Alþýðublaðið - 22.07.1967, Blaðsíða 7
Hæsta og lægsta vöruverð
TIL ÞESS að almenningur eigi auðveldara með að fylgjast með
vöruverði birtir skrifstofan skrá yfir útsöluverð nokkurra vörutegunda
í Reykjavík eins og það reyndist vera 1. þ. m. Verðmunurinn sem
fram kemur á nokkrum tegundanna stafar af mismunandi innkaups-
verði og/eða mismunandi tegundum. Nánari upplýsingar um vöru-
verð eru gefnar á skrifstofunni eftir því sem tök eru á, og er fólk
hvatt til þess að spyrjast fyrir er því þykir ástæða til. Upplýsinga-
sími 'skrifstofunnar er 18-336.
MATVÖRUR OG NÝLENDUVÖRUR í JÚNÍ 1967.
22. júlí 1967 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ f
SKIPSTJÓRI nokkur, sem er á
einum af minni bátunum sem
gerðir eru út frá Reykjavík,
hringdi til mín og kvað það
ekki rétt að aðeins einn bátur
væri á trolli frá Reykjavík. Kvað
ihann þá þó nokkra og erfitt
væri að gera sér grein fyrir
hverjir væru á trolli og hverjir
á snurvoð. Skipstjóri þessi, sem
er búinn að vera lengi á þessu,
sagði að lítill vafi léki á því,
að fiskimagn væri alltaf minna
og minna frá ári til árs. Það
væri eingöngu aukinni tækni að
þakka að það er hér um bil hægt
að halda í horfinu.
Engin tafla er á vigtinni um
afla dragnótabátanna en fjórir
efstu bátarnir munu vera þeir
Þórarinnn Ólafsson, Valur, Ás-
björg og Jón Bjarnason. Kári
Sölmundarson er á skaiki og
landaði um 20 tonnum af stór-
ufsa um síðustu helgi, annars
hefur verið tregt. Hrönn ÍS er
enn á hrefnuveiðum og landaði
4,5 tonnum í vikunni.
Trollbátarnir fóru lítið út í
vikunni. Lítið liefur verið um
að vera hjá þeim sem stunda
síldveiðar hér sunnanlands. Þeir
hafa lítið fengið, 30—40 tonn
þegar skárst er. Ekki er að furða
þó þá langi ekki í sæluna austur
í hafi því árangur þar virðist
sáralítill enn sem komið er. Ég
skil ekkert í þeim þremenning-
um, sem boðið var á fundinn
fræga á Egilsstöðum að láta síld
ina vera í 7—800 mílna fjarlægð
frá Austfjörðum.
★ Togararair.
Ingólfur litli Arnarson land-
aði hér heima 311,7 tonnum á
mánudaginn og er þá sennilega
kominn fram úr Þormóði goða
hvað snertir aflaverðmæti frá
áramótum. Ingólfur var eini tog-
ari BÚR, sem skilaði beinum
hagnaði s. 1. ár eða um 1,5 millj.
Sami skipstjóri er búinn að vera
með hann í 15 ár, Sigurjón Stef-
ánsson, og er vissulega ástæða til
að óska honum til hamingju með
árangurinn, en svona hefur alla
tíð gengið hjá honum. Reykvík-
ingai' þakka honum fyrir öll þau
verðmæti sem hann hefur skap-
að og atvinnu þá sem hann hefur
aflað verkafólkinu í landi og
gerir enn. Ingulfur var lá heima-
miðum í þessari veiðifelrð. Hann
fór á veiðar á þriðjudagskvöld.
Hallveig Fróðadóttir er að landa
(20. júlí) um 160 tonnum eftir
12 — 13 daga útivist. Jón Þorláks
son er kominn með ca. 150 tonn,
Þormóður goði för á V.-Græn-
land og fékk um 50 tonn þar, en
flutti sig yfir á A.-Grænland og
þar var reitingsfiskirí. Þorkell
Máni er í véla- og lestarhreins-
un. Sigurður mun eiga að landa
á mánudag og er með rúm 200
tonn eftir 16—17 daga útivist.
Hann var á A.-Grænlandi en er
nú í Víkurálnum. Heyrt hef ég,
að Víkingur eigi að fara í breyt-
ingu eftir þennan túr og á að út-
búa hann á síldveiðar. Akureyr-
artogararnir gera það greinilega
nokkuð gott, þeir landa afla sín-
um heima og eru með um 150—
200 tonn í túr. Einn togari seldi
erlendis í vikunni, Marz RE
2043 kitt fyrir 9.129 sterlings-
pund. Erfiðlega hefur gengið að
losna við þorskinn í Englandi
og mun það stafa af einhverjum
erfiðleikum sem danskir fiskibát
ar eiga við að stríða í heima-
höfnum, en von er á mörgum
slíkum bátum til hafnanna í Eng
landi um þessar mundir með
þorsk. Hafa enskir sett þau skil-
yrði erlendum skipum, að á móti
hverju kitti af þorski komi eitt
kitt af einhverju öðru. Einnig
munu annir verkunarstöðva við
önnur verkefni, grænmeti, vera
þess valdandi að markaður er
ekki góður éins og er. Röðull
og Surprice eru í hreinsun í
Hafnarfirði til að vera klárir í
haust.
Meirihluti íhaldsins í borgar-
stjórn hrósar s^r nú um þessar
mundir ákaft af því að hafa ekki
lagt niður Bæjarútgerðina í des
ember s. 1. íhaldið ætti að festa
sér í minni eftirfarandi sögu
næst þegar því dettur í hug að
leggja togurum bæjarbúa.
Það var einu sinni lítið þorp
í Sviss, þar sem bjó nægjusamt
fólk en fátækt var mikil og at-
vinna sáralítil. Þorpsbúar skutu
því á ráðstefnu til að ræða hvað
mætti til úrbóta verða. Kom þar
fram sú tillaga að rétt væri að
þorpsbúar skytu saman í hótel
og athuguðu hvort ekki væri
hægt að laða ferðamenn til bæj-
arins. Þorpsbúar skutu saman og
komu hótelinu upp. Var síðan
ráðinn hótelstjóri, sem átti að
sjá um reksturinn. — Jú, þeim
þorpsbúum varð að ósk sinni,
því að ferðamenn streymdu til
þorpsins og líf færðist í atvinnu
þorpsbúa. — Bakarinn bakaði
brauðin fyrir hótelið, gullsmið-
urinn seldi ferðamönnum úr og
skartgrp., stúlkurnar framreiddu
matinn, pressarinn pressaði föt-
in ferðamannanna o. s. frv. All-
ir hognuðust þorpsbúar vel i
einni eða annarri mynd. Þar
kom, að hótelstjórinn lagði fram
reikninga hótelsins og sagði að
þetta væri ekki hægt lengur, því
að samkvæmt bókhaldinu, þeg-
ar afskíriftir væru reiknaðar, þá
væri tap á hótelinu og ekkert vit
Kr. Lægst Hæst
Hveiti í lausri vigt pr. kg ■ — 10.60 11,00
Haframjöl pr. kg — 10,30 10,35
Hrísgrjón pr. kg. — 14,35 17,60
Kartöflumjöl pr. kg ■■ — 9,90 12,20
Mjólkurkex pr. kg — 43,00 48,30
Kremkek pr. kg — 65,00 76;00
Strásykur pr. kg — 6,45 7,65
Molasykur pr. kg — 8,40 10,25
Suðusúkkulaði pr. kg — 185,00 200,00
Egg pr. kg — 85,00 100,00
Kjarnasaft V2 flaska — 24,60 28,10
Melroseste 100 gr. pk - — 21,00 22,25
Kakó V2 lbs. pakki — 19,95 22,80
Súputeningar pr. stk — 1,00 1,50
Hveiti í 5 lbs. pokum — 26,30 29,50
Ota — Sólgrjón 500 gr. pk — 8,10 8,20
Hrísgrjón 450 gr. pk — 8,55 11,65
Sagógrjón 400 gr. pk — 8,05 10,15
Cerebossalt 1,5 lbs. dós — 13,20 13,35
Royalgerduft 0,5 lbs. dós — 21,00 21,05
Tómatsósa Libbys 12 oz. glas ...... — 29,90 31,50
Súr hvalur pr. kg — 35,00 40,00
ÁVEXTIR, NÝIR OG ÞURRKAÐIR. Sítrónur pr. kg 38,00 42,00
Epli pr. kg •— 27,00 39,00
do. þurrkuð pr. kg — 80,00 173,00
Sveskjur pr. kg — 44,00 59,70
Rúsínur pr. kg — 42,40 49,50
Gular baunir 1 lbs. pk — 9,80 11,05
Tómatar pr. kg — 79,00 80,00
Bananar pr. kg — 42,00 44,00
Grænar baunir % dós frá Ora .... — 14,90 15,60
Niðursoðnar -perur 1/1 dós — 49,00 64,90
HREINLÆTISV ÖRUR.
Rinso þvottaduft pr. pk — 16,35 17,95
Gilette rakvélablöð 5 stk. pk — 37,50 39,00
Niveakrem millistærð pr. dós .... — 18,90 22,00
Kivvi skóáburður pr. dós — 13,00 13,25
Sunlightsápa pr. stk — 9,15 9,40
Lux handsápa pr. stk — 10,40 10,65
W.C. pappír Kodka 1 rúlla — 8,95 9,60
Vim ræstiduft — 12,75 14,10
Colgate - rakkrem, stór túba — 29,00 33,50
do. tannkrem — 24,25 27,25
í því að halda þessu áfram. Ekki
líkaði þorpsbúum þetta og skutu
því saman á ráðstefnu um hvað
gera ætti, því engan langaði í
fyrra ástand. Á ráðstefnu þess-
ari kom í ljós að allir höfðu
næga vinnu og högnuðust og
vildu fyrir hvern mun halda í
horfinu. Var nú samþykkt á
fundinum að hver legði ákveðna
upphæð af mörkum og var það
gert og hið bókfærða tap þar
- með lagfært. Allir undu glaðir
við sitt og hótelið var starfrækt
áfram.
Sagan um hótelið er að cndur-
taka sig víða og m. a. 'hér í
Reykjavík í sambandi við BÚR.
Allir vita hver er okkar „hötel-
stjóri“ og öll vitum við að næsta
ráðstefna okkar borgarbúa »eru
næstu borgarstjórnarkosningar,
því þar kemur fram það tráust
sem Reykvíkingar bera til þeirra
sem leggja vilja niður fyrirtæki
Reykvikinga.
Pétur Axel Jónsson.