Alþýðublaðið - 02.07.1967, Qupperneq 5
Sunnudags Alþýðublaðið
2. júlí 1967
5
ÍMMMM)
Ritstjóri: Benedikt Gröndal. — Ritstjórx Sunnudagsblaðs: Kristján
Bersi Ólafsson. — Símar: 14900—14903. — Auglýsingasími 14906.
Aðsetur: Alþýðuhúsið við HverfisgötUj Reykjavík. — Prentsmiðja
Alþýðublaðsins, Sími 14905. —' Askriftargjald: kr. 105,00.— í lausa*
eöIu: kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
SAMVINNUGARÐUR
SAMBAND íslenzkra samvinnufé-
laga hefur nýlokið aðalfundi sínum að
Bifröst í Norðurárdal. Kom þar fram,
að fjárhagur sambandsins og kaupfé-
laganna sé bágur og við mikla erfið-
leika að etja á því sviði. Er verðbólgu
og lánsfjárskorti kennt um.
íslenzkt efnahagslíf hefur í heild átt
við ýmsa erfiðleika að etja síðustu miss-
eri, og hafa þeir komið fram í verð-
bólgu og skorti lánsfjár, sem af henni
stafar óhjákvæmilega. Kemur því eng-
úm á óv'art, þótt SÍS eigi í erfiðleikum
á þessu sviði. Ýmsar aðstæður eru nú
á dögum að breytast — og eiga sér al-
þjóðlegar rætur. Hljóta margþætt stór-
fyrirtæki eins og SÍS og kaupfélögin að
þurfa að gera róttækar skipulags- og
tæknibreytingar, jafnvel fella niður
sumar deildir og byggja upp aðrar.
Undanfarin ár hefur það hentað Fram
sóknarflokknum í áróðri sínum að gera
sem mest úr fjárhagslegum erfiðleikum
SÍS og kaupfélaganna og hefur það ó-
spart verið notað. Af þessu mætti ætla,
að ekkert nýtt hefði gerzt í samvinnu-
starfi þessi ár.
Þetta er mikill misskilningur. Það er
gróflegt óréttlæti af Framsóknarflokkn
um að setja barlómsstimpilinn á tíma-
bil núverandi forustumanna SÍS og
kaupfélaganna. Þeir hafa staðið að stór-
felldri uppbyggingu um allt land, bygg-
ingu glæsilegra verzlunarhúsa, iðju-
vera, nýtízku slátur- og kjötmiðstöðva
og keypt skip.
Ýms viðhorf samvinnumanna hafa
verið að breytast á undanförnum árum
í samræmi. við velmegun og öryggi al-
mennings á Vesturlöndum. Forstjóri
SÍS, Erlendur Einarsron, ræddi á aðal-
fundinum um þróun þeirra mála í Bret-
landi. Má því nærri geta, að hér á landi
verði líka miklar breytingar — og mikl-
ir erfiðleikar þeim samfara.
Á aðalfundinum tilkynnti Erlendur
áform um „Þjóðgarð samvinnumanna“
eða „Samvinnugarð“. Þetta er stórbrot-
in hugmynd og í fullu samræmi við hið
bezta úr samvinnuhugsjóninni. Ef öil
samvinnufélög landsins sameina krafta
sína gæt.u þau með slíku átaki unnið
mikið verk og gott.
"U33
m
BEr
firr
Flug til Færeyja tekur aðeins tvær stundir.
Færeyjaför er þvi ódýrasta utanlandsferðin,
sem íslendingum stendur til boða.
Það er samróma ólit þeirra, sem gist hafa
Færeyjar, að nóttúrufegurð sé þar mikil og þar
búi óvenju gestrisið og skemmtilegt fólk.
Fokker Friendship skrúfuþoto Flugfélagsins
flýgur tvisvar í viku
frá Reykjavik til Fær-
eyja, á sunnudögum
og þriðjudögum.
Leitið ekki langt yfir skammt — fljúgið til
Færeyja í sumarfríinu.
FLUCFELAG /SLAJVDS
/C£L/l/VOAÍR
Augiýsingasími
Albýðublaðsins
@r 14906
Björgvin Guðmundsson við-
skiptafræðingur skrifar kjall
aragreinina í dag og fjallar
hún um aðstoð ríkisvaldsins
við neytendasamtök og hags
muni neytenda.
,Kom þetta glögglega í ljós, er
haldin var hér ó landf hið fyrsta
'sinnið norræn ráðstefna um neyt
endamálefni. Hinir erlendu gest-
ir á ráðstefnunni lögðu fram ít-
arlegar skýrslur um starf í þágu
neytenda á hinum Norðurlönd-
unum, svo sem skýrslu um neyt-
endafræðslu í skólurn og skýrslu
um löggjöf um neytenda- og
verðlagsmál á Norðurlöndum. En
kafla um ísland vantaði í báð-
ar þessar skýrslur.
Höfuðástæðan fyrfr því, að
ísland hefur ekki fylgzt með
liinum Norðurlöndunum í þró-
un neytendamálefna er sú, að
liið opinbera hefur ekki látið
Iþessi mál eins mikið til sín taka
og erlendis. Skinulag á neyt-
endamálastarfsemi hér hefur
verið allt annað en í nágranna-
löndum okkar.
Hér hafa eingöngu starfað
frjáls samtök nevtenda, sem
unnið hafa gott starf, en hafa
ekki haft fjárhagsgetu til þess
að framkvæma þær neyzlu- og
gæðamatsrannsóknir, sem nauð-
synlegar. eru í því skynj að
tryggja neytendur gegn svikn-
um vörum. Á hinum Norður-
löndunum öllum hafa hins veg-
ar starfað stjórnskipuð neyt-
endaráð, sem hafa haft launað
starfslið í sinni þjónustu Og
ríkið hefur kostað alla þá starf-
semi. En hið opinbera hefur
ekki latið við það sitja að skipa
neytendaráð, heldur hafa einnig
verið stofnaðar sérstakar stjórn-
deildir og jafnvel ráðuneyti til
þess að fjalla um fjölskyldu- og
neytendamálefni. í Noregi fer
t.d. sérstakt ráðuneyti með þenn
an málaflokk, en í Svíþjóð og
Finnlandi eru það ráðuneytis-
deildir, sem fara með málin, í
Finnland: innan félagsmála-
ráðunevtisins, en í Svíþjóð inn-
an viðskiptamálaráðuneytisins
Viðskiptamálaráðherra, Gylf: Þ.
Gíslason, lýsti því yfir á nor-
nsmi nevfendamálaráðstefnunni
í Fevkjavík, að hann teldi það
fyllilega tímabært að stofna hér
stjórnardeild fyrir neytenda- og
fjölskyldumál. Vaktj sú yfirlýs-
ing ráðherrans mikla athygli.
Ég tel, að einnig væri tíma-
bært að setja hér löggjöf um
stofnun og starf opinbers neyt-
endaráðs, er starfaði á svipað-
an hátt og slík ráð á hinum
Norðurlöndunum, að hagsmuna-
málum neytenda. Allar neyzlu-
rannsóknir og gæðamatsrann-
sóknir eru svo kostnaðarsamar,
að engin von er til þess, að
þeim verði komið á í hæfilegum
mæli nema hið opinbera geri
það. Væri eðlilegt, að neytenda-
ráð hér á landi væri skipað
fulltrúum launþegasamtakanna,
Neytendasamtakanna, kvenna
samtakanna og þess ráðuneytis
er hefði með neytendamálefni
að gera.
Um þessar mundir er verið að
undirbúa nýja löggjöf um verð-
gæzlu og eftirlit með einokun
og öðrum samkeppnishömlum^
Nái sú löggjöf fram að ganga,
verður þar um algera endur-
skipulagningu verðlagsmálanna
að ræða. Yrði þá farin svipuð
leið í þessum efnum og í ná-
grannalöndum okkar. En þar em.
vörur yfirleitt ekki háðar há-
marksálagningu eða hámarks-
verði, hins vegar haldið uppi
verðgæzlu, sem fylgist með á-
lagningunni í hinum ýrnsu grein
um og þegar álagning verður ó-
eðlilega há, grípa verðlagsyfir-
völdin inn í. Ef kaupmönnumt
yrði sýnt slíkt traust hér, væri
eðlilegt að starfsemi í þágu neyt
enda yrði einnig aukin. Ég tel.
eðlilegt og raunar nauðsynlegt,
að samfara nýrrj lagasetningu
um verðlagsmál verði sett lög
um stofnun og starfrækslu neyt
endaráðs til þess að gæta hags-
muna neytenda.