Alþýðublaðið - 14.06.1968, Page 4
Mmí&t
'mm
•v.
Wmm
, , : . .
mmmm.
pliÉifslí
WMmm
GENGUR
FYRIR
RAFMAGNI
GAMALT LYF
NÝJAR VONIR
Geðlæknir nokkur við háskól-
ann í Pittsburgh staðhæfir, að
hann hafi komizt að raun um,
hvernig hefta megi algengustu
orsök hrörnunarsjúkdóma.
Á síðasta þingi bandarískra
geðlækna gerði dr. Arthur
Walsh grein fyrir niðurstöðum
tilrauna, sem hann hefur unnið
að að undanfarin fjögur ár.
Hann skýrði frá mörgum dæm-
um þess, að hrörnunarsjúklingar
hefðu fengið fulla bót meina
sinna, eftir notkun blóðþ.ynning
arlyfja, sem almennt eru gefin
fólki, sem fengið hefur heila-
blóðfall.
Eitt dæmið var um 66 ára
gamla konu, sem hafði misst svo
getuna til að stjórna líkamsstarf
seminni, að ættingjar hennar
sáu sér ekki annars úrkosta en
að senda hana á hæli. Henni
hafði stöðugt farið aftur í rúm-
lega þrjú ár, en efíir aðeins fjög
urra vikna inngjöf blóðþynning
arlyfja hafði hennj farið svo
mjög fram, að hún varð brátt
fær um að halda heimili á nýjan
leik.
Önnur kona var svo langt
leidd, að hún hélt hvorki saur né
þvagi, og gat ekki matazt hjálp
arlaust. Eftir að henni hafði ver
ið gefið blóðþynningarlyfið Dic
umarol, sem dr Walsh notaði við
ailar tilraunir sínar, öðlaðist
hún brátt vald á blöðrunni og
gat borðað hjálparlaust, þó að
ekki næði hún það góðri heilsu,
að hún gæti farið af sjúkrahús-
inu. „Meðferðin var samt til mik
illa bóta, þar sem hún gerði
henni lífið mun bærilegra og
auðveldara var að annast hana
eftir en áður, sagði dr. Walsh.
Discumarol og önnur skyld lyf
hafa um árabil verið gefin hjarta
sjúklingum, og dr. Walsh hefur
mikinn áhuga á að vita, hvort
þeir sjúklingar séu ónæmari fyr
ir hrörnunarsjúkdómum en aðrir.
Hann er þeirrar skoðunar, að
sömu orsakirnar leiði til hrörn
unarsjúkdóma og heilablóðfalls,
og því megi vænta þess, að þessi
meðferð komi að gagni í báðum
tilfellum.
Dr. Walsh hefur beitt með-
ferð sinni við 30 sjúklínga, á
aldrinum 56—83 ára. Hjá þeim
öllum stöðvaðist hrörnunarþró-
unin, og flestir tóku það miklum
framförum, að þeir urðu sjálf-
bjarga á ný.
Blóðþynningarlyf geta haft
vissa hættu í för með sér. Stund-
um valda þau blæðingum, og
því eru þau ekki ráðleg í öllum
tilfellum. Einnig verður að hafa
strangt eftirlit með notkun
þeirra, og dr. Walsh leggur á
það áherzlu, að þau vinni ekki
nein kraftaverk á sjúklingum,
Framhald á 14. síðu.
Curd Júrgens á götu í Róm ásamt eiginkonu sinni, Simone
Bicheron, skömmu eftir velheppnaðan hjartauppskurð.
Síðustu fimmtán mánuðina hef
ur hinn frægi þýzki leikari Curd
Jurgens átt tilveru sína að
þakka eins konar rafhlöðu, sem
komið hefur verið fyrir í hjarta
hans.
Jafnvel nánustu vinir kvik-
myndaleikarans hafa ekki haft
hina minnstu hugmynd um, að
liann væri alvarlega sjúkur. Það
hefur verið á margra vitorði, að
hann hefur undanfarið mjög oft
heimsótt hjartarannsóknarstofn-
un. Hefur hann látið að því
liggja, að hann væri í rannsókn,
en í hópi kunningja hans hafa
menn litið á þetta sem hverja
aðra móðursýki, þangað til sú
frétt síaðist út, að Curd Jurg-
ens hefði fyrir um það bil hálfu
öðru ári gengizt undir hjartaupp
skurð í Houston í Bandaríkjun-
um. Fylgdi það sögunni, að skurð
læknirinn, prófessor de Bakey,
hefði sett rafhlöðu inn í hjarta
hins fimmtuga leikara.
Ef ekki hefði verið gripið til
þessarar aðgerðar, hefði Curdi
Jurgens aðeins átt fáein ár eftir
ólifað.
BORG A HAFI ÚTI
Þegar landrými þrýtur tekur hafið v/ð
Það fer ekki milli mála, hvert
stefnir. Mannfólkinu fjölgar
jafnt og þétt. í framtíðinni verð
um við vafalaust knúin til að
leita á náðir hafsins, bæði í leit
að fæðu og olnbogarými.
Þegar litið er á hina uggvæn
legu fólksfjölgun í heiminum, er
ekki óeðlilegt, að upp í hugann
komi óravíddir hafsins. Hvorki
meira né minna en þrír fjórðu
hlutar af yfirborði jarðar eru
undir vatni. E£ hægt væri að
beizla þessi svæði og nýta þau til
framleiðslu nauðsynja, mundi
um langa framtíð vera nóg rými
og fæða handa öllum jarðarbú
um. Sjávarborgir (gea City) er
enn sem komið er aðeins hug
mynd, sem mótuð hefur verið í
gler og stein, en hún er þó fyrsta
ákveðna tiliagan um „landnám“
hafsins.
Með því að koma á fót litlu
samfélagí langt á hafi úti verður
gerlegt að taka upp nýja atvinnu
vegi, fullyrða sérfræðingar, svo
sem fiskirækt og iðnaði, sem
vinnur úr frumefnum sjávar.
Af þessari hugmynd hafa unn
ið fremstu arkitektar og verk-
fræðingar Breta. Tæknilega séð
er ekkert því til fyrirstöðu að
Sjávarborg — eyja gerð af
mannahöndum, þar sem búið
geta 30 þúsund manns. Kjarni
. bæjarins er 16 hæða bygging á
stólpum, sem umlykur stöðu-
vatn, er þannig myndast og
verður hitað upp með umfram-
varmá frá iðnfyrirtækjum bæj-
arins.
borgirnar verði sjósettar, en
ekki eru líkur á því að svo verði
gert fyrr en eftir a. m. k. hálfa
öld.
FRÁBÆR
ENDING
Síld smyglað
— Það er fleiru smyglað en
brennivíni og eiturlyfjum. Ný-
lega komst upp um smygl hjá
sænskum kaupmanni og bar-
þjóni á síld frá Noregi yfir til
Svíþjóðar. Þeir höfðu komið 150
fötum af síld um borð í bíl og
var ætlunin að selja síldina á
nokkrum veitinglastöðum í
Stokkhólmi. Þeir ráðgerðu að
græða 18 sænskar krónur á
hverri fötu.
HE YRT
SÉÐ
.......... ■ ... ■■■
4 14. júní 1968 —
ALÞYÐUBLAÐIÐ