Alþýðublaðið - 14.06.1968, Blaðsíða 11
i
rítstj. örn ÍK.I p^&TTI P
EIÐSSON |P Kw 1 1IK
Unglingalandsliðið
hefur verið valið
Norðurlandamót unglinga i
knattspyrnu í Rvík. 8.-10. júlí
Svo sem kunnugt er fer knatt
spyrnumót Norðurlanda fyrir
unglinga 18 ára og yngri fram
hérlendis dagana 8.-13. júií.
Öll Norðurlöndin taka þátt í
mótjnu, auk þess sem lið frá
Póllandi leikur, sem gestur.
Leikirnir fara fram í Laugar
dal, í Keflavík og á Akranesi.
Unglinganefnd KSÍ hefix
haft uppi mikinn undirbúning
að keppni þessari. Upphaflega
voru valdir 53 leikmenn og
hafa þeir verið á vegum nefnd
arinnap við æfingar. Endan-.
lega voru svo valdir úr þess-
um hópi 18 leikmenn, og verð
ur landsliðið síðan valið úr
þeim. En þeir eru þessir:
Sigfús Guðmundsson, Víking,
Þorsteinn Ólafss. ÍBK, Sigurð-
ur Ólafsson, Val, Jón Péturs
son Fram, Magnús Þorvalds-
Víking, Sverrir Guðjónsson,
Val, Rúnar Vilhjálmsson, Fram,
Marteinn Geirsson, Fram,
Pálmi Sveinbjörnsson, Haukar,<®-
Þór Hreiðarsson, Breiðablik,
Björn Árnason, KR, Óskar Val
týsson, ÍBV, Tómas Pálsson,
ÍBV, Friðrik Ragnarsson, ÍBK,
Snorri Hauksson, Fram, Helgi
Ragnarsson, FH, Ágúst Guð-
mundsson, Fram og Kári Kaab
er, Víking.
Ýmsir æfingaleikir hafa ver
ið leiknir, við KR, Breiðablik,
FH, Hauka, Selfossliðið o.fl.
Lokaþáttur æfingaleikjanna
verður 17. júní en þá leikur
liðið við Vestmannaeyinga í
Vestmannaeyjum síðan við
Fram og loks við B-landsliðið
á Laugardalsvellinúm 28. júní
n.k.
Undirþúningur allur af hálfu
unglinganefndarinnar hefir
verið góður og vel skipulagð-
ur og margþætt starf unnið.
Dvalið hefir verið í æfingá
búðum m.a. að Reykholti og
víðar. Að öllu þessu athuguðu,
má vænta góðs árangurs af
unglingalandsliðinu.
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, efnilegur stökkvari.
Drengjamótið háð
í óhagstæðu veðri
Drengjameistaramót Reykja-
víkur í frjálsum íþróttum hófst
í fyrrakvöld á Laugardalsvell-
inum í óhagstæðu veðri, s.
austan hvassviðri og rigningu.
Þátttaka var allgóð í nokkr-
um greinum en óneitanlega
settu hin óh^gstæðju veður-
skilyrði sinn svip á mótið.
Ekki heur enn verið ákveðið
hvenær keppni fer fram í þeim
greinum, sem ólokið er.
Helztu úrslit:
110 m. grindahlaup:
Hróðmar Helgason, Á, 17,4 sek.
Borgþór Magnússon, KR, 18,4
Ágúst Þórhallsson, Á, 21,1
Gestur:
Jón Þórarinsson, ÍBV, 19,5.
100 m. hlaup:
Rúdolf Adolfsson, Á, 12,3 sek.
Finnbj. Finnbjörnsson, ÍR, 12,4
Þorvaldur Baldursson, KR, 12,6
Hannes Guðmundsson, Á, 12,7
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 13,3
Einar Þórhallsson, KR, 13,3.
Báðar þessar vegalengdir
voru hlaupnar í sterkum mót-
vindi.
400 m. lilaup:
Rúdolf Adolfsson. Á. 57,6
Þórarinn Sigurðsson, KR. 62,4
Hinrik Þórhallsson, KR, 62,9.
1500 m. hlaup:
Þórarinn Sigurðsson, KR, 5:29,4
mín.
4x100 m. boðhlaup:
Sveit Ármanns, 49,2 sek.
Sveit KR 54,5.
Langstökk:
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 6,08
m.
Finnbj. Finnbjörnss., ÍR, 5,87
m.
Hinrik Guðmundsson, Á, 5,85
Skúli Arnarson, ÍR, 5,75 m.
Einar Þórhallsson, KR, 5,59 m»
Elías Sveinsson, ÍR, 5,58 m.
Hástökk:
Elías Sveinsson, ÍR, 1,75 m.
Stefán Jóhannsson, Á, 1,70 m.
Ágúst Þórhallsson, Á, 1,65 m.
Kúluvarp:
Guðni Sigfússon, Á, 13,19 m.
Ásgeir Ragnarsson, ÍR, 12,87 m.
Bergþór Einarsson, Á, 12,44 m„
Stefán Jóhannsson, Á, 11.78 m.
Grétar Guðmundsson, KR, 11,29
m.
Kringlukast:
Skúli Arnarson, ÍR, 37,18 m.
Elías Sveinsson, ÍR, 36,50 m.
Guðni Sigfússon, Á, 35,15 m.
Magnús Þ. Þórðarson, KR, 33,6B
m.
Stefán Jóhannsson, Á, 32,60 m.
Fram vann IBV og
jafntefli hjá KR Val
Hér sázt Kári Arnason, IBA I leik við Englendinga í London, en i
hann er makahæstur í I. deild fyrir leikina í gærkvöldi, 3 mörk.jj
Fram kom, sá og sigraði í
Eyjum í gærkvöldi. Lokatöl-
urnar voru 4:2, en í leikhléi
var jafnt, 1 gegn 1. — Arnar
Guðlaugsson skoraði fyrsta
mark Fram á 35. mín., en Har-
aldur Júlíusson jafnaði tveim-
ur mínútum fyrir hlé. Helgi
Númason, miðherji Fram,
færði Fram aftur forystu, þeg-
ar níu mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik, og Haraldur
Júlíusson jafnaði enn fyrir í
-B V er 21 mínúta var liðin af
hálfleiknum. Leikurinn var
mjög jafn og flestir bjuggust
við jafntefli, en Fram hafði
ekki sagt sitt síðasta orð í
leiknum. Elmar Geirsson, sem
var einn bezti leikmaður Fram
lék á þrjá leikmenn I B V og
skoraði fallegt mark og nokkru
síðar innsiglaði Helgi Núma-
son sigurinn með marki af 25
—30 m. færi. Leikið var allfast
og ákveðið, en ekki gróft. —
Dómari var Guðmundur Har-
aldsson. Margt var áhorfenda,
enda sól og blíða í Eyjum.
í Laugardal léku Valur og
KR og baráttan var hörð, enda
lauk viðureigninni með jafn-
tefli, 2 gegn 2. Ólafur Lárus-
son gerði fyrsta mark leiksins
fyrir KR, en Valsmenn jafna
fyrir hlé. Afíur tók Valur for-
ystuna og þannig hélzt staðan
nærri til leiksloka, en nokkr-
um mínútum áður en leiknum
lauk dæmdi dómarinn Magnús
V. Pétursson vítaspyrnu á Val,
Framhald á 14. síðu._
Í4:'júní 1968 - ÁLt>ÝÐUBLAÐlÐ íi