Alþýðublaðið - 30.04.1968, Side 3
Þrír ættliðir samankomnir í skrifstofu Magnúsar G. Guðnasonar,*
Steiniðju s.f. Frá Vinstri: Geir Magnússon, Magnús Ársælsson,,
Ársæll Magnússon og Knútur Magnússonr Á’ borðinu er höggmynd
af stofnanda fyrlrtækisins Magnúsi G. Guðnasyni.
Steinsmíðaverkstæði
Magnúsar G. Guðnasonar
fluít í ný húsakynni
Magnús G. Guðnason, stein-
smíðaverksteeði, sem starf-
rækt hefur verið að Grettis-
götu 29 síðan. skömmu eftir
aldamót, hefur nú flutt starf-
semi sína að Einholti 4. Ber
fyrirtækið nú nafnið Magnús
G. Guðnason Steiniðja s.f.
Steinsmíðaverkstæðið hefur
nú starfað í um 75 ár. Var það
stofnað af Magnúsi G. Guðna-
syni árið 1893, en hann hlaut
menntun sína sem steinsmiður,
við byggingu Alþingishússins
á árunum kringum 1880. Verk
stæðið hóf starfsemi sína að
Laugavegi 48, en var flutt að
Grettisgötu 29, þar sem það
starfaði þar til nú. Magnús
starfrækti verkstæði sitt þar
lil nokkru áður en hann tézt,
en þá tóku synir hans, þeir
Ársæll og Knútur Magnússyn-
ir, steinsmiðir, við rekstrinum
og starfrækja verkstæðið nú.
Að sögn þeirra bræðra hef-
•ur vélvæðingin haft mikil á-
hrif á iðngreinina, sem telja
aná eina hina elztu í heimi,
og veldur vélvæðingin stór-
auknum vinnuafköstum.
Stærsti þáttur starfseminnar
er legsteinasmíði, en á síðari
árum hefur ýmiss konar vinna
varðandi húsbyggingar farið í
vöxt hjá fyrirtækinu.
Má þar nefna gerð stiga, sqI-
bekkja o.þ.h.
Mest er unnið úr íslenzku
grágrýti, en einnig er nokkuð
unnið úr innfluttu graníti og
marmara.
Fyrirtækið hefur byget hið
nýja hús við hús, sem byggt
var af fyrirtækinu árið 1939,
en síðan þá hefur verið unnin
þar meiri háttar vélavinna.
Þess má geta, að auk bræðr-
anna Ársæls og Knúts, vinnur
isonur Ársæls, Magnús, við fyr
irtækið, en þriðji bróðirinn,
Geir, starfaði þar um árabil,
en er nú hættur störfum vegna
vanheilsu.
Sjónvarpsfélag
í Skagafirði
Mikill áhugi er nú meðal
Skagfirðinga fyrir komu sjón-
varps hingað og hafa nokkrir
áhugamenn ákveðið að boða
til stofnfundar Félags sjón-
varpsáhugamanna í Skagafirði
n.k. föstudag, 3. maí kl. 9 e.h.
að félagsheimilinu Bifröst á
Sauðárkróki.
Tilgangur félagsins er m.a.
allra fyrst verði hægt að taka
sjónvarp í notkun í Skagafirði,
að beita sér fyrir því að sem
semja um sem hagkvæmust
kaup og uppsetningu á tækj-
um og tryggja félagsmönnum
trausta og örugga varahluta-
og viðgerðarþjónustu.
ÞJOÐBUNINGASÝNENG
f BOGASAL I HAUST
Margir þekkja ekki lengur mun á upp-
hlut, peysufötum og skautbúningi
Þjóðbúningasýning verður
haldin í Bogasalnum í Þjóð-
minjasafninu í haust og í sam
bandi við liana verður getið
út kynningarrit um íslenzka
þjóðbúninga. Verður sýningin
haldin tjl þess að vekja áhuga
almennings á íslenzkum þ.jóð-
búningum og fræða fólk um
búúing'ana, svo 'að það geti
síðan sjálft rætt um þá og kom
ið með tiUögur um hvaða
stefnu skuli taka í því skyni
að efla notkun íslenzkra þ.jóð-
búninga. Mun ekki af fræðslu
veita því að þeim fer nú fækk-
andi, sem bera íslenzkan bún-
ing daglega og margir eru alls
endis ófróðir um íslenzka bún
inga og þekkja ekki mun á
unphlut, peysufötum og skaut
búningi.
Magnús Pálsson, Myndlista- og
handíðaskóla íslands.
Matthildur Guðmundsdóttir,
Þjóðdansafélagi Reykjavíkur.
Formaður nefndarinnar fyrir
hönd Æskulýðssambandsins er
Björn Th. Björnsson, en auk þess
eru í nefndinni Ragnar Kjartans-
Framhald á 14. síðu.
Upphaf þess áð þjóðbúnings-
málið, eins og það hefur verið
kallað, komst á dagskrá var á-
varp sem þing Æskulýðssam-
bands íslands sendi frá sér í
fyrravor. Hvatti það þar til efl-
ingar þjóðarvitundar og varð-
beizlu þjóðlegra sérkenna eða
aðlögunar þeirra og benti á' að
íslenzki þjóðbúningurinn yrði
senn lítið annað en safn- og
kistugripur ef ekki væri tekið í
taumana. Þyrfti að leita eftir
hugmyndum um breytingar þann-
ig að búningarnir yrðu meira
við hæfi nútímakvenna. Var síð-
ar á árinu stofnuð nefnd til að
ræða framííð íslenzka þjóðbún-
ingsins og sitja í henni eftirtald-
ir aðilar:
Herdis Jónsdóttir Félagi handa-
vinnukennara.
Dóra Jónsdóttir, Félagi gull-
smiða.v
Friðrika Geirsdóttir, Félagi ís-
lenzkra teiknara.
Arnheiður Jónsdóttir, Heimilis-
iðnaðarfélagi íslands.
Sigríður Thórlacius, Kvenfélaga
sambandi íslands.
VELJUM ÍSLENZKT
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
Með því að kaupa íslenzkar
iðnaðarvörur stuðlið þér að
aívinnuöryggi og aukinni
velmegun í landinu.
Gerið þér yður Ijóst,
að ef sérhver Islendingur kaupir
innlendar iðnaðarvörur fyrir kr.
1000 í staðinn fyrir erlendar, þá
skapast við það atvinna fyrir 300
manns í iðnaðinum.
ástmar
30. apríl 1968
ALÞÝDUBLADIÐ 3