýðubanda-
lagsins, en ágreiningur kom
fram milii umboðsmanna Iist-
anna um mcrkingu þeirra. Var
á endanum ákveðið að gefa
Landkjörstjórn hafði boðað
fund kl. 6,15 í gærdag, en hún
hafði fengið óformlega vit-
neskju um að yfirkjörstjórn
Reykjavíkur gengi frá lista-
merkingunum fyrr um daginn,
og úrskurði hennar, hver sem
hann yrði, yrði áfrýjað til land
kjörstjórnar, og var fundurinn
boðaður í gærkvöldi til að
spara tíma, því að frá málinu
verður að vera búið að ganga
fyrir lielgi, ef utankjörfunda-
atkvæðagreiðsla á að geta haf-
izt á réttum tíma á hvítasunnu-
dag. Hefur landkjörstjórnin nú
boðað til nýs fundar í dag kl.
6..30 síðdegis, -en úrskurður frá
henni mun ekki að vænta fyrr
en í fyrsta lagi á laugardag.
blaðamenn þegar hann kom heim
frá fundi fastaráðs NATO í París
Hann kvaðst hafa skýrt gríska
landvarnaráðherranum, Gregorios
Spandidakis hershöfðingja, frá
afstöðu Bandaríkjastjórnar. Hers
höfðinginn tjáði McNamara að
stjórnin hyggðist koma á laggirn
ar „þingræðislegri stjórn.“
□ Konungur móðgaður.
í Grikklandi hafa herdómsstól-
Dómstóll í Saloniki í Norður-
Grikklandi hefur dæmt fjóra
menn í 2—5 ára fangelsi fyrir
að móðga konunginn. Eklci var
sagt í hverju móðgunin fælist.
Sami dómstóll hefur dæmt þrjá
menn aðra í sex mánaða til þriggja
ára fangelsi fyrir að brjóta bann
það sem lagt er við því að menn
beri vopn. Tveir menn aðrir voru
ar dæmt fólk sem móðgað hafa I dæmdir í tveggja ára fangelsi og
Konstantín konung til fangelsisvist hálfsárs fangelsi fyrir að sýna
ar, að sögn blaða í Aþenu í morg yfirvöldum mótþróa.
un- I Framhald á 14. síðu
SKÓLAGANGAN
AÐ HEFJÁSI
í gær hófst vorskólinn hjá
þeim börnum, sem fædd eru
1960. Þau komu í barna-
skólana í gær, flest í fylgd
með mæðrum sínum, sum
líka með feðrunum og ein-
staka komu bara ein. Það
var gaman að sjá, hvað þau
voru eftirvæntingarfull enda
að hefjast nýr áfangi í lífi
þeirra, skólagangan. Þau
mændu hálffeimin á skóla-
stjórann, sem las upp nöfu-
in og raðaði í bekkina sum
gengu hikandi inn í skól-
ann, önnur flýttu sér sem
mest þau máttu. Ljósmynd-
ari Alþýðublaðsins tók þessa
mynd af vorskólabörnunum
fyrir utan Miðbæjarskólaim
í gær.
Bráðabirgðalög um
netatjónsbætur
Vegna aflabrests á síðustu yetrarvertið verða verðbætur á ferskfisk,
samkvæmt lögum um ráðstafanir vegna sjávarútvegsins, sem sam-
þykkt voru á síðasta þingi, að minnsta kosti 12,5 milljónum króna
lægri en gert hafði verið ráð fyrir, og voru í gær gefin út bráða-
birgðalög um að þeirri upphæð skuli varið til að bæta útgerðar-
mönnum veiðarfæratjón á vertíðinni, en það var gífurlega mikið.
Bráðabirgðalögin eru á þessa leið;
Forseti íslands gjörir kunnugt:
Sjávarútvegsmálaráðherra hefur
tjáð mér, að útvegsmenn hafi orð
] ið fyrir stórkostlegu veiðarfæra
tjóni á sl. vetrarvertíð og beri
nauðsyn til að hlaupa hér undir
bagga. Er frumvarp til laga um
: ráðstafanir vegna sjávarútvegsins
var lagt fram á síðasta Alþingi
hafi verið gert ráð fyrir að verð
bætur á ferskfisk samkvæmt 1.
gr. laganna myndu nema allt að
1100 milljónum króna á árinu 1967.
Vegna aflaleysis á síðustu vetrar-
vertíð sé ljóst, að verðbætur sam
kvæmt 1. gr. laganna verði a.m.k.
12,5 milljónir króna lægri en gert
var ráð fyrir. Sé því rétt að
verða við eindregnum óskum út-
vegsmanna, að þessari fjárhæð
verði varið til greiðslu upp í
framangreint veiðarfæratjón.
1. gr.
Aftan við 1. gr. laganna komi
ný málsgrein svohljóðandi-
Auk þeirra verðuppbóta, sem
um ræðir í 1. mgr. þessarar grein
ar er heimilt að greiðu úr ríkis-
sjóði 12 5 milljónir króna til að
bæta útgerðarmönnum tjón á fiski
netum, er þeir hafa orðið fyrir á
vetrarvertíð 1967. Landssamband
íslenzkra útvegsmanna skal ráð-
stafa þessu fé í samráði við Fiski
félag íslands.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört að Bessastöðum,
11. maí 1967.
Ásgeir Ásgeirsson,
Eggert G. Þorsteinsson.