Alþýðublaðið - 02.07.1967, Síða 3
Sunnudags A!þýðub!aðið
2. júlí 1967
3
Borgarbúar hefja
sumarferöalög sín
Noreka landsliðið, sem
keppir hér í þriggja - landa-
keppninni kom til landsins á
föstudagskvöld, en Svíarnir í
gær. Norðmennirnir vöktu
strax athygli, er þeir komu
niður stigann úr flugvélinni
vegna hinna ágætu höfuðfata,
sem þeir voru búnir. Ekki er
að efa, að menn muni flykkj-
ast á völlinn næstu kvöldin til
að sjá knattspyrnumenn undir
24 ára aldri frá þremur þjóð-
um leiða saman hesta sína.
ÞEIR sem risu árla úr rekkju
í gærmorgun, urðu varir mikillar
bifireiðaumfer^ar stórra fólks-
flutningabíla. Fóllc flykktist út'
úr borginni, út í náttúruna, enda
var veðrið til þess. Þrátt fyrir
stríðan straum fólks til útlanda,
til að kaupa buxur eða skó, hafa
menn sennilega aldrei gert eins
víðreist um sitt eigið land og nú
og er ekki nema gott eitt til þess
að vita. Bifreiðaeigendur teygja
farkosti sína út og suður um vegi
og vegleysur, margir aka gjarn-
an í lestum í einum rykmekki
og sjá varla nepia í rassinn á'
næsta bíl, en stíga svo alsælir
út úr bílnum, er heim er komið
og blása rykið af kaktusum og
öðru illgresi úr hitabeltinu, sem
þeim áskotnaðist í Hveragerði,
stilla því upp í glugga hjá sér,
birgja alla birtu úti og eyða súr-
efni úr lífsloftinu.
Svo eru aðrir sem eru svo
lánsamir að eiga ekki bíl, eða
svo skynsamir að skilja hann eft-
ir heima, en slá sér saman og
láta langferðabilstjórana hafa
áhyggjur af akstrinum og sækja
á sérstaka staði í ákveðnum til-
gangi, til að sjá og fræðast og
njóta góðs félagsskapar. Við
hringdum í Jón Baldvinsson hjá
BSI, en hann annast fyrir-
greiðslu félaga og hópa til að út-
vega langferðabíla. Hann sagði
að sérleyfishafar og eigendur hóp
ferðabíla hefðu ákveðið að láta
BSÍ sjá um alla fyrirgreiðslu og
væri ekkert ráðið nema í gegn-
um bifreiðastöðina, sem útveg-
aði bílana svo lengi sem hægt
væri.
Jón sagði að aðalferðin væri
á sunnudaginn, en þá fer Varð-
arfélagið í ferð um landnám Ing-
ólfs, þ. e. Gullbringu- og Kjós-
arsýslu og Árnessýslu í 20—25
bílum. Annars var hann spar á
að veita upplýsingar um hvert
einstök félög færu, félagar þeirra
kynnu að bregðast ókvæða við,
af hverju sem það kann nú að
vera, en upplýsir, að leiðir fólks
liggi austur í Þjórsárdal, Þórs-
mörk, suður um Reykjanes, vest-
ur á Snæfellsnes. Eftir öðrum
leiðum fregnum við þau hern-
aðarleyndarmál að Kvennadeild
Skagfirð’ingafélagsins ghngist
fyrir skemmtiferð um Þjórsár-
dal. Æskulýðsfélag Garðakirkju
gangi á Esju, Kvenfélag Hjfnar-
fjarðax-kirkju fari upp í Borgar-
fjörð, Mæðrafélagið geri víðreist
um Suðurland og fleii'i slík félög
dreifi sér um græna haga. Þar
að auki fer GG-listinn í hi'ess-
ingarferð vestur á Snæfellsnes
og ungtemplarar til Siglufj^rðar.
Þá eru liinar föstu lielgai’ferðir
Ferðafélags íslands til ÍÞórs-
Fi'amhald á bls. 14
Liu Shao-chi vik-
ið úr forsetastóli
Peking, 1. 7. (NTB-Reuter).
LIU Shao-chi, forseta Kína, hef
ur verið vikið frá völdum, að þvi
er tilkynnt var í Peking í dag. Liu
er sagður h,afa verið leiðtogi and-
spyi'nuhreyfingar gegn formanni
flokksins, Mao Tse-tung.
í yfii'lýsingunni, sem gefin var
út í tilefni af 46 ára afmæli kín-
verska kommúnistaflokksins segir
svo: í hinni miklu menningarbylt-
ingu öreiganna, sem Mao formað
ur hefur stjórnað og átti upptök-
in að, höfum við flett ofan af og
steypt af stóli valdamiklum flokks
mönnum, sem hafa gengið veg
auðvaldsins.
Yfirlýsing kommúnistaflokksins
er prentuð í leiðai'a í málgagni
flokksins, Rauða fánanum, — en
yfiriýsingin var gerð heyrinkunn
áður en blaðið var komið í sölu.
Við erum laus við marga vialds-
menn innan flokksins, sem !hafa
gengið veg auðvaldsins, segir í
yfirlýsingunni. Liu hefur verið
gagnrýndur hart mánuðum sam-
an á veggblöðum og í bæklingum
og talinn aðalandstæðingur Maos.
Kína er nú greinilega þjóðhöfð-
ingjalaust.
Yfirlýsingin bendir til þess, að
þeir flokksleiðtogai', sem fylgja
Liu að málum í liugmyndafræði-
deilunni innan flokksins, hafi
Liu Sliao-chi.
einnig verið látnir víkja. Þá er
fyrst og fremst urn að ræða Teng
Hsaoeping, aðali'itara flokksins
og Tao, fyi-rum áróðui’sstjóra. Það
kemur ekki fr,am í leiðaranum í
Rauða fánanum hvort brottvikn-
ing Lius og fylgismanna hans
thafi verið opinbei'lega ákveðin á
fundum í stjórn flokksins eða af
stjórn landsins.
Ýmsir telja, að ‘þótt enginn vafi
sé á því, að Liu og fylgismönnum
lians hafi verið vikið frá völdum,
sé mögulegt, að það verði að sam
þykkja formlega í flokknum og
stjórninni.
Liu Shao-chi fæddist í Hunan
1905. Stundaði nám í Rússlandi.
Gerðist snemma virkur þátttak-
andi í kommúnistaflokknum og
komst þar þegar í æðstu stöður.
Hann hefur skrifað bælcur um
flokksstarfið: Urn flokkinn, Um
baráttu innan flokks, — og hvern
ig verða mcnn góðir kommúnist-
ar-
Nýr knattspyrnuvöllur1
vígður í Keflavík í dag
í DAG verður nýr fullkom-
inn grasvöllur vígður í Kefla-
vík. Hefst athöfnin kl. 3,30 með
því að Lúði-asveit Keflavíkur
leikur, en síðan flytur bæjax’-
stjóri, Sveinn Jónsson, áVai-p.
Að því loknu vei'ður völlurinn
vígður með bæjakeppni í knatt-
spyi’nu milli Kefiavíkur og
Reykjavíkur.
Framkvæmdir við völlinn liafa
staðið undanfarin 4 ár, og er vel
til lians vandað í hvívetna. Var
hann undirbúinn eins og um sáð-
völl væri að ræða, en síðan lagð
ur túnþökum, svo að hann yrði
fyrr tilbúinn til notkunar.
Völiurinn stendur á milli
Sunnubrautar og Hringbrautar,
en þar hafa Keflvíkingar afgirt
allmikið svæði ætiað til íþrótta-
iðkana. Er nú þegar kominn þar
ágætur malarvöllur, búnings-
klefar og fundaherbei’gi fyrir í-
þróttafélögin, auk grasvallar-
ins nýja. Gert er ráð fyrir að
þarna komi einnig fi’jálsíþrótta
svæði og handknattleiksvöllur.
Áhorfendasvæðið við völlinn rúm
ar nú 2—3000 manns, en þegar
því er fulllokið á það að geta
tekið 5000 manns.
Undanfarin ár hafa Keflvík-
ingar látið allmikið til sín taka
í knattspyrnu. Hefur það verið
þeim til nokkurra óþæginda, að
heimaleiki sina í fyi’stu deild,
hafa þeir orðið að leika á Njarð-
víkurvelli, því að fyrstu deildar
leikir eiga að leikast á grasvelli.
Er því ekki að efa að nýi gras-
völlurinn er knattspyrnuunnend-
um þar eystra rnjög kærkom-
inn.
Vígsluleikurinn verður áreið-
anlega mjög spennandi. Síðast
þegar þessi sömu lið kepptu
varð jafntefli, eitt rnark gegn
Öskubíl Hafnfirðinga ^
stolið í fyrrinótt
Síðastliðna nótt var öskubíl
Hafnfirðinga stolið af bifvéla-
verkstæði í Rcykjav., þar sem
hann var til viðgerðar. Bílnum
var ekið sem leið liggrur út úr
bænum, en komst ekki lengra
en upp undir Esju. Lögregl-
unni í HafnarfirÖi var tilkynnt
um að bíllinn væri þar í reiðu-
leysi klukkan hálfsex í gær-
morgun, og var vélin í honum
þá föst, hafði brætt úr sér. Bíll
inn var fluttur aftur á verk-
stæðið og í gærmorgun liafðist
upp á þjófnum. Þetta er eini
öskubíllinn í Hafnarfirði og
getur þetta því haft þær afleið
ingar að sorptunnur Hafnfirð-
inga verði nokkuð fullar á
næstunui.