Alþýðublaðið - 14.06.1968, Page 7
KRISTJAN BERSI OLAFSSON
Einn sólbjartan vordag fyrir fáeinum vikum heim-
sóttum við, nokkrir íslenzkir blaðamenn, aðalstöðv-
ar Efnahagsbandalags Evrópu í Briissel. Bandalagið
hefur aðsetur miðsvæðis í horginni, og það er greini
legt af húsaltynnum þess að þarna er um mikla
stofnun að ræða. Raunar eru húsin mörg, sem banda
lagið hefur til afnota, en aðalbygging samtakanna
hefur enn ekki verið tekin í notkun nema að hluta.
Það er gífurlega mikil bygging, þríarma, og í dag
legu tali manna á meðal nefnd Flugvélamóðurskip-
ið.
Brussel er frönskumælandi
borg í flæmsku landi, og stöð
ugt- að verða alþjóðleg í aukn
um mæli: Atlanzhafsbandalagið
hefur aðaistöðvar sínar í borg
inni, eftir að því var ekki vært
iengur í Frakklandi, og ekki
mjög langt utan við borgina
eru aðalstöðvar Evrópuher-
stjórnar bandalagsins. Og í
• Brussel hefur Efnahagsbanda
lagið aðsetur sitt, enda tala
Belgíumenn gjarna á þá lund
að Brussel sé væntanleg höf
uðborg sameinaðrar Evrópu.
Okkur voru sýndir nokkrir
fulltrúar og starfsmenn banda
lagsins, og okkur var skýrt
' frá fiskveiðistefnu og landbún
aðarstefnu og. lesnar upp fyrir
okkar tölur um hitt og þetta.
en á endanum kom þó tali okk
ar þar niður, hver væru hin
eiginlegu lokamarkmið banda-
lagsins. Og það fer ekki leynt
að meginhugsunin bak við Efna
1 hagsbandalagið er ekki ein-
ungis efnahagsleg samvinna,
heldur er stefnt að pólitískri
sameiningu aðildarlandanna,
myndun Bandaríkja Evrópu.
Afstaða Frakka nú í málefn-
um bandalagsins gerir það að
vísu óhugsandi að neitt mjak
ist frekar í þá átt á þessu ári
eða því næsta, en eins og þeir
efnahagsbandalagsmenn bentu
á, þá er hershöfðinginn ekki
almáttugur, þótt máttugur sé,
og eilífur verður hann ekki
frekar en aðrir dauðlegir
menn. Og að því hlýtur að
koma að Frakkar átti sig á
því, að framtíð þeirra liggur
í samvinnu við önnur Evrópu
ríki, þar með talið Bretland,
en ekki í andstöðu við þau.
Biætar fá ekki aðild að banda
laginu, meðan Frakkar halda
fast við núverandi stefnu, og
þar til Bretar fá inngöngu bæt
ast aðrar þjóðir, eins og til
að mynda Norðurlandaþjóðirn
ar, ekki í hópinn. Eins og
margoft hefur verið tekið
fram í fréttatilkynningum og
Nýja skrifstofuhúsið' í Briissel,
ræðum stjórnmálamanna, þá
er ekki að búast við stækkun
bandalagsins alveg á næstunni
en þó er eins og engum bland
ist hugur um það að einhvern
tímann muni bandalagið ná til
allrar Vestur-Evrópu. Okkur
var bent á það í Brussel, að
Bretar fengju aðild að banda-
laginu; hjá því gæti ekki far
ið að innan fárra ára yrði
Þýzkaland orðið langvoldug
asta aðildarríkið efnahagslega
og Frakkar þyrftu á Bretum
að halda ef koma ætti í veg
fyrir að þessara yfirburða
Þjóðverja gætti um of í störf
um bandalagsins. Til þess að
viðhalda hæfilegu jafnvægi
í stofnun eins og Efnahags-
bandalaginu þurfa stórveldin
í stofnuninni nefnilega að vera
fleiri en tvö; þau þurfa að
vera þrjú til þess að ekkert
eitt þeirra geti borið höfuð og
herðar yfir hin.
Þróunin stefnir sem sé í þá
átt að ríkjum Efnahagsbanda
lagsins fjölgi áður en mjög
langt líður, og jafnframt er
grundvallarhugsjón bandalags-
ins, sameining Evrópu haldið lif
andi. Og það eru margir sann-
færðir um að sú hugsjón muni
líka rætast með tímanum. ekki
Framhald 10. síðu.
ENN EINU SINNI
...eru það M*A*N vélar sem krsýja
áfram forystuskip í íslenzkum
skipaflota
Hið glæsilega varðskip „ÆGIR”
er útbúið tveimur MA*N diesel
aSalvélum og hjálparvél.
MEIRI HRAÐI - MEIRA ÖRYGGI -
M a n DIESEL
Ólafur Gíslason & Co. Hf.
Ingólfsstræti la — Sími 18370
14. júní 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ J