Alþýðublaðið - 02.07.1967, Síða 11
Sunnudags Alþýðublaðið
2. júlí 1967
11
Á mánudag hefst 3ja-Iandkeppni KSÍ í knattspyrnu á Laugardals-
vellinum með leik íslands og Noregs. Á myndinni sézt m.a. einn,
bezti leikmaður íslands Kári Árnason.
I Laugardal á morgun
Annað kvöld hefst afmælismót
Knattspymusambands íslands á
Laugardalsvellinum. Kl. 20,30
Aðgöngumiða-
sala hefst í dag
Aðgöngumiðasala að leikj
um þriggja landa keppninn-
ar hefst við Útvegsbankann
kl. 2 í dag. Verð miða er
sem hér segir. í stúku 150
kr., í stæði 100 kr. og fyrir
börn 25 kr. Verð stúkiuniða
á alla leikina, er kr. 350.
leika Noregur og ísland fyrsta
leikinn í þriggja landa'keppni ís-
lendinga, Norðmanna og Svía í
knattspyrnu, en liðin eru skipuð
leikmönnum 24 ára og yngri.
Lið Norðmanna kom í fyrra-
kvöld til landsins, en sænska
i leikinn í þriggja-landakeppni ís-
lands í kvöld.
Á þriðjudagskvöld leika Norð-
menn og Svíar og loks mætast ís-
lendingar og Svíar á miðviku-
dagskvöld, Allir leikirnir hefjast
kl. 20,30.
KSÍ varð 20 ára 28. marz sl.
og þessi keppni er háð í tilefni
afmælisins. Á 10 ára afmæli sam-
bandsins 1957 var háð þriggja
landa keppni, en þá léku a-lands-
lið íslands, Danmerkur og Noregs
og sú keppni tókst mjög vel. Er
ekki að efa, að keppnin nú takist
jafn vel.
Einu sinni höfum við leikið
landsleik í áður nefndum aldurs-
flokki, það var við Dani í fyrra,
en þá töpuðum við með þremur
mörkum gegn einu.
Landslið íslands er skipað eft-
irtöldum leikmönnum:
Sigurður Dagsson, Val mark-
vörður, Jóhannes Atlason, Fram
og Guðni Kjartansson, ÍBK bak-
verðir, Magnús Torfason, ÍBK
(fyrirliði), Ársæll Kjartansson,
KR. og Þórður Jónsson, KR fram-
verðir og Björn Lárusson, ÍA,
Kári Árnason, ÍBA, Hermann
Gunnarsson, Val, Eyleifur Haf
steinsson, KR og Elmar Geirsson,
Fram framherjar.
íslenzka liðið er svipað að
styrkleika og a-landsliðið og sjö
af leikmönnunum, sem léku á
Spáni, leika með annað kvöld. Ey-
leifur Hafsteinsson Ihefur leikið
sjö landsleiki og aðrir færri.
Vonandi tekst íslenzka liðinu
vel upp í leikjunum, þó að fæstir
búist við sigri þess í keppninni.
Góð hvatningarorð áhorfenda
gætu liaft mikið að segja eins og
oft hefur verið bent á áður. Því
miður virðast íslenzkir áhorfend-
ur í daufara lagi, en við skorum
á þá að láta nú í sér heyra næstu
kvöld, góð stemning á áhorfenda-
pöllum gefur leik mikið meira
gildi.
Leikinn
Hannes Þ.
annað kvöld
Sigurðsson.
dæmir
Þessi mynd er frá landsleik íslendinga og Spánvei'ja 31. maí sl. Boltinn er á leið í mark Spánverja.
það er Magnús Torfason fyrirliði landsliðs íslendinga í þriggja-Iandkeppninni, sem skoraði mark
ið Við skulum vona, að hann endurtaki þetta í leikjunum í næstu viku.
ILíSs
VERÐ AÐGÖNGUMIÐA:
Stúkusæti kr. 150.00
StæSi — 100.00
Barnamiíar — 25.00
f.S.f. K.S.Í.
1. KNATTSPYRNULANDSLEIKURINN f AFMÆLISMÓTI K.S.f.
ÍSLAND - NOREGUR
fer fram á íþróttaleikvangimirn. í Laugardal annað kvöld (mánudagskvöld og hefst kl. 20,30.
Dómari: Hannes Þ. Sigurðsson.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur frá kl. 19,45.
Aðgöngumiðar seldir í dag frá kl. 14.00 úr sölutjaldi við Útvegsbankann og á morgun frá kl. 10.00 á sama
stað og við Laugardalsvöllinn frá kl. 16.00. Ath.: Sætismiðar á alla 3 leikina kosta kr. 350.00.
KNATTSPYRNUSABAND ÍSLANDS.