Alþýðublaðið - 02.07.1967, Blaðsíða 13
Sunnudags Alþýðublaðið
2. júlí 1967
tíÖ.Bal'diCSBÍO
íslenzkur texti.
OSS 117 í Bahia
Ný ofsaspennandi OSS 117 mynd
í litum og Cinemascope segir
" frá baráttu við harðsvíraða upp-
reisnarmenn í Brasilíu.
FREDERIK STAFFORD.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 16 ára.
MJALLHVÍT og
og dvergarnir sjö
með islenzku tali.
Sýnd kl. 3.
Öldur óttans
(Floods of fear)
Feiknalega spennandi og at-
burðarhröð brezk mynd frá
Rank.
Howard Keel
Anne Heywood
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
— STRIPLINGAR Á STRÖND
INNI —
Bráðskemmtileg mynd í litum
og CinemaScope
Frankie Avalon.
Sýnd kl. 3.
ÓTTAR YNGVASON, hdl.
BLöNDUHLfÐ 1, SÍMI 21296 i
VIÐTALST. KL. 4—6
MÁLFtiUTNlNGtm LÖGFRÆÐISTÖRI*
i
BÆNDUR
Nú er réttl tíminn til að skrá
vélar og tæki sem á að selja.
TRAKTORA
MÚGAVÉLAR
BLÁSARA
SLÁTTUVÉLAR
ÁMOKSTURSTÆKI
Við seljum tækin.
Bíla- og
Búvélasalan
v/Miklatorg-, síml 23136.
ÖKUMENN!
Látið stilla í tíma.
Hjólastillingar
MótorstiIIingar
Ljósastillingar
Fljót og örugg þjón-
usta.
BÍLASKOÐUN &
STILLING
Skúlagötu 32
Sími 13-100.
u
PHILIPS
KÆLISKÁPAR
HÖFUM FYR1RLIGG3ANDI
5 stærðir af liinum
heimsþekktu PHILIPS
kæliskápum.
137 L 4,9 cft.
170 L 6,1 cft.
200 L 7,2 cft.
275 L 9,8 cft.
305 L 10,9 cft.
Afborgúnarskilmálar.
Gjörið svo vel að líta inn.
VIÐ ’OÐINSTORG gfk.
simi 10322 i-MS
Báglega horfir
fyrir Brown...
GEORGE BROWN, utanríkisráð
herra, hefur sérstaka hæfileika
til þess að koma sér í klípu, en
Wilson, forsætisráðherra, hefur
jafn undraverða hæfilelka til þess
að tala sig út úr vandræðunum.
Þetta er tilvitnun í nýlegt
brezkt blað og atburðir síðustu
daga hafa síður cn svo afsannað.
þetta.
George Brown hefur verið aðal-
persónan í ýmsum vandræðamál-
um allt frá því að hann varð ut-
anríkisráðherra og ekki hvað sízt
eftir að hann hótaði að segja af
sér í fyrra, þegar launa- og verð-
stöðvun var komið á í Bretlandi,
en þá taldi Wilson hann á að
gegna stöðunni áfram.
Sum iþessara vandræðamála eru
ekki svo alvarleg, bara smá
hneyklismál tilkomin í ýmiss kon-
ar samkvæmum, þar sem utan-
ríkisráðherrann hefur þótt haga
sér dálítið óvirðulega. Önnur
eru all miklu alvarlegri, enda
varða þau utanríkismál Bretlands.
Svartur sauður.
Hann er og verður alltaf svarti
sauðurinn í ríkisstjórninni og allt
bendir til, að Wilson mundi nú
ekki eins og í fyrra beita allri
mælsku sinni til þess að fá Brown
til að sitja áfram, — heldur sé
hann kominn á þá skoðun, að lík-
lega verði að sparka honum upp
á við eins og það er kallað, —
það er að segja að gera hann að
vara-forsætisráðherra. í fyrra
horfði málið öðru vísi við. Þá
þótti Wilson betra að geyma
skæðasta keppinautinn um for-
mannsstöðu í Ver'kamannaflokkn-
um innan ríkisstjórnarinnar en ut
an.
Brezk blöð fara nú þegar sömu
orðum um Brown og um væri að
ræða mann, sem kominn er úr
leik. Þau sýna honum þá samúð,
sem slíkir menn verða aðnjótandi,
og viðurkenna fúslega persónu-
töfra utanríkisráðherrans.
Nýlega sagði Daily Telegraph,
að forsætisráðherrann ætti nú að
veita utanríkisráðherranum lausn
frá embætti ,,hans vegna“ — það
væri hörmulegt að verða vitni að
því að svo vel gefinn og gjörvileg-
ur maður færi algjörlega í liund-
ana.
Persónuleg utanríkisstefna
Browns hefur að sumum þótt
harla einkennileg og vafalaust
hefur hún valdið stjórninrii mikl
um höfuðverk. Rétt áður en Wil-
son áttti að fara til Vestur-Þýzka-
lands í byrjun þessa árs, hélt
Brown ræðu, þar sem hann lét ó-
tvírætt í það skína, að Stóra-Bret
land væri því hlynntust, að Þýzka
land væri skipt framvegis.
Rétt áður en kom til síðustu um
ræðna um hugsanlega upptöku
Bretlands í Efnahagsbandalag Ev
rópu, sagði hann á stjórnarfundi
— og ummælin komust strax á
kreik — að de Gaulle væri ekki
lengur fulltníi meirihluta
frönsku þjóðarinnar og gæti ekki
talað sem slíkur. Þessi fullyrðing
hefur naumast mýkt huga de
Gaulles og aukið möguleikana á
að Bretar yrðu samþykktir.
Fyrir skömmu kom hann allt í
einu með nýjar áætlanir varðandi
framtíð Aden, en þessar áætlanir
voru á þann veg, að bæði vinstri
hin hægrisinnaða stjórnarand-
staða urðu æf. Svo fór hann til
Sameinuðu þjóðanna og hélt
ræðu, þar sem hann sagði, að ís-
raelsmenn ættu að skila aftur
öllu hernumdu landi þar á meðal
Jerúsalem. Þessi ummæli megn
uðu ekki að mýkja hug Araba,
sem halda fast við bann við olíu
sölu til Bretlands, en auðvitað
urðu ísraelsmenn ókvæða við og
allt fór upp í loft bæði í Verka
mannaflokknum og íhaldsflokkn
um.
Skýringin.
Svo kom Brown heim og þurfti
að taka til við að túlka ummæli
sín á þingi Sameinuðu þjóðanna.
Hann þótti standa sig fremur vel
á heimavígstöðvunum bæði í neð-
ri deildinni og í sjónvarpsræðu,
sem hann hélt til þess að útskýra
afstöðu sína fyrir brezku þjóðinni.
Hann sagði m.a., að Bretar hefðu
komið heiðarlega fram í deilu
Araba og ísraelsmanna. Hann
væri þeirrar skoðunar, að ísraels-
menn ættu að hörfa heim með
herlið sitt, — en Arabar ættu í
þess stað að viðurkenna ísrael.
Hann sagði, að Bretar hefðu gilda
ástæðu til að viðhalda vináttunni
við báða aðila.
Það er þó ekki allra trú, að
Brown hafi styrkt vináttuböndin
við Arabaþjóðirnar og fullvíst
þykir, að ísraelsmenn séu ekki
eins góðir vinir Breta og áður.
Iiann sagðist ekki skilja, hvað
skrif blaða gegn honum ættu að
þýða, — en aðrir þykjast skilja,
að það sé miklum vafa undirorp-
ið, hvort hann sé heppilegur utan
ríkisráðherra, — og Wilson, for-
sætisPáðherra, er sagður í þeirrá
hópi. ’S
En Wilson forsætisráðherra fer
ekki varhluta af gagnrýninni. Á
honum hafa dunið þyngri og fleiri
ásakanir í neðri deildinni undan*
farnar vikur, en elztu menn
muna, að dembt hafi verið á svo
iháttsettann mann.
Það er því ekki að vita, hvernig
fer og hver sigrar að lokum.
Krug-er-garðurinn sem er í S-Afríku er friðlýst svæði fyrir alls konar
dýr. Það vill oft skapast umferðaöngþvéiti þar, þegar vegfarendur
stanza snögglega til að horfa á þennan liðuga fíl seðja hungur
sitt á safarikum blöðum marula-trésins