Alþýðublaðið - 14.06.1968, Blaðsíða 10
o o [) SMÁAUGLÝSINGAR
Tek föt
til viðgerðar. Ekki kúnststopp.
Uppl. síma 15792 daglega fyrir
hádegi.
Steingirðingar,
svalarhandrið,
og blómaker.
MOSAIK H.F.
Þverholti 15. Sími 19860.
Notað, nýlegt, nýtt.
Daglega koma barnavagnar,
kerrur burðarrúm, leikgrind
nr, barnastólar, rólur, eið
hjól, þríhjól, vöggur og fleira
fyrir börnin, opið frá kl.
9-18,30. Markaður notaðra
barnaökutækja, Óðinsgötu 4,
sími 17178 (gengið gcgnum
undirganginn).
Brúðarkjólar til leigu.
Stuttir og síðir, hvítir og mis
litir brúðarkjólar til leigu.
Einnig slör og höfuðbúnaður.
Simi 13017.
ÞÓRA BORG,
Laufásvegi 5.
Teppaþjónusta
WILTON-teppi
Útvega glæsileg, íslenzk Wilt-
on teppi, 100 % uil. Kem heim
með sýnishorn. Einnig útvega ág
ódýr, dönsk ullar og sisal.teppi
I flestar gerðir bifreiða. Annast
snið og lagnir svo og viðgerðir.
Daníel Kjartansson, Mosgerði 19.
Sími 31283.
Sjónvarpsloftnet
Tek að mér uppsetningar, við
gerðir og breytingar á sjón-
varpsíoftnetum (einnig útvarps
loftnetum). Útvega allt efni ef
óskað er. Sanngjarnt verð. 1
Fljótt af hendi leyst. Simi 16541
kl. 9-6 og 14897 eftir kl. 6.
Valviður — sólbekkir
Afgreiðslutími 3 dagar. Fast
verð á lengdarmetra. Valviður,
smíðastofa Dugguvogi 5, sími
30260. . Verzlun Suðurlands-
braut 12, sími 82218.
Allar myndatökur
hjá okkur.
Einnig ekta litljjsmyndir. Endur
nýjum gamlar myndir og stækk
um.
I.jósmyndastofa
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR,
Ökukennsla,
æfingartímar.
Kennt á Volkswagen.
ÖGMUNDUR STEPHENSEN.
Sími 16336.
HABÆR
| Höfum húsnæði fyrir veizlur og
; fundi. Sími 21360.
Alls konar viðgerðir
og breytingar á rörum,
hreinlætistækjum, þétting
á krönurti og margt fleira.
Sími 30091.
Pípulagnir —
Pípulagnir
Tek að mér viðgerðir, breyting.
ar, uppsetnlngu á hreinlætis-
tækjum.
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON,
Grandavegi 39. _ Sími 18717.
Málningarvinna
Tek að mér utan- og innanhúss.
málun.
HALLDÓR MAGNÚSSON
málarameistari. Sími 14064.
Enskir rafgeymar
Úrvals tegund, L. B., London-
Battery fyrirliggjandi. Gott
verð. Lárus Ingimarsson, heild-
verzlun Vitastíg 8 A. Síml
16205.
Til sölu
litfaðrar steinflögur, til
veggja, gólf og arinskreytinga.
Flísalegg baðhérbergi. Upplýs.
ingar í síma 52057.
Opið frá kl, 6
að morgni.
Caféteria, grill, matur allan dag
inn. — Súkkulaði, kaffi, öl, smurt
brauð, heimabakaðar kökur. —
Vitabar, Bergpórugötu 21, sími
18408.
Töskukjallarinn —
Laufásvegi 61, sími 18543, sel.
ur: Innkaupatöskur, íþrótta-
töskur, unglingatöskur, poka.
I 3 stærðum og Barbi-skápa.
Mjólkurtöskur, verð frá kl.
100..
TÖSKUKJALLARINN,
Laufásvegi 61.
Lóðastandsetningar
Standsetjum og girðum lóðir o.fl.
Sími 11792 og 23134 eftir kl. 5.
Verzlunin
Silkiborg auglýsir
Nýkomið smáköflótt og einlitt
terelyne, dömupeysusett og
blússur fallegt og ódýrt, galla
buxur, peysur, nærföt og sokk-
ar á alla fjölskylduna, smá.
vara og ullargarn í úrvali.
VERZLUNIN SILKIBORG,
Dalbraut 1 v/KIeppsveg, sími
34151 og Nesvegi 39, slmi 15340.
Einangrunargler
Tökum að okkur ísétningar á ein-
földu og tvöföldu gleri.
Útvegum allt efni.
Einnig sprunguviðgerðir.
Leitið tilboða í símum.
52620 og 51139.
Kvikmyndavél
Fuglabúr
KVIKMYNDATÖKUVÉL
BROWN og flash, til sölu.
Einnig stórt glæsilegt fuglabúr
(1 m.) ásamt 4 fuglum.
Uppl. í síma 33736, millí
kl. 1-3 í dag og næstu daga.
14. júní 1968 - ALÞÝÐilBLAÐIÐ
AðalstöSvar EBE
Framhald af 7. síðu.
kannski á næstu tíu árum, en
Irúlega á næstu liundrað ár-
um eða jafnvel skemmri tíma.
Ef þetta gerist, ef Evrópa sam
einiast pólitískt í eitt ríki, hlýt
um það að gjörbreyta öllum við
horfum í okkar hluta heims og
raunar í öllum heiminum. A
hvem veg þær breytingar vrðu
er auðvitað einungis hægt að
ráða í með mismunandi mikl
um líkum, en þessi framtíðar-
sýn ætti skilyrðislaust að vera
rædd fram og aftur í öllum
þeim löndum, sem hún skiptir
nokkru.
Erlendis hafa líka átt sér
stað talsvert miklar umræður
um framtíð Evrópu og hugsan-
lega sameiningu álfunnar Hér
á landi liefur lítið verið á betta
minnzt í opinberum umræðum,
og þó hlýtur framvinda þessara
mála að skipta okkur mjög
miklu. Við hljótum að spyrja,
hver verði okkar aðstaða og
hver verði okkar afataða, ef
Evrópa sameinast. Getum við
staðið álengdar og horft á þá
þróun, sem er að gerast, án
þess að straumurinn hrífi okk
um með sér? Getum við í okkar
fámenni haft nokkur áhrif á
þessa þróun? Hvennig stöndum
við að vígi efnahagslega og póli
tískt, ef Evrópa rennur saman
í eitt ríki og við verðum eftir
sem örsmár dvergur mitt á
milli tveggja risa, Bandaríkja
Norður-Ameríku og Bandaríkja
Evrópu? Gæti þá ekki farið svo
að okkar eina hlutskipti verði
að svara þeirri spurningu, hvort
við viljum heldur telja okkur
Evrópumenn eða Ameríkana?
hetta eru aðeins nokkrar
þeirra spurninga, sem vakna,
þegar hugsað er um framtíð
Evrópu og hlu'tverk okkar og
aðstöðu í heiminum. Og þetta
eru mál sem auðvitað á að ræða
feimnisiaust á opinberum vett
vangi. Það hefur þó lítið sem
ekkert verið gert hérlendis, og
ástæðan er sjálfsagt að einhverju
leyti sú, hve tilfinningarhiti
biandast auðveldlega inn í allar
opinberar umræður hér. Ef ein
hver léti sér það um munn fara,
að þróun tímans ynni gegn okk-
ur, að smáríki hlyti stöðugt að
eiga erfiðara með að lialda fullu
pólitísku siáifsfnrræði í heimi,
sem stefnir óðfluga að myndun
stærri ríkisheildar, ríkja sem
ná yfir heilar heimsálfur, þá
verða alltaf nógir til að rísa upp
og segja: landráðamaður! Þú
hefur misst trúna á getu okkar
(til isjálfstæðis og vilt afsala
okkur fullveldiinu sem allra
fyrst! En auðvitað væri þama
ekki um neitt slíkt að ræða,
heldur einungis verið að bendá
á sögulega þróun sem er að ger
ast allt umhverfis okkur og við
verðum að liorfast í augu við
og taka tillit til í hugsun okkar
og viðbrögðum, hvort sem okk
ur kann að líka betur eða verr.
Við getum ekki lokað okkur inni
í skel og látið eins og við vit-
um ekki hvað er að gerast um-
hverfis okkur.
En víkjum nú sögunni afitur
til Briissel. Fyrsti maðurinn sem
við félagar vorum leiddir fyrir
var Simonnet, fjörlegur Frans-
maður sem talaði við okkur með
aðstoð túlks. Hann skýrði fyrir
okkur stefnu bandalagsins f fisk
veiðimálum og lagði á það tals
verða áherzlu að Efnahagsbanda
lagið gerði alls ekki ráð fyrir að
verða sjálfu sér nógt um fisk
framleiðslu. Fiskneyzlan í lönd-
um bandalagsins gæti aukizt
mikið frá því sem nú væri, og
þeirri aukingu ætlaði bandalagið
að mæta bæði með aukinni fisk
framleiðslu í aðildarlöndunum
og með auknum innflutningi.
Það væri útilokað að bandalags
löindin sjálf gætu aukið fram-
leiðsluna eins mikið og búizt er
við að neyzlan aukist; til þess
þyrfti að margfalda veiðiflota
landanna á skömmum tíma, og
þar að auki yrði mjög erfitt eða
ógerlegt að fá menn á öll þau
skip, Hjá því gæti þess vegna
ekki farið að fiskinnflutningur
til bandalagsríkjanna ykist mik
ið á næstu árum.
Næst hittum við Belgíumann,
Andressen, og viðstaddur við-
tal hans við okkur var blaðafull
trúinn, sem hafði það hlutverk
að sjá um að heimsókn okkar til
bandalagsins yrði lærdómsrík
fyrir okkur; sá var amerískur
að þjóðerni, Steve Freidberg að
nafni. Samtal okkar við bá fé-
laga var að vissu leyti enn ó-
formlegra en viðræður okkar
við fiskimálasérfræðingmn. og
þótt Andressen hefði verið ætl
að það hlutverk að segja okkur
einkum frá utanríkismálum
bandalagsins, þá snerist tal okk
ar ekki síður um innanríkismál-
in, og þá var fljótlega komið að
því framtíðarmarkmiði EBE,
sem vikið var að hér að fram
an. En fleira bar þó á góma.
Það kom í ljós að eitt megin
vandamál bandalagsins núna eru
landbúnaðarmálin. Eins og víð
ar er landbúnaðurimn í Efna-
hagsbandalagslöndunum sums
staðar illa rekinn, búin of smá
og framleiðni atvinnugreinarinn
ar ekki eimis mikil og annarra at
vinnuvega. Þetta þýðir að verð
á landbúnaðarvörum verður ó-
eðlilega hátt og þær seljast
ekki. Okkur var sagt að smjör-
fjall landanna sex væri nú 180
þúsund tonn, og við það bættust
um 70 þúsund tonn á ári. Það
verður lítið úr smjörfiallinu
okkar sem frægt var fyrir fáéiin
um árum við hliðina á þessum
ósköpum.
Bandalagið hefur ýmislegt
gert til að reyna að bæta úr
þessu, og meðal annars hafa ver
ið gerðar tilraunir með sam-
vinnubú, sem hafa gefizt vel, til
að mynda í Hollandi. En mér
virtist að munurinn á þeim
bandalagsmönnum og okkur hér
heima, - en við eigum líka við
þetta sama vandamál að stríða,
óhagkvæman landbúnað -. værl
einkum só, að í Efnahagshanda
laginu er viðurkennt að barna
sé vandamál á ferðimmi og reynt
að finna leiðir til að leysa það,
en hér ætla allir vdltláiusir að
verða ef á það er minnzt og
meira að segja gerður út heill
stjórnmálaflokkur til að halda
því fram að landbúnaður okkar
sé til fyrirmyndar og þar megi
engu hagga.
Fleiri Efnahagsbandalagsmenn
hittum við ekki, og viðstaða okk
ar í höfuðstöðvum bandalags-
ins var ekki löng, aðeins ein
morgunstund. En þó held ég að
við höfum farið þaðan út tals-
vert fróðari en við komum inn.
Og einkum og sér í lagi var það
lærdómsríkt að finna hve lifandi
Evrópuhugsjónin var í þessari
bvggingu, sú ihugmynd að
Evrópa gæti ekki til lendar stað-
izt sundruð í mörg tiltöiulega
smá ríki, heldur hlyti. hún að
sameinast í eitt stórveldi.
SOKKABUXUR
hvítar og mislitar.
Leddys
U fc>Ciöfr%
Laugavegi 31.
„Allir þeir“
er nota eitruð efní til úðunar á trjágörðum, skulu gæta
fyllstu varúðar í meðferð slíkra efna. Skal þeim skyit að
festa upp á áberandi stað við hvern garð, sem úðaður er,
prentaðar leiðbeiningar með nauðsynlegum varúðarreglum.
Jafnframt skal öllum íbúum viðhomandi húss gert viðvart
áður en úðun hefst, svo og íbúum aðliggjandi húsa.
Um brot gegn þessu fer eftir 11. gr. laga nr. 24. 1. febr 1930,
Borgarlæknir.